Morgunblaðið - 07.10.1982, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 07.10.1982, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1982 31 fT'~' '* • Svar til Hauks Hjaltasonar * Eftir dr. Jón Ottar Ragnarsson fyrir hönd Neytendasamtakanna DR. JÓN Óttar Ragnarsson dósent fyrir hönd Neytendasamtakanna. Ég vil fyrst þakka Hauki Hjaltasyni fyrir þann áhuga og þá auglýsingu sem hann hefur kosið aö gefa Neytendasamtökunum fyrir það framtak þeirra að fram- kvæma skyndikönnun á hamborg- urum. l‘að er mikið í húfi fyrir íslenska neytendur að þeir fái sem besUr upplýsingar um þær vörur sem þeir þurfa að kaupa. Kannanir af þessu Ugi eru eitt tæki til þess. Því miður kemur ekkert fram í löngu bréfi bréfritara er hægt er að flokka undir annmarka á þess- ari rannsókn. Er þó ljóst að engin rannsókn getur talist fullkomin. Til þess að lesendur geti áttað sig á því um hvað málið snýst hef ég kosið að svara hverju einstöku atriði í bréfi Hauks og þá í sömu röð og hann raðar þeim. 1. Aðeins við bragðprófun var fæð- an snögghituð áður í örbylgju- ofni. Að þetta geri það að verk- um að könnun sé ómarktæk er rangt vegna þess að hér er verið að meta innbyrðis bragðgæði og allir hamborgarar hlutu sömu meðferð. Auk þess ofmetur bréfritari eyðingarmátt örbylgjuhitunar. Loks skal tekið fram að þessi þáttur var ekki metinn með í heildareinkunn. Flóttamenn frá Salva- dor farast ICdinborf;, Teiu, 5. október. Al*. FJORIR menn frá El Salvador köfnuðu og tólf aðrir eru of máttfarnir til gangs eftir að hafa verið lokaðir inni í traktorsvagni ■ ólöglegri ferð frá landamærum Mexíkó, segja yfirvöld í dag. Yfirvöld segja að meðal mannanna hafi verið 14 ára gamall drengur og tvær 15 ára gamlar stúlkur sem borguðu 1500 dollara hvert fyrir það að verða smyglað til Bandaríkj- anna. Þeir sem að þessari ólöglegu ferð stóðu höfðu skilið hina látnu og veikburða eftir í vagninum og tekið hina sem höfðu þrek til að ganga í ann- an vagn ásamt fleiri mönnum frá E1 Salvador og haldið áfram förinni. Einnig munu þeir hafa reynt að kveikja í vagninum, en ekki orðið ágengt. 2. Að könnun sé ómarktæk vegna þess að ekki kom fram hvaða hráefni voru notuð er rangt. Ástæðan er einfaldlega sú að tilgangur mælingar á nær- ingargildi var einmitt að meta þennan þátt. Virðist könnun staðfesta það þvi a.m.k. sumir þeirra staða sem nota léleg hrá- efni fá léglegasta útkomu í næringargildi. 3. Að fitumæling sé ómarktæk vegna þess að hamborgararnir eru mismunandi steiktir, er rangt og sýnir ennþá betur hve lítið bréfritari botnar í því sem um er að vera. Það er einmitt tilgangurinn með svona könnun að meta hve mikla fitu neytand- inn fær í kaupunum. 4. Að upphitun í geislaofni valdi seigju í því efni sem hitað er og stórskaði gæðin er algerlega óviðkomandi þessu máli, sbr. 1. lið. 5. Að það sé galli á könnuninni að aðeins voru prófuð gæði ham- borgarans sjálfs er rangt. Kjöt- ið er dýrasti hlutinn og auðvelt um vik að kæfa bragðgæðin í sósum, brauði o.fl. Auk þess var skýrt tekið fram í niðurstöðum að aðeins voru metin bragðgæði kjötsins. 6. Að kjötgæði hamborgara njóti sín best nýsteikt er óviðkomandi þcssari könnun. Hugmyndir bréfritara um „betri" könnun sýnir enn betur hve lítið hann áttar sig á starf- semi rannsóknafólks. Til þess að könnun af þessu tagi geti tekist þarf hún að hitta í mark en ekki vera sniðin eftir hags- munum framleiðenda eða selj- enda. Það má benda á það lesend- um til fróðleiks að kannanir af þessu tagi hafa alltaf einhverja annmarka. Svo einkennilega vill þó til að bréfritara tókst ekki að finna neina þá veilu á þessari könnun sem máli skipt- ir. leöurséfasett án þess að skoða mesta úrval landsins Gefðu þér góðan tima því það er svo margt að sjá HÚSGÖGN *»U ÞARFT EKKI AÐ FARA ANNAÐ HDSGACNAHÖLLIN BlLDSHÖFOA 20.110 REYKJAVlK W 91-8119« 09 01410 LMHSNONIISTA okkar pakkar og aendlr hvert * land sem er. í sime 91-8*410 fssrðu upplysingar bm verft, gaeftl og efborgunerk|ör. Komnar teinamöppur fyrír eftirfarandi tímarit: (jcstgjaíinn nnfeaRnWfun lOfflTiTOQl.l IIMAKII UM MAI SKKNIT UMFJOI.SK VUMNAOf.llMMIUi) burdo ./:rt í&'WMM wmm GÖG &GOKKE T«ZANS Fást í öllum bókaverslunum iÉEÍ u UB Sími: 53948

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.