Morgunblaðið - 12.12.1982, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 1982
Eins og gengur
— ný plata með söngvísum eftir
Sigurð Þórarinsson, jarðfræðing
Hluti flytjenda Eins og (jenjfur ásamt formanni Norræna félagsins við píanóið í Norræna húsinu. Við píanóið situr
Elías Davíðsson, við hlið hans er Hjálmar Ólafsson og heldur á plötunni, þá Arnaldur Arnarson, Gísli Helgason, Árni
Björnsson Og Gunnar Guttormsson. Morgunblaíií/Kristján Einarsson.
Eins og gengur heitir hljómplata
sem nýlega kom út með söngvísum
eftir Sigurð Þórarinsson jarðfræð-
ing. I>að er Norræna félagið sem gef-
ur plötuna út Sigurði sjötugum til
heiðurs „og söngglöðum almenningi
til ánægju", eins og Hjálmar Ólafs-
son, formaður Norræna félagsins,
orðaði það.
Á plötuumslagi segir svo:
„Það er hverju félagi mikið
hnoss að hafa Sigurð Þórarinsson,
jarðfræðing í sínum hópi, ráðholl-
an, hressan, söngvinn og fyndinn.
Fyrir rúmum hálfum fimmta ára-
tug er hans fyrst getið í gerðabók-
um Norræna félagsins, er hann
samkvæmt ósk skrifaði grein í
árbók norrænu félaganna, Nor-
disk kalender, um Island sem
ferðamannaland. Síðan hefur
hann verið félaginu hollur þegn og
drjúgur. Hann hefur setið í stjórn
Reykjavíkurdeildar Norræna fé-
lagsins um áratugaskeið. Sigurður
hefur einnig unnið félaginu vel
með setu í stjórn Norræna hússins
sem fulltrúi þess frá upphafi, eða í
hálfan annan áratug. Það var því
ekki að ástæðulausu að Norræna
t
Þannig lítur framhlið plötuumslags-
ins út. Björn Br. Björnsson hannaði
umslagið.
félagið sæmdi hann heiðursmerki
sínu úr gulli á sjötugsafmæli hans
8. janúar 1982.“
„Eins og alþjóð veit,“ sagði
Hjálmar Ólafsson á blaðamanna-
fundi sem efnt var til í tilefni plöt-
unnar, „hefur Sigurður í tæpa
hálfa öld ort og þýtt snotrar vísur
við falleg erlend lög. Allir kannast
t.d. við „Að lífið sé skjálfandi lítið
gras“ frá 1938, en það var fyrsti
landfleygi texti Sigurðar. Þess
vegna var það að Norræna félagið
efndi til dagskrár í Norræna hús-
inu þann 7. febrúar sl. með þýdd-
um og frumsömdum söngtextum
eftir Sigurð. Voru þá ekki síður
valdir textar sem ekki höfðu áður
komist á allra varir. Aðsóknin
varð svo mikil, að endurtaka
þurfti dagskrána samdægurs. Það
varð síðan að ráði, að nokkurn
veginn sami hópur og að þessari
dagskrá stóð, syngi megnið af
sömu löj^im inn á hljómplötu.
Þetta hefur nú orðið að veruleika."
Flytjendur á Eins og gengur eru
þessir: Arnaldur Arnarson, Árni
Björnsson, Elías Davíðsson, Erna
Ingvarsdóttir, Gerður Gunnars-
dóttir, Gísli Helgason, Gunnar
Guttormsson, Hávarður Tryggva-
son, Kolbeinn Bjarnason, Margrét
Gunnarsdóttir, Ólöf Sesselja
Óskarsdóttirr, Sigrún Jóhannes-
dóttir og Sigurður Rúnar Jónsson.
Með plötunni fylgir textablað
prýtt myndum af flytjendum.
Norður ísvalann
'™BMi
1 ■
M'n
Siguröur Pálsson ræöir viö fimm aðflutta íslendinga. Þeir eru:
Baltasar B. Samper listmálari
Ester Gunnarsson hjúkrunarfræöingur og húsmóöir
Carl Billich píanóleikari
Rut Magnúsdóttir organisti og húsmóöir
Einar Farestveit forstjóri
Höfundur segir m.a. í formála: „Þau opnuöu mér dyr, rifjuðu upp fyrir
mig bernsku og æsku, áhrifavalda í lífi sínu, aödragandann aö komu
sinni til íslands, ástæður fyrir því að þau settust hér aö fyrir fullt og allt
og kynni sín af landi og lýö.
Aá KAUPÞING HF.
^ Verdbréfasala
Gefið varanlega
jólagjöf
Léttið byröar uppvaxandi kynslóöar í framtíöinni
og gefiö spariskírteini ríkissjóðs í jólagjöf. Þau
skila meiri ávöxtun en nokkurt annaö sparnaðar-
form.
Starfsfólk Kaupþings h.f. veitir
ókeypis ráögjöf á þessu sviði.
KAUPÞING HF.
Húil vcrzluiwrinnar, 3. hai, aimi 86988.
Faatatgu- og tarMrMauta. Mgimitalun •tatanuMtantabta. Ittayxsta. MAMtag-
f.uftl-■-*--■ M ■-,.1A„|XÍ
næur-, rMalrlr- Og IvlVUvBOgJvl.
3ALl
Freyjugötu 27, s. 18188
_ FORVITNILEG BÓK UM FORVITNILEGT FÓLK
SOPHIA
klassísk íegurdnýtt ilmvatn frá
DAl.FELI. HF.II JJVESUJN I.AIKiAVECl 116 SÍMI 23099