Morgunblaðið - 12.12.1982, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 12.12.1982, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 1982 25 ára afmælisútgáfa Pólýfónkórsins: Mattheusarpassía Bachs gefin út á hljómplötu EITT AF öndvegisverkum tónlist- arinnar, Mattheusarpassía Jo- hanns Sebastian Bachs er komin út á hljómplötum á vegum Pólý- fónkórsins. Hljóðritun gerði Ríkisútvarpið á 25 ára afmælis- hljómleikum Pólýfónkórsins í april sl. Flytjendur eru auk Pólýfónkórsins, Hamrahlíðarkór- inn, kórstjóri Þorgerður Ingólfs- dóttir, Kór Öldutúnsskóla, söng- stjóri Egill R. Friðleifsson, tvær kammerhljómsveitir og fjöldi ein- söngvara. Með hlutverk guðspjalla- mannsins fer brezki tenór- söngvarinn Michael Goldthorpe og syngur einnig tenóraríur. Hlutverk Krists syngur óperu- söngvarinn Ian Caddy frá Lond- on. Sópranhlutverk syngja Elísabet Erlingsdóttir, Una Elefsen, Margrét Pálmadóttir og Ásdís Gísladóttir, alto-aríur og resitatív syngur Sigríður Ella Magnúsdóttir, en bassa- hlutverk skiptast milli Kristins Sigmundssonar, sem einnig syngur bassaaríur og Simons Vaughan, sem fer með hlutverk Pílatusar, Péturs og æðsta MATTMEUSAR - PASSÍA prestsins. Einleikarar á hljóð- færi eru einnig margir, s.s. gömbuleikarinn frægi Álfred Lessing frá Þýzkalandi, Krist- ján Þ. Stephensen og Daði Kol- beinsson leika á óbó d’amore, eins og tíðkaðist á dögum Bachs. I resitatívum söngvar- anna leika Inga Rós Ingólfs- dóttir á selló, Björn Káre Moe frá Noregi á orgel, og Helga Ingólfsdóttir á sembal. Fiðlu- leiicararnir, Rut Ingólfsdóttir og Þórhallur Birgisson fara með fræg einleiksnúmer, og Bernard Wilkinson leikur fagra flautu- sóló. — Alls tóku um 320 söngv- arar og hljóðfæraleikarar þátt í flutningnum, sem er sá um- fangsmesti á íslandi til þessa. Útgáfa verksins á hljómplöt- um með íslenzkum flytjendum er stórvirki, og hefur verið vandað til hennar eftir föngum. Stjórnandi flutningsins er Ing- ólfur Guðbrandsson. Máni Sig- urjónsson stjórnaði hljóðritun, vinnslu tónbands og skurð ann- aðist Tryggvi Tryggvason í Bretlandi, en pressun fór fram hjá TELDEC, fyrirtæki Tele- funken og Decca í Þýzkalandi. Vönduð efnisskrá fylgir útgáf- unni með skýringum og téxta alls verksins á þýzku og ís- lenzku. Þar eð hér er um fyrsta heildarflutning verksins að ræða á íslandi, má ætla að út- gáfa þessi verði safngripur, þegar tímar líða. Tvímælalaust er hér um mikla kynningu að ræða á hinni stórfenglegu tón- list Bachs og vandaða gjöf handa þeim sem unna fagurri tónlist. (FrétUtilk. írá Pólýfónkórnum) Jólatrén erukomin! Falleg og fjölbreytileg Hm Húsavík: Vandinn vegna olíuskulda ieystur VANDI fiskiskipa á Húsavík vegna olíuskulda hefur verið leystur í bili og munu skipin því öll róa í næstu viku, að sögn Tryggva Finnssonar forstjóra Fiskiðjusamlags Húsavíkur. Tryggvi sagði að góðar líkur væru á að olíuskuldum útgerðar- innar yrði breytt í langtímalán. Jafnframt hefðu viðskiptabankarn- ir lofað útgerðinni aðstoð við greiðslu þeirrar olíu, sem taka þyrfti næstu viku. Bræla hefur verið fyrir Norður- landi og bátarnir því ekki þurft að taka olíu þessa viku nema í litlum mæli, að sögn Tryggva. Ekki hefði reynt á þessi mál hvað togara Hús- víkinga snerti, því þeir hefðu feng- ið sitt hráefni greitt og því haft fyrir olíu. Forsaga málsins er sú að olíu- deild Kaupfélags Þingeyinga ákvað í síðustu viku að afgreiða ekki olíu til fiskiskipa á Húsavík nema gegn staðgreiðslu. í kjölfarið ákváðu út- gerðarmenn að leggja skipum sín- um frá og með þessari helgi ef vandi þeirra yrði ekki leystur. Vildu þeir fá skuldum sínum breytt í langtímalán í samræmi við loforð ríkisstjórnarinnar, en Seðlabank- inn hefur síðan tilkynnt að olíu- skuldir féllu ekki undir skuldbreyt- ingar útgerðarinnar að þessu sinni. Útgerðin á Húsavík skuldar hins vegar lítið annað en olíu, að sögn Tryggva Finssonar. Olíuskuldir út- gerðarmanna á Húsavík nema milli fimm og sex milljónum króna. Skuldir þessar eru fyrst og fremst við Kaupfélagið en ekki nema að litlu leyti við viðskiptabankana. Öll fiskiskip Húsavíkinga voru á sjó í gær, nema togarinn Júlíus, sem landaði 60 tonnum af fiski í gærmorgun. Kolbeinsey landaði í vikunni 160 tonnum. 186 Hafnfirðingar skora á bæjaryfirvöld: Leikskólinn fyrst í gagnið næsta haust — segir Einar Ingi Halldórsson bæjarstjóri „ÞETTA er fyrst og fremst hvatning til okkar um ad hraöa framkvæmdum svo leikskólinn verði tilbúinn í vor þegar leikskóli, sem rekinn hefur ver- ió á vegum Sankti Jósepsspítala, lok- ar,“ sagöi Einar Ingi Halldórsson bæjarstjóri í Hafnarfirði í tilefni und- irskriftalista frá 186 Hafnfirðingum vegna framkvæmda viö leikskóla í Suöurbæ í Hafnarfirði. Einar sagði að leikskólinn væri á hönnunarstigi þessa dagana, en fyrirhugað er að hann rísi á mótum Brekkuhvamms og Suðurbrautar. „Það er fullur vilji hjá bæjaryfir- völdum að flýta þessu eins og hægt er, en þetta er spurning um pen- inga og ákvarðast þegar gengið verður frá fjárhagsáætlun. En ég held að skólinn geti vart orðið til- búinn fyrr en næsta haust í fyrsta lagi,“ sagði Einar. Einar sagði að um væri að ræða tveggja deilda leikskóla, og áætlaði hann að þetta væri framkvæmd upp á milli sjö og átta milljóna króna. Hann sagði að leikskólinn, sem rekinn hefði verið á vegum Sankti Jósepsspítala, yrði lagður niður, þar sem húsnæði skólans yrði tekið undir spítalann. Gunnar Bergsteinsson, forstjóri Landhelgisgæzlunnar: Nú er gaman að vera til. Allt er fullt hjá okkur af fallegum jólatrjám af öllum gerðum. Norðmannsgreni eða Norðmannsþynur. Lang-barrheldnasta jólatréð á markaðnum. Dökkgrænt og fallegt á litinn. Rauðgreni. Mikið úrval af þessum fallegu og ódýru jólatrjám. Eigum einnig gott úrval af öðrum tegundum sem alltaf eru vinsælar, t.d. Omórika, blá- greni, fjallafura ofl. Komið í Blómaval, gangið um jólatré- skóginn og veljið jólatréð við bestu aðstæður inni sem úti. Leggjum áherslu á góða þjónustu og vandað val á jólatrjám. blómaual mmmmm Gróðurhúsinu við Sigtún: Símar36770-86340 Gæzlan nýti fyrst eigin tæki Forráöamenn flugfélagsins Ernis á ísafiröi hafa viðraö hugmyndir um að félagiö taki að sér gæzluflug fyrir Vestfjörðum fyrir Landhelgisgæzl- una. „Landhelgisgæzlunni hefur ekki borist neitt formlegt tilboð um gæzluflug og því get ég lítið tjáö mig um þetta. Ef einhverjir aðilar geta boðið Landhelgisgæzlunni þjónustu á hagkvæmu verði, þá munum við vissulega hugleiða það,“ sagði Gunnar Bergsteinsson, forstjóri Landhelgisgæzlunnar í samtali við Mbl. „En við munum að sjálfsögðu nýta þau tæki sem við höfum til umráða áður en við leigjum frá öðrum. Við höfum snúið okkur til einkaflugfélaga þegar á hefur þurft að halda." —Er hugsanlegt að Landhelg- isgæzlan nýti þjónustu lítilla flug- félaga víða um land til gæzlu- flugs? „Eins og ég sagði — við höfum leitað til lítilla flugfélaga þegar á hefur þurft að halda. Hitt hefur ekkert verið rætt og því get ég ekki tjáð mig um það,“ sagði Gunnar Bergsteinsson. Júlíus Sólnes I prófkjörinu JÚLÍUS Sólnes, verkfræðingur, hefur ákveðið að taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Norðurlandskjördæmi eystra. „Ég tel að með framboði mínu verði aftur algjör eining innan flokksins hér í kjördæminu. Auk þess vona ég að mér auðnist sú gæfa að geta lagt eitthvað af mörkum fyrir þetta kjördæmi, en það kemur ekki í ljós fyrr en að loknum úrslitum. Eg vona að með þessu verði allt, sem heitir klofningur úr sögunni hér,“ sagði Júlíus Sólnes í samtali við Mbl. Bæjarstjórn Akra- ness heiðrar sundfólk Akranesi, 10. desember. BÆJARSTJÓRN Akraness bauð Sundfélagi Akraness til veislu í gærkvöldi í tilefni af góðri frammistöðu sundfólksins, en það vann frækilegan sigur í 1. deild í sundi fyrir skömmu. Ennfremur afhenti bæjar- stjórnin sundfélaginu 20 þúsund krónur til styrktar sundíþróttinni á Akranesi. Valdimar Indriðason, forseti bæjarstjórnar, ávarpaði sundfólk- ið og árnaði því heilla um leið og hann afhenti því gjöfina. Július

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.