Morgunblaðið - 12.12.1982, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 12.12.1982, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 1982 Undir Bókmenntír Erlendur Jónsson Vilhjálmur Einarsson: DÖMUR, DRAUGAR OG DÁNDI- MENN. 183 bls. Bókaútg. Örn og Örlygur hf. Revkja- vík, 1982. Á forsíðu þessarar bókar standa þessi orð sem undirtitill: »Sigfús Kristinsson á Austfjarðarútunni segir frá einstæðu lífshlaupi sínu.« Einstæðu? — Ef til vill er það nú fulldjúpt í árinni tekið. En merkilegt er það að ýmsu leyti, þó ekki sé nema akstur Austfjarða- rútunnar. Það hefur verið þræla- vinna meðan ekið var lengri leið- ina: um Hólssand, Kelduhverfi og Reykjaheiði. Austurleiðin var fá- farnari en vegurinn milli Akur- eyrar og Reykjavíkur og því leng- ur notast við slóðir og troðninga. Niður í gil, og upp úr þeim aftur — þannig var helmingur leiðar- innar. Hver ferð var i rauninni leiðangur. Undirritaður ferðaðist stundum með þessari frægu rútu. Og bíl- stjórinn var maður sem í minni festist — og það vegna fleira en þess að hann gekk dálítið haltur. Rútubílstjórar voru þá þekktir menn hver í sínum fjórðungi. Og stýri ég fékk það á tilfinninguna að bíl- stjórinn, Sigfús, væri þrátt fyrir hreyfihömlun sína traustari en bíllinn sem hann ók. Eitt sinn taldi ég mig meira að segja fá fyrir því óræka sönnun. Þó leiðin væri löng var landslagið á leiðinni víða til að dást að, ekki síst víð- sýnið, fjallasýnin. »Akstur féll mér vel,« segir Sig- fús. »Ég gat greitt götu fólks og fengið að njóta kynna þess á leið- inni. Fötlunin háði mér ekki undir stýri. Ekki spillti það að bílstjóra- stéttin naut talsvérðrar virð- ingar.« Sigfús getur þess síðan að flugmenn hafi síðar erft hylli þá sem bílstjórar nutu fyrrum. Rútubílstjóri kynntist fjölda fólks. Þjóðin ferðaðist öll með rútu á þessum árum, þingmenn og þjóðskáld jafnt sem aðrir. Á Ak- ureyri annaðist Bifreiðastöð Ak- ureyrar afgreiðslu fyrir Aust- fjarðarútuna. Eigandi hennar var Kristján Kristjánsson. Hann var af sumum kallaður bílakóngur. Hann var nafntogaður fyrir margra hluta sakir, mikill vinur Kjarvals, t.d. og greiddi áreiðan- lega götu hans á ferðum um landið því Kjarval var maður útiveru og ferðalaga. »Oft hef ég furðað mig á því, að ekki skuli hafa verið gerð bók um litríkan æviferil Krist- jáns, bóndasonarins sem varð bilakóngur,« segir Sigfús. Undir Sigfús Kristinsson þessi orð tek ég. Kristján var ekki aðeins mikill persónuleiki. Braut- ryðjendastarf hans var líka stór- merkilegt. Meðal skálda sem ferðuðust með Sigfúsi var Guðmundur G. Haga- lín en hann átti um skeið heima á Seyðisfirði, ungur rithöfundur og blaðamaður. »Nokkrum sinnum var Hagalín meðal farþega minna. Ávallt fylgdi honum glaðværð og fjörugar samræður,* segir Sigfús. Davíð Stefánsson tók sér einnig far með Austfjarðarútunni en hann var öðruvísi: »Vart er hægt að hugsa sér meiri andstæður en Hagalín og hann ... virtist stafa frá honum yfirlæti og þótta, en augljóst að mikið bjó inni fyrir.« Sigfús er greinagóður sögumað- Vönduö sófasett frá Víði fyrir viðráðanlegt verð! Við höfum fengið nýja sendingu af bráðfallegum sófasettum til afgreiðslu strax. Mílanó sófasettfrá Víöi Vilhjálmur Einarasou ur og eru þessar endurminningar hans í alla staði virðingarverðar. Ég hefði kosið að hann segði meira frá starfi sínu sem rútubíl- stjóri. Upphaf rútualdar var merkilegur kafli í þjóðarsögunni. Nöfn þeirra, sem fyrstir óku á langleiðunum, munu lengi í minn- um höfð. En Sigfús rekur hér miklu fleira, t.d. bernsku- og æskuminningar. Og loks segir hann frá nýju verkefni sem hann tók sér fyrir hendur á efri árum: hann gerðist iðnrekandi. Sá kafl- inn varð þó bæði skammur og endasleppur. Rekstrargrundvöllur fyrirtækisins brast: »Hækkað ull- arverð, mikill milliliðakostnaður, himinháir vextir og óhagstæð gengisskráning lagðist á eitt. Verðbólgan bætti ekki úr skák ...« Þetta er ófögur lýsing, en því miður svo algeng að hún gæti ver- ið íslandssagan öll fyrir liðinn áratug. Úr því að Sigfús — vanur grýttum og krókóttum Austur- landsveginum — gat ekki ekið heilum vagni heim úr þeirri ferð er vandséð hvernig öðrum ætti að takast það. Geisað og hneggj- að hjá Guðrúnu Bókmenntír Jóhanna Kristjónsdóttir Guðrún frá Lundi: DALALÍF I Útg. Almenna bókafélagið 1982. Guðrún frá Lundi og bækur hennar skipa sérstæðan sess í ís- lenzkum bókmenntum síðari ára- tuga. Hún byrjaði að skrifa og senda frá sér bækur komin á full- orðinsár og síðan varð hún ekki stöðvuð, ég veit satt að segja ekki hvað þær urðu margar bækur hennar áður en yfir lauk og allar voru lesnar upp til agna, en eftir því sem á leið urðu ýmsir gagn- rýnendur heldur fálátir gagnvart bókum hennar, og margir töluðu og skrifuðu heldur betur óvirðu- lega um þær. Ætli þar hafi ekki fyrst verið talað um „kellingabæk- ur“ og var það í niðrandi merk- ingu eins og geta má nærri. Guð- rún frá Lundi var um árabil mest lesni höfundur hérlendis, sló þar alveg við mörgum sem aðrir töldu að bókaþjóðin ætti að sinna meira: það var snertur af menningar- sjokki sem hluti þjóðarinnar fékk á hverju ári, þegar í ljós kom að enn var Guðrún frá Lundi mest lesni höfundurinn — á undan sjálfu Nóbelsskáldinu, að ekki væri nú talað um minni spámenn. Dalalíf var fyrsta skáldsagan sem hún sendi frá sér, mér skilst þetta verk hafi komið út í einum fimm bindum á árunum 1946—1947. Nú hefur Almenna bókafélagið tekið Dalalíf til endurútgáfu og munu bindin verða tvö, enda þetta hið fyrra hvorki meira né minna en lesning upp á 526 blaðsíður. Það er út af fyrir sig rannsókn- arefni að reyna að skilgreina af hverju Dalalíf hlaut þær undir- tektir með lesendum sem raunin varð á og seinna flestar bækur hennar. Það blandast engum hug- ur um frásagnargleði höfundarins, sem er að vísu fullkomlega óbeizl- uð og myndi stíllinn ekki vera kallaður agaður nú til dags. Per- sónurnar eru sóttar í daglega önn fólks í sveitum oft á fyrstu áratug- um aldarinnar og þær eru ekki dregnar í mörgum litum, býsna Guðrún frá Lundi margar þeirra eru svartar á litinn eða svo skjannahvítar að ekki fell- ur á þær rykkorn, hvað þá annað svínarí. Atburðarásin er venjulega afar áþekk frá bók til bókar, ein fjölskylda er í brennidepli og oft rakin saga hennar í 2—4 kynslóðir eða svo, sveitungar fjölskyldunnar eru oft fyrirferðarmiklir í lýsing- um og gróusögur og umtal sveita- fólks, sem keyrir oft og einatt öld- ungis um þverbak, hefði nú eigin- lega átt að duga til að vekja með sveitafólki nokkra gremju í garð höfundar. Hér er ekki aldeilis ósnortið og fagurt mannlíf, í raun- inni keppist hver við að níða skó- inn niður af öðrum og ekki par fallegur hugsunarháttur sem birt- ist hjá sögupersónunum. Aftur á móti eru góðu persónurnar svo yf- irgengilega góðar, að það getur líka orðið þreytandi. En hvað sem öllum vanköntum líður, Guðrún frá Lundi blívur og mun án efa halda sínum sess í bókmenntum okkar, Dalalíf hefur staðizt tímans tönn og menn hafa með árunum farið að sjá bækur Guðrúnar í öðru ljósi en fyrr. Það á hún líka fullkomlega skilið. Það segir út af fyrir sig heilmikið um bókina að maður skuli lesa þessar 500 síður án þess að verða gripinn þreytu að neinu ráði eða leiða á efninu, jafnvel þótt maður skynji ákveðinn fáránleika og finnist nóg um hvað fólkið hneggjar, geisar, rausar, jagast í stað þess að tala. Hvað fólkið getur líka endalaust nagað í náungann, hvað augljós „plott" eru lengi að upplýsast o.s.frv. o.s.frv. Það er aðeins vegna þess að í Guðrúnu frá Lundi hefur búið brot af snillingi að slíkt heppnast. Komiðogskoðið Trésmiðjan Víðir hf. Síðumúla 23, Sími: 39700 Húsgagnaverslun Guðmundar Smiðjuvegi 2, Kópavogi Sfrni 45100 MetsöluHad á hverjum degit

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.