Morgunblaðið - 07.10.1982, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 07.10.1982, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1982 23 írakar, segjast hafa fellt 2.200 Irana á einni nóttu IIIN OPINBERA fréttastofa frak (Ina) sagði í kvöld, að íraksher hefði hrundið nýjum árásum íransher á miðri víglínu ríkjanna i dag, og hefðu 2,352 íranskir hermenn verið felldir, og fjölmargir hafi særst eða verið teknir til fanga. Yfirvöld í íran hafa ekki viljað fjalla um þessa at- burði. Fréttastofan sagði þyrlur og orrustuþotur samtals hafa farið í 214 árásarferðir gegn írönskum sveitum, sem reynt hefðu að brjót- ast inn á írakst yfirráðasvæði við borgina Mandali. Átökin hófust klukkan 22,30 að staðartíma á þriðjudagskvöld, eða kl. 19,30 að íslenzkum tíma og linnti ekki fyrr en eftir birtingu í morgun. Á þriðjudag héldu írakar því fram, að þeir hefðu fellt eða sært 2,540 íranska hermenn í fii " daga átökum við Sumar í ves< hluta íran. Til átakanna kom er Iranir reyndu að ná undir sig hernaðarlega mikilvægum hæð- um, þaðan sem útsýni er yfir landamærin. Segjast íranir hafa náð hæðunum undir sig. Ina sagði að Saddam Hussein forseti hefði sjálfur stjórnað gagnárásinni í nótt. Hefðu árás- arsveitirnar verið „þurrkaðar út“, en nokkrir hermenn'hefðu komist undan á flótta. íranir hafa tilkynnt Javier Per- ez de Cuellar framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, að þeir muni ekki taka þátt í tilraunum Öryggisráðsins til að binda endi á stríð írana og íraka, að því er blaðamaður hafði eftir Rajaie Khorassani sendiherra írana hjá SÞ._________________ Hækkandi gullverð l/ondon, 6. október. Al*. GDLLVERÐ hækkaði í dag á nýjan leik og komst yfir 400 doll- ara hver únsa. Bandarikjadollar féll hins vegar lítillega frá því, sem var á þriðjudag, en þá hafði hann verið í hærra verði en nokkru sinni á síðustu 12 árum. Ástæðan fyrir lækkandi verði dollarans var lægri vextir. Sterlingspund aftur á móti hækkaði í verði um eitt cent. Finnska markið fellt llelsingfors, 6. október. Al*. FINNSKI seðlabankinn lækkaði I dag gengi finnska marksins um 4% gagnvart erlendri mynt í því skyni að efla samkeppnishæfni finnsks út- flutningsiðnaðar. Er gengi finnska marksins nú 5,079 á móti einum Bandaríkjadollar í stað 4,881 áður. Rolf Kullberg, varaforseti stjórnar finnska seðlabankans, sagði í dag, að þessi gengislækkun væri nógu mikil að svo komnu fyrir útflutningsiðnaðinn en ekki það mikil, að hún yrði til þess að kalla fram gagnaðgerðir annars staðar. — Tíminn nú var valinn með tilliti til þess, að sænska stjórnin kann að grípa til ein- hverra aðgerða í peningamálum, sagði Kullberg. Hann bætti því við, að þrátt fyrir sæmilega já- kvæða þróun varðandi viðskipta- jöfnuðinn við útlönd, þá hefði gengið á gjaldeyrisforða Finna og orðið hefði að taka lán erlendis. Þing Ihaldsflokksins: Halda verður áfram sömu efnahagsstefnu Krighton, 6.október.AP. SIR GEOFFREY Howe fjármala- ráðherra sagði í ræðu á þingi íhaldsflokksins í dag, að flokkur- inn myndi ekki reyna að kaupa sér atkvæði við næstu kosningar með skattalækkunum, heldur væri EDWARD L. Rowny, fulltrúi Bandaríkjanna, og Viktor P. Karp- ov, fulltrúi Sovétríkjanna, hófu í dag að nýju viðræður í Genf um gagnkvæma fækkun á langdræg- um kjarnaeldflaugum, en viðræð- um þessum var frestað um miðjan ágúst sl. Rowny sagði fyrir upphaf fundarins, að hann hefði um það fyrirmæli frá Reagan Banda- ríkjaforseta að hraða eins og unnt væri öllum viðræðum í samkomulagsátt. — Sovézka stjórnin veit, að áætlun sú, sem við höfum lagt fram, er góð, sagði Rowny í dag. Hann bætti nauðsynlegt að halda áfram þeim hörðu efnahagsaðgerðum, sem stjórn Margaret Thatcher hefði staðið fyrir frá því hún komst til valda eftir kosningar í maí 1979. Howe þakkaði það aðgerðum því við, að einstök atriði þessar- ar áætlunar yrðu kynnt opin- berlega síðar á þessu hausti, en samkvæmt henni á að fækka kjarnaeldflaugum úr 7.500 hjá báðum þessum stórveldum í 5.000 og af þessum fjölda á ekki nema helmingurinn að vera staðsettur á landi. Haft var eftir áreiðanlegum heimildum í bandaríska utanrík- isráðuneytinu í dag, að ástæða væri til nokkurrar bjartsýni í þessum efnum, en ennþá væri þó „löng leið ófarin", þar til sam- komulag næðist á þessum vett- vangi. st.jórnar Thatcher að Bretland væri ekki lengur vesælasta Evr- ópuríkið. Hann spáði því að verðbólga yrði komin niður í 6,5% við næstu áramót, en hún er nú 8% og komst hæst í 21,9% ári eftir að Thatcher komst til valda. „Bandaríkin, Vestur-Þýzka- land og Japan eiga við minni verðbólgu að stríða, en við ætl- um að komast niður fyrir þessi ríki,“ sagði hann við fögnuð fundarmanna. Hann sagði að hagvöxtur væri nánast enginn í hinum vestræna heimi, og ástandið væri sízt betra handan járntjalds, því ríkin þar stæðu nú í röðum og bæðu um aðstoð vestan frá. Howe sagði að svar við efna- hagsörðugleikum lægi ekki í út- gjaldaaukningu hins opinbera og erlendum lántökum, heldur að- haldi í peningamálum og baráttu gegn verðbólgu. Á þinginu var staðfest að stjórnin hefur í hyggju að selja hlut sinn í olíuvinnslufyrirtæk- inu Britoil, sem vinnur olíu úr Norðursjó. Hlutur stjórnarinnar er 51% og er talið að 600 milljón- ir sterlingspunda komi í ríkis- sjóð með því að selja fyrirtækið einkafyrirtækjum. Kjarnaflaugum fækki verulega Viðræður hafnar í Genf Genf, 6. október. AP. 1000.- krónurút! Philipseldavélar Viö erum sveigjanlegir i samningum heimilistæki hf. HAFNARSTRÆTI 3 - 20455 - SÆTÚNI 8 -15655 SPECK Lensi-, slor-, skolp-, sjó-, vatns- og holræsa-dælur. Útvegum einnig dælu- sett með raf-, Bensín- og Diesel véium. SSyoHatLogiiuir «j)&inMon & Vesturgötu 16, sími 13280 Lækkað verð Nokkrum bílum óráöstafaö 5 gíra EX var kr. 210.000.-. 5 gíra EX nú kr. 193.000.-. Ath.: Gengisskráning 5.10 '82. 5 g,'ra vaf fc,- 163.500.-. 5 gíra nú kr. 153.000.-. Sjálfskiptur var kr. 168.000.-. Sjálfskiptur EX var kr. 216.000.- Sjálfskiptur nú kr. 157.000.-. Sjálfskiptur EX nú kr. 198.000.-. H0NDA Á ÍSLANDI Vatnagöröum 24, sími 38772

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.