Morgunblaðið - 20.11.1982, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 20.11.1982, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1982 21 Jón Baldvinsson f sýningarsal sínum að Heiðarási 8. Allir miklir málarar eru dulhyggjumenn — segir Jón Baldvinsson, en hann opnar málverkasýningu í eigin sýningarsal í dag AÐ HEIÐARÁSI 8 í Árbæjarhverfi býr Jón Baldvinsson listmálari í 340 m2 húsi sem hann hefur nýlega byggt. Þetta er dálítið sérkennilegt hús: það er i tveimur jafnstórum hsðum, i neðri hsðinni eru tveir 40 m2 sýningarsalir, og i efri hsðinni er 40 m2 vinnustofa. Það er ekki mjög fátítt að listmálarar komi sér upp vinnu- stofu í híbýlum sínum, en hitt er sjaldgæfara að þeir komi sér upp sýningaraðstöðu líka! í dag, laugardaginn 20. nóvember, opnar Jón sína fyrstu sýningu í þessum einkasölum sínum. „Já, þetta er í fyrsta skipti sem ég sýni heima, en ef þetta gengur sæmilega gæti ég vel hugsað mér að hafa þarna gall- erí opið einu sinni í viku t.d.“ — Hvernig verk ertu með á sýningunni núna? „Þetta eru allt olíumálverk, frekar stórar myndir, 55 að tölu. Mest er um landslagsmyndir, en þó með hugmyndaívafi — en með „hugmynd" á ég við fant- asíu. Stíllinn er sem sagt eins konar blanda af natúralisma og expressionisma. Myndirnar eru allar málaðar á síðustu þremur árum og flestar til sölu.“ — Þú hefur haldið fjölda sýn- inga áður, er það ekki? „Jú, fjöldan allan. Síðast var ég með sýningu í vor í Keflavík, þar áður á Loftinu ’79, og ef ég held áfram í öfugri tímaröð: Norræna húsinu, inn á Grens- ásveg, í Bogasalnum, og svo á Kjarvalsstöðum ’75, en þar sýndi ég 90 myndir og seldi mjög vel. Ég held að ég sé ekkert að rekja þetta aftar, en ég hélt mína fyrstu sýningu ’61, minnir mig, á Mokka.“ — Hefurðu breytt um stíl í gegnum tíðina? „Já, ég held það. Ég er svona meira að færast út í fantasíuna. Reyndar málaði ég mikið af hugmyndum fyrst þegar ég var að byrja, en síðan fór ég út í landslagsverkin, aðallega til að prófa það. Og ég komst fljótlega að því að það er mjög erfitt að mála landslag. En núna er ég sem sagt aftur að færast út í fantasíuna. Ég hef alla tíð haft mikinn áhuga á dulspeki, og bera mynd- ir mínar þess nokkur merki. Það hvílir ákveðin dulúð yfir verkun- um. Þetta kemur fram í listaval- inu — ég nota mest gula, bláa og fjólubláa liti; og þetta kemur líka fram í formunum, sem oft er á nokkur óraunveruleikablær." — Hefurðu orðið fyrir dul- rænni reynslu? „Nei, ekki beint. Og ég stunda engar æfingar til þess að stuðla að slíkri reynslu. Nema auðvitað það að mála. En það er ein besta æfing í fasthygli sem til er. Stundum gleymir maður stund og stað. Ég held að það sé fátt eins þroskandi fyrir manninn og það að mála — og þá er alveg sama hvað út úr því kemur. Og reynd- ar er ég þeirrar skoðunar að flestir miklir málarar séu dul- hyggjumenn — oft án þess að vita af því sjálfir!" — Hvernig gengur að lifa af málaralistinni? „Það er nú svona upp og niður. Yfirleitt gengur það ekki allt of vel, en það koma tímabil þar sem maður er með morð fjár í hönd- unum. En þótt ég hafi byrjað ár- ið 1957 að mála, þá var það ekki fyrr en 1971 að ég gerði málara- listina að aðalatvinnu minni. En fram að þeim tíma hafði ég feng- ist við ýmislegt; keyrt leigubíl, verið fasteignasali, sölumaður og verslunarmaður o.fl. Og þessi fjölbreytti bakgrunnur gerir mér kannski auðveldara að kom- ast af sem málari en ella. Og það hús sem ég bý í núna er þriðja húsið sem ég byggi um ævina.“ — Er þetta draumahúsið? „Það er eins og draumahúsið komi aldrei. Maður er alltaf að reka sig á eitthvað sem mætti betur fara.“ Sýning Jóns hefst í dag, eins og áður sagði, og stendur til 5. desember nk. Ráðstefna um tengsl HI og framhaldsskólanna STÚDENTARÁÐ Háskóla íslands gengst fyrir ráöstefnu um tengsl Há- skólans og framhaldsskólanna, laug- ardaginn 20. nóvember kl. 10. í fréttatilkynningu frá SHÍ segir m.a.: Á undanförnum árum hefur nokkuð verið rætt um það hversu góðan undirbúning mennta- og fjölbrautaskólar veita nemendum sínum undir háskólanám. Til að fjalla um þessi mál hefur SHÍ fengið Jón Torfa Jónasson lektor og Stefán Andrésson áfangastjóra í Fjölbraut Breiðholti til að halda framsöguerindi. Að þeim loknum verða almennar fyrirspurnir. Eft- ir hádegi munu verða pallborðs- umræður um þessi mál. Þátttak- endur í þeim verða Ásta Ragn- arsdóttir námsráðgjafi HÍ, Guðni Guðmundsson rektor MR, Gunnar Karlsson prófessor HÍ, Halldór Guðjónsson kennslustjóri HÍ og Jón Böðvarsson skólameistari FS. Að þeim loknum verða almennar umræður og fyrirspurnir. Ráðstefnan verður haldin í há- tíðarsal Háskólans og byrjar kl. 10.00 eins og fyrr sagði. Kennarar framhaldsskóla og Háskólans eru hvattir til að sækja ráðstefnuna sem og aðrir áhugamenn um menntamál. Jónas Ingimundar- son leikur á Akureyri JÓNAS Ingimundarson, píanóleik- ari, heldur tónleika í Borgarbíói á Akureyri í dag, laugardag, kl. 17.00, og eru það jafnframt fyrstu áskriftartónleikar Tónlistarfélags Akureyrar á þessum vetri. Á efn- isskránni verða þrjár polonesur og sex etýður eftir Chopin og myndir á sýningu eftir Mussorgski. Á tón- leikunum fræðir Jónas um verkin, sem hann flytur. Þá er fréttnæmt, að daginn áður mun Jónas fara með tónlistarkynningu í fram- haldsdeildir skólanna og í Menntaskólann. í lögum TA er tekið fram, að: „Félaginu ber að efla tónlistarlíf, áhuga og tónlistarfræðslu í Akur- eyrarbæ." Heimsókn Jónasar Ingi- mundarsonar er viðleitni félagsins til að sinna öllum þessum megin- markmiðum sínum, einnig þetta árið, þegar í hönd fer 40 ára af- mæli þess næsta vor. Sala áskriftarskírteina er nú í fullum gangi að fimm tónleikum vetrarins og fást þau og einstakir miðar í Bókabúðinni Huld í Hafn- arstræti og að vanda við inngang- 'nn- (Fréttatilkynning) Fyrirlestur, sem nefnist: „Hvað er réttlæti?“ ÞORSTEINN Gylfason mun á morg- un, sunnudag, flytja fyrirlestur I Fé- lagi áhugamanna um heimspeki, sem nefnist „Hvad er réttlæti?" Þessi fyrirlestur er eins konar fram- hald af „Rauðum fyrirlestri", sem Þorsteinn flutti í Rauða húsinu á Ak- ureyri í fyrrasumar og birtur var I Morgunblaðinu. í þeim fyrirlestri fjallaði Þorsteinn um frjálshyggju og gagnrýndi m.a. hugmyndir Milton Friedmans um frelsi og réttlæti. Fyrirlestrinum á sunnudaginn — segir í fréttatilkynningu frá Fé- lagi áhugamanna um heimspeki — mun Þorsteinn snúa sér að frjáls- hyggjukenningum Robert Nozicks, prófessors við Harvard-háskóla, og ræða m.a. þá kenningu hans að ríkisafskipti í tekjujöfnunarskyni séu mannréttindabrot. Þorsteinn mun reyna að sýna fram á að í þessum hugmyndum Nozicks séu sambærilegir brestir við þá sem greina má í frjálshyggju Fried- mans. Markmið Þorsteins er þó ekki fyrst og fremst að sýna fram á fræðilega veikleika frjálshyggj- unnar, heldur telur hann að af þessari gagnrýni megi draga ýms- ar ályktanir um réttlæti. Og þessar ályktanir telur Þorsteinn að stangist að meira eða minna leyti á viðteknar réttlætishugmyndir siðfræðinga og stjórnspekinga eins og til að mynda víðfræga réttlætiskenningu John Rawls í bók hans Theory of Justice. Fyrirlesturinn verður fluttur í Lögbergi, stofu 101, og hefst kl. 15.00. Sýning á verk- um Jóns Þorleifs- sonar framlengd VEGNA ágætrar aðsóknar að yfir- litssýningunni á verkum Jóns Þor- leifssonar í Listasafni íslands hefur verið ákveðið að framlengja hana um eina viku. Yfirlitssýningunni lýkur sunnu- daginn 28. nóvember og er því hver síðastur að nota þetta ein- stæða tækifæri til að kynnast verkum Jóns Þorleifssonar, en flest verkanna eru í einkaeign. Sýningin verður opin daglega, virka daga kl. 1.30—16.00, en um helgar kl. 1.30-22.00. Suðurnes: Keilir selur sælgætisdagatöl EINS og undanfarin ár mun Lions- klúbburinn Keilir á Vatnsleysuströnd vera með sölu á sælgætisdagatölum á Suðurnesjum nú fyrir jólin. í dag, laugardag, verður gengið í hús í Grindavík, Sandgerði, Garði, Höfnum, Innri-Njarðvík og Vogum. Á morgun, sunnudag, verður gengið í hús í Ytri-Njarðvík og Keflavík. Ágóði rennur sem fyrr til líkn- armála á Suðurnesjum. Austurbæjarbíó: „Blóðug nótt“ AIJSTURBÆJARBÍÓ hefur hafið sýn- ingar á kvikmyndinni „Blóðug nótt“, sem á ensku heitir „Prom Night“. Myndin er hrollvekja frá Avco Emb- assy-félaginu. Leikstjóri myndarinnar er Paul Lynch, en framleiðandi er Peter Simpson. Handrit gerði William Gray og tónlist er eftir Carl Zittrer og Paul Zaza. Aðalhlutverk leika Lesley Nielsen, Jamie Lee Curtis, Casey Stevens og Eddie Benton. Fræðileg vinnubrögð? Eftir Ólaf Örn Arn- arson yfirlækni Landakotsspítala Nokkur orðaskipti hafa orðið á milli þeirra dr. Friðriks Einars- sonar læknis og Davíðs Á. Gunn- arssonar, forstjóra ríkisspítal- anna, vegna nefndarskipunar heil- brigðisráðherra til þess að vinna að úttekt á daggjaldasjúkrahús- um. Davíð mótmælir þar áliti dr. Friðriks á skoðunum sínum um rekstrarfyrirkomulag heilbrigð- isstofnana og vitnar þar í rit heil- brigðis- og tryggingamálaráðun- eytisins nr. 2/1980, en þar stendur: „Ef (leturbreyting ÓOA) sjúkra- húsin (Landspítali, Borgarspítali og Landakotsspitali) verða áfram rekin sem þrjár sérstakar rekstr- arheildir einhvern tíma, er höf- undur því fylgjandi, að rekstri þeirra verði haldið áfram með mismunandi fjármögnunarkerfi." Rétt er að undirstrika orðið ef í upphafi þessarar setningar því að á næstu blaðsíðu á undan í sama riti og raunar ofar á sömu blað- síðu segir höfundur: „Hagkvæmasta lausnin á rekstri sjúkrahúsa í Reykjavík er vafalaust eitt sjúkrahús á einum stað.“ Og enn: „Miðað við þá stjórnmálalegu, fjárhagslegu og skipulagslegu erfiðleika, sem yrðu á framkvæmd allsherjarsamein- ingar í Reykjavík, er hér lagt til að í fyrstu lotu verði ákveðin verkaskipting ...“ Síðar segir: „Innkaup allra sjúkrahúsa og heilsugæslunnar verði sameinuð, eftir því sem unnt er. öllum stofn- unum verði gert skylt að nota sama bókhaldskerfið. í annarri lotu verði síðan tekin ákvörðun um hvort sameina eigi öll sjúkra- húsin undir eina rekstrarstjórn." Það er svo sannarlega ekki að ástæðulausu að dr. Friðrik kemst að niðurstöðu sinni um skoðanir Davíðs. Allir landsmenn þekkja vænt- anlega pólitískar skoðanir for- manns Alþýðubandalagsins og nú- verandi heilbrigðisráðherra. Ráð- herra hefur verið stefnu sinni trúr. í upphafi ársins var gerð að- för að þeim sjúkrahúsum, sem rekin eru á daggjöldum, með þeim ákvörðunum sem þá voru teknar í daggjaldamálum. Síðan kom aðför ráðherra að stofnunum fyrir þros- kahefta og ákvörðun um föst fjár- lög fyrir Landakotsspítala og Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri áður en nokkur niðurstaða er fengin um ágæti fastra fjárlaga. Fyrir Alþingi liggur nú frum- varp til laga um breytingu á lög- um um heilbrigðisþjónustu. 16. grein þessa frumvarps hljóðar svo: „Við 24. gr. bætist nýr töluliður, er verði 3. tl. og orðist svo: Ráðherra skal með reglugerð kveða á um samvinnu og sam- stjórn sjúkrahúsa í landinu." Verði þessi grein að lögum hef- ur ráðherra þar með fengið ótakmarkað vald til þess að móta sjúkrahúskerfið að sínum geð- þótta. Það er því ekki undarlegt að þeir, sem telja valddreifingu í þessu kerfi heppilegri en algera miðstýringu, óttist að niðurstaða „fræðilegra vinnubragða" nefnd- arinnar sé fyrirfram ákveðin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.