Morgunblaðið - 14.11.1982, Síða 26

Morgunblaðið - 14.11.1982, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1982 sem fæstir stóðu undir nafni — það reyndi mikið á flugmanninn og þetta var ekki alltaf neitt sæld- arflug. Það bar margt við á þessum ár- um. Ég man eftir að í einni ferð norður lá við að vélin yrði benzín- laus. Það hafði bilað vél hjá Flug- félaginu og vorum við beðnir að fara með átta manns norður fyrir þá. Það var heldur leiðinlegt veður á leiðinni og éljagangur þegar kom norður í Eyjafjörð. Þar var þá snjór yfir öllu og gat ég með engu móti greint flugbrautina. Ég kallaði þá flugvöllinn upp og bað þá að kveikja á brautarljósunum en þeir svöruðu um hæl að Flugfé- lagið ætti brautarljósin og yrðu þau ekki kveikt fyrir okkur. Urð- um við að snúa aftur til Reykja- víkur með það þó við hefðum varla benzín til flugsins. Það slampaðist þó — en feginn var ég þegar ég lenti á Reykjavíkurflugvelli því ekki mátti tæpara standa. Sam- keppnin var óneitanlega nokkuð hörð á þessum árum. Það var svo mikil breyting í fluginu þegar Douglas-vélarnar, DC-3, komu. Þá fórum við að geta flogið blindflug því þær voru bún- ar sæmilegum siglingartækjum. Þessar vélar tóku 30 farþega og nú komu flugfreyjur til sögunnar — áhöfnin á þessum vélum var flug- stjóri, aðstoðarflugmaður og ein flugfrejrja. Loftleiðir eignuðust tvær svona vélar en önnur var ekki lengi í notkun því hún var seld til Spánar skömmu eftir að henni var bjargað af Vatnajökli." Geysisslysið Nú varst þú aðstoðarflugmaður á Geysi þegar hann fórst á Vatna- jökli 1950 — hvernig bar þetta flugslys að? »Ég man að það var slæmt flugveður þegar við lögðum af stað. Lauge Kochs og menn hans voru þá staddir hér á landi, ný- komnir úr Grænlandsleiðangri sínum. Áttu þeir að fara með Catalina-flugbát Loftleiða til Englands þennan dag en vegna þess hve veðrið var vont var talið óráðlegt að láta flugbátinn fara og við beðnir að flytja leiðangurs- menn. Við flugum svo með þá til London en fórum þaðan til Lúx- emborgar þar sem við tókum frakt en héldum síðan heimleiðis. Veðr- ið var mjög slæmt alla leiðina og fórum við töluvert austar en venjulega til að komast hjá mót- vindi. Við höfðum verið á ferðinni rúmlega sólarhring samfleytt og lagði ég mig í koju aftur í vélinni eftir að við fórum yfir Færeyjar. Ég var svo vakinn og sagt að koma frammí er við komum inn yfir ísland og sagði Magnús Guð- mundsson flugstjóri að komin væri bullandi ísing. Var vélin keyrð eins og hreyflarnir þoldu en ísingin orðin svo mikil að það dugði hvergi nærri til að hún héldi hæð. Þegar þetta var ljóst segir Magnús að við verðum að brjóta af henni ísinn til að létta hana. Ég rétti mig þá upp og ætla að taka í rofann sem hleypir lofti undir gúmíbörðin á vængjunum, en hann var upp undir lofti í flug- stjórnarklefanum, og ég hef lík- lega verið búinn að taka af mér öryggisbeltið. I þeim svifum hefur vélin lent í jöklinum, en ég hef rotazt þarna samstundis því ég man ekkert frekar fyrr en allt var um garð gengið og flugvéíin lá kyrr í snjónum. Sá ég þá að snjó- inn skóf inn í flugstjórnarklefann og heyri að kallað er í mig að utan. Einhvern veginn tókst mér að skreiðast út úr flakinu þó ég væri vart með fullri rænu og sé þá að allir standa úti fyrir flakinu — þau hafa sjálfsagt óttazt að eldur kæmi upp í því. Ég sá hvar mikið gat var á skrokknum og leið mér svo illa að ég hélzt ekki þarna við, heldur fór inn í flakið aftur og lagðist þar fyrir. Ég vissi svo ekk- ert af mér næsta sólarhringinn nema ég var öðru hvoru að vakna við það að kokið var fullt af blóði." A jöklinum „Því verður ekki neitað að það var ólítið happ að við sluppum lif- andi frá þessu því flugvélin fór á fullri ferð í jökulinn. Vinstri- Dagfinnur Stefánsson fyrir framan íbúðarhús sitt í Arnarnesi. Ljósm.: Kristján Kinarsson ílugleiðis um fjóra áratugi Rætt við Dagfinn Stefánsson flugstjóra „Ég hóf flugnám vorið 1945, í stríðslok. Þetta var dýrt nám og erfitt hvað varðaði fjárhaginn þá eins og nú, og svo taldist flugið varla lífvænleg atvinnu- grein á þessum tíma. Ég var svo við flugnám í Bandaríkjunum í rúmlega ár — þar tók ég einka- flugmannspróf og blindflugspróf, en með þetta veganesti fór ég svo heim og byrjaði að fljúga hér innanlands. Mitt fyrsta atvinnuflug var á eins hreyfils Stinson-sjóflugvél sem annaðist síldarleit fyrir Noröurlandi en það hófst í júní 1946. Síðan hef ég verið í fluginu nær óslitið allt til þessa dags,“ sagði Dagfinnur Stefánsson flugstjóri hjá Flugleiðum er ég spurði hvenær hann byrjaði að fljúga. Dagfinnur hefur flogið rúmlega 26 þúsund flugtíma en það eru örugglega ekki margir aðrir flugmenn hér á landi sem eiga svo langt flug að baki. Ég fór fram á viðtal við Dagfinn þar sem ég vissi að ýmislegt hefur á daga hans drifið bæði í innanlandsfluginu hér heima og svo í áætlunar- og leiguflugi um allan heim. Ég byrja á því að spyrja hann frekar út í síldarleitina og flugið á dögum sjóflugvélanna. Síldarlcit fyrir Norðurlandi „Slldarleitin stóð yfir á þriðja mánuð um sumarið ot? flaug ég mikið á þeim tíma — rúmlega 300 flugtíma. Við könnuðum nær dag- lega allt vestursvæðið, þ.e. frá Siglunesi vestur að Hornströndum og allt út undir Grímsey, en flogið var frá Miklavatni i Fljótum. Ég flaug með Kristni Ólsen til að byrja með og kenndi hann mér að fljúga vélinni, en sjóflugvéi hafði ég ekki flogið áður. Við flugum venjulega í 1000, feta hæð — á þessum tíma óð síldin þar sem hún var í torfum og sáust þær vel úr lofti. Þegar við fundum síld send- um við tilkynningu um það á sér- stöku dulmáli til Siglufjarðarrad- íós, loftskeytstöðvarinnar á Siglu- firði — þessar upplýsingar voru að sjálfsögðu ekki ætlaðar útlending- um sem voru margir þarna á veiðisvæðinu. Stundum höfðum við líka annan hátt á ef bátar voru einhvers stað- ar í grenndinni — þá flugum við yfir þá í átt að síldartorfunni en hnituðum síðan hringa yfir henni og gerðum þeim þannig skiljan- legt hvar hún væri. Þegar síldarleitinni var lokið fór ég aftur suður og fór að fljúga Grumman-vél með farþega. Þetta voru kraftmiklar tveggja hreyfla flugvélar sem gátu bæði lent á landi og sjó. Þessar flugvélar tóku átta farþega og sá níundi var hafður í aðstoðarflugmannssæt- inu, því venjulega flaug einn flug- maður þessum vélum. Ég flaug þessari vél til Vestfjarða, Akur- eyrar og víðar. Það var skemmti- legt að fljúga þessum vélum og þær gáfu mikla möguleika þar sem hægt var að lenda þeim á landi, sjó og vötnum. Ég fór einu sinni á henni upp í Veiðivötn og lenti líka á Hítarvatni. Á ísafirði lentum við á Pollinum en settum síðan hjólin niður og ókum vélinni upp í fjöru. Þar fóru farþegarnir svo af og við tókum aðra, vélin svo látin renna i sjóinn aftur en síðan farið beint í flugtak." En var ekki slæmt að eiga við þessar vélar ef eitthvað var að veðri? „Jú, það gat verið erfitt ef vont var í sjóinn. Vélarnar tóku þá að höggva og náðu þá ekki nógu mik- illi ferð til að komast í loftið. Þá var ekki um annað að gera en hætta við flugið og bíða betra veð- Viötal: Bragi Óskarsson urs. Á árunum fyrir 1950 áttu Loftleiðir 5 Grumman-vélar og tvær Amsson-vélar. Ég flaug Amsson-vél frá Vestmannaeyjum til Reykjavíkur um skeið, þær tóku átta farþega og gátu ekki lent á sjó. Við vorum staðsettir í Vest- mannaeyjum því skilyrði til lend- ingar þar voru þannig að þar var erfitt að lenda ef eitthvað var að veðri en flugtakið aftur auðveld- ara.“ Brautarljósin ekki kveikt fyrir Loftleiðir „Á þessum árum var nær ein- göngu flogið sjónflug — það var í mesta lagi að flogið væri fyrir ofan ský, stund og stund. Maður varð því að þekkja vel landið og helzt að kunna á firðina, vita hvar vænta mátti uppstreymis og hvernig hagaði til við flugvellina

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.