Morgunblaðið - 20.11.1982, Síða 24

Morgunblaðið - 20.11.1982, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1982 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aóalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- alstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskrift- argjald 130 kr. á mánuöi innanlands. i lausasölu 10 kr. eintakió. Hagsmunir Islands og hafréttarmál Utfærsla fiskveiðilögsögu okkar fyrst í 4 sjómílur, síðan í 12, þá í 50 og loks stóra stökkið 1976 í 200 sjó- mílur vóru mikilvæg giftu- spor í lífsbaráttu íslendinga fyrir þjóðarvelferð og efnahagslegu sjálfstæði. Þetta gildir ekki síður um þá samninga við umheiminn, sem tryggðu viðurkenningu hans á rétti okkar, — og ýttu erlendum fiskveiðiflotum endanlega út úr hinni nýju fiskveiðilandhelgi. Útfærsl- an í 200 sjómílur var eitt höfuðviðfangsefni ríkis- stjórnar Geirs Hallgríms- sonar, 1974—1978, en Matthías Bjarnason, þáver- andi sjávarútvegsráðherra, leiddi undirbúning og fram- kvæmd hennar farsællega. Því miður hefur sá ávinn- ingur, sem útfærsla fisk- veiðilögsögunnar færði í þjóðarbúið, ekki komið nægjanlega fram í betri lífskjörum einstaklinga eða bættri stöðu þjóðarbúsins út á við, vegna utanaðkomandi áfalla, s.s. margföldunar á oliuverði, en fyrst og fremst vegna heimatilbúinna vandamála á sviði pólitískr- ar stjórnsýslu, sem sagt hafa til sín á flestum sviðum atvinnu- og efnahagsmála, þ.á.m. á verðlagsþróun í landinu. Veiðisókn stækk- andi skipastóls, langt um- fram veiðiþol nytjafiska, hefur og dregið verulega úr arðsemi sjávarútvegs og kauphlut sjómanna. Engu að síður er ljóst, að án þeirra ávinninga, sem útfærslan 1976 færði í þjóðarbúið, hefðu lífskjör þjóðarinnar skerst mun verr en þó er orðið, og atvinnuleysi sagt til sín. Hafréttarsáttmáli Sam- einuðu þjóðanna, sem ís- lenzkir embættis-, vísinda- og stjórnmálamenn höfðu ríkuleg áhrif á, var næsta stóra skrefið í hagsmuna- gæzlu okkar á sviði haf- réttarmála. Hann felur í sér ákvæði, sem íslendingar geta og hafa byggt á hags- munakröfur á sviði hafrétt- armála. Samningurinn um Jan Mayen-svæðið var fyrsta skrefið. Tvö hin næstu, sem enn eru aðeins í sjónmáli, snerta Rochall- svæðið, suður af landinu, og Reykj anesh ryggi n n. Eyjólfur Konráð Jónsson, alþingismaður, hefur haft frumkvæði um málatilbúnað á þessu sviði á Alþingi. Þar liggja nú fyrir þrjú þingmál, varðandi hafréttarmál, sem hann er ýmist flutningsmað- ur að eða meðflutningsmað- ur: Tillaga um samstarf við Færeyinga um sameiginlega réttargæzlu á Rochall-svæð- inu, tillaga um haf- sbotnsréttindi íslands á Reykjaneshrygg, en í því máli er Pétur Sigurðsson, al- þingismaður, fyrsti flutn- ingsmaður, og tillaga, sem Eyjólfur flytur ásamt Al- bert Guðmundssyni, um ráð- stafanir til að stöðva rán- yrkju Færeyinga á Atl- antshafslaxi. Ekki verður farið út í efnisatriði þessara þingsályktunartillagna hér, en þær eru allar byggðar á ákvæðum hins nýja hafrétt- arsáttmála um skyldur og réttindi strandþjóða. Varðandi fiskveiðar og fiskvinnslu, sem eru lang mikilvægasti þáttur verð- mætasköpunar og útflutn- ingstekna þjóðarinnar, skiptir höfuðmáli, að nýta nytjafiska innan fiskifræði- legra marka, haga veiðisókn eftir veiðiþoli, vanda út- flutningsvöru vel, enda sölu- samkeppni harðnandi á mörkuðum okkar, og styrkja sölustöðu okkar í hvívetna. En jafnframt þarf að tryggja okkur þau haf- sbotnsréttindi, sem við eig- um tilkall til utan 200 mílna lögsögunnar, samkvæmt ákvæðum hafréttarsátt- málans, en til þess þarf fræðilega gagnasöfnun og kröfugerð, sem byggir á jarðfræðilegum og hafrétt- arlegum forsendum. Sú kröfugerð þjónar tvennum tilgangi, að tryggja okkur rétt til líklegra eða hugsan- legra verðmæta í hafsbotn- inum, og til að koma í veg fyrir hugsanlegt jarðrask annarra þjóða, sem stefnt gætu íslenzkum hagsmunum í hættu. Þess vegna eru þau hafréttarmál, sem nú er fjallað um á Alþingi, mikil- vægari er margur hyggur. Þúsundum lesta af síld ekið í bræðslu — segir Eiríkur Tómasson í Grindavík „NÚ, EFTIR að síldarsöltun upp I gerða sölusamninga er lokið, er ástandið á síldveiðunum og verk- uninni þannig að þúsundir lesta hafa verið keyrðar í bræðslu. Sem dæmi má nefna, að á Hornafirði var 400 lestum keyrt I bræðslu skömmu eftir að söltun lauk og bér i Grindavík hefur talsvert farið í bræðslu, meðal annars 40 lestir í morgun. I>á er svipaða sögu að segja frá Vestmannaeyjum og svona má halda lengi áfram,“ sagði Eiríkur Tómasson, fram- kvæmdastjóri hjá Þorbirni hf. í Grindavík, í samtali við Morgun- blaðið í gær. Eríkur sagði ennfremur, að eina leiðin til þess að leysa ríkj- andi öngþveiti væri að knýja stjórnvöld til að beita sér fyrir sölu á viðbótarmagni á saltsíld til Sovétríkjanna, það væru möguleikar á aukinni sölu þang- að. Nú væri staðan þannig, að menn bæru mikinn skaða af því að keyra síld í bræðslu fyrir um 30 aura kílóið í stað 1,45 eða 2,45 króna eftir stærð síldarinnar. Nú væri til dæmis sú staða hjá Þorbirni, að þeir væru með bát, sem væri að landa mjög góðri síld og það eina, sem hægt væri að gera við þá síld, væri að salta hana á Rússlandsmarkað eða að keyra hana í bræðslu. Ákvörðun hefði verið tekin um að salta hana og sjá síðan hvað gerðist, það mætti þá sturta úr tunnun- um í bræðslu. Sömu sögu væri að segja af fleiri stöðum. Þess væru dæmi að hlaupið hefði verið undir bagga með síld- arfrystingunni með því að veita henni ríkisábyrgð á framleiðsl- unni og það væri aðeins það sama sem saltendur væru að fara fram á nú. Annar viðmælandi blaðsins sagði meðal annars, að það væri hrikalegt að fá ekki að nýta möguleikann á að ná efri mörk- um sölusamningsins við Sovét- ríkin eða aukningu um 40.000 tunnur. Með því væri ekki verið að sækjast eftir því að skerða kvóta annarra útflutningsvara á Rússland, heldur aðeins að reyna að koma í veg fyrir öngþveiti og tekjutap vegna þess að síld færi í miklum mæli í bræðslu. Málið snerist um það, að nú væri verið að pressa Rússa til þess að auka kaup sín á karfa um 7.000 lestir eða í 24.000 alls. í viðskiptasamningum hefði verið tekið fram, að karfamagnið skyldi nema 12.000 til 17.000 lestum. Nú væri búið að selja 17.500 lestir, þannig að komið væri upp fyrir mörkin. Saltend- ur óttuðust það, að valið stæði á milli umframmagns á karfa og því að efri mörkum sölusamn- ings á síld væri náð. Hvað varð- aði karfann væri ljóst, að karfa- stofninn væri ekki aðeins ofnýtt- ur, heldur væri karfinn til Rúss- lands niðurgreiddur um nálægt 100 milljónir króna. Á meðan við værum að verðleggja okkur út af öllum saltsíldarmörkuðum vegna skipulagsleysis og furðu- legra verðákvarðana á fersksíld, virtist allt í lagi að greiða 100 milljónir króna með ofnýttum karfa, sem ekki stendur undir útgerð skipanna. Svona vinnu- brögð skildu menn hreinlega ekki. Síldarfrysting í Eyjum. Ljósmynd Sigurgeir. Bréf síldarsaltenda til vidskiptaráðherra um síldarsölu til Sovét: Aukin sala skerðir ekki kvóta annarra SÍÐASTLIÐINN fimmtudag af- hentu félög sildarsaltenda viöskiptaráöherra, Tómasi Árna- syni, eftirfarandi bréf: „Eftir að lokið var að salta upp i alla gerða sölusamninga á hefðbundnum teg- undum saltaðrar sildar í byrjun þessa mánaðar hefur hluti síldar- flotans átt í erfiðleikum með að losna við aflann, þrátt fyrir að eng- in veiöihrota hafi komið á timabil- inu. Áætlað er, að af þessum sök- um hafi til þessa þurft að selja í bræðslu fersksíld, sem svarar til um 20.000 tunnum af fullverkaðri saltsíld. Ef aflahrotur hefðu komið á tímabilinu hefði rikt algjört öng- þveiti hjá síldarflotanum. Þrátt fyrir mikla markaðserf- iðleika tókst Síldarútvegsnefnd að ná fyrirframsamningum um meira magn af saltaðri Suður- iandssíld en nokkru sinni fyrr að einu ári undanteknu. Þetta mikla magn er að verulegu leyti að þakka viðskiptum okkar við Sovétríkin, sem eru stærsta neyzluland saltaðrar síldar. í gildandi viðskiptasamningi við Sovétríkin er gert ráð fyrir möguleikum á árlegri sölu þang- að á 150.000 til 200.000 tunnum af saltaðri síld. Samningar tók- ust milli Síldarútvegsnefndar og Sovétmanna um fyrirframsölu á samtals 160.000 tunnum og hefur Síldarútvegsnefnd unnið að því í samráði við féiög síldarsaltenda að fá þetta magn hækkað í 200.000 tunnur. Hluti síldarsöltunarstöðva þeirra, sem bjuggu sig undir síldarsöltun á vertíðinni, höfðu, er söltun lauk, fengið ýmist lítið eða ekkert hráefni til vinnslu, einkum vegna breytingar á göngu síldarinnar á fyrri hluta vertíðar, og ennfremur eins og áður er sagt vegna erfiðleika hluta síldarflotans á að losna við aflann. Hafa félög sildarsalt- enda lagt á það mikla áherzlu, að samkomulag náist við Sovétríkin um að þau auki kaup sín um 40.000 tunnur, þannig að heild- arsalan svari hærri mörkum þeim, sem tilgreind eru í við- skiptasamningi. Saltendafélög- um er kunnugt um að Síldarút- vegsnefnd hefur gert allt, sem unnt er af hennar hálfu í þessu skyni auk þess, sem viðskipta- ráðuneytið og sendiráð íslands í Moskvu hafa, að ósk nefndarinn- ar, rætt málin við Sovétmenn, en til þessa hafa tilraunir þessar ekki borið tilætlaðan árangur. Á fundi, sem stjórnir salt- endafélaganna boöuðu til í dag (17. nóvember), mættu fram- kvæmdastjóri og aðstoðar- framkvæmdastjóri Síldarút- vegsnefndar og gerðu þeir ítar- lega grein fyrir markaðsmálum og áframhaldandi sölutilraun- um. í tilefni þessa vilja félög síldarsaltenda taka fram eftir- farandi: Stjórnir félaganna hafa fylgzt jafnóðum með gangi þessara mála og hafa allar aðgerðir Síld- arútvegsnefndar til að fá Sov- étmenn til að auka kaup sín ver- ið í fullu samráði við félögin. Stjórnir félaganna mótmæla að gefnu tilefni þeim málflutn- ingi, að sala á fullu kvótamagni á saltsíld samkvæmt viðskipta- samningi íslands við Sovétríkin geti spillt fyrir sölu á öðrum ís- lenzkum útflutningsvörum til Sovétríkjanna og bendir í því sambandi á, að Seðlabanki ís- lands hefur, það sem af er þessu ári, yfirfært til Sovétríkjanna yfir 20. milljónir dollara vegna kaupa íslendinga á sovézkum vörum umfram það, sem Sovét- menn hafa keypt af íslending- um. Ennfremur hefur margsinnis verið tekið fram, bæði munnlega og skriflega af hálfu Síldarút- vegsnefndar, að ekki komi til greina að aukin saltsíldarkaup verði á neinn hátt á kostnað til- greinds kvóta fyrir aðrar út- flutningsvörur landsmanna. Atvinnuhorfur fram að vertíð á hefðbundnum síldarsöltunar- svæðum frá Suðurlandi til Suð- austurlands eru slæmar og við- bótar síldarsöltun myndi geta bætt þar verulega úr. Með hliðsjón af framanrituðu óska félög síldarsaltenda hér með eftir, að viðskiptaráðherra beiti sér fyrir því, að ríkisábyrgð verði veitt fyrir 90% af sölu- andvirði 20.000 til 25.000 tunna af saltsíld, sem söltuð yrði sam- kvæmt söltunarreglum sovézka markaðarins. Jafnframt leggja félögin ríka áherzlu á, að við- skiptaráðherra veiti Síldarút- vegsnefnd allan hugsanlegan stuðning í framhaldandi samningaumleitunum hennar við Sovétmenn um sölu á framangreindu magni."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.