Morgunblaðið - 12.12.1982, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 12.12.1982, Blaðsíða 42
. 42 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 1982 ÞÆR ERU SPENNANDI í ÁR, SKEMMTISÖCURNAR FRA SKUGGSJÁ! Barbara Cartland Ástin blómstrar á öllum aldursskeiðum Eftir lát konu sinnar segir Malcolm Worthing- ton skilið við starf sitt í utanríkisþjónustunni og fer til Miðjarðarhafsins í þeim tilgangi að gleyma fortiðinni og hefja nýtt líf. Þar verða tvær konur á vegi hans og þær eru ólíkar eins og dagurinn og nóttin. Elísabet er fínleg, lífsglöð og óeigin- gjörn og kennir honum að elska á ný. Marcia er há og grönn, fögur og fönguleg, en Malcolm metur hana einskis. En þegar Marcia er að því komin að hverfa að fullu úr lífi hans, ske óvæntir atburðir, sem Malcolm hafði ekki séð fyrir... 3L, KNHKAK \ - vRartland Ástin blómstrar á öllum aldursskeiöum Theresa Charles Við systurnar Althea er fögur, alvörugefin og mjög gáfuð og stjórnar yngri systur sinni, fuli afbrýðisemi og öfundar. Rósamunda er lífsglöð og skemmtileg, aðlaðandi og kærulaus, en full af mannlegri hlýju. Adrían er aðstoðarprestur föður þeirra og þær eru báðar ástfangnar af honum. Hann kvæn- ist Altheu. Cecil er frændi Adríans, glæsilegur og sjálfsöruggur. Hann kvænist Rósamundu. Þessar systur voru mjög ólíkar, en áttu þó svo margt sameiginlegt í fari sínu, að mennirnir, sem urðu á vegi þeirra hrifust af þeim báðum. Sigge Stark Skógarvördurinn Anna frá Hlíð var sautján ára og mjög þögul og fáskiptin. Hún tjáði engum hug sinn, heldur hélt sig út af fyrir sig, rölti ein um skóginn með hundinum sínum, sem í raun var hennar eini féiagi. En einn indælan sumardag, þegar sólin hellti geislum sínum yfir skóginn, fjöllin og mýr- arnar, hitti hún skógarvörðinn nýja. Þessi sumar- dagur festist henní í minni sem einn mesti hamingjudagurinn í lífi hennar, enda þótt hann bæri í senn með sér sorg, biturleika og tár... SIGGE STARK SKÓGAR- VÖRÐURINN ELSE-MARIE NOHR I1VCRCR CG? Else-Marie Nohr Hver er ég? Eva Birk er að undirbúa brúðkaup sitt og Henriks Borg, þegar hún fær þær óvæntu upp- lýsingar, að af vígslunni geti ekki orðið, þar sem hún sé þegar gift öðrum manni. Eva verður að sjálfsögðu skelfingu lostin. Hún hafði orðið fyrir bifreiðarslysi og þjáðst af minnisleysi um tíma, en þegar hún tekur að kanna málið, kemst hún að því að hún er þegar gift, og það manni sem henni er ákaflega ógeðfelldur, — og að með þessum manni á hún þriggja ára gamla dóttur... Erik Nerlöe Hvítklædda brúðurin Karlotta var á leið til kirkjunnar þar sem Jesper og veizlugestirnir biðu hennar. Hún var klædd í brúðarkjólinn hvíta, með fagran brúðarvönd í fanginu og fyrir brúðarvagninn voru spenntir tveir fagrir gæðingar. En hún komst aldrei alla leið til kirkjunnar, — og enginn vissi um mennina tvo, sem í brúðarvagninum sátu og óku á brott með Karlottu, tvo illskeytta menn, sem til alls voru vísir. Og þar með fékk Benedikta Liljen- krona möguleika til að vinna ástir Jespers á ný... ,Erik Ncrloe HVITKLÆDDA BRÚÐURIN & .< i l Francis Durbridge Med kveðju frá Gregory Fáir útvarpsþættir hafa vakið jafnmikla spennu meðal íslenzkra útvarpshlustenda sem Gregory-þættirnir sællar minningar. Með kveðju frá Gregory er sagan sem þessir æsilegu þættir voru byggðir á, — og sagan er ekki síður spennandi. Hver var hann þessi leyndardómsfulli glæpamaður, sem skildi eftir orðsendinguna „Með kveðju frá Gregory," ritaða með rauðu bleki, sem minnti óhugnanlega á blóð, og festi á fórnarlömb sín? — Það kostar vökunótt að byrja lestur þessarar bókar. Bergljót Snorradóttir Schweitzer - Minning Með fáum orðum vil ég minnast mágkonu minnar, Bergljótar Sn. Schweitzer, er lézt mjög skyndi- lega 22. október sL, í Los Gatos, Kaliforníu. Andlátsfregn hennar kom sém reiðarslag yfir okkur hér heima, því hún virtist alltaf svo hress og sterk. Að vísu hafði hún kennt sér lasleika undanfarið, en ekki grunaði okkur, að veikindi hennar væru svona alvarleg, en sennilega kemur dauðinn okkur alltaf jafn mikið á óvart, enda þótt hann sé vissulega eina örugga staðreyndin í lífi okkar. Bergljót var fædd á Eskifirði 28. september 1925. Hún var næst- yngsta barh þeirra hjóna Stefaníu G. Stefánsdóttur og Snorra Jóns- sonar kaupmanns þar. Af þeim systkinum lifa Hrafnhildur búsett í Los Angeles, Haukur og Jónína búsett í Reykjavík og Snorri, sem býr á Selfossi. Látin eru Margrét 1977 og Stefán 1947. Þann 19. maí 1945 giftist Berg- ljót eftirlifandi manni sínum, Theodore P. Scweitzer, er þá gegndi starfi höfuðsmanns í her Bandaríkjanna hér á landi. Theo- dore hafði nýlokið kandidatsprófi í ensku og sögu frá Ohio State University, er hann var kvaddur í herinn. Snemma árs 1946 fluttu þau hjón til Bandaríkjanna og var heimili þeirra fyrst í Columbus Ohio, en eftir nokkurra ára búsetu þar fluttu þau til Kaliforníu. Fyrst bjuggu þau í San Matheo, en sl. 22 ár í Los Gatos, þar sem Bergljót andaðist 22. október sl. Þau hjónin eignuðust tvo syni, Stefán, arkitekt, sem búsettur er á Hawaii, og Gunnar Richard, sem býr í Los Gatos. Heimili þeirra hjóna í Los Gat- os, sem er í útjaðri borgarinnar, stendur í fjallshlíð og gnæfir yfir dal þann, sem af þarlendum er kallaður „Silicon Valley" vegna hinnar miklu tölvufyrirtækja, sem þar eru starfrækt. Þarna uppi á fjallinu leið Bergljótu vel. Þaðan er fagurt útsýni og fjallasýn. Þar átti hún sína „Esju“, sem minnti hana á gamla landið, sem átti svo sterk ítök í henni. Þrátt fyrir ára- tuga dvöl á erlendri grund, var hún alltaf fyrst og fremst íslend- ingur og að koma til íslands var alltaf að koma heim. Gestrisnin á heimili þeirra hjóna var mikil og hafa ófáir ís- lendingar notið gestrisni þeirra um lengri og skemmri tíma og verið teknir sem fjölskyldumeð- limir, enda nutu þau Bergljót og Theodore þess að fá landann í heimsókn og var þá safnað saman íslendingum, sem búa þarna í ná- grenninu og var þá jafnan glatt á hjalla. En allmargir íslendingar búa á þessum slóðum og er þar starfandi Islendingafélag, sem leitast við að viðhalda íslenzkum siðum, m.a. halda þeir árlega þorrablót, jólaskemmtanir fyrir börn og svo er auðvitað 17. júní alltaf haldinn hátíðlegur. Þau hjónin tóku mjög virkan þátt í þessu félagslífi, t.d. sneri Theo- dore texta íslenzku jólasöngvanna á enska tungu og spilaði undir sönginn á jólaskemmtun barn- anna. Þátttaka þeirra hjóna í ís- lendingafélaginu var Bergljótu mikils virði og sagði hún mér, að þetta fólk væri sín fjölskylda í Bandaríkjunum — til þeirra var alltaf hægt að leita bæði í gleði og sorg — og ávallt voru þessir land- ar tilbúnir að rétta hönd og ef eitthvað var um að vera hjálpuð- ust allir að — allir lögðu eitthvað af mörkum, svo að með sanni má segja, að þeir séu eins og ein stór fyrirmyndar fjölskylda og hefur Theodore notið hjálpar þeirra og hlýju á þessum sorgar- og reynslu- Afmælis- og minningargreinar ATHYGLI skal vakin á því, að aímælis- og minn- ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í minn- ingargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíð- um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. + Eiginmaöur minn og faöir okkar, EINAR A. JÓNSSON, aöalféhiröir, lést í Landspítalanum 10. þ.m. Herdís Hinriksdóttir, Anna S. Einarsdóttir, Þórunn Á. Einarsdóttir. t Frænka okkar, BJÖRG JAKOBSDÓTTIR, Þórsgötu 3, ver<Jur jarösungin frá Hallgrímskirkju þriöjudaginn 14. des. kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hennar er vinsamlega bent á líknarstofnanir. ir. Þóra Magnúsdóttir, Inga Erlendsdóttir. ,1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.