Morgunblaðið - 20.11.1982, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 20.11.1982, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1982 5 IÐUNN hefur gefið út þrjár sögur eftir Birgi Engilberts sem einu nafni heita Andvöku- skýrslurnar. Þær draga nöfn af sögumönnum: Sigvarður, Ingi- björg og Þorvaldur. Birgir Engilberts hefur samið leikrit sem sýnd hafa verið á leiksviði, en Andvökuskýrslurnar eru hið fyrsta sem frá honum kemur sagnakyns. Um sögurnar segir svo í kynningu forlagsins, að þær séu „samfelldar að stíl og frásagnarhætti, rekja skilmerki- lega sem skýrslum ber þá við- burði sem beint hafa sögufólkinu sínum hætti. Víst er hér brugðið upp nöturlegum mannlífsmynd- um, en frásögninni ætíð haldið í skefjum sennileikans. Höfundur hefur slíkt vald á stíl sínum að honum tekst að miðla afar sterkri tilfinningu fyrir eyðingar- öflum í manneskjunni, sem leika sér með hana án þess að hún fái rönd við reist. Návist sögumanns verður hér stundum svo. nærg- öngul að helst minnir á líkamlega snertingu." Andvökuskýrslurnar eru 107 blaðsíður. Oddi prentaði. Kápumynd bókarinnar. Andvökuskýrslurnar Ný bók eftir Birgi Engilberts fram á ystu nöf, hverjjum með Við minnum á Elúiu Pálmadóttur / r /*l • •• • i profkjori Sjálfstæðisflokksins Viö viljum Elínu á þing: • Vegna beinna kynna hennar af borgar- búum og málefnum þeirra sem borgar- fulltrúi um árabil og blaöamaöur á ferö í tvo áratugi. Hún hefur sýnt aö hún tekur mannlega á málum. • Hún hefur hugkvæmni, kjark og dugnaö til aö nýta sína reynslu af málefnum Reykja- víkur og þekkingu til að koma málum fram. • Rétta þarf hlut kvenna í þingliöi Sjálfstæö- isflokksins. Stuóningamenn Þeir sem eru sama sinnis og viö, hafi samband viö okkur í Dugguvogi 10 (Sigurplast) eftir kl. 5 og um helgina. Símar 35590 og 32330. Við vekjum athygli á að Björg Einarsdóttir gefur kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík 28. og 29. nóvember 1982 vegna væntanlegra Alþingiskosninga. . — HH ,? i ■■ : | ; • Björg var formaöur Hvatar, félags sjálfstæö- iskvenna í Reykavík 1978—1981. Hún er í mál- efnanefnd Sjálfstæöisflokksins um utanríkismál og á sæti í stjórn Fulltrúaráðs sjálfstæöisfélag- anna í Reykjavík. Björg var kjörin í miöstjórn Sjálfstæöisflokksins á Landsfundi 1981. • Björg skipaði 11. sæti á framboðslista Sjálf- stæöisflokksins í Reykjavík við Alþingiskosn- ingarnar 1979. Hún hefur sannað það í störfum sínum innan Sjálfstæðisflokksins og utan, að hún á erindi á Alþingi. Við styðjum Björgu Einarsdóttur í prófkjörinu og hvetjum aðra til þess. Stuöningsmenn V^terkurog k-J hagkvæmur auglýsingamiðill! Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík 28.—29. nóv. Sjálfstæðismenn kjósum unga konu á Alþingi! % Bessí Jóhannsdóttir Kosningaskrifstofa aö Suöurlandsbraut 14, 2. hæö. Sími 38636. Opiö frá kl. 17.00—22.00 alla daga. Kjósandi góður! Engin kona er nú þingmaður Sjálf- stœðisflokksins i Reykjavík. Telur þú þetta reykvtskum sjálfstæðismönnum sæmandi? Stuðningsmenn Bessíar Jóhannsdóttur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.