Morgunblaðið - 12.12.1982, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 12.12.1982, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 1982 Býst ekki við að allir les- endur verði mér sammála sagði Ingólfur Jónsson á Hellu er kynnt var bók með endurminningum hans „ÉG VONAST til að þegar eldra fólk les þessa bók, þá verði það því til upprifjunar og nokkurrar skemmtunar, en að yngra fólk lesi hana sér ekki síst til fróðleiks um það hvernig lifað var hér á landi fyrr á þessari öld,“ sagði Ingólfur Jónsson, fyrrum alþingismaöur og ráðherra, á blaðamannafundi í vik- unni, er kynnt var nýútkomið fvrra bindi endurminninga hans. Útgef- andi bókarinnar, sem nefnist „Ing- ólíur á Hellu — umhverfí og ævi- slart", er útgáfufélagiö Fjölnir, en Páll Líndal skráði og bjó í bókar- form. Ingólfur sagði á blaðamanna- fundinum, að það hlyti vissulega alltaf að orka tvímælis, hvort menn ættu að rita æviminningar sínar. Hann hefði þó orðið við óskum um að láta skrá þær, að vandlega athuguðu máli, er eig- endur Fjölnis fóru þess á leit. Upphaflega sagði Ingólfur að bókin hefði átt að vera samtals- bók í einu bindi, en fljótlega eftir að þeir Páll hefðu byrjað verkið, hefðu þeir komist að því að ann- að form hentaði betur, og best færi á því að skipta bókinni í tvö bindi. Ingólfur kvaðst segja frá mönnum og málefnum eins og þau hefðu komið sér fyrir sjónir, en Páll gengið úr skugga um þau atriði sem vafi gæti leikið á, „því báðir viljum við hafa það er sannara reynist" sagði Ingólfur. Ekki kvaðst Ingólfur búast við eða ætlast til að allir yrðu sér sammála er þeir læsu bókina, enda væri það ekki tilgangur. verksins. „Eg vona hins vegar að ég þyki ekki ósanngjarn eða halli réttu máli," sagði Ingólfur, „og þeir sem búast við að ég fari niðrandi orðum um samferða- menn mína í bókinni, verða fyrir vonbrigðum. Ekki dettur mér í hug að fara nú að lasta nokkurn mann, hvorki andstæðinga mína í pólitíkinni né samherja. Auð- vitað var oft tekist á, og maður hefur lent í snörpum orrahríð um, en ég hef alltaf staðið upp óskaddaður frá slíku, og hef engra harma að hefna." I fréttatilkynningu frá forlag- inu, sem dreift var á blaða- mannafundinum, segir svo með- al annars um bókina: „I bókinni, sem er fyrra bindi æviminninga Ingólfs Jónssonar fyrrum al- þingismanns og ráðherra á Hellu í Rangárþingi, er víða komið við. Byrjað er á því að svipast um í Rangárvallasýslu í upphafi aldarinnar, og getið er margra þeirra manna er þar voru í forsvari í andlegum og veraldlegum málum um og fyrir aldamót. Þá rekur Ingólfur stjórnmála- þróunina í sýslunni og á Suður- landi, og tengir hana þjóðmála- Ljósm.: emiH* Bj. BjMntmWntr Ingólfur Jónsson á Hellu, fyrrum alþingismaður og ráðherra á blaða- mannafundinum þar sem kynnt var útkoma fyrra bindis endur- minninga hans, sem Páll Líndal hefur skráð og búið í bókarform. baráttunni á landinu öllu. Ing- ólfur gerir grein fyrir því er hann sjálfur hóf afskipti af stjórnmálum, fjallað er um at- vinnumál og landbúnað sérstak- lega, rafvæðingu, samgöngumál og fleiri málaflokka er Ingólfur lét sérstaklega til sín taka. Ing- ólfur segir frá því hvernig það atvikaðist að hann fór í framboð til Alþingis, hann segir frá ýms- um samstarfsmönnum sínum á Alþingi og víðar, getið er upp- hafs Kaupfélagsins Þórs á Hellu, og fjöldamörgum öðrum málum eru gerð skil. Þá segir Ingólfur frá ætt sinni og fjölskyldu og heimilishögum, og bókinni lýkur þar sem hann hefur í annað skipti tekið sæti í ríkisstjórn Is- lands, í Viðreisnarstjórninni undir forsæti Ólafs Thors árið 1959. Bókin er á fjórða hundrað blaðsíður að stærð, þar af eru sextán myndasíður. Hún er sett, umbrotin, filmuunnin og prent- uð í Prentstofu G. Benediktsson- ar, en bundin í Bókfelli. Birgir Andrésson hannaði bókarkápu, Sveinn Sigurðsson annaðist lest- ur prófarka.“ A fundinum kom fram, að stefnt er að því að síðara bindi komi út að ári liðnu, en endanleg ákvörðun þar um hefur þó ekki enn verið tekin. Borgarráð samþykkir: Veita 18% afslátt af iðgjöldum húsatrygginga BORGARRÁÐ samþykkti í gær að veita 18% afslátt af iðgjöldum Húsa- trygginga Reykjavíkur á næsta ári og hefur þetta um 5,5 milljóna tekju- tap fyrir Húsatryggingarnar í för með sér. Davíð Oddsson borgarstjóri sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að fjárhagur húsatrygg- inganna væri góður og væri rétt að hústryggjendur nytu þess í formi lækkunar iðgjalda. Slík lækkun hefði átt sér stað nokkrum sinnum áður, sem sýnir að borgar- yfirvöld vildu að borgarbúar nytu góðs af þeim árangri sem náðst hefur í eldvörnum og bættum húsakynnum í borginni. Skíðafæri gott í Blá- fjöllum Þrátt fyrir þíðuna á laglendi undanfarna daga, hefur snjó ekki tekið upp í Bláfjöllum og er þar nú gott skíðafæri. Voru starfsmenn í gær að undirbúa brekkurnar og ætlunin að hafa allar lyftur opnar laugardag og sunnudag kl. 10—18. Upplýsingasími Bláfjalla er 80100. Stúdentar MR 1958 Stúdentar frá Menntaskólanum í Reykjavík 1958 hafa ákveðið að koma saman til fundar á morgun, mánudag kl. 17—19 í Lækjar- hvammi Hótel Sögu, til undirbún- ings 25 ára stúdentsafmæli næsta vor. Eru stúdentar úr þessum ár- gangi hvattir til að fjölmenna. (Fréttatilkynning.) HEIMSBORGIN MIÐSTÖO VIÐSKIPTA OG LISTALÍFS EVRÓPU Eyrún — fararstjóri Cumberlandhótel — London Farþegar ÚTSÝNAR ferðast á lægstu fargjöldum, búa á völdum hótelum á beztu stööum í borginni fyrir stórlækk- að verð, t.d. CUMBERLAND á horni HYDE PARK og OX- FORDSTRÆTIS — í HJARTA TÍZKUHEIMSINS — ÚTSÝN hefur ein ísl. ferðaskrifstofa sérsamning við CUMBER- LAND. I KAUPBÆTI: Tekið á móti þér um leiö og þú kemur úr flugvélinni á Lundúnaflugvelli. Flutningur frá og til flugvallar, innritun á hótel, dagleg að- stoð þaulkunnugs fararstjóra meðan á dvöl- inni stendur. Allt svo auðvelt og öruggt með Eyrúnu fararstjóra. Lundúnaferðin sem borg- ar sig. Skemmtilegt — ódýrt — öruggt KAUPMANNAHOFN Brottför á fimmtudögum. Verð frá kr. 6.300.- OSLÓ Brottför á föstudögum. Verö frá kr. 6.020,- GLASGOW Brottför á föstudögum. Verð frá kr. 5.690.- STOKKHÓLMUR Brottför á föstudögum. Verð frá kr. 7.120,- LUXEMBORG Brottför á fimmtudögum. Verð frá kr. 6.100.- LONDON Brottför á fimmtudögum. Verö frá kr. 5.435.- AMSTERDAM Brottför á föstudögum. Verð frá kr. 6.100.- BROTTFARAR- DAGAR 15. desember 5. janúar 26. janúar 16. febrúar 9. mars 30. mars 20. apríl UTSÝN Austurstræti 17, Reykjavík. Sími 26611 Kaupvangsstræti 4, Akureyri. Sími 22911

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.