Morgunblaðið - 14.11.1982, Page 15

Morgunblaðið - 14.11.1982, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. NÓVEMBER 1982 63 ÓveÖursskemmdirnar á Siglufirði: Líklegt að fyrirgreiðsla fáist í Bjarg- ráðasjóði Viðlagatrygging tekur ekki til bóta vegna skemmda þeirra sem urdu í óveðrinu fyrir skömmu i Siglufirði, þar sem ný lög um viðlagatryggingu taka ekki gildi fyrr en um áramót, að því er Óttar Proppé bæjarstjóri á Siglufirði sagði í samtali við blaðamann Morgun- blaðsins. Óttar kvað á hinn bóginn líklegt að fyrirgreiðsla fengist í Bjargráðasjóði vegna tjónsins. Dómkvaddir matsmenn eru nú að störfum á Siglufirði við heild- armat á tjóninu. Bæjarstjóri kvað enn ekki ljóst hve mikið tjónið væri í krónum talið, en þó væri ljóst að það skipti hundruðum þúsunda. Þeir húseigendur sem hefðu húseigendatryggingu á hús- um sínum fengju skaðann bættan, en sem áður sagði væri vonast til að Bjargráðasjóður hlypi undir bagga hjá öðrum. Fordæmi væri fyrir siíku, svo sem í óveðrinu er gekk yfir Vestur- og Suðvestur- land í febrúar 1981. Sauðárkrókur: Leikfélagið sýnir „Er þetta ekki mitt líf?“ Sauðárkróki, 12. nóvember. LEIKFÉLAG Sauðárkróks hefur undanfarið æft sjónleikinn „Er þetta ekki mitt líf?“, eftir Brian Clark. Iæikstjóri er Guðrún Gísladóttir og er hún einnig höfundur leikmyndar. Frumsýning verður í félagsheimilinu Bifröst á sunnudagskvöld kl. 21.00. Leikfélag Reykjavíkur sýndi þetta leikrit fyrir nokkru og vakti það þá mikla athygli og umræður. Önnur sýning á leikritinu verður svo á miðvikudaginn 17. nóvem- ber. — Kári Sýndar veröa 1983 árgeröirnar af MAZDA 323, sem nú koma á markaöinn í nýju útliti meö fjölmörgum nýjungum og auknum þægindum og luxusbílinn MAZDA 929. Komiö á sýninguna og sjáiö þaö nýjasta frá MAZDA. BÍLABORG HF. Smiðshöfða 23 I Tilkynning: L’ORÉAL tilkynnir hér með að frá 15. nóvember 1982 hefur Rolf Johansen & Company, Laugavegi 178, Reykjavík, einkaumboð á Islandi fyrir allar vörur frá L’ORÉAL UORÉAL PARIS Elnett, Elect, El’vital, Ambre Solaire, Dulcia, Crescendo, Color Jeunesse, Variance, Infradoux MmAwwmm oo. Laugaveg 178 — P.O. Box 338 — 105 Reykjavik L’oréal, Biotherm, Cacharel, Lancome, Curréges, Ted Lapidus, Guy Laroche

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.