Morgunblaðið - 22.12.1982, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 22.12.1982, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 22. DESEMBER 1982 61 SVARAR í SÍMA 10100 KL. 10—12 FRÁ MÁNUDEGI , FÖSTUDA Kveikjum ljós í lífi ástvina okkar meðan þeir lifa. Stráum blómum á veg þeirra, meðan þeir eru á meðal okkar. Þegar þeir eru dánir skulum við þakka Guði fyrir þá og reyna að tileinka okkur það besta úr fari þeirra. Gleðileg jól!“ Frjáls útvarpsrekst- ur í Ríkisútvarpinu ísfirðingur skrifar: „Kæri Velvakandi. Að undanförnu hefur mikið verið rætt um að gefa útvarps- rekstur frjálsan, a.m.k. að ein- hverju leyti. Hins vegar hefur líka verið óskað eftir því við Ríkisútvarpið, að það efni til næturútvarps og þá með léttri músík, svipað því sem nú er á föstudagsnóttum, með léttu hjali inn á milli tónlistar- atriða. Þetta er nauðsynlegur liður í starfsemi stofnunarinn- ar og gerir hlustendum léttara um vik að halda sér vakandi í stað þess að sofna undir þungri og leiðinlegri dagskrá. Það er áreiðanlega svo, að við sem búum úti á lands- byggðinni, svo og sjómenn á hafi úti, notum okkur meira en aðrir landsmenn þjónustu út- varpsins á kvöldin og á nótt- unni, þegar það býðst, þó ekki sé af öðrum ástæðum en þeim, að borgarbúar eiga svo miklu fleiri valkosti á svo ótalmörg- um sviðum, og þar að auki eiga þeir aðgang að Keflavíkurút- varpinu. í framhaldi af framansögðu langar mig til að varpa fram þeirri hugmynd, að athugað verði, hvort ekki væri hægt að koma frjálsum útvarpsrekstri fyrir innan ramma Ríkisút- varpsins, á þann hátt t.d. að stofnunin leigði Samtökum um frjálsan útvarpsrekstur aðgang að næturútvarpi, svona frá kl. 01—04 í 1—2 mánuði til reynslu, þó ekki væri meira, og sjá svo til með framhaldið. Hugsanlega gæti þetta orðið beggja hagur." Skrifid eða hringið til Velvakanda Velvakandi hvetur lesendur til að skrifa þættinum um hvaðeina, sem hugur þeirra stendur til — eða hringja milli kl. 10 og 12, mánudaga til föstudaga, ef þeir koma því ekki við að skrifa. Meðal efnis, sem vel er þegið, eru ábendingar og orðaskipti, fyrirspurnir og frásagnir, auk pistla og stuttra greina. Bréf þurfa ekki að vera vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og heimil- isföng verða að fylgja öllu efni til þáttarins, þó að höfundar óski nafnleyndar. Sérstaklega þykir ástæða til að beina því til lesenda blaðsins utan höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja hér í dálkunum. GÆTUM TUNGUNNAR I orðinu hugsa er g-ið eins og í sagt en alls ekki eins og í hugga. Leiðréttum börn, sem flaska á þessu! Þessir hringdu . . . Um jólalýsingu í kirkjugörðunum „Gömul kona“ hringdi og hafði eftirfarandi að segja: — Mér finnst það til skammar að hafa ekki sett leiðslur í kirkjugarðinn til þess að hægt sé að hafa þar jólaljós. Hafnarfjarðarbær gerir það á hverju einasta ári í kirkju- garði Hafnfirðinga. Og þetta var hér áður fyrr hjá henni Guðrúnu Runólfsdóttur, en þegar hún hætti stóð til að borgin tæki við. Þetta var í fyrri stjórnartíð sjálfstæðismanna og enn hefur ekkert gerst í málinu. Nú veit ég raunar ekki hver er réttasti framkvæmdaraðilinn til þess að annast þetta verk, borgin, Raf- veitan eða kirkjugarðarnir, en hvað sem því líður, þarf að láta hendur standa fram úr ermum, því að það er mikil fyrirhöfn, t.d. fyrir gamalt fólk, að koma fyrir lýsingu á leiðunum um hávetur. Maður ætti ekki að þurfa annað en hringja í kirkjugarðana og biðja um að ljósin yrðu sett upp. Síðan væri hægt að senda manni gíróreikning fyrir kostnaðinum. Og svo er það varðandi leið 6 hjá strætÍ3vögnunum: Það er svo ófært, hvað við erum látin standa úti í þessum vetrarhörkum. Vagnstjórarnir hafa oft 10 mín- útna hlé eða meira á endastöð og það er ekkert við því að segja. En lágmarkið væri að koma út 5 mín. fyrir brottför, eigandi eftir að hleypa fólkinu inn í vagninn, til þess líka að komast þá af stað á réttum tíma. Þetta væri tillits- semi við farþega aimennt, en sér- staklega fyrir gamla fólkið sem á erfitt um gang. Það kærir sig ekki um að fara fyrst inn í skýlið og vera þar í reyk og sóðaskap. Viss um að það mundi gleðja þau E.St. hringdi og hafði eftirfar- andi að segja: — Ein er sú at- vinnustétt, sem ekki fer mikið fyrir í almennum umræðum, en þjónar þó fjöldanum. Það er fólk- ið sem færir okkur póstinn og blöðin. Hugsum nú út í það, hvað þetta fólk leggur mikið á sig við að koma bréfum og blöðum til skila. Það verður að fara snemma á fætur, ekki síst blaðberarnir sem oft eru börn, til þess að ljúka útburðinum áður en skólar hefj- ast. Veður og vonda færð mega þau ekki setja fyrir sig. Sýnum þeim þakklæti okkar. Nú eru jól- in framundan. Gætum við ekki a.m.k. rétt þeim epli eða köku svona til hátíðabrigða. Ég er viss um að það mundi gleðja þau. tJöföar til XX fólks í öllum starfsgreinum! Vorum aö taka upp giaMÍIagt úr- val af sjaJdgæfum, llffáanlegum oq eftlrsótlum pJötum: □ Rita Marley (ekkja reggíkon ungsins) □ Frank Zappa □ Tom Robinson Þa er siáifsagt aö minna a □ LAST-vökvann, sem gerir plötuna betri en nyja □ Sennheiser heyrnartólin (sem Hi- Fi- timaritió utnefndi bestu heyrn- artolin) □ Byrds □ Kew Rhane (Carla Bley, Mlke Mantler og Henry Cow-genglð í laufléttri svelflu) □ Llnton Kwesi Johnaon (toppur i reggiinu) □ David Thomas & Pere Ubu (Davld kemur tll IsJands (febrúar asamt Llndsay Cooper) □ Blue Oyster Cult □ Marc Hollander & Aksak Maboul (belgiskir tölvupopparar i háum gaaöaflokkl) □ Grace Jones □ Patti Smith (guómóölr pönksins) □ Jam (vmsœlasta nybytgju gruppa Breta) □ Peter Gabrlel (þar eem hann syngur a pýsku). □ Robert Wyatt (besta og vlnsaal- asta raddhljóöfaarl nybytgjunnar) □ Cabaret Voltaire □ Pink Floyd □ Kraftwerk (frábaart pyskt tölvupopp) □ Art Bears (toppurlnn i fram- sækna rokkinu) □ MC5 (kalllnn hennar Pattl Smith, Fred SrnNh basslstl Television, á fullu) □ Doors □ kokkteilplata meö XTC, PIL. Japan, Ruts o.m.fl. □ Phil „heitinn" Ochs (nýr Dylan 50 aódáendur geta ekkl haft rangt fyrir sórl) □ Pig Bag (hljómsveitin sem réttl fjárhag Rough Trade viö) Viö fengum einnig glás af sméskifum □ kassettutöskur □ plöturekka □ boli □ ódýru brjostnaelurnar □ beltin □ hálsolarnar □ armolarnar □ ijoöabækurnar □ póstkortin snm Laugavegi 20 Simi27670 OPIÐ Tl L KL.10 I KV0 Lokað þriðja í jólum Austur?træti 22

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.