Morgunblaðið - 07.10.1982, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 07.10.1982, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1982 FERÐATÖSKUR SKJALATÖSKUR SNYRTITÖSKUR Nýjar uppskriftir ék /llafossbúöin VESTURGOTU 2 - SIMI 13404 Vorum aö fá 22 ný|ar uppskriftir og nýja liti í hand- prjónabandinu. Borgarfjörður eystri: Skólanefnd hafnaði manni með kennsluréttindi Réttindalaus kennari skipaður Borgarfírði eystri, 5. október. IIER i Rorgarfirði hefur verið mikil vinna í sumar, svo segja má að skortur hafi verið á vinnuafii. Hraðrrystihúsið hefur verið starf- rækt og nægilegt hráefni borist og jafnvel meira en það. Svo þegar slátrunin hófst, gat það ekki tekið lengur á móti fiski, en bátar hafa fiskað í salt síðan. I'egar slátrun var langt komin, þá tók síldin við og í gær barst fyrsta söltunarsíldin á land, þegar Erlingur RE og Jón Jónsson SH lögðu hér upp 130 tunnur. Hafin er kennsla í grunnskóla Borgarfjarðar og verða nemend- ur í honum 20 í vetur. Skóla- stjóri er eins og tvo undanfarna vetur Auðunn Bragi Sveinsson og er það mikils virði fyrir skól- ann, því sífelld skólastjóra- og kennaraskipti eru mjög óæski- leg fyrir nemendur. Hins vegar hefur gengið lakar að fá kenn- ara og leit lengi vel út fyrir að enginn myndi kæra sig um það starf, en að lokum sótti þó um kennarastarfið kennaraskóla- genginn maður með full kennsluréttindi, en vegna órökstudds orðróms, sem enginn vissi hver var höfundur að, mælti skólanefndin gegn honum og einhvern veginn komst sá kvittur á kreik að foreldrar myndu ekki láta börn sín í skól- ann, ef fyrrnefndur umsækjandi hlyti stöðuna. Raunar er þetta því miður ekki í fyrsta skipti sem álíka órökstuddar sögur hafa fylgt umsóknum ókunnugra kennara hingað í Borgarfjörð, en reynsl- an svo sannað tilhæfuleysi þeirra. En allt um það, þá varð niðurstaðan sú að réttinda- manninum var hafnað þrátt fyrir meðmæli skólastjórans hér og stúlka hér í þorpinu, rétt- indalaus, hlaut starfið og er ekki laust við að manni finnist slík ráðstöfun kynleg á þeim tímum, þegar réttindafólk er talið eiga að ganga fyrir og ekki hvað síst í skólamálum og undarleg er af- staða þeirra manna, sem með menntamálin fara, hvort sem þeir nú kallast fræðslustjórar, deildarstjórar eða ráðherrar, ef þeir láta skólanefndir skipa sér fyrir verkum, þótt með því séu gefin slæm fordæmi. Maður hélt að reglan væri sú þegar ókunn- ugir menn sækja um störf, að þeir fengju tækifæri til að sýna hvort þeir væru hæfir í þau eða ekki, í stað þess að sæta fyrir- fram fordæmingu og sú spurn- ing hlýtur því að vakna, til hvers sé þá að afla sér kennslu- réttinda með áralangri skóla- göngu, ef þau reynast svo gagns- laus þegar á hólminn kemur. En enda þótt mörgum hljóti að virðast þessi stöðuveiting vafa- söm, þá felst þó í þeirri afstöðu alls ekkert vantraust á hina nýráðnu kennslukonu. Við von- um að hún, þótt reynslulaus sé, reynist vandanum vaxin og við óskum henni og skólanum góðs árangurs í kennslustarfinu. — Sverrir Haraldsson. Flugdýra- fagnaður FLUGDÝRAFAGNAÐUR svonefnd- ur verrtur haldinn að Hótel Loftleið- um (ostudagskvöldið 8. október, en þar er um að ræða samkomu ýmissa þeirra er starfa við eða „snudda'* I kringum flugið á einn eða annan hátt. Flugdýrafagnaður var síðast haldinn 1979, en venjulega er efnt til þessa fagnaðar að haustlagi. Þar koma m.a. saman atvinnu- flugmenn og einkaflugmenn, flug- umferðarstjórar, flugvirkjar, flugkennarar, rútubílstjórar, skrifstofufólk og ýmsir þeir aðrir sem ýmist hafa af því atvinnu eða áhuga að snudda í kringum flugið. Fagnaðurinn er venjulega í léttum tón, einkum þegar á kvöldið líður og ýmsir gesta reyna að upphefja lögmál flugfræðinnar. Lionsklúbb- ur Akraness selur perur á föstudag NÚ Á næstunni mun Lions- klúbbur Akraness afhenda Sjúkrahúsinu að gjöf svokallað sónartæki, en það er tæki til inn- vortis myndatöku, sjúklingum al- gjörlega að skaðlausu. Tækið er mikið notað til að mynda fóstur. Perusala Lionsklúbbsins nú í ár er lokaátakið við fjármögnun á kaupum á tækinu, sem kostar um 200.000 krónur. Lionsklúbb- urinn treystir nú sem endranær á góðar viðtökur föstudaginn 8. október, er Lionsfélagar ganga í hús og bjóða perurnar til sölu. Lionsklúbbur Akraness Prentvilla í nafni PRENTVILLA varð í nafni einnar kvennanna sem skrifuðu undir Friðarávarp í blaðinu í gær. Hún heitir Guðlaug Pétursdóttir, ekki Pálsdóttir. Kommandör Martin Högberg og Cunhild Högberg. Nýr umdæmisstjóri Hjálpræðishersins KOMMANDÖR Martin Högberg, nýr umdæmisstjóri Hjálpræðishers- ins, kemur til íslands á morgun og mun ásamt konu sinni, Gunhild, dvelja hér á landi eina viku. Þau raunu kynna sér starf Hjálpræðis- hersins hér á landi, taia á almennum samkomum auk þess sem þau munu sitja ráðstefnu sem verður haldin hér í Reykjavik ásamt öllum foringj- um Hjálpræðishersins hér á landi og í Færeyjum. í frétt frá Hjálpræðishernum segir, að Kommandörinn hafi starfað fyrir Hjálpræðisherinn víða um heim. Hann er sænskur og hefur haft mörg embætti í Sví- þjóð, m.a. verið túlkur enskumæl- andi yfirforingja, ritstjóri Her- ópsins, herskóiastjóri og einnig aðalritari Hjálpræðishersins. Hann hefur einnig verið næst- æðsti yfirmaður Hjálpræðis- hersins í Sviss og skólastjóri al- þjóðlega foringjaskóla hersins í Lundúnaborg. Konan hans, Gunhild, er einnig sænsk. Þau hjón munu tala á almenn- um samkomum í Reykjavík, í Herkastalanum, föstudaginn 8. okt. og þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag, 12.—14. okt., alla dag- ana kl. 20.30. Auk þess munu for- ingjar frá Færeyjum og utan af landi taka þátt í samkomunum 12.—14. október. Á Akureyri verða haldnar samkomur laugardag og sunnudag kl. 20.30, einnig verður fjölskylduguðsþjónusta á sunnu- deginum kl. 13.30. Austurbæjarbío: Námuvinnsla í geimnum AUSTURBÆJARBÍÓ hefur hafið sýningar á bandarískri kvikmynd sem heitir Geimstöðin og leikur Sean Connery aðalhlutverkið. Myndin segir af málm- vinnslu jarðarbúa á fjarlægum stjörnum og viðureign yfir- manns lögreglunnar þar við eigendur námafyrirtækisins sem svífast einskis til að fá sem mest afköst við námu- vinnsluna. Leikstjóri er Peter Hyams og er hann einnig höfundur hand- rits.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.