Morgunblaðið - 20.11.1982, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1982
AF ERLENDUM VETTVANGI
eftir PAUL LEWIS
Þúsundir manna söfnuðust saman á Bastilhitorgi í maí í fyrra til að fagna kjöri Mitterrands og sigri sósíalista.
Framvinda efnahagsmálanna hefur hins vegar orðið með öðrum hætti en vonir stóðu til enda ræðst hún
sjaldnast af kosningaúrslitum einum saman.
Frakkland:
Leitað á náðir einkafjármagnsins
til bjargar þjóðnýttum fyrirtækjum
Franskir jafnaðarmenn létu það verða eitt af sinum fyrstu verkum eftir
að þeir komust til valda í kosningunum 1981 að efna til víðtækrar
þjóðnýtingar, bæði stórra iðnaðarsamsteypa og fjölmargra banka. Hugð-
ust þeir á þann hátt ýta undir efnahagslíhð, sem var farið að sýna ýmis
merki stöðnunar. I'essar áætlanir þeirra hafa brugðist að flestu leyti.
Mikið tap er á þjóðnýttu fyrirtækjunum, samdrátturinn i efnahagslifinu
eykst stöðugt og frankinn á í vök aö verjast. Af þessum sökum hefur
Mitterrand nú ákveðið að leita á náðir einkafjármagnsins í landinu
ríkisfyrirtækjunum til bjargar.
Um miðja þessa viku fór
franska stjórnin þess á
leit við almenna fjár-
magnseigendur, að þeir legðu
fram helming þess fjár, sem
áætlað er að 2 stærstu fyrirtæk-
in, sem þjóðnýtt voru, þurfi til
fjárfestingar á árinu 1983. Sú
upphæð er raunar helmingi
hærri en þessi ríkisfyrirtæki,
sem keppa við einkafyrirtækin á
frönskum markaði og erlendis,
fengu úr ríkiskassanum á þessu
ári, sem nú er að líða.
Verðbréfasalar og bankamenn
í Frakklandi tóku þessari bón
með nokkurri tortryggni og
kváðu of snemmt að spá um und-
irtektir einkaaðila vegna þess að
vaxtakjör og aðrir skilmálar
hafa enn ekki verið ákveðnir.
Þeir bentu þó á, að skuldabréf-
unum, sem fyrri eigendur fengu
við þjóðnýtinguna, hefði verið
mjög vel tekið á verðbréfamark-
aðnum vegna hárra vaxta, sem
þeim fylgdu.
Aætað er, að ríkisfyrirtækin
fjárfesti fyrir fjóra milljarða
franka á næsta ári og þar af
mun ríkissjóður útvega einn
milljarð. Sum ríkisfyrirtækj-
anna, sem í raun fjármögnuðu
þjóðnýtinguna sjálf með því að
kaupa aftur með eigin fé skuida-
bréfin, sem fyrri hluthafar
fengu í hendur, ætla að létta
undir með sér með því að selja
þessi bréf aftur, en mestan hluta
fjárins á að fá með sölu hiuta-
bréfa á almennum markaði.
Þessum bréfum mun bó e’rki
fylgja atkvæðisréttur í málefn-
um fyrirtækjanna.
Þótt ekki liggi fyrir í öllum
atriðum hvernig þessum málum
verður hagað, er þó ljóst, að fjár-
festingaraðilum verður tryggð
örugg ávöxtun fjárins auk
greiðslna í hlutfalli við arð.
Sami háttur var hafður á þegar
bankarnir, sem stjórnin þjóð-
nýtti, voru snemma á þessu ári
neyddir til að lána næstum einn
milljarð franka til stáliðnaðar-
ins franska, sem næstum var
gjaldþrota.
í tilkynningu stjórnvalda
sagði, að þjóðnýttu iðnfyrirtæk-
in 2 myndu leggja fram tillögu
um nýja fimm ára áætlun fyrir
lok þessa mánaðar og að stjórnin
myndi taka afstöðu til hennar
fyrir árslok. Meginefni tillög-
unnar er um aðferðir til að auka
samkeppnishæfni fyrirtækj-
anna, þróun nýrrar tækni, auk-
inn útflutning, orkusparnað og
hvernig koma megi í veg fyrir að
enn fleiri missi atvinnuna hjá
fyrirtækjunum en orðið er.
Áætlanir sósíalistastjórnar-
innar um að biðja einkaaðila um
að fjármagna þjóðnýttu fyrir-
tækin sýna vel hve ástandið er
alvarlegt í frönskum ríkisfjár-
málum. Þær endurspegla einnig
þá ákvörðun Mitterrands, að
greiðsluhallinn á næsta árj megi
ek.ki fara fram úr 3% miðað við
'arframleiðslu, en það er lið-
.ii i baráttu hans við verðbólg-
una og stöðuga gengislækkun
franska frankans.
Að einu undanteknu mun mik-
ill halli verða á þjóðnýttu fyrir-
tækjunum á þessu ári en í fyrra
töpuðu þau um 1,7 milljörðum
franka.
Embættismenn frönsku
stjórnarinnar halda því fram, að
ef einkaaðilar verði látnir taka
þátt í fjármögnun ríkisfyrir-
tækjanna muni það sefa ótta
Bandaríkjamanna og annarra
þjóða um að frönsk stjórnvöld
haldi þessum fyrirtækjum í raun
uppi með því að taka á sig allan
hallann. Enn sein komið er hafa
að vísu engar kvartanir borist
frá ríkisstjórnum annarra ríkja
vegna þeirra fjárfúlgna, sem
franskir sósíalistar hafa dælt í
ríkisfyrirtækin, en nú þegar má
þó sjá ýmis merki um óánægju,
bæði meðal bandamanna Frakka
í EBE og í Bandaríkjunum.
Vitað er, að framkvæmda-
nefnd Efnahagsbandalagsins
hefur fylgst mjög náið með þess-
um málum vegna hugsanlegra
brota á reglum bandalagsins um
frjálsa verslun og fjármálanefnd
öldungadeildarinnar bandarísku
lét það verða sitt fyrsta verk, áð-
ur en hún fór til Genfar á ráð-
herrafund um heimsverslunina,
að koma til Parísar og kynna sér
áætlanir frönsku stjórnarinnar í
iðnaðarmálum og hvernig háttað
er stuðningi hennar við þjóð-
nýttu fyrirtækin.
Það var fremur af pólitískri
hugsjón en efnahagslegri nauð-
syn, sem franskir sósíalistar réð-
ust í þjóðnýtingu fyrrgreindra
fyrirtækja. Hafi þeir hins vegar
bundið einhverjar vonir við
hana, hafa þær brugðist, enn
sem komið er a.m.k. Sumir vilja
rekja það beint til þjóðnýtingar-
innar en að sjálfsögðu veldur
mestu sá samdráttur, sem orðið
hefur í efnahagslífi Frakka og
um allan heim. Það lendir hins
vegar á frönsku stjórninni að
bera byrðarnar og hún kann að
standa frammi fyrir óvæntum
erfiðleikum ef viðskiptaþjóðir
hennar saka hana um undirboð,
með því að í raun greiði hún
niður framleiðslu viðkomandi
fyrirtækja.
SV
Fríkirkjusöfnuðurinn í Reykjavík
Prestskosning
Umsækjandi sr. Gunnar Björnsson
Kosning fer fram í Miðbæjarskólanum,
laugardag og sunnudag 20. og 21. nóv-
ember, kl. 10—18, báða dagana.
Kosningarétt hafa þeir sem náö hafa 16
ára aldri 1981, eru í söfnuöinum, eða
skrá sig í hann áður en kjörfundi lýkur.
Fríkirkjufólkl — Bjóöum sr. Gunnar
velkominn til starfa með því aö fjöl-
menna á kjörstað.
Arshátíð
Félags sjálfstæöismanna í Fella- og Hólahverfi
veröur haldin laugardaginn 20. nóv. 1982 aö
Seljabraut 54, (hús Kjöts og fisks).
1. Borðhald.
2. Skemmtiatriði.
3. Dansað til kl. 02.00.
Borðhald hefst stundvíslega kl. 19.00.
Mætum öll og höfum meö okkur gesti.
Miöapantanir í símum 77748 og 71519 milli kl.
18—22. Nefndin.
KAU PM AN N ASAMTÖK ÍSLANDS
Kaupmannasamtök
íslands spyrja?
Er þér sama
hvaða vörumerki
þú kaupir?
Ef ekki athugaöu þá vel aö í verökönnun Verölags-
stofnunar er ekki geröur greinarmunur á gæöum og
vörumerki þegar verösamanburöur er geröur.
Gerir þú ekki mikinn mun á dýrasta og ódýrasta
bílnum eöa dýrasta og ódýrasta kjötinu?
Kaupmannasamtök íslands.
Alfa-Laval
styrkurinn
Sænska fyrirtækiö Alfa-Laval AB, bauö áriö 1980 aö
veita þeim sem vinna aö mjólkurframleiöslu eöa í
mjólkuriðnaöi, styrk einu sinni á ári næstu fimm ár.
Styrknum skal varið til þess aö afla aukinnar mennt-
unar eöa fræöslu á þessu sviöi. Upphæö styrksins er
sænskar kr. 10.000,- hvert ár.
Þeir sem til greina koma viö úthlutun Alfa-Laval
styrksins eru:
1. Búfræöikandidatar.
2. Mjólkurfræöingar.
3. Bændur, sem náö hafa athyglisverðum árangri í
mjólkurframleiöslu.
4. Aðrir aöilar, sem vinna aö verkefnum á sviöi
mjólkurframleiöslu og mjólkuriönaöar, eöa hyggj-
ast afla sér menntunar á því sviöi.
Umsóknir meö ýtarlegum upplýsingum um fyrri störf,
svo og hvernig styrkþegi hyggst nota styrkinn þurfa
aö berast undirrituöum fyrir 23. desember. Uthlutun
veröur tilkynnt 31. desember.
Samband ísl. samvinnufélaga Dráttarvélar hf.
Vóladeild,
Ármúla 3,
105 Reykjavík.
Sími 38900.
Sudurlandsbraut 32,
105 Reykjavík.
Sími 86500.