Morgunblaðið - 11.08.1982, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. ÁGUST 1982
47
félk í
fréttum
Mirja og Giinter meA afVvæmid. Mirja með Alexander Ciaus.
Mir ja og Giinter Sachs eignast barn
+ Milljónamæringurinn Giinter
Sachs varð á sinum tíma frægur
fyrir aó giftast Birgittu Bardot.
Mjónahand þeirra varö ekki sér-
lega langlíft og skömmu eftir að
þau skildu giftist hann sænskri
tískusýningardömu, Mirju að
nafni. Iljónaband Guntcrs og
Mirju er enn við lýði og bendir nú
allt til að það muni endast út yfir
gröf og dauða eins og hjónaböndin
í ævintýrunum gera.
Mirja Sachs er nú orðin 39 ára
gömul og var að eignast annað
barnið sitt nýlega. Hún og elsk-
aður eiginmaður hennar voru á
ferð í Bandaríkjunum þar sem
Alexander Claus litli fæddist
þremur vikum fyrir tímann.
Pjölskyldan er nú aftur komin
heim til sín í Gstaad í Sviss og
segist ekki ætla að eyða vetrin-
um á frönsku rivíerunni eins og
venjulega. „Hér er allt eins full-
komið fyrir barnið eins og hægt
er að hafa það,“ segir Mirja, „og
þess vegna förum við hvergi. Það
er 24 klukkustunda vinna á dag
fyrir mig og Gíinter að vera for-
eldrar."
Barnið var tekið með keisara-
skurði og Gunter kvikmyndaði
athöfnina. Mirja segir að Gunter
hafi lesið bókina „Sálarlíf hinna
ófæddu" meðan hún gekk með
barnið og samkvæmt ráðlegging-
um þeirrar bókar tók Gúnter til
við að tala við barnið á meðan
það var ennþá í móðurkviði. Um
leið og barnið sá dagsins ljós hóf
Gúnter upp raust sína og söng
fyrir það, því samkvæmt bókinni
átti barnið að vera farið að
þekkja rödd föður síns.
Skírnin á að fara fram fyrstu
vikuna í september og skírnar-
vottar hafa þegar verið ákveðnir,
þau Antje Debus og Claus Jaco-
bi.
Mirja gefur Alexander Claus brjóst tvisvar á nóttu.
COSPER
Ég vona bara að litli sonur yðar hafi ekki rumskað við að ég
lagði frakkann minn á rúmið hans.
HÓLAHÁTÍÐ verður nk. sunnudag 15. ágúst og hefst hún með klukkna-
hringingu og skrúðgöngu presta til dómkirkju kl. 13.45.
Hólahátíð á
sunnudaginn
Hátíðarguðsþjónusta hefst kl.
14. Fyrir altari þjóna sr. Birgir
Snæbjörnsson, Akureyri, sr. Vig-
fús Þ. Árnason, Siglufirði, sr.
Þórsteinn Ragnarsson, Miklabæ,
og sr. Sigurður Guðmundsson,
vígslubiskup, Grenjaðarstað. Sr.
Stefán Snævarr, prófastur, Dal-
vík, flytur predikun, kirkjukór
Svarfdæla undir stjórn Ólafs
Tryggvasonar, organista, syngur
og bæn í kórdyrum flytur Guð-
mundur Stefánsson.
Hátíðarsamkoma hefst kl. 16 í
dómkirkjunni. Sr. Árni Sigurðs-
son, form. Hólafélagsins, flytur
ávarp, Anna Þórhallsdóttir syng-
ur einsöng og leikur á langspil, dr.
Broddi Jóhannesson flytur ræðu
og Kirkjukór Svarfdæla syngur.
Sr. Sigurður Guðmundsson,
vígslubiskup flytur ritningarorð
og bæn.
Á sama tíma og hátíðarsam-
koman fer fram verður barnasam-
koma í skólahúsinu í umsjón Stínu
Gísladóttur, æskulýðsfulltrúa.
Kaffiveitingar verða í skólahús-
inu í hléi.
Tölvunámskeið
Byrjendanámskeið
Námskeiðin standa yffir í 2 vikur. Kennt
er 2 stundir á dag virka daga, kl.
17.30—19.30 eöa 20.00—22.00.
Við kennsluna eru notaöar míkrótölvur af algengustu
gerö. Námsefnið er allt á íslensku og ætlaö byrjend-
um sem ekki hafa komið nálægt tölvum áöur.
Á námskeiðunum er kennt m.a.:
Grundvallaratriöi forritunarmálsins BASIC. Fjallað er
um uppbyggingu, notkunarsviö og eiginleika hinna
ýmsu geröa tölva. Kynning á tölvukerfum, hugbúnaöi
og vélbúnaði, sem notuö eru við rekstur fyrirtækja.
TÚLVUSKÚLINN
Skipholti 1. Simi 2 5400
TÖLVUNÁMSKEIÐ
FYRIR RÖRN 9—16 ÁRA
Námskeiðið er hvort tveggja í senn nám
og leikur.
Á daginn læra börnin grundvallaratriöi forritunar-
málsins BASIC og geta aö loknu námskeiöi skrifaö
einföld forrit. Meö aöstoö litskyggna er þeim kynnt
bygging og eiginleikar tölva og tölvukerfa.
Á kvöldin eru leik- og æfingatímar.
Börnin fá viöurkenningarskjal að loknu námskeiöi.
Námskeiöið stendur yfir í 2 vikur, annan hvern dag, 2
tíma í senn, auk frjálsra tíma aö kvöldinu.
Viö kennsluna eru notaðar vandaöar einkatölvur frá
ATARI meö lit og hljóöi.
TDLVUSKÓLINN
SkLpholti 1. Simi 2 54 00