Morgunblaðið - 20.11.1982, Síða 9

Morgunblaðið - 20.11.1982, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1982 9 LYNGHAGI 4RA HERB. — MEO BÍLSKÚR Mjög glæsileg 120 fm íbúö á 1. hæö meö 2 skiptanlegum stofum og 2 svefnherb. Nýstandsett íbúö. Laut •trax. HJARÐARHAGI 3JA HERB. — MEO BÍLSKÚR ibúöin er öll í sérflokki hvaö gæöi snert- ir. Eikarinnrétting í eldhúsi af vönduð- ustu gerö. Allar innréttingar og tæki á baöi nýjar. Nýir skápar í svefnherbergi og milligerö í stofu. Ný teppi. Nýtt gler. RAUÐALÆKUR 6 HERB. — NÝ ÍBÚÐ hæö ca. 160 fm í nýju húsi. ibúöin skipt- ist m.a. í 2 stofur, skála, 3—4 svefn- herb. Arinn. ibúöin er alveg ný meö fal- legum beikiinnréttingum. KÓPAVOGUR 5 HERB. MED BÍLSKÚR Efri hæö ca. 136 fm í þríbýlishúsi, 15 ára gömlu. Vandaöar innréttingar. Þvottaherb. á hæöinni. Sór hlti. AUSTURBRÚN 2JA HERB. Falleg 2ja herb. íbúö á 10. hæö í iyftu- húsi meö suöur svölum. Laus fljótlega. HVASSALEITI 4RA—5 HERB. M. BÍLSKÚR íbúöin sem er ca. 105 fm í fjölbýlishúsi. Skiptist m.a. í stofu, boröstofu, hús- bóndaherbergi og 2 svefnherbergi. SELJABRAUT 4RA—5 HERB. — 2. HÆO Sérlega glæsileg ibúö aö grunnfleti ca. 110 fm í fjölbýlsihúsi. ibúöin skiptist m.a. í stofu, boröstofu, TV-hol og 3 svefnherb. á sér gangi. Þvottahús viö hliö eldhúss. Mjög góöar innréttingar í eldhúsi og baðherb. Suöur svalir. Ákveöin sala. HOLTSGATA 3JA HERB. Falleg ca. 90 fm ibúö i Vesturbænum meö stórri stofu og 2 svefnherb. Auka- herb. i risi fylgir. TJARNARGATA 3JA HERBERGJA Risíbúö i 4ra hæöa steinhúsi endurnýj- uö og i góöu standi. Laus fljótlega. LAUGARNESHVERFI SÉRHÆD MEÐ BÍLSKÚR 4ra herb. ca. 120 fm íbúö á efri hæö í 3-býlishúsi. Nýlegar innréttingar. Sér hiti. Fallegur garöur. TIMBURHÚS í VESTURBÆNUM Vel meö fariö hús viö Nýlendugötu sem er hæö, ris og kjallari. Grunnflötur ca. 75 fm meö 2 íbúöum. Laus strax. Verö 1,2 millj. ÁLFHEIMAR 3JA HERB. JARÐHÆÐ Mjög góö ibúö á jaröhæö i þríbýlishúsf meö stofu, eldhúsi, rúmgóöu holi, baö- herb. og 2 svefnherb. Sór inngangur og sér hiti. Láus 1. febrúar nk. FJÖLDI ANNARRA EIGNA Á SKRÁ SÍMATÍMI í DAG KL. 1—3 Suöurlandsbraut 18 84433 82110 V^terkurog k/ hagkvæmur auglýsingamiðill! Austurstræti 7. Símar 20424 14120 Heimasímar sölumanna: Þór Matthíasson 43690, Gunnar Björnsson 18163. Opiö 13—17 Einbýlishús — Garðabæ Einbýlishús á tveimur hæöum, samtals 303 fm, efri hæö fok- held og neöri hæö tilbúin. Bíl- skúr. Einbýli — Árbær Einbýlishús á einni hæö, 153 fm, auk bílskúrs, gott hús, góö lóð. Einbýlishús — Langagerði Hús, hæö og ris, samtals 160 fm auk bílskúrs. Mikiö endur- nýjaö. Sérhæð — Nýbýlavegur Mjög góö efri sérhæð, 140 fm, 5—6 herbergi, auk bílskúrs. Góðar innréttingar. Sérhæö — Hlíðar Efri sérhæð, 118 fm, 2 svefn- herbergi, 2 samliggjandi stofur, bílskúr. 6 herb. — Gaukshólar Glæsileg 6 herbergja íbúö á tveimur hæðum. Góöar innrétt- ingar, íbúöin er ca. 160 fm. Bílskúr. 4ra herb. — Ásbraut Góö 4ra herbergja íbúö á 1. hæð. Góðar innréttingar. Bíl- skúrsréttur. 4ra herb. — Ægisgötu Góö 4ra herbergja íbúö á 2. hæö. Nýjar innréttingar. 4ra herb. — Kóngsbakki Góö 4ra herb. íbúö 110 fm á 1. hæö. Þvottahús í íbúðinni. 3ja herb. — Krummahólar Góð 3ja herb. íbúö á 6. hæö í lyftuhúsi ca. 90 fm. 3ja herb. — Kjartansgata Góö 3ja herbergja kjallaraíbúð, sér inngangur, góöar innrétt- ingar ca. 90 fm. 3ja herb. — Vitastígur Góö íbúö á 2. hæö, nýlegar inn- réttingar. 2ja herb. — Krummahólar Góö 2ja herbergja íbúö á 3. hæö i lyftuhúsi, góöar innrótt- ingar. Verslunar- og iönaðarhúsnæði við Laugaveg, verslunar- og iönaöarpláss, allt nýstandsett, frystiklefar, ca. 100 fm samtals. Keflavík Góð 4ra herbergja ibúö í fjöl- býlishúsi, ca. 107 fm. Keflavík Einbýlishús, 225 fm, 2 hæöir og kjallari. Góö lóö, bílskúr. Vantar vandaöa 3ja herbergja íbúö í Reykjavík. Sterkur kaupandi. Vantar hús, hæö og ris í Kleppsholti, Vogum, Laugarneshverfi, Hlíö- um. Til greina koma fleiri svæöi. Vantar góða 5 herb. íbúð í blokk innan Elliöaáa. Sigurður Sigfússon s. 30008. Lögfræðingur: Björn Baldursson. Selfoss — einbýlishús til sölu 120 fm nýtt steinsteypt einbýlishús á góöum staö á Selfossi. Frágengin lóð. Húseignin skiptist í: 3 svefnherb., stóra stofu, rúmgott eldhús, baö og þvottahús. Uppl. í símum 99-1877, 1887 og 1265. öoáD Umsjónarmaöur Gísli Jónsson 172. þáttur Um daginn var rætt um fiskafurðir í Sjónvarpinu, meðal annars um léleg gæði þeirra. Þetta fær ekki staðist. Gæði eru gæði og geta, eðli sínu samkvæmt, ekki verið lé- leg, vond eða ill. Hins vegar getur varan, afurðirnar verið lélegar. Gæði geta verið mikil eða lítil eftir atvikum, en aldrei vond. í málvöndunarþættinum Gætum tungunnar hér í blaðinu var síðastliðinn laugardag minnt á að réttara væri að segja miklu betra en mikið betra. Mig langar til að ítreka þetta og skýra lítið eitt. Miklu í þessu sambandi er svokallað mismunarþágufall. Það táknar hversu miklu munar á því sem verið er að bera saman. Þetta er miklu betra en hitt merkir þá: þetta er betra en hitt, svo að munar miklu. Þetta mismunarþágufall er býsna al- gengt enn og prýðir málið. Litlu munaði, sagði músin, þeg- ar hún mé í sjóinn. Þetta er gamalt orðtak. Það munaði litlu um músarmiguna í hafinu. Hugsið ykkur hvað þetta yrði flatneskjulegra, ef haft væri eftir músinni: lítið munaði o.s.frv. Tökum fleiri dæmi. Eitthvað er sýnu betra en annað. Hér getum við ekki sleppt þágufall- inu og sagt: þetta er sýnt betra en annað. Sýnu er mismunar- þágufall. Þetta er sýnu betra merkir: þetta er sjónarmun betra. Mjög oft stendur mismunar- þágufall með samanburðar- þágufalli. Táknar þá saman- burðarþágufallið þann aðila sem borið er saman við, en mismunarþágufallið hver munurinn er. Dæmi: Hann er mér miklu meiri = hann er meiri en ég, svo að munar miklu. Þessi útþynnta setning sýnir hversu rismeira verður málið og gagnorðari stíllinn, ef við kunnum rétt að fara með þessi ævagömlu þáguföll. Enn má heyra menn deila um boðhátt af sögninni að kaupa. Hvort eigum við að segja kauptu eða keyptu? Þetta mál er flókið. Aðalreglan er sú, að boð- háttur myndist beint af nafn- hætti og ætti þá skilyrðislaust að vera kauptu, ef þessi sögn lyti þeirri reglu. En sögnin að kaupa er ekki venjuleg. Kenni- myndir af henni eru kaupa, keypti, keypt. Lítur því út fyrir að þarna hafi orðið svokallað i-hljóðvarp frá nafnhætti til þá- tíðar, en þess eru annars engin dæmi. Ég verð þVí að trúa og halda fram kenningu meistara míns, Halldórs Halldórssonar, en hann hefur fært rök að því að til hafi verið tvær sagnir um þessa athöfn, önnur með hljóðvarpi í öllum kennimynd- um: keypti, keypt, hin án hljóð- varps í öllum kennimyndum: kaupa, kaupaði, kaupað. Síðan hafi nafnhátturinn af hinni síðarnefndu sigrað, en þátíðar- myndirnar af hinni fyrr- nefndu. Verður þá til sam- runabeygingin kaupa, keypti, keypt. Niðurstaða af þessu verður þá sú, að báðar boð- háttarihyndirnar séu réttar. Hinn mjög svo algengi boð- háttur keyptu væri rétt mynd- aður af hinum týnda nafn- hætti, en kauptu rétt myndað- ur af þeim sem varðveist hef- ur. Við skulum því ekki eyða mikilli orku í deilur um þessar nafnháttarmyndir. Vafalítið sigrar boðháttarmyndin kauptu í samræmi við hefð málsins. I orðum þeim, sem músinni voru lögð í munn framar í þessum þætti, kom fyrir orð- myndin mé. Hún kennir okkur að til geta verið fleiri en ein orðmynd jafnrétthá, ef svo mætti að orði komast. Oft er önnur mun meira notuð en hin, þótt sú hin sjaldgæfari teljist ekki rangt mál fyrir þá sök. Af sögninni að míga eru sem sagt til tvær þátíðarmyndir góðar og gildar, mé og meig. Hér skal ekki skýrt hvernig slíkar tví- myndir verða til, en sama gild- ir um aðrar sagnir sem fara eftir svokallaðri fyrstu hljóð- skiptaröð,1 þær sem hafa g- hljóð í stofni. Þeir eru síga, stíga og hníga. Maður seig eða sé í bjarg, einhver hneig eða hné niður, og margir kunna vísuna um prestinn sem í stól- inn sté. Líku máli gegnir um sagnir eftir 2. hljóðskiptaröð, þær sem hafa g-hljóð í stofni, þ.e. sagnirnar fljúga, ljúga, sjúga, smjúga. Þessar sagnir hafa ýmist þátíðarmyndirnar flaug, fló, laug, ló, saug, só eða sma- ug, smó. Myndin með ó-inu er sýnu sjáldgæfust af sögninni að sjúga. Við misskiljum ekki, þótt sagt sé fuglinn fló, um Gunnar Lambason sagði í Njálu, að hann 16 frá víða í Njálsbrennulýsingu sinni, og misskilst það ekki heldur. Þá held ég við kunnum flest söng- texta Jónasar Jónassonar á Hrafnagili um Sigga sem var úti með ærnar í haga og vissi að lágfótta smó dældirnar. Gaman er út frá sumum þeim sögnum, sem nú hafa verið letraðar, að athuga svo- kallaðar orsakarsagnir sem af þeim hafa myndast. Orsakar- sagnir tákna að láta það gerast sem felst í móðursögninni. Þær myndast af 2. kennimynd sagnarinnar og með i-hljóð- varpi, þegar því verður við komið, en gerist alls ekki ef sögnin fer eftir 1. hljóðskipta- röð. Af sögninni að hníga verð- ur því til orsakarsögnin hneigja = láta hníga, þegar við hneigjum höfuðið, látum við það hníga. Ef við færum okkur yfir í 2. hljóðskiptaröð, þá verður orsakarsögnin af fljúga t.d. fleygja (af flaug). Fleygja merkir að láta eitthvað fljúga. Af smjúga kemur orsakar- sögnin að smeygja. Ef við smeygjum einhverju, látum við það smjúga. Stundum hagar svo til að or- sakarsögnin verður eins og móðursögnin í nafnhætti, en sá grundvallarmunur helst, að allar orsakarsagnir hafa veika beygingu. Lítum á brenna. Af henni er þátíðin brann. Síðan myndum við af henni nýja sögn með hljóðvarpi, og hún verður auðvitað brenna líka, en beygist brenna, brenndi, brennt. Sá er einnig munurinn á veiku sögninni og hinni, að hin síðarnefnda stýrir falli, er áhrifssögn, eins og allar orsak- arsagnir. Eldurinn brann. Sögnin er áhrifslaus, en eldur- inn brenndi mig. Sögnin stýrir falli. Lítum aðeins á sögnina að hverfa í lokin. Sterka sögnin er hverfa, hvarf, hurfum, horfínn, sbr. nafnorðið hvarf. Af henni myndast orsakarsögnin hverfa, hverfði, hverft sem fær merk- inguna að snúa, sbr. hverfi- steinn = steinn sem snýst, hverfull, mér verður hverft við og nýyrðið hverfill fyrir túrbína. Þessu er einnig skylt orðið hvirfill samanber hvirfil- vind og þann líkamshluta á okkur, sem kalla má einhvers konar snúningspunkt. í Háva- málum segir: Hverf er haustgríma. Það merkir breytileg, hverf- lynd, umhleypingasön eru veð- rin á haustnóttum. Þarna er komið kvenkyn lýsingarorðs- ins hverfur, þess sem áður var hér látið koma fram í hvorug- kyni: mér verður hverft við. Þjóðrekur þaðan kvað: Okkar lunderni hvikult og hverft hafa kynslóðir varðveitt og erft og við ástríðubál, kveikt í æðum og sál, ófá mannanna skapbrigði skerpt. íbúð óskast til leigu Okkur vantar 2ja til 3ja herb. íbúö strax. Til greina kæmi aö leigja hana í 5—6 mánuði. Einnig kæmi til greina að leigja íbúö meö húsgögnum. Allar nánari upplýsingar á skrifstofunni. 29766 OG 12639 GRUNDARSTIG11 GUÐNISTEFANSSON SOLUSTJORI 0LAFUR GEIRSSON VIÐSKIPTAFR. ió af meginþorra þjóóarinnar daglega! JlðripiiiiiM&foifo

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.