Morgunblaðið - 07.10.1982, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. OKTÓBER 1982
II
„Islendingarnir gætu
velgt okkur undir uggum“
„Leikurinn gegn íslandi verdur
erfiður, þeir hafa náð góðum úr-
slitum í gegnum árin, sigrað
Austur-Þýskaland og gert jafn-
tefli gegn Hollandi og Walea svo
eitthvað sé nefnt. Viö verðum þó
aö leika til sigurs, verðum að
tryggja okkur baaði stigin þar
sem við biöum ósigur gegn Hol-
Liam Brady, besti leikmaður fra,
leikur með ítalska liöinu Samp-
doria. Hann lék ekki með liöinu
um síðustu helgi, var meiddur, og
óvíst er hvort hann gati leikiö
með gegn íslandi.
landi í fyrsta leik okkar,“ sagði
Eoin Hand, landsliösþjálfari ír-
lands í samtali viö fréttastofu AP
í gær, en hann tilkynnti þá lands-
liðshópinn sem írar tefla fram
gegn íslandi á miðvikudaginn.
Hand bætti viö: „írsku knatt-
spyrnuáhangendurnir mega ekki
gera sér of mikiar vonir, fslend-
ingarnir eru harðir jaxlar og fráir
á fæti, þeir gætu hæglega velgt
okkur undir uggum." Hópinn
skipa eftirtaldir leikmenn:
Markveröir: Jim McDonagh
Bolton, Jim Bonner Celtic og
Gerry Peyton Fulham.
Varnarmenn: Kevin Moran
Manchester Utd., Dave Langan
Birmingham, Mark Lawrenson Liv-
erpool, Chris Houghton Totten-
ham, David O'Leary Arsenal.
Miövallarleikmenn: Ronnie
Whelan Liverpool, Mick Martin
Newcastle, Mick Walsh Norwich,
Tony Galvin Tottenham, Tony
Grealish Brighton, Gary Waddock
QPR, Gerry Daly Coventry og Liam
Brady Sampdoria.
Framherjar: Frank Stapleton
Manchester Utd., Ashley Grimes
Manchester Utd., Mick Robinson
Brighton, Kevin O’Callaghan Ips-
wich, Kevin Sheedy Everton og
Mick Walsh Oporto.
Af þeim sem nefndir eru, er
óvíst hvort aö Galvin eöa Brady
geta leikiö. Fremur ólíklegt aö
Galvin leiki, en meiri likur á hinum.
Brady þykir sem kunnugt er af-
buröamaöur á miöjunni og skiptir
miklu máli fyrir island hvort hann
leikur meö eöa ekki.
Sex atvinnumenn
með gegn írum
— tveir landsleikir í Evrópu-
keppni landsliöa framundan
— Ég get ekki sagt aö ég sé
bjartsýnn á þá landsleiki sem eru
framundan. Þetta eru hvorir
tveggja mjög erfiöir leikir og þess
ber aö gæta að viö leikum á úti-
velli. Ég sá liö fra gegn Hollend-
ingum og þeir eru mjög sterkir,
og verða örugglega erfiöir heim
aö sækja. Nú, allir vita aö Spán-
verjar eru með sterkt liö og eru
jafnan sérstaklega erfiöir á
heimavelli. Báðar þessar þjóðir
munu leggja allt í sölurnar til
þess aö vinna ísland á heimavelli
sínum og ná sér þannig í dýrmæt
stig í riölinum, sagöi Jóhannes
Atlason landsliðsþjálfari er Mbl.
spjallaöí viö hann í gærdag. En
eins og skýrt hefur verið frá þá
leika Islendingar tvo landsleiki
nú í október í Evrópukeppni
landsliða. Fyrri leikurinn er gegn
írum í Dublin næstkomandi miö-
vikudag. En leikurinn gegn
Spánverjum fer fram 27. október
í Malaga.
Landsliðsnefnd KSÍ hefur valiö
landsliöshópinn og i honum eru
sex atvinnumenn. En 16 manna
hópinn skipa eftirtaldir leikmenn:
Þorsteinn Bjarnason IBK
Guömundur Baldursson Fram
Arnór Guöjohnsen Lokeren
Atli Eðvaldsson Fortuna Dusseld.
Lárus Guömundsson Waterschel
Pétur Ormslev Fortuna Dusseld.
Pétur Pétursson Antwerpen
Sævar Jónsson C.S. Brúgge
Örn Óskarsson IBV
ÓmarTorfason Víkingur
Marteinn Geirsson Fram
Ólafur Björnsson UBK
Siguröur Lárusson lA
Viðar Halldórsson FH
Gunnar Gíslason KA
Ragnar Margeirsson ÍBK
Jóhannes sagöi aö þessi sami
kjarni yröí líka valinn í síöari leikinn
sem er gegn Spánverjum. Þeir
leikmenn sem eru hér heima hafa
æft vel nú síðustu daga, en hópur-
inn fer utan á mánudag til London
og þaöan beint til Dublin. Þeir sem
búa ytra koma til móts viö hópinn í
London.
- ÞR.
Janus gefur
ekki kost
á sér
— Ég hef ákveöiö aö gefa ekki
kost á mér i landsliöshópinn í
knattspyrnu, þar sem ég hef aö
undanförnu átt við þrálát bak-
meiösli aö stríöa og ekki náð mér
fullkomlega af þeim, sagöi Janus
Guölaugsson er hann var inntur
eftir því af hverju hann heföi ekki
gefið kost á sér í landsleiki þá
sem framundan eru. Janus hefur
í undanförnum landsleikjum
okkar veriö einn traustasti og
besti leikmaöur íslenska liösins
og því verður skarö fyrir skildí aö
hann skuli ekki geta leikiö meö.
Þá er útilokaö aö Ásgeir Sigur-
vinsson veröi meö vegna meiðsla
þeirra sem hann á viö aö stríöa.
Jafnframt óskaöi Karl Þóröarson
eftir því að fá leyfi frá leikjunum
vegna þess aö liö hans er aö leika
um svipaö leyti.
— ÞR
Markahæstu leikmenn og
markakóngar 1. deildar
• Markahæstu leikmenn í ensku
knattspyrnunni fyrir leiki helgar-
innar eru nú þessir. i 1. deild:
mörk
Luther Blisset, Watford 10
Brian Stein, Luton 8
Garth Crooks, Tottenham 7
John Deehan, Norwich 7
Bob Latchford, Swansea 7
2. deild:
Kevin Drinkell, Grimsby 9
Gary Bannister, Sheffield 7
Kevin Keegan, Newcastle 7
Mikíl keppni er jafnan um þaö
hver veröur markakóngur 1.
deildar ensku knattspyrnunnar
hverju sinni. Hér aö neöan er listi
yfir markakónga deildarinnar frá
árinu 1971—72:
1971- 72 Francis Laa (Man. City) 33
1972- 73 Brian Robaon (Weat Ham) 28
1973- 74 Mike Channon (Southampton) 21
1974- 75 Malcolm MacDonald (Newcastle) 21
1975- 76 Ted MacDougall (Norwich) 23
1976- 77 Andy Gray (Aston Villa) 25
Malcolm MacDonald (Arsenal) 25
1977- 78 Bob Latchford (Everton) 30
1978- 79 Frank Worthington (Bolton) 24
1979- 80 Phil Boyer (Southampton) 23
1980- 81 Steve Archibald (Spurs) 20
Peter Withe (Aston Villa) 20
1981- 82 Kevin Keegan (Southampton) 26
— ÞR
47
Firmakeppni Gróttu
í knattspyrnu innanhúss veröur í íþróttahúsi Seltjarn-
arness helgarnar 16. og 17., og 23. og 24. okt. Keppt
verður um Gróttubikarinn sem nú er í vörslu Pósts og
síma. Þátttökugjald er kr. 1.000. Þátttaka tilkynnist í
síma 25769 milli kl. 13 og 15 (Sigrún).
Knattspyrnudeild Gróttu.
Viðtalstími borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík
Laugardaginn 9. október veröa til viötals Vilhjálmur
Vilhjálmsson og Málhildur Angantýsdóttir.
BMW 728
ÍÞRÓTTASKÓR
STENZEL UNIVERSAL kr. 625,-
HANDBALL SPURT kr. 723,-
ARGENTINA kr. 417,-
PELE JUNIOR kr. 296.-
HEYNCKES STAR kr. 495 -
Þetta er bara smásýnishorn af því sem viö eigum til.
P vöruvorzluJ
Inqotf/ 0/hqir/onqr|
Klapparstíg 44, sími 11783
II