Morgunblaðið - 20.11.1982, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1982
45
Úr uppfærslu Leikfélags Hornafjarðar á Skáld-Rósu Birgis Sig-
urðssonar: Mæðgurnar Erla og Brimhildur Melrós, afkomendur
Skáld-Rósu.
Ogleymanleg
kvöldstund
Jóna Rúna Kvaran skrifar:
„Kæri Velvakandi.
Eg vil nota þetta tækifæri til
þess að þakka þér sérstaklega
bréf og greinar frá alþýðu
manna, sem oft hafa vakið at-
hygli manns.
Það sem knýr mig til að leggja
hér ofurlítið til mála er ógleym-
anleg kvöldstund, sem við móðir
mín áttum sl. föstudagskvöld
(12. þ.m.) á leiksýningu Leikfé-
lags Hornafjarðar í Kópavogi.
Þetta var sýning á hinu stórgóða
leikriti Birgis Sigurðssonar
Skáld-Rósu. Það er athyglisvert,
að í jafnfámennu þjóðfélagi, þar
sem brauðstrit og streita sitja í
fyrirrúmi, skuli fyrirfinnast með
alþýðu manna listræn tilþrif,
sem gera jafnáhrifamikla sýn-
ingu mögulega. í leikritinu
endurspeglast á lifandi hátt líf
þeirra ótalmörgu, sem minna
máttu sín á liðnum öldum. Þar
takast á áhrifaöfl góðs og ills.
Annars vegar innra eðli mann-
eskjunnar og hins vegar erfiðar
kringumstæður, sem geta orðið
þess valdandi að það besta i
hverjum og einum fær ekki notið
sínfyllilega.
Áhugamannahópnum frá
Hornafirði tókst, undir ágætri
leikstjórn Jóns Sigurbjörnsson-
ar, að koma til skila þessari ör-
lagasögu á sérstaklega hugð-
næman og skilningsríkan hátt.
Hér fær allt líf: fátækt, vitsmun-
ir, brennandi ástríður og eld-
heitar tilfinningar, sem gera
uppreisn gegn miskunnarlaus-
um, hefðbundnum öflum sam-
tímans.
Ekki á þetta að vera neinn
leikdómur. En þó vil ég þakka
sérstaklega Ingunni Jensdóttur
fyrir hrífandi túikun í vanda-
sömu aðalhlutverki á stundum
gleði og eftirvæntingar annars
vegar og hins vegar augnablik-
um sorgar og niðuriægingar.
Slíkt er vafalaust vonlaust að
sýna í leik, nema með sterkri
innlifun skapsmuna og tilfinn-
inga.
En það sem ef til vill er at-
hyglisverðast við þessa sýningu
er það, hve vel Hornfirðingar
stóðu fyrir sínum hlutverkum,
og áttu þannig þátt í þvi að gera
hana sem heild áhrifamikla og
ógleymanlega.
Að lokum vil ég óska Leikfé-
lagi Hornafjarðar til hamingju
með 20 ára afmælið og vona að
forsjónin verði þeim hliðholl í
áframhaldandi störfum þeirra i
þágu leiklistar á íslandi.
Eg þakka fyrir hönd okkar
móður minnar heillandi kvöld-
stund.
Fyrirspurn
tii ÁTVR
Guðjón Jónasson hringdi og
hafði eftirfarandi að segja: —
Heyrst hefur af fréttum að til
standi að reisa útibú frá Áfengis-
og tóbaksverslun ríkisins í Breið-
holti. í framhaldi af því langar
mig til að spyrja frammámenn
ÁTVR: Hver hefur beðið um þenn-
an ófögnuð inn í okkar friðsæla
hverfi? Ekki er mér kunnugt um
að íbúasamtökin hér eigi þar
neinn hlut að máli og mér þykir
furðulítil umræða hafa orðið um
þetta mál. Vitað er að kirkjubygg-
ing er að rísa í næsta nágrenni við
fyrirhugað aðsetur ÁTVR. Hvað
segja kirkjuyfirvöld við þessu?
Eða önnur trúarsamtök í hverf-
inu? Er þeim þetta að meinalausu
eða er málið þeim ekkrt skylt? Ég
vona, að byggingaráform Áfengis-
og tóbaksverslunar ríkisins séu
ekki það langt á veg komin að of
seint sé að sporna við þeim og
koma í veg fyrir frekari fram-
kvæmdir.
Endursýnið
lokaþáttinn
Fóstra hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja: — Mig langar til
þess að biðja sjónvarpið að endur-
sýna lokaþáttinn í myndaflokkn-
um Þróunarbraut mannsins. Það
var stórmerkilegur þáttur sem
enginn má missa af. Þar velti leið-
sögumaðurinn, dr. Leakey, fyrir
sér ýmsu varðandi framtíð
mannkynsins og margt af því
fannst mér eiga brýnt erindi inn i
umræður, sem hér hafa átt sér
stað, um ofbeldi.
Orðsending
til kattavina
Nú hefur
einn hlekkur
brostið
Guðfinna Hannesdóttir skrifar 8.
nóvember:
„Kæri Velvakandi.
Viltu gjöra svo vel að ljá þessum
línum rúm í dálkum þínum.
Sérleyfisleiðin Reykjavík-
Hveragerði-Selfoss, hefur ætíð
verið í góðra manna höndum og
veitt góða þjónustu, bílstjórar ver-
ið traustir og bílar þægilegir að
ferðast í.
Nú hefur einn hlekkur brostið i
þessari keðju. Það er viðkomu-
staðurinn í Hveragerði, sem áður
var í Hótel Hveragerði. Þar áttu
farþegar greiðan aðgang að húsa-
skjóli ef bíða þurfti, og önnur
fyrirgreiðsla var þar fúslega veitt,
ef með þurfti.
Nú er komið að lokuðum dyrum,
svo að farþegar, ungir og aldnir,
mega híma undir húsvegg hvern-
Formaður Kattavinafélagsins
hringdi og hafði eftirfarandi að
segja: — Kattavinafélagið sendir
öllum kattavinum eftirfarandi
orðsendingu: Kettir eru kulvís dýr,
sem ekki þola útigang. Gætið þess
að allir kettir landsins hafi húsa-
skjól og mat.
Fyrirspurn til
meindýraeyðis
Kjartan Guðjónsson hringdi og
hafði eftirfarandi að segja: — Er
hugsanlegt að unnt sé að sýkja
villiminkastofninn í landinu með
veiru þeirri sem herjað hefur á
aliminka í sumum minkabúum
hér? Eins og kunnugt er beittu
Ástralíumenn svipaðri aðferð er
þeir áttu i vök að verjast gegn
mikilli kanínuplágu í landi sínu og
unnu þannig bug á skaðvaldinum.
GÆTUM TUNGUNNAR
ing sem viðrar.
Vonandi er að þeir menn, sem
hafa á hendi sérleyfi á þessari
leið, sjái sér fært að bæta úr þessu
hið bráðasta.
Með þðkk fyrir birtinguna."
Fornafnið hvortveggi beygist eins og greinir og veik-
beygt lýsingarorð, svo sem „hinn góði“.
T.d.: í hvoruumtveggju samtökum (í hinum góðu sam-
tökum. Eða: um hvorartveggju dyrnar (um hinar góðu
dyr). Eða: Þetta hvorttveggja er rétt (þetta hið góða).
Hjartans þakkir færum við bömum okkar, tengdabörn-
um, bamabömum, systkinum og öðmm ættingjum og
vinum nær og fjær, sem með heimsóknum, gjöfum,
blómum, skeytum 'og á annan hátt heiðruðu okkur í
tilefni áttræðis afmælis okkar þann 12. júli og 30. októ-
ber síðastliðinn sem við munum lengi minnast með
þakklátum huga til ykkar allra.
Guð blessi ykkur öU. Guðrún og Guðmundur
Bala, Miðnesi.
Úrval afskorinna blóma.
Gjafavörur í úrvali.
Hvítu keramik pottahlíf-
arnar í úrvali.
UtiÖ við um helgina.
Við önnumst blómaskreytingar við öll tækifæri og leggjum
áherslu á góða þjónustu.
Opið alla daga vikunnar ffrá 9-21.
BREIÐHOLTSBLéM
ARNARBAKK A ? SIMI 79060 PÓSTHOlf 9092 l?9 RIYKJAVIK
Snoghoj Fotkehojskote er norrænn (ýöháskóti sem nær
yfir ýmis norrsBn viðfangsefni t.d. getur þú valiö á milli
margra tilboöa: hljómllst. bókmenntir, vefnaöur, kera-
mik, samfáiagsfrsBÖi, sáltræöi o.fl.
Þú munt hitta marga nemendur frá hinum
Noröurtðndunum. Fariö veröur 1 kynnlsferöir.
Námskeiöstímabil:
2. nóv. — 24. apríl
eöa
4. jan. — 24. apríl
SNOGH0J
NORDISK FOLKEH0JSKOLE
DK 7000 Fredericia
Vinsælu ensku ullarúlpurnar (Duffel Coat)
dömu-, herra- og barnastærðir komnar aftur.
Verð frá kr. 495—850.
QEKsíBf