Morgunblaðið - 12.12.1982, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 12.12.1982, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 1982 7 HUGVEKJA_ eftir sr. Hjalta Guðmundsson Jóhannes í fangelsinu I upphafi kirkjuársins, þeg- ar við fögnum frelsaranum, Jesú Kristi, sem konungi, minnumst við einnig annars manns, sem mjög kom við sögu Jesú. Þessi maður er Jóhannes skírari, sem oft hefur verið nefndur síðasti spámaðurinn. Þeir voru reyndar frændur, Jesús og Jóhannes. Við minnumst Jóhannesar skírara fyrst og fremst vegna þess, að hann ruddi brautina fyrir Jesúm Krist. Hann kom fram og boðaði iðrun og synda- fyrirgefningu. Hann hvatti fólk til að víkja af vegi syndar- innar og ganga veg Guðs. Jóhannes var rödd þess, sem hrópar í eyðimörkinni. Hann vissi, hvað var rétt og hafði kjark til að berjast gegn óréttlæti og synd, berjast einn gegn fjöldanum, sem leið áfram í sinnuleysi sínU og var orðinn samdauna syndum sín- um. Kannski er það dæmigert fyrir ástandið nú á dögum. Fjöldi fólks hefur litla sem enga tilfinningu fyrir því, að nokkuð sé til, sem nefnist synd og að það sé að syndga gegn Guði, þegar það gerir rangt. Guði er ýtt til hliðar í lífi þess, það heyrir ekki hina hrópandi rödd, sem vill ná eyr- um allra manna og vill fá þá til að snúa við á rangri leið. En aðvörun Guðs er ekki alltaf sinnt. Menn hugsa sem svo: Það er allt í lagi hjá mér. Það kemur ekkert fyrir mig. En einn góðan veðurdag kem- ur eitthvað fyrir. Við höfum kannski villst af leið. Hlutirnir hafa farið öðruvísi en til var ætlast, og hvað skal þá til bjargar? Hvað gerum við, þegar eitthvað óvænt og slæmt kem- ur fyrir í lífi okkar. Viðbrögð okkar eru sjálfsagt margs kon- ar. Sumir leggja árar í bát og gefast upp, en aðrir leita styrks hjá Guði, sem einn get- ur gefið okkur þann kraft, sem við þurfum til að standa upp- rétt í hverri raun. Við þurfum að reyna að forðast að gefast upp, þótt á móti blási, og vissulega er nóg um mótlæti í þessum heimi. Nærri því á hverjum degi kem- ur eitthvað fyrir í lífi okkar, sem veldur okkur streitu, vonbrigðum, gremju og jafnvel sorg. Sumt af þessu ráðum við ekki við. Það eru utanaðkom- andi atvik, sem gerast og hafa ýmis áhrif á líf okkar, án þess að við fáum nokkuð að gert. Jafnvel ýmislegt, sem við heyrum í útvarpi og sjáum í sjónvarpi og lesum um í blöð- um, getur haft mikil áhrif á okkur. Næstum því á hverjum degi berast að huga okkar fréttir af alls konar ofbeldis- verkum og grimmd, og eru slíkar fréttir ekki til þess fallnar að lífga upp á daglegt líf okkar. Þess vegna er okkur svo nauðsynlegt að eiga einhverja vörn gegn öllu þessu, eitthvað sem getur sannfært okkur um, að lífið sé miklu fegurra og betra en stundum virðist. Það er oft hægt að verja líkamann kulda, en hvað með sálina? Hvaða vörn eigum við handa henni? Hvernig er hægt að verja það, sem ekki sést og ekki er hægt að þreifa á? Þar kemur Guð til skjal- anna. Hann er alltaf nálægur, þegar við þurfum á hjálp hans að halda. Þessu megum við ekki gleyma, þegar eitthvað bjátar á. Það leysast kannski ekki öll vandamál eða hverfa út í buskann, en með Guðs hjálp verðum við betur fær um að takast á við þau og standast það, sem að höndum ber. Það mátti líka sjá á lífi Jó- hannesar skírara, að hann var óbugaður, þótt búið væri að hneppa hann í fjötra. Hann hafði verið of berorður. Hann hafði sagt yfirvöldunum til syndanna í raunverulegri merkingu þess orðs, og því fór sem fór. Hann var tekinn fast- ur og settur í fangelsi. Einhvern veginn hljómar þetta kunnuglega í eyrum, að maður sé fangelsaður vegna þess, að hann láti í ljós óánægju með gjörðir stjórn- valda. Slíkar sögur þekkjum við, því miður, og það frá allt of mörgum löndum þessa heims, og það ekki frá neinum villimannaríkjum, heldur frá þjóðum, sem vilja láta telja sig menningarþjóðir og vilja jafn- vel vera í forystu fyrir öllum jarðarbúum. Jóhannes var í fangelsi og það saklaus, og hann beið ör- laga sinna. Hann hafði ekki framið neinn glæp, þó var hann sviptur frelsi sínu og loks lífi. Hvað skyldu vera margir í hans sporum í dag um gjör- valla heimsbyggðina? Guð einn veit þá tölu. En það er ástæða til að óttast, að mikill fjöldi manna sé í sporum Jó- hannesar, menn sem ekkert hafa til saka unnið annað en það að vera ósammála stjórn síns lands, og í augum íslend- inga er ekki hægt að kalla það sakir. A þessum dögum, sem enn eru eftir til jóla, skulum við minnast allra þeirra, sem eru í sporum Jóhannesar skírara og biðja Guð að styrkja þá og vaka yfir þeim og fjölskyldum þeirra. Þetta fólk hugsar allt til jólanna eins og við, en þó við allt aðrar aðstæður. Guð gefi þó, að ljós heimsins megi lýsa inn í hjörtu þeirra og gefa þeim frið. Ársskýrslu- verðlaun 1982 Á þessu ári var öðru sinni efnt til samkeppni um bestu ársskýrslu félaga. Alls sendu nú 16 fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök inn ársskýrslur fyrir ár- ið 1981. Félögum Stjórnunarfélags íslands er hór meö boðið til fundar mánudaginn 13. desember 1982 kl. 16—18 í Kristalssal Hótels Loftleiða þar sem ársskýrsluverðlaun veröa ^fhent. Aö loknum fund- inum veröur boðiö upp á veitingar. Þátttaka tilkynnist til Stjórnunarfélagsins í síma 82930. STJÓRNUNARFÉLAG ISLANDS SIÐUMÚLA 23 SÍMi82930 Handunnar leirmyndir Halldórs Péturssonnr til sölu á vinnustofu hans Drápuhlíð 11 , opið á mánudögum frá kl. /5 - IS. Gengi verðbréfa 12. desember 1982: VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI Sölugengi pr. kr. 100.- RÍKISSJÓÐS: i 1970 2. flokkur 9.745,19 1971 1. flokkur 8.534,40 1972 1. flokkur 7.400,95 1972 2. flokkur 6.267.84 1973 1. flokkur A 4.514,05 1973 2. flokkur 4.158,85 1974 1. flokkur 2.870.43 1975 1. flokkur 2.358,80 1975 2. flokkur 1.777,00 1976 1. flokkur 1.683,26 1976 2. flokkur 1.345.69 1977 1. flokkur 1.248,41 1977 2. flokkur 1.042,35 1978 1. flokkur 846,42 1978 2. flokkur 665,89 1979 1. flokkur 561,37 1979 2. flokkur 433,91 1980 1. flokkur 327,42 1980 2. flokkur 257,29 1981 1. flokkur 221,05 1981 2. flokkur 164,17 1982 1. flokkur 149,14 1980 2. flokkur 257,29 1981 1. flokkur 221,05 1981 2. flokkur 164,17 1982 1. flokkur 149,14 Meðalávöxtun ofangreindra flokka um- fram verötryggíngu er 3,7—5%. VEÐSKULDABRÉF ÓVERÐTRYGGO: Sólugengí m.v. nafnvexti 12% 14% 16% 18% 20% (HLV) 47% 1 ár 63 64 65 66 67 81 2 ár 52 54 55 56 58 75 3 ár 44 45 47 48 50 72 4 ár 38 39 41 43 45 69 5 ár 33 35 37 38 40 67 Verðbréfamarkaóur Fjárfestingarfélagsins Lækjargðtu12 101 Reykjavik Iðnaðartjankahúsinu Simi 28566 ^ krónur fyrir ^ Dæmi um þá Gísla, Eirík og Helga sem áttu ofangreinda upphæð fyrir tveimur árum: Þeir ráðstöfuðu peningum sínum þannig, að Gísli keypti sér nýjan jap- anskan bíl. Eiríkur keypti verðtryggð spariskírteini Ríkissjóðs og Helgi keypti verðtryggð veðskuldbréf með afföllum. f nóvember 1982 seldi Gisli bílinn, en Eiríkur og Helgi seldu bréf sin á verðbréfamarkaði. Á sfðastliðnum tveimur árum hafði eftirfarandi gerst: Peninga- eign nóv.'80 RaJstötun: Peninga- eign nóv. '82 Ávöxtun í% eftir tvöár: A. Gisli ■æ 87.000 ♦ Nyrbill 123.250* 42% W 4. Eirikur 87.000 Sparísk. 213.524 145% ▼ 4 Helgi 87.000 Veðsk.br. 235.892 171% *Hér er átt við staðgreiðsluverð bilsins. Nýr bíll af sömu gerð og Gísli keypti 1980 kostar i dag kr. 212.000.00. Gísla vantar því kr. 88.750.00 til að geta keypt sér nýjan bíl. Verðbréfamarkaður Fjárfestingarfélagsins hefur sjð ára reynslu í verð- bréfaviðskiptum og fjármálalegri ráðgjöf og miðiar þeirri þekkingu án endurgjalds. Viljir þú ávaxta sparife þitt munum við ráðleggja þér hagkvæmustu ráö- stöfun þess. /fTp\ Verðbréfamarkaöur Fjárfestingarfélagsins Lækjargötu12 101 Reykjavik lónaöarbankahúsinu Simi 28566

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.