Morgunblaðið - 20.11.1982, Qupperneq 48
^Yliglýsinga-
síminn er 2 24 80
JlfaKglpttttltfftfrÍfr
■ ......-LL' 1 " 11 'gg
^/\skriftar-
síminn er 830 33
LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 1982
Svavar Gestsson á flokksráðsfundi:
Kosningar 23. apríl
— Þingrof í febrúar
„AF ÞESSUM ástæðum höfum við
lagt til að kosið verði í síðasta lagi
23. apríl næstkomandi og að þing
verði rofið um miðjan febrúar,"
sagði Svavar Gestsson formaður Al-
þýðubandalagsins i setningarræðu
sinni á flokksráðsfundi í gær. Svav-
ar fjallaði meöal annars í ræðu sinni
um mjög slæma stöðu i efnahags-
málum, um hrikalegar verðhækkan-
ir undanfarið og sagði kosningaskrá
Time Magazine:
Hefur áhuga
á sérstakri
*
Islandsútgáfu
ALÞJÓÐA tímaritið Time Mag-
azine hefur lýst áhuga á því að
gefa út sérstakan þátt helgaðan
Islandi. í lok þessa mánaðar er
væntanlegur aðili frá timaritinu
til viðræðna við þá aðila hér á
landi, sem væntanlega stuðla að
því að þetta gæti orðið með aug-
lýsingum eða öðrum hætti.
Að sögn Tómasar Karlsson-
ar, fulltrúa í utanríkisráðu-
neytinu, en það hefur milli-
göngu í málinu, er hér talað
um 8 síður inni í blaðinu. Þetta
er allt á könnunarstigi og ekki
verður lagt í útgáfuna nema
kostnaður fáist á móti með
auglýsingum frá íslenzkum og
bandarískum aðilum. Telji út-
gefendur tímaritsins fjárhags-
grundvöll fyrir útgáfunni,
verða sendir hingað blaða-
menn eftir áramótin og mun
íslenzki þátturinn þá væntan-
lega birtast á fyrri hluta
næsta árs.
Hugmyndir að útgáfunni
eru með þeim hætti, að henni
yrði þá að einhverju leyti rit-
stýrt þannig, að það þjónaði að
einhverju leyti sjónarmiðum
þeirra, sem mest legðu til út-
gáfunnar af íslendinga hálfu
og beinist þá áhuginn aðallega
að útflytjendum. Ráðuneytið
hefur verið þessum manni til
aðstoðar og skrifað þeim aðil-
um, sem líklegast er talið að
hafi áhuga á þessu.
Alþýðubandalagsins eftir rikisstjórn-
arsetu þess eiga að verða „ncyðar-
áætlun til fjögurra ára“. Um væntan-
lcgar kosningar sagði hann aftur á
móti: „í þeim kosningum hlytum við
að leggja áherslu á að núverandi rík-
isstjórn fengi aukinn meirihluta á
Alþingi, þannig að unnt væri að
stýra eftir meginstefnu hennar
áfram.“
Svavar sagði tillögur Alþýðu-
bandalagsins um kosningar 23.
apríl nk. og þingrof i febrúar
komnar til af „ábyrgðarleysi
stjórnarandstöðunnar“ og því að
aðrir stjórnaraðilar og stjórnar-
andstaðan hefðu neitað að fallast
á tillögur Alþýðubandalagsins sl.
haust. Þá sagði Svavar: „Þjóðin
hefur einfaldlega ekki efni á þvi
að horfa upp á hráskinnaleikinn
fram eftir öllum vetri, meðan er-
lendar skuldir hlaðast upp, vegna
viðskiptahalla, meðan gjaldeyr-
isstaðan versnar dag frá degi,
meðan hættan á atvinnuleysi gæti
heimsótt okkur svo að segja hvern
dag. Þess vegna er nú lífsnauðsyn
að skjóta málum til þjóðarinnar
-og það strax.“
MorKunblaðið/ Emilía
íslendingar töpuðu naumlega, 15—17, fyrir Vestur-Þjóðverjum í landsleik í handknattleik í Laug-
ardalshöll í gærkvöldi. Sigurður Gunnarsson skýtur hér á þýska markið, en inni á línunni standa
þeir Þorgils Ottar og Bjarni Guðmundsson í ströngu. Sjá nánar á íþróttasíðu bls. 47.
Nýjar álviðræður hefjast á mánudag:
Svisslendingar leggja
fram 4 viðræðupunkta
— eftir að forsætisráðherra staðfesti þá skoðun sína að ekki
hafi verið um „sviksamlegt athæfi“ að ræða af hálfu Alusuisse
DR. PAUL Miiller formaður
framkvæmdastjórnar Alusuisse
kemur til landsins á morgun,
sunnudag, og mun hann sam-
kvæmt fréttatilkynningu frá iðn-
aðarráðuneytinu eiga viðræður
við iðnaðarráðherra á mánudag
um íslenzka álverið í Straums-
vík. Þá mun dr. Muller sam-
kvæmt heimildum Mbl. einnig
eiga viðræður við forsætisráð-
herra, en ráðherrann hefur lýst
því yfír, að hann telji ekki að um
sviksamlegt athæfí hafí verið að
ræða í viðskiptum fyrirtækisins
við íslenzk stjórnvöld. Alusuisse
hefur vegna staðfestingar for-
sætisráðherra á þeirri yfirlýs-
ingu sinni lýst sig reiðubúið til
að hefja viðræður um lausn deil-
umálanna
Samkvæmt því sem Mbl.
kemst næst munu fulltrúar
Alusuisse hafa snúið sér til
forsætisráðherra vegna yfir-
lýsinga hans á Alþingi í vor
um að hann teldi ekki um svik-
samlegt athæfi að ræða af
hálfu Alusuisse. Steingrímur
Hermannsson formaður
Framsóknarflokksins tók í
sama streng í þeim hinum
sömu umræðum á Alþingi, en
Óska ríkisábyrgðar á fram-
leiðslu 25.000 tunna af síld
• •
— Ongþveiti ríkir í veiðunum að mati síldarsaltenda og þúsundum lesta ekið í bræðslu.
FÉLÖG síldarsaltenda hafa nú farið fram á það t bréfi til viðskiptaráðherra,
að veitt verði ríkisábyrgð fyrir andvirði 90% af söluverðmæti allt að 25.000
tunna af saltsíld verkaðri á Rússlandsmarkað. Mikil óánægja ríkir meðal
þeirra og telja þeir öngþveiti ríkja í skipulagsmálum veiða og verkunar og
segja að nú sé þúsundum lesta af sild ekið í bræðslu. Þá eru nokkrir aðilar
byrjaðir söltun að nýju á eigin ábyrgð til að þurfa ekki að setja síldina í
bræðslu.
Vegna þessa hafði Morgunblað-
ið samband við viðskiptaráðherra,
Tómas Árnason. Sagði hann, að
málið væri nú til athugunar hjá
ríkisstjórninni. Heimild til ríkis-
ábyrgðar þyrfti að fara fyrir Al-
þingi og því tæki þetta nokkurn
tíma. Stöðugt væri unnið að því að
selja meira af saltsíld til Sovét-
ríkjanna, en hann væri ekki bjart-
sýnn á, að hægt væri að selja
meira, hvorki þangað né á aðra
markaði.
Hjá síldarsaltendum kemur
fram ánægja með störf Síldarút-
vegsnefndar, sem tekizt hefur að
semja um fyrirframsölu á 160.000
tunnum af síld til Sovétríkjanna
eða meira en nokkru sinni fyrr að
einu ári undanteknu. Á hinn bóg-
inn lýsa þeir óánægju meö það, að
viðskiptaráðuneytið skuli ekki
hafa stutt betur við Síldarútvegs-
nefnd í frekari sölutilraunum.
Telja þeir að möguleiki sé á að
ná samningi um sölu á allt að
200.000 tunnum, sem eru tilgreind
efri mörk í viðskiptasamningi
ríkjanna. Ef svo yrði, væri komið í
veg fyrir öngþveiti síldveiðanna og
frekari atvinna tryggð á söltun-
arsvæðunum. Þá er einnig mikil
óánægja með það, hvernig staðið
hefur verið að verðlagningu á
ferskri síld og telja saltendur, að
hægt hefði verið að selja meira af
síld, ef það hefði ekki verið ákveð-
ið of hátt í upphafi. Þá hefði jafn-
framt verið hægt að salta og
frysta jöfnum höndum og koma í
veg fyrir, að mikið magn síldar
færi í bræðslu fyrir um 30 aura
kílóið, en síldarverð til frystingar
er nú 1,45 eða 2,45 krónur eftir
stærðarflokkum.
Einnig benda þeir á, að nú er
verið að reyna að selja karfa til
Sovétríkjanna langt umfram
hærri mörk sölusamningsins,
þrátt fyrir að stofninn sé bæði
vannýttur og karfinn til Sovétríkj-
anna niðurgreiddur.
Sjá nánar bréf síldarsaltenda og
viðbrögð þeirra á miðopnu blaðs-
ins í dag.
iðnaðarráðherra hafði áður
lýst því sem sinni skoðun að
Alusuisse hefði sýnt af sér
sviksamlegt athæfi.
Það mun því vera vegna
bréfaskipta við Gunnar Thor-
oddsen forsætisráðherra sem
fulltrúi Alusuisse kemur nú til
landsins, til viðræðna við
ráðamenn. Samkvæmt heim-
ildum Mbl. hafa Alusuisse-
menn lagt til og lýst sig fylgj-
andi því, að deilumálum varð-
andi skattagreiðslur verði vís-
að í einfaldan gerðardóm,
skipaðan einum fulltrúa frá
hvorum aðila, auk oddamanns.
Þá verði deilan um afskriftir
af hreinsibúnaði álversins
send til umfjöllunar íslenzkra
lögfræðinga með sama hætti.
í framhaldi af ákvörðun um
slíka málsmeðferð segjast
Alusuisse-menn reiðubúnir til
að setjast að samningaborði
um eftirtalin atriði: Endur-
skoðun orkusamnings Lands-
virkjunar og ÍSAL þar sem
tekið verði tillit til rafmagns-
verðs til þessa iðnaðar í Evr-
ópu og fyrir vestan haf. í öðru
lagi að endurskoðaður verði
aðalsamningur varðandi
skatta, svo komist verði hjá
frekari deilumálum. Þá lýsir
Alusuisse áhuga á stækkun
ÍSAL með þátttöku nýs eða
nýrra eignaraðila og einnig
telur fyrirtækið möguleika á
eignaraðild íslenzka ríkisins.
Alusuisse telur ekkert því til
fyrirstöðu að samkomulag eigi
að geta náðst um öll þessi atr-
iði fyrir 1. apríl 1983.