Morgunblaðið - 20.11.1982, Page 27

Morgunblaðið - 20.11.1982, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1982 27 Bókauppboð Hlekks: 115 númer boðin upp í dag í I)AG, laugardag, gengst Hlekkur hf. fvrir bókauppboöi, og er það átt- unda uppboð fyrirtækisins. Hefst uppboðið klukkan 15 á Hótel Borg. Samtals verða boðin upp 115 númer, og eru meðal þeirra eftirtalin: Benedikt Gröndal (Sveinbjarn- arson) skáld: Skólafarganið. Reykjavík 1883, ób; Björn Þórð- arson dr. jur.: Refsivist á Islandi 1761—1925. Búa-lög, Reykjavík 1915—1933, ób.m.k; Einar Ól. Sveinsson prófessor: verzeichnis islándischer Márchenvarianten mit einer einleitender Untersuch- ung, Helsinki 1929, ób. m.k; Grím- ur Thomsen skáld: Udvalgte Saga- stykker. Kh. 1846, pappaband; Guðgeir Jóhannsson: Kötlugos 1918, Rvík 1919, myndir og uppdr; Halldór Hermannsson prófessor: Catalogue of the Icelandic Collect- ion bequeathed by Willard Fiske. Ithaca 1914. Frumútgáfa, hand- unnið skinnband; 20 bindi af Is- landica, útgefandi Halldór Her- mannsson; Jón Ólafsson ritstjóri og skáld: Orðabók íslenzkrar tungu að fornu og nýju I—II bindi. Upphaf verks, sem ekki kom meira út en fyrstu tvö bindin. Rvík 1912—1915, ib. pappaband n.k; Loescheri V.E.: Literator Celta, sev de excolenda Literatvra Evropæa,... cvrante J.A. Egenolf. Lipsiae 1726. Samtíma skb. M.a. drepið á íslenska menningu; Magnús Ásgeirsson skáld: Síð- kveld. Ljóð. Fyrsta bók höfundar. Rvík 1923 ób. m.k; Rafn, C.C. : Runeindskriftet í Piræus. Inscription Rundique du Piree. Kh. 1856, ásamt handrituðu bréfi útgefandans til Charles Roach Smith, dags. 19. nóvember 1956. Handunnið upphleypt skinnband. Kápur með; Lodbrokar-Quida, Carmen Gothicum. Faman Regis Ragnari Lodbrochi celebrans ... præside Nic. Henr. Sjöborg Lundæ 1802. Gamalt skinnband; Schmid, Christoph von: Blómstur-karfan. Saga handa unglingum. Sigr. Ein- arsdóttir íslenskaði. London 1869 Forl. bank.; Sigurður Sigurðsson skáld frá Arnarholti, ljóð, 2 útg. aukin. Rvík 1924. árituð af höfundi og hefur hann ritað mörg ljóð eig- in hendi í bókina. Auk þess fylgja nokkur eiginhandarrit höfundar að ljóðum hans. ób. m.k.; Skuggi (duln. Jochums M. Eggertssonar) Galdraskræða, frumútg. Rvík 1940, ób. kápur. Halldór Runólfsson í Klausturhólum á Bókamarkaðinum í Breiðfirðingabúð. Bókamarkaður Klausturhóla: Elín Björnsdóttir á sýningu sinni. Vefnadarsýning Elínar Björnsdóttur VEFSTOFAN á Ásvallagötu 10A, sem löngum var kennd við Karólínu Guðmundsdóttur, hefur síðastliðinn áratug verið í eigu Elínar Björns- dóttur. Áður vann Elín hjá Karólínu í tvo áratugi. Nú er opin sýning á vefnaði á Hofsvallagötu 16, þar sem Elín sýnir bæði margt af því, sem Vefstofan hefur undanfarin ár unnið og eins ýmsar nýjungar. Sýnd eru ýmiss konar veggstykki, sum innrömmuð og er það nýtt. Allir munirnir, sem til sýnis eru, eru gerðir úr íslenzkri ull og hand- ofnir. í fréttatilkynningu, sem Mbl. hefur borizt um sýningu El- ínar segir m.a.: „í borðdreglum og púðum má sjá hversu íslensku sauðalitirnir geta farið vel. Hér er ekki um að ræða myndvefnað heldur ýmsar útfærslur á gam- algrónum mynstrum, sem notuð hafa verið til skrauts og hug- myndaríkum vefara, óþrotlega möguleika á nýjum afbrigðum." Sýning Elínar Björnsdóttur er opin frá klukkan 19.30 til 22.00 virka dag og nú um helgina frá klukkan 14 til 22. Sýningunni lýk- ur næstkomandi sunnudagskvöld. Tugþúsundir bókatitla til sölu VERSLUNIN Klausturhólar hefur opnað bókamarkað í hinu nýja hús- næði verslunarinnar í Breiðfirð- ingabúð við Skólavörðustíg. Á bóka- markaðinum eru þegar til sölu um 400 titlar að sögn Halldórs Runólfs- sonar, verslunarstjóra, en bætt verð- ur í skörðin jafnóðum og selst af borðunum. Halldór sagði verð bók- anna lágt, eða frá tíu krónum, og flestar væru líklegar seldar undir eitt hundraö krónum. Ekki kvaðst Halldór treysta sér til að segja hve margar bækur yrðu til sölu á bókamarkaðinum, en það væru þúsundir titla, tug- þúsundir raunar, hugsanlega milli tuttugu og þrjátíu þúsund bækur. „Hér ægir öllu saman," sagði Hall- dór, „gömlum bókum og nýlegum, ódýrum og dýrum, en flestar eru þó af ódýrari gerðinni. Hér ættu bókamenn að finna eitthvað við sitt hæfi, því margar bókanna sjást afar sjáldan í verslunum, sumar ekki nema á áratugafresti. Vegna plássleysis höfum við ekki tök á að koma þeim öllum fram í einu, en jafnóðum og eitthvað selst og rýmkast um, munum við fylla í skörðin." NÝ verslun var opnuð fyrir skömmu i kjallara Miðbæjarmarkaðarins við Aðalstræti. Nefnist hún Bezt. Verslunin hefur m.a. á boðstól- um gluggatjöld, lampa, púða og ýmsar smávörur frá hinu þekkta fyrirtæki Designers Guild í Lond- on, sem einnig hefur verslanir í París, Tókíó, New York, Múnchen og víðar. Fyrirtækið selur efni í mildum og fögrum litum og hafa mörg þeirra glansandi yfirborð, sem er nýjung í framleiðslu fyrir- tækisins. Bezt lætur viðskiptavinum alla þjónustu er lítur að formun gluggatjalda, litavali og saumun í té. Verslunin selur ennfremur ýms- ar vörur frá Small Beginnings og kaffi- og testell frá Davenport í Englandi. Sérhannaðar vörur fyrir Bezt eru einnig til sölu m.a. náttkjólar, svuntur og púðar. Eigandi verslunarinnar er Lára Lárusdóttir. Háskólabíó sýnir „Elskhuga lafði Chatterley“ HÁSKÓLABÍO er að hefja sýningar á kvikmyndinni „Elskhugi lady Chatterley**, sem gerð er eftir hinni umdeildu sögu D.H. Lawrence. Silv- ia Kristel leikur lafðina, en Nicholas Clay elskhugann. Um þessa mynd segir í kynn- ingu kvikmyndahússins: „Kvikmyndin um Elskhuga lady Chatterley fylgir upprunalegu sögunni eins nákvæmlega og hægt er. Hún segir frá Sir Clifford Chatterley og Connie konu hans. Þau gifta sig í byrjun fyrri heims- styrjaldarinnar og stríðið hefur geigvænleg áhrif á hjónaband þeirra. Aðrar persónur koma einn- ig mikið við sögu í kvikmyndinni, ekki síst sjálfur elskhugi lafðinn- í Bezt í Miðbæjarmarkaðinum Úr kvikmyndinni „Elskhugi lady Chatterley". Myndin er tekin austast í Vesturgötunni, rétt við gatnamótin við Aðalstræti og Hafnarstræti. Gamlar ljósmynd- ir á sýningu UÓSMYNDASAFNIÐ hf. stendur nú fyrir sýningu á nokkrum af hinum stórmerku og skemmtilegu Keykja- vfkurmyndum Magnúsar Olafssonar, Ijósmyndara. Sýningin er í sýningar- salnum Bólvirki hjá Teppaverslun Álafoss að Vesturgötu 2. Flestar myndanna eru af gömlum húsum úr Miöbæjarkvosinni svonefndu. Magnús Ólafsson var þekktur og mikilvirkur ljósmyndari í upphafi aldarinnar og fram á fjórða áratug- inn. Hann rak ljósmyndastofu í Reykjavík um áratuga skeið. Reykjavíkurmyndir hans eru merk og ómetanleg heimild um vöxt og viðgang höfuðstaðarins í upphafi aldarinnar og mannlíf frá þeim tíma. Magnús Ólafsson fæddist að Hvoli í Saurbæ í Dalasýslu 10. maí 1862 og lést í Reykjavík 26. júlí 1937. Hann nam ljósmyndagerð í Kaupmannahöfn skömmu upp úr aldamótum. Ljósmyndasafnið hf. var formlega stofnað 2. september 1981. Það skrásetur og varðveitir gamlar ljósmyndir og hefur þegar í sinni vörslu margt merkra safna, þar á meðal safn Magnúsar Ólafs- sonar. Ljósmyndasafnið hf. er til húsa að Flókagötu 35 í Reykjavík. Sýningin stendur fram í desember og er opin virka daga klukkan 9 til 18, en á laugardögum klukkan 9 til 12. Myndirnar á sýningunni eru til sölu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.