Morgunblaðið - 20.11.1982, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 20.11.1982, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1982 Gullkista þjóðarinnar er stærri en margan grunar cftir dr. Jónas Bjarnason, efnaverkfrœðing Atvinnumál hafa verið í brenni- depli um alllangt skeið. Margir hafa lýst yfir áhyggjum sínum með fábreytni í þeim efnum og talið, að skjóta þurfi fleiri stoðum undir efnahagslífið eins og það er orðað. Undir lok viðreisnartíma- bilsins var gefin út skýrsla að undirlagi Jóhanns Hafstein undir heitinu „Iðnaðaráform", en Guð- mundur Magnússon, háskólarekt- or, samdi hana. Þar var horfst i augu við aðsteðjandi vandamál og reynt að leggja drög að iðnþróun. Síðan þá hefur því miður ekki nógu mikið gerst. Álver og járn- blendiframleiðsla hafa séð dagsins ljós en muna sinn fífil fegurri en nú. Mikið er rætt um orkuvinnslu, og stjórnmálaflokkar hafa allir sína stefnu í þeim málum, en eng- in orkunýtingarstefna er til varð- andi atvinnumál. Að vísu ræða ýmsir um orkufrekan iðnað og hafa væntanlega í huga ál- og kís- ilframleiðslu eða annað í þeim dúr. íslensk endsneytisframleiðsla verður nánast fráleit í það minnsta meðan olía og kol ganga kaupum og sölum milli landa. Smáiðnaður og almennur fram- leiðsluiðnaður á vaxandi í vök að verjast, hvað þá að unnt virðist að brydda á umtalsverðan hátt upp á einhverju nýju, ef ullar- og skinnaiðnaður er undanskilinn. í landbúnaði er sömu sögu að segja. Nautgripaeldi er að vísu í vexti, en sú þróun eykur offram- leiðsluvanda sauðfjárræktar. Milli 80 og 90% af landbúnaðarfram- leiðslunni er enn nautgripa- og sauðfjárafurðir, og öll umræða um nýjar búgreinar hefur reynst ekki mikið meira en orðin tóm, en ekki eru fyrirsjáanlegar miklar breyt- ingar í þeim efnum. En hvað með fiskiðnað? Hefur fiskiðnadur gleymst? Umræða um fiskiðnað hefur fallið í skuggann af þrúgandi bollaleggingum um þorskafla, jafnstöðuafla og hámarksafla. Ut frá áætlunum um aflabrögð hefur síðan verið reiknað með fiskiðnaði eins og hverjum öðrum fylgifisk, sem þiggur sín örlög úr hendi ör- laganornanna og skammsýninnar. Opinberar áætlanir hafa lengst af gert ráð fyrir stöðnun í mannafla í fiskiðnaði, en nú í seinni tíð er gert ráð fyrir nokkurri fjölgun ársstarfa til aldamóta eða úr 8.500 í 10.000. Þegar mönnum verður ljóst, að fiskafli verður ekki auk- inn svo nokkru nemi, kemur fisk- iðnaður upp í hugann og afurða- gæði svo og afurðafjölbreytni komast á dagskrá. Matarholur eru marg- ar í sjávarútvegi í aprílbyrjun á þessu ári var haldin ráðstefna á vegum Verk- fræðingafélags íslands um bætta nýtingu á hráefnum sjávarútvegs og landbúnaðar. Ég flutti þar er- indi undir heitinu „Betri nýting á hráefnum í sjávarútvegi", en einn- ig voru þar flutt önnur erindi um nýjungar í fiskvinnslu. Nokkru síðar var haldinn fundur með full- trúum frá sjávarútvegi og land- búnaði svo og fyrirlesurum frá fyrrnefndri ráðstefnu, en þeir drógu saman efni fyrirlestra sinna í meginniðurstöður og reyndu að leggja mat á skynsemi, fjárhags- lega þýðingu eða arðsemi þeirra framleiðslunýjunga, sem þeir fjölluðu um. Hugmyndin að seinni fundinum mun hafa komið fram hjá Ragnari Halldórssyni, þáver- andi formanni Verkfræðingafé- lags íslands. Sá fundur var fyrir margra hluta sakir mjög athyglis- verður, og mun ég Ieitast við að skýra hvers vegna, á eftir umfjöll- un um nokkrar leiðir til aukinnar verðmætasköpunar í sjávarútvegi. Ef reynt er að tína til öll hugs- anleg atriði eða einstakar fram- leiðsluafurðir, verður listinn ákaf- lega langur. Því er atriðum hér á eftir skipt upp í meginleiðir og nokkur dæmi nefnd. Hvaða framleiðsla eða nýjung er arðsöm? Þetta er spurningin, sem brenn- ur á vörum flestra. En henni er ekki unnt að svara afdráttarlaust. Það verður að gefa sér ákveðnar forsendur, en þær eru flestar mjög breytilegar. Heildardæmið er eins og keðja, en ljóst er, að engin keðja er sterkari en veikasti hlekkurinn. Verkfræðingar og aðrir tæknimenn geta gert út- reikninga á tæknihlið málsins út- frá vissum forsendum, er varða t.d. hráefnisframboð og efnainni- hald, en mun fleira þarf til. Verð- lag á flestum hráefnum er háð margvíslegum pólitískum ákvörð- unum og óvissu, sem á sér djúpar rætur í okkar verðbólguþjóðfélagi. í sjávarútvegi eru margir, sem mega helst ekki heyra orðið „full- vinnsla" eða „frekari vinnsla". Þeir vita flestir, að hagkvæmast er að hafa frjálsan aðgang að þorski og öðrum verðmætum, botnfiski eða síld, og vinna hrá- efnin með hefðbundnum hætti í venjuleg matvæli eins og freðfisk, saltfisk, skreið og saltsíid, en slík vinnsla er að jafnaði arðbær í skynsamlega reknum fyrirtækj- um, ef nóg er um hráefni og rekstraraðstæður eru að meðaltali ekki langt frá „núllpunktinum" svokallaða, sem reiknaður er út í Þjóðhagsstofnun. Þegar spurning- in snýst um ýmsar nýjungar, virð- ast þær flestar hverjar ekki eins arðbærar og hefðbundnar vinnslu- greinar. Þetta er svipað og spurn- ingin um það, hvort það borgi sig að vinna undanrennu, ef maður hefur óheftan aðgang að rjóma. Svarið er nei, ef allur tilkostnaður og kröfur um tekjur miðast við rjómavinnslu. Undanrennuvinnsl- an stenst að sjálfsögðu engan samanburð. En borgar sig að vinna undanrennu, ef enginn rjómi er til? Ef bornar eru saman ýmsar nýjungar i fiskvinnslu og valkostir í almennum framleiðslu- iðnaði, er ekki nokkur vafi, að fiskiðnaður hefur verulega mögu- leika á nýjungum, sem álitnar væru girnilegar, ef um almennan iðnað væri að ræða, svo ekki sé minnst á margt framtakið í land- búnaði. En skapa verður nýjung- um í sjávarútvegi annaö og betra umhverfi, hvað rekstrarforsendur varðar og draga úr neikvæðum áhrifum, sem stafa frá „auðlinda- tökunni" fiskveiðum. Góðar tekjur eru að sjálfsögðu jákvæðar, en frekari úrvinnsla afla stenst eng- an samanburð við afkastamiklar veiðar. Með stjórnmálalegum aðgerðum verður að eyða óhagstæðum áhrif- um fiskveiðiteknanna, en þær móta einnig fiskvinnsluna að vissu marki. Rætt hefur verið um auð- lindaskatt, en sjávarútvegur hefur ekki til þessa viljað horfast í augu við vandann og hafa ýmsir for- ystumenn talið skattinn hættu- legan. Það, sem menn fá þá í stað- inn, er þróun yfir í kvótakerfi á öllum veiðum og hugsanlega út- hlutun veiðileyfa, en slík kerfi eru betri en ekkert, þvi allt er betra en ördeyða á fiskimiðunum. Menn óttast að horfast í augu við sann- leikann og kalla yfir sig skömmt- unarkerfi. Hvaða möguleikar eru girnilegastir? Til þess að meta það er ekki nóg að vita, „hvar feitasta göltinn er að flá“. Það verður einnig að meta líkur á árangri. Framleiðsla á sér- efnum og lyfjum (leiðir 9 og 10) Meginleiðir Dæmi Hugsanleg verðmæti (krónur á ári) 1. Aukin fóðurfram- leiðsla (fiskmjöl). Minnkun rotskemmda hráefnis. Nýting alls blóðvatns. Rækjuskel í fiskfóður. Allt slóg unnið í fisk- mjöl eða meltur. Tugir milljóna. 2. Framleiðsla blautfóðurs. Afskurðir, bein og roð í blautfóður. Nýting á gölluðum fiski og skrapfiski í blautfóður. Tugir eða hundruð milljóna. 3. Betri nýting auka- Nýting hrogna og afurða til manneldis. lifrar. Afskurður nýttur í marning. Nýting grásleppu. Betri nýting búklýsis. Milljónir eða tugir milljóna. 4. Betri nýting hráefna Netaskemmdir aflagð- fyrir hefðbundin matvæli. ar. Skemmri útivistar- tímar skipa. Jafnari afli. Nýting á öllum skrapfiski. Tugir milljóna. 5. Hækkun gæðaflokka Meiri gæði freð- (aukin gæði hefð- bundinna matvæla). fisks, skreiðar, saltsíldar o.fl. Hundruð milljóna. 6. Aukning framleiðslu á Freðfiskflök í stað verðmestu afurðum á kostnað verðminni. skreiðar. Lausholda þorskur frystur í stað söltunar. Lausfrysting. ? 7. Frekari úrvinnsla hefð- bundinna söluafurða. Niðurlagning salt- síldar. Lifrar-, síldar- og hrognakæfur. Ymsar nýjar pakkningar fyrir freð-, salt- og harðfisk. ? 8. Framleiðsla nýrra Kolmunnaskreið. afurða. Spærlingsskreið. Humarkraftur. Kolmunnaflök Fiskpylsur. Fiskhleifar (kjötlíki). Fiskborgarar. ? 9. Sérefni úr fiskhlutum. Matarlím úr grásleppu. Litarefni úr rækjuskel. „Skinn“ úr roði. Amínósýrur. ? 10. Lyfjaefni úr fisk- HHormón (t.d. insúlín). hlutum. Prostaglandín. Gallsýrur. ? Jónas Bjarnason „Það er lítill vafi á því, að sjávarútvegur er mun stærri gullkista en margur hefur taliö. Til þess að nýta megi betur mögu- leika hans, verður að skapa honum möguleika til að fjármagna nýjungar og tilraunastarfsemi og stöðva þá blóðmjólkun hefðbundinna vinnslu- greina, sem veldur því, að þær rétt hanga á horrim- inni og verða fyrir miklum áföllum í gæðamálum.“ getur gefið mikil söluverðmæti, en líkur á árangri verða að teljast mjög veikar almennt, því gífur- lega þekkingu þarf til svo og rann- sóknir. Til viðbótar þessu þarf mikla þekkingu á markaðsmálum og jafnvel markaðsvald (einokun) eins og stóru erlendu lyfjafyrir- tækin hafa yfirleitt. Það má segja, að eins skynsamlegt sé að hefja bílaframleiðslu í samkeppni við Mercedes Benz. Leiðir 1—3 fela í sér ýmsa val- kosti, sem tæknilega eru ekki mjög flóknir, en hafa yfirleitt til þessa strandað á arðsemi eða viðhorfum. Mörg atriði á þessu sviði eru á mörkum arðsemi, en yfirleitt gæti ekki verið um mjög stórar upphæðir að ræða í sölu- verðmæti í þ.m. borið saman við aðrar leiðir. Leiðir 4—6 eru á sviði hefðbundinna afurða fyrst og fremst og byggjast á bættri nýt- ingu og gæðum svo og tilfærslu á hráefnum milli hefðbundinna vinnslugreina. Á þessu sviði getur verið um að ræða hundruð millj- óna króna og hugsanlega millj- arða. Fjöldamörg atriði er unnt að benda á á þessu sviði, en þau eru öll ákaflega samtvinnuð núver- andi hagsmunum og fyrirkomu- Þjóðsögur og þættir 2. bindi Einars Guðmundssonar komið út Jólalögin í píanó útsetningum I'T ER koniið 2. bindi af þjóðsögum og þáttum, sem Einar Guðmundsson kennari hefur safnað. „Einar Guómundsson kennari er einn hinn afkastamesti siðari tíma manna, sem unnið hafa að söfnun sagna og varðveizlu þjóðlegs fróð- leiks,“ segir í frétt frá Skuggsjá, sem gefur bókina út. „í söfnun sinni hefur hann leit- að fanga vítt um land, einkum þé um Suðurland og Vestfirði, og orö- ið vel ágengt. Fróðleik þann, sem Einar birtir í þessu safni sínu, hefur hann numið af vörum al- þýðufólks, karla og kvenna, og er safn hans bæði fjölbreytt að efni og skemmtilegt aflestrar. í þessu bindi er að finna sagnir, kveðskap og ævintýri, sem áður hafa birzt í sagnakverunum Gambanteinar, Nýtt sagnasafn og Dulheimar. Öll e;. pau sagnakver fyrir löngu uopseld og ófáanleg á almennum rókamarkaði." Þjóðsögur og þættir II er 349 bls. að stærð. Setningu og prentun hefur Steinholt hf. annazt, cn Bókfell hf. hefur bundið bókina. Káputeikning er eftir Lárus Blöndal. Útgefandi er Skuggsjá. ALMENNA bókafélagið hefur sent frá sér nótnabókina Jólalögin í út- setningu og umsjá Jóns Þórarins- sonar. Alls eru í bókinni 30 lög og Ijóð, sem öll eru tengd jólunum og hugblæ jólanna, eins og segir í kynningu bókarinnar. Þarna eru jólasálmarnir al- kunnu, sem sungnir hafa verið á jólum í áraraðir, og einnig gamlir jólasálmar færðir í nýjan búning, þeir sem sungnir voru á jólunum „áður en nýi söngurinn" ruddi sér til rúms á 19. öld. Einnig eru hér nokkrir sígildir jólasöngvar ann- arra þjóða. Jón Þórarinsson hefur valið lögin og útsett. „Útsetningar eru auðveldar. Af sumum lögunum eru þær fleiri en ein og þá ofurlít- ið misþungar. Má þá velja um út- setningu eða leika allar eftir vild,“ eins og segir í kynningu forlagsins á bókarkápu. Jólalögin er 56 bls. í brotinu 21x24 cm. Bókin er unnin til prentunar af Jóni Kristni Cortes, Isalög sf. og prentuð í Odda.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.