Morgunblaðið - 12.12.1982, Qupperneq 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 1982
ANDLEG VERÐMÆTI
OGVERALDLEG
MELTON FR2EDMAN
_ NóbalsverðlaunahaA i hagírmð, _
FRELSIOG
FR4MX4K
Árin dásamlegu.
Stuttar smásögur eða
myndir úr lífi barns og
unglings í Austur-
Þýskalandi. Hógvær bók
en áhrifamíkil.
Höfundurinn. Rainer
Kunze, nýtur heims-
frægðar í dag þótt út-
gáfa verka hans hafi
verið bönnuð í heima-
landinu. Hann býr nú í
Vestur-Þýskaiandi og
segist ekki vera óvinur
alþýðulýðveldisins,
heldur lyginnar.
Björn Bjarnason þýddi
Árin dásamlegu.
Frelsi og framta
Milton Friedman er
sennilega kunnasti hag-
fræðingur nútímans.
Hann fékk nóbels-
verðlaunin í hagfræði
1976. í þessari bók leiðir
hann rök að því að
markaðskerfið sé skil-
yrði fyrir almennum
mannréttindum og
kemur orðum að
kenningu frjálshyggju-
manna um hlutverk
ríkísins. Bókin er skrifuð
á einföldu og auð-
skiljanlegu máli.
Þýðandi er Hannes H.
Gissurarson.
Fer inn á lang
flest
heimili landsins!
sagnagerð.
Hermann Pálsson
prófessor í Edinborg er
löngu landskunnurfyrir
rannsóknir sínar á að-
föngum til fornbók-
mennta þjóðarinnar.
í Sagnagerð fjailar hann
um þetta áhugaverða
efni, erlend áhrif sem
bækurnar virðast
spegla og viðhorf hinna
nafnlausu höfunda til
verka sinna.
Sagnagerð ræðir nýj-
ungar sem vafalaust
eiga sumar hverjar eftir
að breyta ýmsum fyrri
skoðunum á þessum
merkilegu bók-
menntum.
Formannaskipti hjá
Félagi háskólakennara
Fráfarandi formaður, Gunnar G. Schram, óskar hinum nýja formanni, Þór-
ólfi Þórlindasyni til hamingju.
Kammersveit Reykjavíkur:
9. starfsárið hefst
með jólatónleikum í dag
AÐALFUNDUR Félags háskóla-
kennara var haldinn í Skólabæ, húsi
Háskólans við Suðurgötu, þriðjudag-
inn 7. desember 1982.
Dr. Gunnar G. Schram prófess-
or gerði grein fyrir störfum fé-
lagsins á liðnu ári og fjallaði sér-
staklega um kjara- og orlofsmál.
Gunnar, sem verið hefur formaður
félagsins sl. þrjú ár gaf ekki kost á
sér til endurkjörs og var Þórólfur
Þórlindsson, prófessor kosinn í
hans stað.
Guðlaugur Tryggvi Karlsson,
sem verið hefur ritari félagsins í
fjögur ár gaf heldur ekki kost á
sér áfram, en í stjórn voru kosnir
Björn Guðmundsson, prófessor, og
Bryndís Brandsdóttir, sérfræðing-
ur í Raunvísindastofnun. Fyrir í
stjórn voru Júlíus Sólnes, prófess-
or, og Páll Skúlason, prófessor.
Á fundinum var samþykkt til-
laga að fela nýkjörinni stjórn að
skipa 5 manna nefnd sem fjalli um
starf og stefnu Háskólans á næstu
árum.
NÍUNDA starfsár Kammersveitar
Reykjavíkur hefst með jólatónleik-
um í kirkju Óháða safnaðarins við
Háteigsveg, klukkan 17 í dag,
sunnudaginn 12. desember. A
dagskrá tónleikanna eru verk eftir
T. Albinoni, G.F. Handel, F. Couper-
in og G. Torelli. Einleikarar með
kammersveitinni verða Hörður As-
kelsson á orgel og Gunnar Kvaran á
celló.
í kynningu á vetrardagskrá
kammersveitarinnar segir meðal
annars: „Viðfangsefni níunda
starfsárs Kammersveitar Reykja-
víkur eru fjölbreytt og vekja von-
andi áhuga tónlistarunnenda, því
þar er að finna hin ólíkustu verk,
sem spanna rúmlega þriggja alda
skeið, þar á meðal er stórverk sem
talið er vera eitt af erfiðustu
kammerverkum sem samið hefur
verið. Þá vill sveitin kynna tón-
verk eftir löngu liðin tónskáld,
sem nutu frægðar og hylli á hér-
vistardögum sínum en gleymdust
fljótt. Sum þessara verka heyrast
ekki oft leikin í tónlistarsölum nú
á tímum.
Enn á ný leitar því kammer-
sveitin víða fanga í verkefnavali
og nú eins og áður er allt starf
hljómlistarmanna á hennar veg-
um unnið af áhuga á að takast á
við ný og vandasöm verkefni."
Á fyrstu tónleikunum sem fram
fara í dag leikur þrettán manna
strengjasveit ásamt einleikurun-
um hefðbundna jólatónlist;
barokktónlist frá síðari hluta 17.
aldar.
Styrktarfélagar kammersveit-
arinnar fá afhent áskriftarkort
við innganginn gegn framvísun
gíróseðlils, þar er einnig unnt að
kaupa áskriftarkort eða miða á
jólatónleikana.
Týndi
víxli
UNGUR maður tapaði 70 þús-
und króna víxli á föstudag,
stílaðan á Búnaðarbanka Is-
lands. Hann hafði fengið víxil-
inn sem greiðslu upp í bifreið
og á víxillinn að fara í greiðslu
upp í íbúð. Víxilinn ber að
greiða í Búnaðarbankanum í
Búðardal og er gjalddagi 15.
apríl, en útgáfudagur 8. des-
ember. Greiðandi víxilsins er
Sæmundur Kristjánsson, en
eigandi Guðbrandur ívar Ás-
geirsson. Skilvís finnandi vin-
samlega hringi í Guðbrand, í
síma 19268 eða 37179.