Morgunblaðið - 20.11.1982, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1982
25
Ljósmynd Emilía.
lltankjörstaðaatkvæðagreiösla fyrir prófkjör Sjálfstæðisflokksins 28. og 29.
nóvember næstkomandi, hófst sl. miðvikudag. Utankjörstaðaatkvæðagreiðsl-
an stendur yfir frá klukkan 14—17 mánudag til föstudags, og laugardaga frá
klukkan 10—12. Utankjörstaðaatkvæðagreiðslan verður til og með laugar-
dagsins 27. nóvember. Kosið er í skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í Valhöll,
Háaleitisbraut 1.
Meðfylgjandi mynd var tekin í gær, en þá var utankjörstaðaatkvæðagreiðsl-
an í fullum gangi.
Sjálfstæðisfélögin í Reykjavík:
Kynningarfundur með
frambjóðendum hald-
inn á sunnudaginn
SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN í Reykja-
vík gangast fyrir sameiginlegum
kynningarfundi með frambjóðend-
um í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
og verður kynningarfundurinn
næstkomandi sunnudag í Valhnll,
Háaleitisbraut 1. Fundurinn hefst
klukkan 15.00. Kaffiveitingar veröa.
Samkvæmt ugplýsingum sem
Mbl. fékk hjá Árna Sigfússyni,
framkvæmdastjóra Fulltrúaráðs
sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík,
hefur öllum frambjóðendum verið
boðið til fundarins og munu þeir
flytja stuttar kynningarræður og
síðan gefst gestum kostur á að
kynna sér skoðanir þeirra.
„Kynningarfundur sem þessi
var ekki haldinn fyrir síðustu
borgarstjórnarkosningar," sagði
Árni, „en nú hefur verið ákveðið
að öll sjálfstæðisfélögin standi
saman að kynningarfundi. Hug-
myndin er sú að frambjóðendur
haldi 3 mínútna ávarp, en síðan
geta gestir rætt við frambjóðend-
urna og kynnst viðhorfum þeirra.
Ég vil hvetja allt sjálfstæðisfólk
að koma í sunnudagskaffi í Val-
höll og kynnast frambjóðendunum
í prófkjörinu,“ sagði Arni Sigfús-
son.
Konur í meirihluta á
borgarstjórnarfundi
KONUR voru í meirihluta á fundi
borgarstjórnar á fimmtudagskvöld,
ellefu á móti tíu körlum. Á meðfylgj-
andi mynd sjást Ingibjörg Rafnar,
sem gegndi störfum forseta borgar-
stjórnar og Davíð Oddsson borgar-
stjóri.
Fundinn sátu eftirtaldar konur:
Af lista Sjálfstæðisflokksins: Ingi-
björg Rafnar, Hulda Valtýsdóttir,
Margrét Einarsdóttir, Katrín
Fjeldsted og Jóna Gróa Sigurðar-
dóttir. Síðari hluta fundarins tók
Anna K. Jónsdóttir sæti Margrét-
ar Einarsdóttur. Af lista Fram-
sóknarflokksins: Gerður Stein-
þórsdóttir. Af lista Kvennafram-
boðs: Guðrún Jónsdóttir og Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir. Af lista
Alþýðubandalagsins: Adda Bára
Sigfúsdóttir, Álfheiður Ingadóttir
og Guðrún Ágústsdóttir.
Svavar Gestsson á flokksráðsfundi Alþýðubandalagsins:
Neyðaráætlun til fjögurra ára
verði kosningaskrá flokksins
Neyðaráætlun um hvernig þjóðin vinnur sig út úr núverandi vanda.
„ÉG TEL óhjákvæmilegt að á þessum fundi verði fjallað um tillögu okkar að
einskonar neyðaráætlun til næstu fjögurra ára um það hvernig þjóðin vinnur
sig út úr þeim vanda sem hér er um að ræða,“ sagði Svavar Gestsson
formaður Álþýðubandalagsins m.a. í setningarræðu sinni á flokksráðsfundi i
gær. Formaðurinn lýsti síðan neyðaráætluninni sem er í tíu liðum, hann sagði
neyöaráætlunina einnig vera tillögu sína að kosningaskrá flokksins.
Tillagan að neyðarætluninni fer
hér á eftir í stórum dráttum.
Fyrstu liðirnir fjalla um að dregið
verði úr innflutningi með því að
leggja skatta á hluta innflutnings
og innborgunargjöld, að dregið
verði úr lánafyrirgreiðslu til sam-
keppnisinnflutnings. Lögð verði
áhersla á að takmarka innflutning
stórvirkra véla og vinnutækja og
þeim vörum sem framleiddar eru
hérlendis. Þetta beinist að því að
kveða niður viðskiptahallann á ár-
unum 1983 til 1984 og að gjaldeyr-
isstaðan verði styrkt. Þá verði
gerðar ráðstafanir til að iðnaður-
inn geti framleitt vörur fyrir
stærri hluta heimamarkaðar svo
spara megi gjaldeyri. Miða skal
við að erlendar skuldir þjóðarbús-
ins aukist ekki frá því sem nú er
sem hlutfall af þjóðarframleiðslu,
heldur aukist greiðslubyrðin sem
hlutfall af útflutningstekjum. Þá
verði gerð, samhliða neyðaráætl-
uninni „sérstök áætlun um hjöðn-
un verðbólgu í jöfnum og ákveðn-
um skrefum."
í fimmta lið er fjallað um
„sparnaðarátak í öllum atvinnu-
greinum" og segir: Gert verði
sparnaðarátak í öllum atvinnu-
greinum, sérstaklega í verslun, en
einnig sjávarútvegi, iðnaði og
landbúnaði. Segir einnig að átakið
það miðist við að draga úr „sóun
og óráðsíu", en markmiðið sé
gjaldeyrissparnaður og aukin
framleiðsla. Þá gera tillögurnar
ráð fyrir „átaki" til fjögurra ára
sem miðist við að auka framleiðsl-
una í landinu til að treysta lífs-
kjör. Segir að sú áætlun eigi að
treysta sjálfstæði þjóðarinnar og
draga úr sveiflum, einnig að ís-
lenskir aðilar eigi að hafa forræði
yfir öllum atvinnugreinum lands-
ins. í lok þessa liðs segir að íslend-
ingar verði að reisa atvinnustefnu
á grundvelli skipulegrar auðlinda-
nýtingar. Landsmenn eigi mikinn
auð í orkulindum landsins, en þær
verði að mynda einn hornstein
góðra lífskjara.
í sjöunda lið segir að stofnaður
skuli kjarajöfnunarsjóður, sem
hafi 500 milljónir króna til ráð-
stöfunar á árinu 1984. Sjóðurinn
verði fjármagnaður með tekjum af
„betri skattheimtu" þar sem gert
verði skipulegt átak til þess að
koma í veg fyrir skattsvik, af
gjöldum sem lögð verði á innflutn-
ing og með sparnaði í ríkisrekstri.
Sjóðinn á að nota til kjarajöfnun-
ar svo draga megi úr áhrifum
strangra efnahagsaðgerða á hag
láglaunafólks.
Allt peningamálakerfi landsins
á að taka til „róttækrar endur-
skoðunar" samkvæmt áttunda lið
tillagna að neyðaráætlun. Vextir,
staða bankanna, sérstaklega
Seðlabankans skal taka til þessar-
ar endurskoðunar, auk þess sem
tryggja á að heildarsparnaður
landsmanna þjóni félagslegum
markmiðum.
í níunda lið er rætt um sam-
starfið við verkalýðshreyfinguna
og segir að í kjarasamningum
verði stuðlað að launajöfnuði og
að kjarajöfnunarsjóðinn fyrr-
nefnda eigi að nota í því skyni. Þá
segir: „Meðan landsmenn eru að
vinna sig út úr hinum mikla við-
skiptahalla sem nú er er ekki unnt
að hækka öll grunnlaun í landinu,
en með samstarfi stjórnvalda og
verkalýðshreyfingar verði tryggð
framkvæmd skynsamlegrar
launastefnu."
Síðasti liður neyðaráætlunar
Alþýðubandalagsins fjallar um
verðlagsstjórn. Alla verðlags-
stjórn landsins á að taka til gagn-
gerðrar endurskoðunar i ljósi
reynslunnar af núgildandi verð-
lagslögum, sem Svavar sagði mjög
gölluð og ekki skapa þá aðhalds-
möguleika sem stjórnvöld yrðu að
hafa til að geta ráðið við efna-
hagsvandann. „Hrikalegar verð-
hækkanir að undanförnu eru til
marks um það hversu haldlitil þau
eru,“ sagði flokksformaðurinn í
lok kynningar sinnar á tillögum
að neyðaráætlun Alþýðubanda-
lagsins til næstu fjögurra ára.
Frá setningu fundar Flokksráðs Alþýðubandalagsins í gær.
Ljósm. EBB
íbúðir fyrir aldraða 1 Reykjavík:
Bygging leigu- og söluíbúða fyrir
140 manns hefst á næsta ári
SAMÞYKKT var á fundi bygg-
ingarnefndar í þágu aldraðra i
gær, að hefja á næsta ári byggingu
leiguíbúða fyrir 80 manns og sölu-
ibúða fyrir um 60 einstaklinga, en
byggingar þessar verða í Seljahlíð i
Breiðholti, samkvæmt upplýsing-
um sem Mbl. fékk hjá Páli Gisla-
syni borgarfulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins, formanni nefndarinnar.
Páll sagði að samþykkt hefði
verið á fundinum að nýta fyrir-
hugaða byggingu í Seljahlíð á
annan hátt en ætlað var, — að
hætta við heilsugæslustöð og
sjúkradeild, en þeirri starfsemi
yrði komið fyrir í annarri bygg-
ingu á svæðinu. Orsök þess kvað
Páll vera þá að með því að flytja
þá þjónustu annað, yrði hægt að
hraða framkvæmdum, því ríkið
ætti að leggja fé til sjúkrahús-
bygginga, en þeir peningar hefðu
skilað sér illa. Á lóðinni, sagði
Páll, að ætti að byggja smáhýsi
eða raðhús með íbúðum, sem
yrðu 50-80 fermetrar að stærð
fyrir allt að 60 manns og yrðu
það söluíbúðir. Páll sagði að
hugmyndin væri sú að bjóða
söluíbúðirnar út til verktaka.
Þær yrðu síðan seldar, en borgin
ætti forkaupsrétt á þeim síðar.
„Það var samþykkt að hraða
þessu máli, þannig að útboð að-
albyggingar gæti farið fram á
miðju ári 1983, en útboð sölu-
íbúðanna gæti jafnvel farið fram
fyrr og fólk gæti flutt inn tveim-
ur árum síðar. Með þessan til-
högun náum við allgóðri nýtingu
á þeim þjónustukjarna sem fyrir
er,“ sagði Páll. Páll sagði að í lok
októbermánaðar sl. hefði 651
húsnæðisumsókn frá einstakl-
ingum verið óafgreidd, en 108
umsóknir hjá hjónum. Þar hefðu
318 umsóknir verið frá aðilum
sem ættu íbúðir. Það styddi þá
skoðun að markaður væri fyrir
söluíbúðir. Þess vegna hefði á
fundinum verið samþykkt tillaga
um að sækja um þrjár lóðir, þar
sem byggja mætti á hverri lóð
60-70 sérhannaðar söluíbúðir
fyrir aldraða. Þar yrði þjónustu-
kjarni, þar sem hægt yrði að
veita svipaða þjónustu og borgin
veitti í vernduðum þjónustuíbúð-
um. „Við höfum leitað til bygg-
ingadeildar og Borgarskipulags
og spurst fyrir um hvar lóðir
væri að finna og hefur Borgar-
skipulag bent okkur á átta staði
í borginni. Það er mjög æskilegt
að þessar lóðir yrðu í þeim
hverfum borgarinnar, þar sem
flest aldraða fólkið býr í dag, þ.e.
í Vesturbæ og Austurbæ,“ sagði
Páll Gíslason.