Morgunblaðið - 07.10.1982, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.10.1982, Blaðsíða 1
56 SÍÐUR 222. tbl. 69. árg. FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1982 Prentsmiðja Morgunblaðsins Svíar leita kaf- bátsins ákaft Krá fréttaritara Mbl. í Stokkhólmi, (iuófinnu Kagnarsdóttur, 6. október. ERLENDI KAFBÁTURINN þraukar enn í kafi í sænska skerjagarðinum aðeins nokkur hundruð metra frá aðal- bækistöð sænska flotans. En spennan eykst og djúp- sprengjurnar falla hver af annarri. Leitin hefur staðið yfir í allan dag af miklum krafti með aðstoð þyrla, kafbáta, herskipa og varðskipa sem vaka yfir hverri hreyfingu í firðinum, en kafbát- urinn laetur ekki á sér kraela. Þó urðu leitarmenn varir við hreyf- ingu í dag sem þeir telja vera frá kafbátnum, en hljóðnemar þyrl- anna sem svífa yfir firðinum eru svo naemir, að talið er að áhöfn kafbátsins verði að hafa mjög hljótt um sig inni í bátnum ef ekki á að heyrast til hennar. send eru út frá raunverulegum kafbátum til að villa fyrir. Flestir hallast þó að því að hér sé um að ræða kafbát sem e.t.v. er sérstaklega sterklega byggður og þolir þrýstinginn frá sprengj- unum og það liggur í loftinu að hér sé um að ræða rússneskan kafbát. Leitin heldur nú áfram í alla nótt og er blaðið fór í prentun var hann ekki kominn upp á yf- irborðið. Sænskar herþyrlur sveima stöðugt yfir skerjagarðinum þar sem álitið er að kafbáturinn haldi sig. Talið er að kafbáturinn fái til- kynningar um leitina og það sem gerist ofansjávar með sérstökum senditækjum, svo varnarmála- ráð og vfirmenn hersins eru fremur sparir á upplýsingar um gang mála. Kafbáturinn hefur nú trúlcga verið í kafi í fimm daga og ætti því að þurfa að komast upp á yfirborðið fljótlega til að ná í súrefni og til að hlaða geymana. Öll sænska þjóðin fylgist með leitinni og á annað hundrað blaðamenn, erlendir og innlend- ir, bíða nótt og dag við fjörðinn. Herfylkingar hafa verið flutt- ar á staðinn til að vera til taks ef á þarf að halda og allar varnir i ríkisins voru í dag settar í við-' bragðsstöðu. Sjúkrahús í ná- grenninu eru einnig viðbúin að taka við slösuðum. Margir furða sig á því nú, að kafbáturinn skuli hafa staðið af sér allar djúpsprengjurnar og | ýmsar raddir eru nú uppi um að hér sé ef til vill um „gabbkafbát" ! að ræða, þ.e.a.s. kafþátalíki sem Pólland: Stjórnvöld þjarma enn að Samstöðu Yarsjá, Pollandi, 6. október. AP. ENN VORIJ auknar öryggisráðstafanir í höfuðborginni í dag og yfírvöld í landinu héldu uppteknum hætti að ráðast gegn starfsemi óháðu verkalýðsfélag- anna Samstöðu. Málgagn hersins, dagblaðið Zolniers Wolnosci, sakaði í dag Samstöðu um að hafa mistekist það stjórnunarstarf er hún tók sér á hendur og hafí með þeim hætti neytt kommúnista Þessar nýju ásakanir á Samstöðu koma í kjölfar handtöku á einum helsta leiðtoga hennar og settar voru sérþjálfaðar hersveitir í mið- borgina í dag, sem sýnir ótta yfir- valda við óeirðir, er ný verkalýðs- lög verða samþykkt um helgina, en þau banna starfsemi Samstöðu. Tilkynningin um handtöku verkalýðsleiðtogans Wladyslaw Frasyniuk hefur verið túlkuð af flestum fréttaskýrendum sem til að grafa undan starfsemi hennar. skýrt merki þess að yfirvöld væru nú ákveðin í því að komast fyrir starfsemi óháðu verkalýðsfélag- anna í eitt skipti fyrir öll og því gífurlegt áfall fyrir Samstöðu. Stjórnvöld tilkynntu um hand- töku verkalýðsleiðtogans seint í gærkvöld, aðeins nokkrum klukku- stundum eftir að erkibiskupinn Jozef Glemp hafði frestað för sinni til fundar við páfa og til Bandaríkj- anna vegna ótta við vaxandi átök í landinu samfara samþykkt nýju verkalýðslaganna. Páfi sendi Jozef Glemp síðan orðsendingu í dag þar sem hann segist skilja þá ákvörðun hans að yfirgefa ekki föðurland sitt vegna ástands mála þar og var orðsend- ing hans túlkuð sem aðvörun til yf- irvalda og Samstöðu varðandi hugsanlegar óeirðir um helgina. Einnig var tilkynnt í Póllandi í dag að sovésk stjórnvöld hafi ákveðið að senda aukaskammta af korni og kartöflum til landsins í vetur og væri pólska þjóðin þeim gífurlega þakklát. Beirút: Líbanski her- inn leitar vopna og glæpamanna Beirút, Jerúsalem, 6. október. AP. I.ÍBANSKI herinn handtók í dag fjölda manna, en það er annar dagurinn sem slíkt er gert. Þetta er liður i þeirri tilraun stjórnvalda að hreinsa Beirút af byssum og vopnabirgðum, og handtaka glæpamenn og vinstrisinna og koma ólöglegum útlendingum úr landi. „Við verðum að hreinsa öll vopn úr Beirút," sagði talsmað- ur varnarmálaráðherra, Tor- bay, og bætti við: „Við verðum að vita hverjir eru í borginni til þess að geta verndað íbúa henn- ar, en verkefni þetta mun taka dálítinn tíma.“ Torbay kvaðst ekki vita hversu margir hefðu verið handteknir í dag eða hvert hefði verið farið með þá, en í tilkynn- ingu frá hernum í kvöld segir að alls hafi 200 manns verið hand- teknir síðastliðna tvo daga þar á meðal 35 Líbanir sem eru eft- irlýstir fyrir ákveðna glæpi og 165 útlendingar með ófullnægj- andi skilríki. Óstaðfestar fregn- ir úr lögreglunni herma hins vegar að 250 manns hafi verið handteknir í dag. Alþjóðlegu friðargæslusveit- irnar báðu Amin Gemayel for- seta Líbanon um upplýsingar varðandi þessar handtökur á laugardag, upplýsti sendiherra Ítalíu í Líbanon í dag, en þær munu hafa haft áhyggjur af framkvæmd þessari. Handtök- urnar í dag munu allar hafa farið fram á svæði sem ítalska friðargæsluliðið hefur umsjón með. Sendimaður Bandaríkja- stjórnar, Morris Draper, hefur tjáð ísraelskum yfirvöldum að Sýrlendingar séu ekki sáttir við það að herlið þjóðanna tveggja verði á brott samtímis frá Líb- anon og að þeir krefjist þess að Israelar verði á brott með her- lið sitt á undan þeim, er haft eftir ísraelskum yfirvöldum í dag. Koblenz: Ræningjarnir komust undan Koblenz, Yfsiur Pýskalandi. AP. TVEIR GRÍMl KLÆDDIK og vopnaöir menn hurfu i dag með lausnargjald aö upphæö einni milljón marka eftir að hafa sleppt ellefu gíslum ng háö skotbar- daga við lögregluna. Þeir komust undan í bifreið er yfirvöld höföu látið þeim í té og skýldu sér meö gíslum er þeir yfirgáfu bankabygginguna. Einn gíslanna særðist meðan á umsátrinu stóð, en það hófst er tveir menn vopnaðir byssum tóku ellefu gísla í banka nokkrum og héldu þeim þar í fimmtán klukku- stundir og lögreglunni fyrir utan. Umsátrinu lauk síðan með miklum skotbardaga þar sem bifreiðir lög- reglunnar skemmdust mikið og byssumennirnir sluppu. Þrátt fyrir leit gífurlegs fjölda lögreglumanna jafnt úr lofti sem landi hefur ekkert komið fram sem bendir til þess hvar þá sé að finna, en þeir komust sem fyrr segir und- an með milljón marka lausnar- gjaldið árla í morgun, en þeir höfðu fengið greiðsluna í hendur seint í gærkvöldi. Gíslarnir voru allir látnir lausir klukkan sjö í morgun, en einn þeirra var lagður inn á sjúkrahús vegna skotsára. Gífurlegur eltingarleikur hófst fyrst eftir að byssumennirnir höfðu yfirgefið bankann, en lögreglan missti mjög fljótlega sjónar á bif- reið þeirra, en hún fannst síðar yf- irgefin og þykir ljóst að þeir hafi stolið annarri til að nota í hennar stað til að verða síður þekkjanlegir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.