Morgunblaðið - 12.12.1982, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 1982
Krakkar, hér er dálítil gáta, sem þið hafið gam-
an af að glíma við, og hún er svona:
Hvaða átta stórir klumpar meiða ykkur ekki
þótt þeir komi á fljúgandi ferð og lendi á
höfðinu á ykkur, brjóstinu eða tánum?
Svar: Það eru auðvitað Klumparnir okkar eins
og við köllum bækurnar um hann Rasmus
Klump og félaga. Það eru sko kjarnaklumpar.
Sumir krakkar fá Klumpana alveg á heilann,
en það skaðar ekkert því þeir eru svo léttir og
saklausir, aðrir bera Klumpana fyrir brjóstinu
og þeir ylja börnum og fullorðnum um hjarta-
ræturnar, og hvað tærnar snertir þá má full-
yrða að Klumparnir myndu aldrei troða ykkur
um tær, því þeir eru svo hjálplegir og góðvilj-
aðir.
Nú eru klumparnir orðnir átta — það rímar á
móti að hátta — enda er alveg tilvalið að taka
þá með í rúmið og sofna svo út frá þeim og
dreyma þá alla nóttina. Þvílíkt ævintýri.
Hafið þið heyrt það nýjasta?
Ja, hvílíkt og annað eins.
Bók sem börn og fullorðnir rífa og rífa og
allir verða því kátari því meira sem er rifið.
Út um allt land eru fjölskyldur að safnast
saman við eldhúsborðin — sumir setjast nú
bara á gólfið — og allir eru að hamast við að
rífa síðurnar úr aldeilis gullfallegri bók.
Finnst ykkur þetta ekki skrítið?
Svona á þetta samt að vera. Fólkið er með
bókina Það er gaman að fóndra og það
skemmtir sér svo dæmalaust vel. Það býr til
bíla, brúður, bjöllukeðjur, grímur og alls kon-
ar dót.
Nei, annars það eru ekki allir að föndra,
sumir eru með mömmunum að baka ljúffeng-
ar appelsínutertur eftir uppskrift úr bókinni,
og enn aðrir eru að sauma búning á hana
Skottu litlu, og það er líka eftir fyrirmyndum
úr þessari makalausu bók.
Það sannast með þessari sérkennilegu
bók að
Það er gaman að fóndra fyrir börn og full-
orðna.
Mjallhvít og dvergarnir sjö. Ævintýrið gamla
og góða í skemmtilegum búningi.
Dvergarnir hoppa og dansa,
drottningin hrærir í galdrapotti sínum,
og allt fer á fljúgandi ferð í þessari
undarlegu bók, því hún er nefnilega
Lyfti- og hreyfímyndabók
Ekki má svo gleyma því að hús dverganna
sprettur í heilu lagi upp úr bókinni þegar
hún er opnuð.
Litir og lögun
heita tvær hreyfimyndabækur sem er ætlað
það hlutverk að kenna börnunum að þekkja
litina og lögun hlutanna. .
Tveir heiðursmenn, þeir Tumi trúður og
Skotti þvottabjörn, taka þátt í náminu sem
er nú raunar leikur í leiðinni.
GíeDifefljóC
medgódum bófcuml
ÖRN&ÖRLYGUR
Síðumúla 11, simi 84866