Morgunblaðið - 14.11.1982, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 14.11.1982, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1982 23 ásamt þýðingu fangavarða sinna á því meðal persónulegra skjala sinna þar til hann iézt 1964. Kona hans geymdi það unz hún lézt síð- ar og fréttastofan AP birti það 28. marz 1977 (fréttaritari AP í Trenton og blaðamaður New York Daily News fengu það hjá ónefnd- um heimildarmanni). í bréfinu heldur Hauptmann því fram að gögnin, sem voru not- uð gegn honum, hafi verið tilbún- ingur og að gögn, sem voru já- kvæð fyrir hann, hafi horfið. Hann hélt því fram að hann væri „100 prósent viss um“ að aðalverj- andi sinn, Edward Reilly, hefði „starfað með sækjendunum" og sagði: „hann kom einfaldlega ekki til mín, eða var oft drukkinn, ef hann var hjá mér í þrjár til fimm mínútur." „Guð minn...“ „Guð minn góður! Guð minn góður! Er ekkert réttlæti til í þessum heimi?" skrifaði Haupt- mann móður sinni. Bréfið er dag- sett 27. desember 1935, en honum hafði borizt bréf frá henni á jóla- dag. Hann bætti við: „Hvert stefnir mannkynið, sem er í þess- um heimi í nafni guðs?“ „Ég trúi því einfaldlega ekki að þetta ríki brjóti niður líf saklauss manns á þennan hátt,“ skrifaði hann. Hann kvaðst vera með hreina samvizku og lauk bréfi sínu með þessum orðum: „I von um að réttlætið sigri sendi ég þér ástarkveðjur, þinn kæri sonur, Richard." í bréfinu fullvissaði Haupt- mann móður sína um að „lygi get- ur ekki hjálpað mér, heldur mundi hún skaða mig.“ í bréfinu koma m.a. fram þessar staðhæf- ingar: —Þegar hann var handtekinn 19. september 1934 fór lögreglan burtu með alla skó hans. Eitt fót- far hafði fundizt nálægt heimili Lindberghs, en sækjendur lögðu aldrei fram eftirlíkingu af því og sækjendurnir sendu á hans fund, hvort hann vissi hvar 30.000 eða 35.000 dollara væri að finna. „Útlendingur“ „Þar sem ég var útlendingur og auk þess óreglulegur innflytjandi gátu þeir svalað reiði sinni á manni eins og mér,“ skrifaði Hauptmann móður sinni. „Mér var aðeins lýst sem villidýri og barið var inn í hausinn á fólki að ég væri þýzk vélbyssuskytta," skrifaði hann. Hauptmann sendi miða á ensku með bréfinu til Kimberling ofursta, sem bar m.a. ábyrgð á því að ritskoða bréf frá föngunum. Þar sagði hann: „Ég yrði sannarlega mjög' þakklátur, ef þetta bréf yrði þýtt. Það sem ég hef skrifað er aðeins sannleikurinn. Sömuleiðis yrði ég mjög þakklátur, ef ríkisstjórinn læsi þetta bréf líka. Ég veit, kæri herra, að þetta yrði töluvert ómak fyrir yður, en ég veit í rauninni ekki til hvers ég á að snúa mér í þessu máli. Þakka yður fyrir góð- vild yðar. Með virðingu, R. Haupt- mann.“ Hoffman hafði þegar svarað til- mælum frá Hauptmann og talað við hann í fangelsinu lö.október 1935. Skjöl ríkisstjórans gáfu seinna til kynna að hinn dæmdi maður hefði bent honum á nokkr- ar röksemdir sínar og skorað á hann þá — og aftur í bréfi í des- ember — að leyfa honum að taka „sannleikslyf" og gangast undir einhvers konar lygamælingar- próf, ef það mætti verða til þess að styðja staðhæfingar hans um sakleysi sitt. Skömmu áður en bréf Haupt- manns var birt opinberlega fyrir fimm árum hafði komið út bók eftir Anthony Scaduto, fyrrver- andi blaðamann New York Post, „Scapegoat: The Lonesome Death of Bruno Richard Hauptmann". Bókin byggðist m.a. á viðtölum við Önnu Hauptmann, sem fram Charles Lindbergh hjá flugvélinni „Spirit of St. Louis“ sem hann flaug yfir Atlantshaf 1927. ekki heldur af öðru fótfari sem fannst í kirkjugarðinum þar sem lausnargjaldið var greitt. ---Ríkislögregla New Jersey tók handa- og fingraför hans þrisvar sinnum, en í réttarhöld- unum var því neitað að nokkur fingraför eftir barnsræningjann eða heimilisfólk Lindberghs hefðu fundizt á stiga barnsræningjans eða í barnaherberginu. „Hvergi voru nokkur verksummerki eftir mig að finna,“ skrifaði Haupt- mann. —Meitill nálægt stiganum var sagður „alveg nýtt“ 3/4 þumlunga verkfæri, en aðeins einn af meitl- un Hauptmanns var horfinn úr safni hans: 1 1/4 þumlunga meit- ill, sem hann hafði notað nokkr- um vikum áður, þegar hann var að smíða skáp handa syni sínum. —Rannsakendurnir sögðust hafa haft upp á 49.986 dollurum, sem hefðu verið greiddir, þannig að aðeins vantaði 14 dollara af öllu lausnargjaldinu, en „hálftíma eftir dómsuppkvaðninguna" spurði ríkislögreglumaður, sem að þeim tíma hafði verið treg til að tjá sig, þótt hún tryði alltaf statt og stöðugt á sakleysi manns sins. Scaduto hélt því fram í bók sinni að gögnum hefði verið stungið undir stól, að önnur væru fölsuð og að Hauptmann hefði verið í vinnunni dagana sem barnsránið var framið og lausn- argjaldið greitt. Lokaorðið hefur David Wilentz, ríkissaksóknarinn í New Jersey, sem sótti málið gegn Hauptmann. Hann sagði haustið 1976 (þá var hann áttræður, enn í fullu fjöri og stundaði lögfræðistörf í Perth Amboy, New Jersey): „Að því er ég bezt veit og mig minnir helzt hefur ekkert gerzt frá þeim degi, þegar afskipti mín af málinu hófust fyrst, og ekkert gerzt síðan dómurinn var felldur, sem hefur gefið til kynna á nokk- urn hátt og að nokkru marki að sakborníngurinn hafi ekki verið sekur og dómurinn ekki réttlát- ur.“ g.h. tók saman. kráarknöll“ Á &■ Nú eru það ensk kvöld — engu ööru lík, — enda búiö aö gjörbreyta borðaskipan í Súlnasal, smíöa enskan bar í Bláa salnum og fá fjölda enskra skemmtikrafta í heimsókn. Og nú bjóöum viö Lundúnafarþega sérstaklega velkomna. Móttökuathöfn Tekiö veröur á móti gestum með fordrykkjum og tilheyrandi „serimóníum“ að hætti enskra heið- ursmanna. „English pub“ Þegar upp í Súlnasal kemur blasir viö enskur bar meö öllum tilheyrandi veitingum eins og við eigum þeim bestum að venjast. Andrúmsloftiö veröur í takt við ósvikna kráarstemmningu, söngur og hljóöfæraleikur, eöa eins og þeir ensku segja: „Just like home“. Matseðill OXTAIL SOUP ROASTED LEG OF POHC VORKSHIRE WITH: ROASTED POTATOES YORKSHIRE PUDDINQ GREEN PEAS WITH MINTFLAVOUR DEEP FRIED CAULIFLOWER CUMBERLAND SAUCE APPLES SAUCE AND PORC GRAVY PLUMB PUODING WITH ENGLISH CREAM VERÐ AOEINS KR. 290. Heiðurs- gestur Enskt kvöld verður varla haldiö meö reisn nema heiöursgestur veröi á staönum. Víö létum okkar ekki eftir liggja og fengum Anneke Dekker frá Ferða- skrifstofunni Scancoming, í heimsókn. Hún hefur annast alla fyrirgreiöslu Lundúnafarþega okkar á liðnum árum og þeir sem reynt hafa, þekkja af frá- bærri reynslu .stílinn" hennar. Fararstjórarnir við stjórnvölinn Fararstjórar okkar í London, þeir Magnús Axels- son, Óli Tynes og Sigurður Haraldsson, verða viö stjórnvölinn þetta kvöld. Þarf þá nokkuð aö fjöl- yrða um fjörið meira? Samvinnuferdir - Landsýn AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899 l Skemmti- atriði Viö fáum óvænta gesti og skemmtikrafta í heimsókn, m.a. töfra- manninn og eldgleypir- inn Nicky Vaughn, söngkonuna Anne Edwards, harmónikku- leikarann David Holling- ton og galdrakarlinn Will Yorkstein. Tískusýning Model 79 undir stjórn Sóleyjar Jóhannsdóttur sýna fatnað frá Blondie. Tískusýningin verður með óvenjulegasta móti og skemmtikröftunum að sjálfsögðu uppálagt aö gefa sviöinu fri og ganga í staöinn á milli borö- anna og taka þátt í stemmningunni i salnum. Bingó kl. 11.45. Glæsilegir feröavinningar. Hljómsveitin Upplyfting leikur ekki bara fyrir dansi, heldur lagar sig að enskum siöum á margan hátt og ábyrgist dúndr- andi fjör á dansgólfinu og úti í salnum. Fjöldasöngur Stjórnandi Birgir Gunnlaugsson og píanóleikari Jón Ólafsson. Áskorun! Nú skorum viö hér meö á alla Lundúnafarþega aö fjölmenna í „enska“ Súlnasalinn, hittast þar á nýj- an leik undir hárréttum kringumstæöum og rifja upp gamla eöa nýlega góða daga. Allir eru samt velkomnir — en eins gott er aö hafa húmorinn í lagi og söngröddina á sínum stað. Klæðnaðurinn er auövitaö frjáls og þægilegur — rétt eins og í Englandinu góöal Föstudagskvöld: Húsiö opnar kl. 20.00. — Dansað til kl. 03.00. Sunnudagskvöld: Húsið opnar kl. 19.00. — Dansaö til kl. 01.00. Miðasala og boröapantanir miðvikudag eftir kl. 16.00 í Súlnasal. Uppl. í síma 20221. Við þökkum Flugleiðum samstarfið við skipulagningu kvöldsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.