Morgunblaðið - 12.12.1982, Side 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 1982
Elliott leitar aó felustað nýja vinar síns.
Starfsmenn NASA-stofnunarinnar hafa komist á spor ET.
Draumur litla
drengsins
Einu sinni var lítill drengur sem
hét Steve. Hús foreldra hans var
ósköp venjulegt og í raun var ekk-
ert óvenjulegt við þessa fjöl-
skyldu, nema að hugur og draum-
ar Steves voru öðruvísi en ann-
arra. Hann dreymdi um að segja
öðrum sérkennilegar sögur sínar.
Á hverju kvöldi læddist hann út í
kvöldmyrkrið og talaði við stjörn-
urnar.
Svo var það eitt ágústkvöld að
Steve litli uppgötvaði nýjan og
merkilegan hlut. í bílskúr föður
síns fann hann 8 mm kvikmynda-
tökuvél og hvað haldið þið að hann
hafi séð? Fallegan regnboga á
himni, lykilinn að draumum sín-
um. Áður en regnboginn hvarf,
hafði Steve horft upp í himininn
gegn um myndavélina og ýtt á
hnappinn. Litli draumóradrengur-
inn hafði byrjað feril sinn sem
einstakur frásagnarmaður.
Nú er Steven Spielberg 35 ára og
er einn helsti kvikmyndagerðar-
maður heimsins.' Snemma varð
hann ríkur að hugmyndum og
peningum. Ekki leið á löngu þar til
hann fékk því framgengt að leik-
stýra mynd eftir metsölubók Peter
Benchleys. Allir voru hissa á því
að þessi ungi maður fengi að leik-
stýra svo vandasamri mynd.
Tveim árum síðar var Ókindin
mest sótta kvikmynd allra tíma.
Eftir þann mikla sigur gerðist
Steve djarfari og fékk 20 millj.
doliara til að kvikmynda eigin
sögu, Close Encounters og geim-
ævintýri komust í hámæli. í fyrra
lauk hann við Ránið á týndu örk-
inni, mynd sem allir kannast við.
Hún er nú í fimmta sæti á lista
mest sóttu mynda allra tíma, á
eftir Ókindinni. En nú hefur næt-
urhiminninn litast enn sterkari
litum, því í sumar bætti Steve um
betur en þá var frumsýnd myndin
The Extra Terrestrial, E.T., sem um
þessar mundir er að ná Stjörnu-
stríðum sem mest sótta mynd
allra tima.
Vinátta barna
og geimálfs
Undanfarin ár hafa fáar stór-
myndir verið framleiddar gagn-
gert fyrir börn, nema þá Stjörnu-
stríða-flokkurinn. Það er eins og
enginn hafi getað tekið við af Walt
Disney. En staðreynd er að þær
myndir, sem yngri kynslóðin tekur
upp á arma sína, hljóta metað-
sókn. Það voru börn sem gerðu
Stjörnustríðin að vinsælustu
myndinni og nú eru það börn sem
eru að koma E.T. uppfyrir þá
mynd. En það eru ekki aðéins
börn, sem hafa gaman af E.T., allt
fólk, sem hefur hjarta og tilfinn-
ingar, nýtur hennar.
En hvað er það sem gerir E.T.
svo sérstaka?
Kvöld eitt lendir lítið geimskip
á móður jörð. Út úr geimskipinu
stíga nokkrar undarlegar verur.
Þær líta í kringum sig í kvöld-
myrkrinu, eins og Steve forðum.
Ein þeirra fer of langt og þegar
geimskipiö lyftist aftur upp í
geiminn er litla veran eftir, alein í
Táradal. Nú er hætta á ferðum,
því E.T. litli á engan að og kann
ekki að bjarga sér á framandi
stað.
En eins og í sönnum ævintýrum
kynnist litli geimálfurinn litlum
dreng. Elliott vingast við E.T. og
brátt takast með þeim órjúfanleg
vináttubönd. Elliott fer með E.T.
heim til sín og sýnir hann systkin-
um sínum, eldri bróður sínum
Michael og yngri systur, Gertie.
E.T. reynist hinn besti og
skemmtilegasti vinur barnanna,
enda býr hann yfir dularfullum
hæfileikum og krafti, sem börnin
kunna að meta, þó innst inni sé
hann barn sjálfur. Hann kann vel
við sig á nýja heimilinu og m.a.
uppgötvar hann töfra bjórsins.
En líf þeirra er ekki eintómur
leikur. Móðir barnanna, Mary,
kemst að leyndarmáli þeirra og er
ekki allt of hrifin af uppátæki
þeirra, geimálfurinn gæti reynst
hættulegur, enda utan úr geimn-
um. En það er ekki aðalhættan.
Starfsmenn NASA-stofnunarinn-
ar komast að því að geimvera hafi
lent á jörðunni, leynist meðal lít-
illa barna og þá hefst ævintýra-
legur eltingaleikur.
Hér hæfir að hætta að rekja
söguþráðinn, því hver kannast
ekki við setningu spenntra barna
„Mamma, hvað gerist næst?
Pabbi?" Eitt er öruggt, enginn
verður svikinn af þessu einstæða
ævintýri.
Að skapa skepnu
í augum aðdáenda geimævin-
týra hafa allar ójarðneskar verur
(extra-terrestrials) dýrsleg augu
og svo sannarlega eru augu E.T.
myndarleg, vægast sagt. En stað-
reynd er að þau og búkur hans eru
árangur mikillar erfiðisvinnu
tæknimanna í kvikmyndaiðnaðin-
um. Spielberg hafði sakleysi í
huga. „Ég vildi skepnu sem aðeins
móður gæti þótt vænt um,“ segir
hann, „ég vildi ekki hafa skepnuna
fallega og hrífandi."
E.T., sem nú er allra vinsælasta
fyrirbrigðið í Bandaríkjunum, og
raunar alls staðar þar sem mynd-
in er sýnd, birtist á hvíta tjaldinu
sem háþróuð skepna. Nokkrir fær-
ir tæknibrellumeistarar reyndu að
hanna skepnuna, en þeim mis-
tókst; tilraunin kostaði 700.000
dollara (sama upphæð og Útlaginn
kostaði). Þá sneri Spielberg sér að
snillingnum Carlo Rambaldi, ít-
ölskum málara og myndhöggvara.
Rambaldi kom fyrst til Bandaríkj-
anna árið 1975 til að hanna King
Kong og árið 1978 stofnaði hann
eigið hönnunarfyrirtæki.
Rambaldi byrjaði á því að
teikna einfaldar útlínur skepn-
unnar og útbjó leirmódel til prufu-
töku. Síðan útbjó hann grind
skepnunnar úr áli og stáli. Eftir
það hannaði hann vöðvakerfið úr
trefjum og gúmmí, úr óteljandi
lögum. Hvert lag á sínum stað
samsvarandi mannslíkamanum.
Með fjarstýringu er hægt að láta
fullmótaða skepnuna hreyfa sig á
alla kanta, Rambaldi segir á 150
mismunandi vegu, m.a. getur hún
sogið upp í nefið, hrukkað augna-
brúnir og auðveldlega beygt fing-
ur.
En ekki var vogandi að koma
öllum þessum tæknibrellum fyrir í
einu módeli, svo Rambaldi útbjó
þrjú; eitt fyrir vélræna stjórnun,
sérstaklega fyrir hreyfingar alls
líkamans; annað fyrir rafmagns-
stjórnun, notað í erfiðari og ná-
kvæmari hreyfingum og hið þriðja
fyrir sameiningu allra hreyf-
inganna. Þá var fjórða módelið út-
búið, sérstaklega fyrir atriði þegar
E.T. þarf að velta um gólfið og
annað slíkt.
Þessi frumlega skepna er jafn
há fjögurra ára barni, með stórt
iðandi höfuð, háls sem stækkar
eða minnkar eftir skapinu, skinnið
er undarlega grágrænt og hend-
urnar hrikalega langar með fjór-
um puttum. Ekki má gleyma rödd-
inni, sem er hin stórkostlegasta í
manna minnum, hönnuð úr rödd
áttræðrar kerlingar og afskræmd
með rafmagni. Orðaforðinn er 10
orð.
E.T. sést næstum allan tímann
og reynir mikið á hann. Mótleikari
hans, hinn 10 ára gamli Henry
Thomson, segir um vin sinn:
„Hann var persóna."
Með margar lykkjur
á prjónunum
Meðan myndin var í framleiðslu
hét hún „Líf drengs" og héldu
margir að hún væri byggð á ævi
Spielbergs sjálfs. Handritið er eft-
ir óþekkta konu, Melissu Mathi-
son, og var hún viðstödd allar tök-
ur myndarinnar. Hún segist hafa
orðið hissa á því hve allir voru
vingjarnlegir við sig, en hún ^áíöi
heyrt ýmsar sötr,- - steve 0“ uði