Morgunblaðið - 11.08.1982, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. ÁGÚST 1982
43
Er unnt að jafna út óæski-
legar sveiflur í laxveiðinni?
Netaveiði Línuveiði Linuveiði Heildarveiði
við Vestur- austur af við Færeyjar í úthafinu
Ár Grænland Jan Mayen
(tonn) (tonn) (tonn) (tonn)
1970 2146 946 12 3104
1971 2689 488 0 3177
1972 2113 506 9 1628
1973 2341 533 28 2902
1974 1917 373 20 2310
1975 2030 475 28 2533
1976 1175 289 40 1504
1977 1420 192 40 1652
1978 984 124 51 1159
1979 1395 118 194 1707
1980 1194 155 718 2067
1981 1264 213 1017 2494
Eftir Einar
Hannesson
Eitt af því athyglisverðasta sem
gerðist í sambandi við laxveiðina
hér á landi tvö sl. sumur var góð
heimta hafbeitarstöðvanna í Lár-
ósi á Snæfellsnesi og í Kollafirði á
laxi. Heimta hjá Lárósstöðinni
var 1981 um 11% af gönguseiðum
frá Kollafirði, sem sleppt var í
Lárósi sumarið 1980.
Skaut þessi góði árangur skökku
við minni laxagengd í árnar 1980
og 1981 en áður. I heild var lax-
veiðin 1981 um 27% lakari en ár-
legt meðaltal 10 ára þar áður og sé
litið tii 20 ára tímabils var veiðin
8% minni 1981. Meðalþyngd á laxi
1980 var sú hæsta sem þekkist hér
á landi eða 9,6 pund. Jafngildir
það 69 þúsund laxa veiði á þunga
7,2 pund, sem er nálægt meðallagi.
Er þetta gildi 7% yfir árlegri með-
alveiði 10 ára fyrir 1980, en 38%
betra sé tekið 20 ára tímabil.
í grein „Laxinn og lögin" eftir
Gunnar Schram, sem birtist hér í
blaðinu fyrir nokkru segir m.a.:
„Það er ekki að undra þótt
margir séu áhyggjufullir vegna
hins mikla samdráttar, sem átt
hefur sér stað síðustu árin í lax-
veiði hér á landi. Á síðasta sumri
veiddist ekki nema lítill hluti með-
alafla í sumum bestu laxveiðiám
landsins og allvíða var aflinn ekki
nema um helmingur þess, sem
hann áður var í meðalári.
Ekki er þessi þróun einungis
áfall fyrir laxveiðimenn og bænd-
ur, heldur hlýtur hún óhjákvæmi-
lega að verða þrándur í götu hinn-
ar nýju atvinnugreinar, hafbeitar-
innar, ef svo fer sem nú horfir. Við
hana hafa miklar vonir verið
bundnar, sem hljóta að bresta, ef
hér verður ekki fljótlega breyting
á.“
Að dómi undirritaðs er hér
djúpt í árinni tekið þó ekki sé
meira sagt, miðað við þær upplýs-
ingar og þá vitneskju sem fyrir
hendi er um þessi málefni. Vissu-
lega er fyllsta ástæða til þess að
ræða þessi mál og vekja athygli á
þróun til verri vegar í laxveiðimál-
um nú um sinn og benda á úrræði.
Hinsvegar þjóna ýkjur í þessu efni
engu nema gera skaða og veikja
málstaðinn.
Hér fer á eftir tafla er sýnir
úthafsveiðar á laxi sl. 12 ár sund-
urliðun á veiðisvæðin:
Yfirlit þetta sýnir, að árleg
meðalveiði á þessu 12 ára tímabili
hefur verið 2.186 tonn. Mest var
úthafsveiðin árið 1971 eða 3.177
tonn og minnst árið 1978 eða 1.159
tonn. Horfur eru á, vegna alþjóð-
legs samkomulags, að veiðin á yf-
irstandandi ári geti orðið nálægt
2.000 tonn og á árinu 1983 innan
við 2.000 tonn. Vonandi tekst að
þrýsta veiðimagninu enn meira
niður á næstu árum.
í fyrrnefndri grein „Laxinn og
lögin" er tekið svo til orða að
heildarveiði á laxi hér á landi hafi
hrapað úr 80.578 löxum árið 1978 í
46.000 laxa árið 1981. Telja verður
hæpið að tala um hrap í þessu
sambandi þar sem toppárið 1978
var einstakt veiðiár. Vitað er að
sveiflur eru í veiði frá ári til árs.
Þannig hefði á sama hátt mátt
tala um hrap eftir árið 1975, sem
var mesta veiðiárið til þess tíma
með 74.004 laxa, en næsta ár gaf
59.633 laxa og árið 1977 64.575
laxa. Árið 1979 veiddist svo til
sami fjöldi laxa og árið fyrir met-
árið 1978 eða 64.228 laxar. í þessu
efni er því eðlilegast að fjalla um
meðaltalstölur yfir skemmra eða
lengra tímabil, svo sem eins og 10
eða 20 ár.
I upphafi þessa spjalls var vikið
að góðum árangri hafbeitarstöðv-
anna í lægðinni, sem verið hefur í
laxveiðinni sl. tvö ár. Það ætti að
gefa vísbendingu um að unnt sé
með gönguseiðum af laxi frá eld-
isstöðvunum að draga úr óæski-
legum sveiflum í laxveiðinni, sem
hvorttveggja má rekja til lakari
náttúrulegra skilyrða og úthafs-
veiða á laxi.
Einar Hannesson
Við bjóðum hinar bráð-
skemmtilegu kvikmyndir
Walt Disneys á Video-
kassettum. Einnig þekkt-
ar ævintýramyndir og
teiknimyndir.
Skemmtun fyrir alla fjöl-
skylduna.
Snffbjörnlícrnsson&Co.hf
HAFNARSTRÆTl 4
SlMI 14281
Munio ad varahlutaþjónusta okkar er i sérflokki
Bifreiðar og Landbúnaðarvélar hf
Suðurlandsbraut
14
Sími
38
600
brýtur verðbólgumúrinn-besta kjarabótin!
Verð
Lada kr. 129.500
Góðir greiðsluskilmálar.
Lada Safír 79.500
Lada 1200 Station uppseldur
Lada Canada 92.000