Morgunblaðið - 12.12.1982, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 12.12.1982, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 1982 27 í einu Jólablaðinu — sem út kom um sl. mánaðamót — eru sjö aldnir íslendingar spurðir um bernskujól sín undir síðustu aldamót. I svörunum kemur glöggt fram hve jólin byggðust mikið á því að fá þá góða máltíð. Jólamaturinn, sem þessu fólki er minnisstæður eftir 80 ár, var kjötsúpa, steikt kjöt, hangikjöt eða sauðakjöt. Skammtað rif á mann, en konur fengu minna. Gjarnan skammtað svo vel að fólk gat geymt afganginn. Á ein- um stað hafði hver heimlismað- ur hjá sér skrínu og í henni geymdur afgangurinn af hangi- kjötinu, sem oft entist nokkuð lengi. Þegar jólamaturinn var skammtaður á öðrum stað, voru sauðalærin tekin í tvennt, sum þrennt og karlmönnum gefin helmingastykkin en kvenfólki þriðjungsstykkin. Og 1—2 rif af hanginni síðu, vel feitri. Nefndur er skammtur af hangikjöti, bringukolli og magálum. Hvílík dýrð! Þyrfti líklega æðimarga skokkspr^tti til að ná af nútíma- fólki holdunum eftir slíkar feitmetismáltíðir. En eins og einhver sagði: LystÍMemda lífsins njótum lióna tíma er vert aó muna. hótt vér stöku bodord brjótum í bróóerni vió samviskuna. En jólamaturinn hefur aldeilis tekið breytingum, jafnvel þótt ekki sé farið eins langt aftur og í nefndum viðtölum. Margir halda þó enn uppi hefðbundnum siðum um jólamáltíðirnar. Halda sína hefð með rjúpum, hangikjöti, hamborgarhrygg, gæs o.s.frv. á hverjum jólum. En með heims- reisum þjóðarinnar á seinustu árum, hafa réttir fjarlægra þjóða færst nær okkur — eru jafnvel komnir á næsta götu- horn — og hafa vitanlega líka áhrif á matarvenjur jólanna. Nú er t.d. hægt að skreppa upp á Laugaveg og fá austurlenskan mat eða upp á Skólavörðuholt og fá gríska pitu o.s.frv. Pizzurnar mínar, sem ég gat slegið mér upp á að baka hér áður fyrr, eru löngu orðnar að hversdagsfæði, sem fæst tilbúið í næstu búð. En það eru ekki bara erlendar matarvenjur og nýir réttir með útlendum nöfnum, sem hafa haldið innreið sína. Matur úr innlendu hráefni tekur stakka: skiptum og fjölbreytni ' vex. í mínum uppvexti var fiskur hversdags og lambasteik og rabbarbaragrautur á sunnudög- um algengt á heimilum. Þá fuss- uðu margar húsmæður í fiskbúð- inni, ef ekki fékkst þar glæný ýsa. Annað þótti varla fiskur. Nú að undanförnu höfum við Reyk- víkingar aftur séð þessa fínu ýsu, veidda hér rétt úti í flóan- um. Hvílíkur munur á fiski, sem svo stutt er sóttur. Nú er fiskmetið fjölbreyttara og kannski má dylja nýjabragðs- leysið undir kryddinu. Fiskmeti, sem ekki þótti mannamatur áður fyrr, er nú gjaldgengt og fram- reitt með nýjum matreiðslu- háttum. Ég nefni skötuselinn. Lostætið marhnút látum við samt enn óétið. Marga fjöl- breytta veizlumáltíð úr sjávar- réttum má orðið fá á veitinga- húsum. Frá sumrinu minnist ég ágætu, tiltölulega ódýru fisk- réttamáltíðanna sem Loftleiðir buðu upp á með reglulegri sjáv- arréttasúpu, forrétti og aðalrétti úr sjávarafurðum. Þangað var þægilegt að fara með erlenda gesti og ætli maður fyrirvaralít- ið að hafa gesti í mat heima, er nú hægt að fá tilbúna fiskrétti beint í ofninn eða pottinn í Forðabúrinu, þar sem ég hefi gripið upp ýsuflök fyllt með rækjum, marineraðar gellur og fleira sjávargóðgæti. Með nýjum matreiðsluháttum er fiskmetið, sem íslendingum þótti lengi veí „hversdagsmatur" að verða gjaldgengur veizlumatur, ég vil segja jólamatur. En vitanlega verður að gera sömu kröfur til nýs hráefnis handa okkur sjálf- um, eins og til útflutnings. Þar kemur svo inn í þessi skrýtna stýring á öllu stóru og smáu, sem lætur stjórnvöld ákveða að ekki megi greiða meira fyrir góða vöru og minna fyrir slæma. Rík- isstjórnum ætlað að vera með puttana í pottunum hjá okkur. í umtali um nútíma jólarétti, virðist ekki oft nefnt lambakjöt. Þykir kannski hversdagslegt. í sumar sá ég tíundaðan í annarri heimsálfu matseðil á aldaraf- mæli fínasta og dýrasta veit- ingahúss í Evrópu, La Tour d’Argent í París. Aðalrettur þessarar hátíðamáltíðar var lambakjöt. Þessi veitingastaður hefur í 100 ár verið svo fínn og dýr að þangað fara ekki aðrir en þeir, sem geta og vilja borga fyrir það albesta. Þangað kom ég eitt sinn fyrir 30 árum með Ás- birni Ólafssyni heildsala, sem á ferð um París vildi fara á besta veitingastaðinn í heimsborginni. Er ég hafði sagt honum að veit- ingahúsið grobbaði af því að þar mætti fá hvaða rétt sem væri, sagði hann: Ekki það sem mig langar í núna, glænýjan lax með smjöri! Lax var ekki á álnalöng- um matseðlinum, en kom samt. Hvaðan? var spurt. Með flugvél frá Skotlandi í morgun, veiddur í gær, var svarið. Og vitanlega hafði fiskurinn sá ekki komið nálægt frysti. Frakkar vilja ekki, ef þeir vilja vanda sig, mat úr frosti. Þótt þeir sem aðrir séu byrjaðir að nýta þessa geymsluaðferð, þá er það frekar að þeir kaupi til- búna rétti úr frysti en hráefni. Húsmóðir, sem er vönd að virð- ingu sinni, fer sjálf á markaðinn og til kjötkaupmannsins og velur bitana af kostgæfni. Leggur feikilega upp úr nýju hráefni og vali á því. Hér erum við orðin vön langgeymdu kjöti, og líklega ekki mikið við að gera. Hér á norðurhveli er dýrara að geyma lömbin á fæti fram að þeim tíma sem á að nýta þau en í bútum í frysti, sem þó kostar ekki svo lítið. Eða hvað? Hefur það verið athugað? Innlenda hráefnið á orðið í samkeppni við nýja siði og aukn- ar kröfur, og þarf að sjálfsögðu að taka af því mið. Og það minn- ir á rabbarbaragrautinn sem var búinn til úr hráefni sem óx fyrir- hafnarlaust í hverjum garði ókeypis. Af hverju er svo ódýr matur ekki lengur nýttur? Ekki endilega í rabbarbaragraut, heldur kannski kompot með kjúklingum, sem bragðast vel erlendis eða í rabbarbaratertu í stað dýrra niðursoðinna ávaxta? Næsta skrefið hjá okkur er lík- lega að laga útlenda matartil- búninginn að innlendu hráefni. Gæti það orðið herferð á kom- andi ári! (Ljósm. Mbl. KÖE.) afsagnar hans úr ríkisstjórninni? Eða Pálmi Jónsson, sem sagði á flokksráðsfundi sjálfstæðismanna á dögunum, að hann hefði þurft að grípa til „örþrifaráða" gegn meiri- hluta sjálfstæðismanna? Og hvað um Ragnar Arnalds, fjármálaráð- herra, sem segir þjóðina vera að sökkva á kaf í skuldir? Ætli Svav- ari Gestssyni sé það metnaðarmál að standa að „hljóðlausri lífs- kjaraskerðingu" sem bitnar harð- ast á ungu fólki sem vill eignast húsnæði? Metnaði Hjörleifs Gutt- ormssonar verður vafalaust reist- ur óbrotgjarn minnisvarði úr áli. Ábyrgdin Þegar Gunnar Thoroddsen varði myndun stjórnar sinnar á frægum flokksráðsfundi sjálfstæð- ismanna, sem haldinn var 10. febrúar 1980, vék hann að forsæt- isráðherrastörfum Geirs Hall- grímssonar með þessum orðum: „Nú þekkjum við öll þá sorgar- sögu, að á þessu stjórnartímabili 1974—1978 mistókst með öllu að ráða við verðbólguna. Það er líka vitað, að forystan í efnahagsað- gerðum og baráttu gegn verðbólgu hvílir fyrst og fremst á herðum forsætisráðherra í hverri ríkis- stjórn. Hann verður að hafa for- ystu, hann verður að hafa for- göngu, hann verður að hafa hug- myndaflug og áræði til þess að takast á við þessi mál. Vitanlega berum við allir, sem sátum í þeirri ríkisstjórn, ábyrgð á því, hvernig gekk. En um leið og ég skorast ekki undan neinni ábyrgð frá þeirri stjórnartíð, þar sem ég átti sæti, þá þýðir ekki að vera að draga fjöður yfir þá staðreynd og þann sannleika, að forsætisráð- herrann er kannski fyrst og fremst efnahagsmálaráðherra, sem verður að hafa forystuna.“ Sjálfs- traustið Á það var rækilega bent á sín- um tíma, að ríkisstjórn Gunnars Thoroddsen naut óskoraðs trausts Dagblaðsins og var blaðið eindreg- ið málgagn stjórnarinnar, þegar hún ýtti úr vör. Eins og við var að búast dró smám saman úr þessum stuðningi og eftir að Dagblaðið og Vísir runnu saman í eitt, töldu stjórnarsinnar, að þeir hefðu misst spón úr aski sínum. Þess verður ekki vart, að hörmungar ríkisstjórnarinnar hafi dregið úr sjálfstrausti þeirra, sem studdu hana með ráðum og dáð á síðum Dagblaðsins á sínum tíma. Þeir fjalla um stjórnmál með þeim hætti, að þeir skuli alltaf vera sjálfir ofan á, en samhliða ýta þeir undir allt það, sem stuðlar að upp- lausn og óróa. í sjálfu sér er ekk- ert við það að athuga, þótt menn skrifi um stjórnmál með það eitt fyrir augum að hvetja stjórnmála- menn til að falla fyrir freistingum sínum. En sagan sýnir, að slík skrif eiga lítið skylt við umhyggju fyrir þjóðarhag. Til marks um stjórnmálaskrif af því tagi sem hér um ræðir, má nefna eftirfarandi klausu úr Dagblaðinu-Vísi, en þar sagði í forystugrein 9. desember sl.: „Hjörleifur Guttormsson iðnaðar- ráðherra hefur misst tökin á við- ræðum við forstjóra Svissneska álfélagsins og fjármál íslenska ál- félagsins (!) Fulltrúi Framsóknar- flokksins, Guðmundur G. Þórar- insson, hefur sagt sig úr ál- viðræðunefnd. Hjörleifur gat látið sér andóf í léttu rúmi liggja, með- an það birtist á síðum Morg- unblaðsins og í stefnu þingflokks sjálfstæðismanna. Það andóf fól í sér í sumum myndum óbeinan stuðning við hið erlenda fjölþjóða- fyrirtæki. Hitt er ekki bara verra, heldur allt annar handleggur, þeg- ar fulltrúi stærsta samstarfs- flokksins í ríkisstjórn lýsir full- komnu frati á meðferð Hjörleifs á samningum við Svisslendinga á öndverðum þessum vetri." í þessum stutta kafla kemur fram, að höfundur hans hefur ekki haft neina skoðun á deilunni við Svissneska álfélagið, aðra en að málið væri í góðum höndum hjá Hjörleifi Guttormssyni, þar til Guðmundur G. Þórarinsson hljóp af hinni sökkvandi skútu iðnað- arráðherra. Það er neð öllu óverj- andi að rökstyðja slíkt skoðana- leysi með því að dylgja um varn- aðarorð Morgunblaðsins og þing- flokks sjálfstæðismanna og lík- lega landráð þessara aðila. En eft- ir að framsóknarmenn hafa yfir- gefið Hjörleif, þorir ritstjóri Dagblaðsins-Vísis loks að hafa þá skoðun, að Hjörleifur sé óhæfur. Skyldi Guðmundur G. Þórarinsson hafa þorað, ef Morgunblaðið og þingflokkur sjálfstæðismanna hefðu verið á báti með ritstjóra Dagblaðsins-Vísis? Stjórnar- hættirnir Nú liggur ljóst fyrir, að Hjör- leifur Gottormsson nýtur ekki trausts meirihluta þingmanna og ætti því með réttu að segja af sér eða fá lausn frá forsætisráðherra. Iðnaðarráðherra hefur glatað trausti vegna þess, að hann hefur haldið þannig á málum gagnvart Alusuisse, eiganda álversins í Straumsvík, að það hefur ekki stuðlað að samkomulagi um lausn á deilumálum, hækkun raforku- verðs, breytingu á skattareglum og stækkun álversins. En hvað segist ráðherrann ætla að gera nú, þegar hann nýtur ekki lengur meirihlutastuðnings á alþingi? Ætlar hann að breyta um stefnu til að endurheimta meirihluta- stuðninginn? Nei, þvert á móti. Þegar þetta er ritað liggur í loftinu, að í næstu viku ætli Hjör- leifur Guttormsson að hefja ein- hliða aðgerðir gegn Alusuisse. Við blasir, að Guðmundur G. Þórar- insson hafi einmitt hlaupið frá samstarfi við iðnaðarráðherra, af því að hann taldi að ráðherrann vildi ekki semja heldur stefndi að einhliða aðgerðum. Eftir að ráð- herrann hefur glatað meirihlutan- um ætlar hann að gera það, sem hann nýtur síst af öllu stuðnings til. Eftir fyrsta fund sinn með dr. Múller frá Alusuisse var Hjörleif- ur ljómandi af gleði yfir því, að þeir hefðu getað talað saman á þýsku, sumir sögðu, að Hjörleifur hefði talað austur-þýsku. Nú ætlar Hjörleifur Gottormsson svo sann- arlega að grípa til austur-þýskra aðferða í álmálinu — vilji þing- manna skal að engu hafður. Þegar Hjörleifur Gottormsson var við nám í Austur-Þýskalandi sagði hann þetta meðal annars í skýrslu um „kosningar" þar í landi: „Okkar álit í stuttu máli: Við álítum, að rétt sé og sjálfsagt að leyfa ekki umræður né gefa fólki kost á að velja um neitt nema á grundvelli sósíalismans, og þá síst Þjóðverjum. Okkur er það jafn- framt ljóst að „frjálsar kosningar" eins og þær tíðkast á Vesturlönd- um, gefa alranga mynd af vilja fólksins. Hins vegar finnst okkur kosn- ingar hafa lítið gildi, þegar um ekkert er að velja nema mjög þröngt afmarkaða stefnu, hún að vísu sé leið til sósíalisma. Fyndist okkur heiðarlegar að farið, ef valdhafar hér lýstu yfir, að þeir hefðu tekið völdin og létu engan komast upp með mótmæli, stefnubreytingar eða annað múð- ur.“ Ef marka má orð Guðmundar G. Þórarinssonar var hann ein- mitt að mótmæla þeim vinnu- brögðum sem hér er lýst, þegar hann sagði sig úr álviðræðunefnd í óþökk Hjörleifs Gottormssonar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.