Morgunblaðið - 12.12.1982, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 12.12.1982, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 1982 21 Nefnd geri tillögur um sjónstöðvar He is afraid. He ts totallv alorte. Hets3 míllion Ugbtyears frotn home. A tinteless storyfrom tbe most origtnal director of our time. A STEVEN SP1ELBERG RLM THE ExTRATERRESTRIAL hans. Hún segir: „Eftir að við kynntumst Steve, var ekkert okkar hrætt við að segja honum til syndanna, ef okkur fannst hann gera eitthvað rangt." Sjálfur segir Steve: „í Melissu er hjartað 80%, lógíkin 20%. Það þurfti við- kvæmni hennar og tæknikunnáttu mína til að gera E.T. Ég vinn bet- ur með konum. Ég þykist ekkert skilja þær betur en aðrir, en ég hef mikla trú á þeim.“ Það sýnir hann með því að velja handrit eftir óþekkta konu og svo fékk hann aðra konu, Kathleen Kennedy, til að framleiða myndina með sér. Steve er sérvitur, en hann held- ur því fram að það hafi bjargað lífi sínu. Hann fer aldrei einn í lyftu, því ef lyftan stöðvaðist, fyndust bein hans síðar. Hann er mjög ímyndunarveikur. Hann á 12 video-leiktæki og leikur sér með þau a.m.k. 1 tíma á dag. Þá er hann ákveðinn í að stíga ekki svo mikið sem fæti í sjóinn fyrir fram- an húsið sitt, því þar úti eru há- karlar. Hann ætti að vita það. Til að finna réttu börnin í hlut- verkin, talaði Steve við 300 krakka. „Mörg þeirra voru stór- kostleg,“ segir hann, „en ekki nógu eðlileg. Þau hugsuðu áður en þau fundu til. Nokkrum vikum fyrir tökur gekk lítill drengur, Henry Thomson, inn til mín. Ég prófaði hann, en hann las hroðalega. Ég sá að hann var steinrunninn, virkilega hræddur. En þegar ég bað hann að leika, vera eðlilegan, breyttist hann á samri stundu í Elliott." Spielberg vonar innilega að með þessari mynd sinni verði hann tekinn alvarlega sem leikstjóri. Fyrir Close Encounters var hann nefndur til Óskarsverðlauna fyrir leikstjórn, en tapaði. Hingað til hefur hann verið nefndur herra Tækni-Brellu-Meistari-Númer- Eitt. Spielberg hefur margar lykkjur á prjónunum og ef hann prjónar úr þeim öllum, hefur hann yfrið nóg að gera næstu 50 árin. Hann er að undirbúa framhaldið af Rán- inu á týndu örkinni, og er það eina myndin sem þarfnast mikilla tæknibrellna. Þá er hann að und- irbúa tónlistarmynd með laga- smiðnum (Juincy Jones, en það er endurgerð á 40 ára gamalli mynd, A Guy Named Joe. Um tíma var Robert Redford orðaður við hana. Þá hefur Spielberg lagt miklar fjárhæðir í kvikmyndaskóla fyrir upprennandi kvikmyndagerðar- menn. Einnig hefur hann hug á að stofna eigið kvikmyndaver, eins og vinur hans George Lucas, faðir og móðir Stjörnustríðanna. Að síð- ustu má geta þess að hann segist vera að hugsa um framhaldið af E.T. En svona í lokin, — góða skemmtun —, en hafðu með þér tíu vasaklúta. HJÓ. HEILBRIGÐIS- og trygginga- málaráðuneytið hefur skipað nefnd sem falið er að gera tillögur um starfsemi og hlutverk sjón- stöðvar, um skipulagningu sjón- verndar í landinu (þ.m.t. forvarn- arstarf), úthlutun hjálpartækja og hlutdeild hins opinbera í henni, um augnlækningaferðir út á land, samvinnu við aðra aðila er vinna að málefnum á þessu sviði, og um aðrar úrbætur, sem nefndin teldi nauðsynlegar með það fyrir aug- um að gera hlut sjónskertra ekki minni en annarra þjóðfélags- þegna, sem þurfa á séraðstoð að halda. Ennfremur er nefndinni falið að gera tillögur um það hvernig optikverslun skuli háttað í land- inu t.d. með það fyrir augum að rekin verði 'ein aðaloptikverslun í tengslum við hagsmunaaðila t.d. Blindrafélagið. Nefndinni er ennfremur falið að gera tillögur að reglum um úthlutun gleraugna og niðurfellingu aðflutningsgjalda í samræmi við breytingar á tolla- lögum sem samþykktar voru á sl. vori. í nefndina hafa verið skipaðir eftirtaldir: Ingimar Sigurðsson, deildarlögfræðingur, formaður, Ólafur Ólafsson, landlæknir, Óskar Guðnason, framkvæmda- stjóri Blindrafélagsins, Guðmund- ur Björnsson, augnlæknir og Margrét Sigurðardóttir, blindra- kennari. (KrétUtilkynning) NÚ ER ÞAÐ SVART! Svart/gyllta X-G línan er ein athyglisverðasta hljómtækjasamstæða á markaðinum í dag. Við bjóðum þér þrjár mismunandi samstæður úr þessari línu, . á hreint ótrúlegu verði: Frákr. 21.707.-STGB eða útb. kr. 6000 og afg. á 6 mán. 5ia ára ábvmÓ (ffi PIONEER' ”83 árgerð PIONEER hljómtækja er komin til landsins. HUOMBÆR Utsölustaðir: Alfhóll, Slgluflröl — Eyjabær, Vestmannaeyjum — tnnco, Nes- kaupstað — Fataval, Keflavík — Hornabær, Hornafiröi — KF Rangælnga, Hvolsvelli — KF Borgfiröinga, Borgarnesi — MM, Sel- fossl — Portlö, Akranesl — Patrona, Patreksfiröi — Paloma, Vopnafiröi — Rögg, Akureyri — Radióver, Húsavik — Skógar, Egilsstööum — Sig. Pálmason, Hvammstanga — Stálbúöln, Seyö- isfiröl — Seria, Isaflröl. HUOM*HEIMIUS*SKRIFSTOFUTÆKI HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999-17244

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.