Morgunblaðið - 26.01.1983, Page 1
Miðvikudagur 26. janúar — Bls. 41—64
NORRÆN FJÖLSKYLDULANDSKEPPNIÁ SKI'ÐUM 1983
Fj ölsky ldulands-
keppní á skföum
Asíöustu árum hefur vöxtur
skíðaíþróttarinnar hér á landi
verið með ólíkindum mikill.
Virkum þátttakendum fjölgar og
óhætt er að fullyrða að þeim fer
fækkandi sem láta sig íþróttir og úti-
líf engu skipta. Þaö er ánægjulegt aö
sjá allan þann fjölda sem þyrpist í
skíðalöndin um allt land þegar veður
og færð hamla ekki.
Skíðastöðum hefur fjölgað hratt á
undanförnum árum, og fullkomnar
skíðalyftur hafa verið byggðar, en
betur má ef duga skal. Aðsóknin á
skíöastaöina vex hraðar en nokkurn
hafði órað fyrir. Sem dæmi má nefna
að á einu ári hefur aösóknin aö
skíðalyftunum í Bláfjöllunum þrefald-
ast en flutningsgetan er óbreytt.
Skíöaíþróttin er orðin almenn-
ingseign. Og um leið langvinsælasta
tómstundagaman barna, unglinga
og fullorðna. í stað þess að kvíða
vetrarkomu getur fólk nú hlakkað til
þess árstíma sem sameina fjölskyld-
una í útilífi og skíðaiðkun.
í þessu skíðablaði er fjallað um
nokkur helstu skíðasvæðin á land-
inu. Spjallað er viö formenn skíöa-
deilda nokkurra félaga. Fjallað er um
skíðakennslu og útbúnað o.fl.
Rætt er við formann Skíöasam-
bands íslands og greint frá Norrænu
fjölskyldulandskeppninni á skíðum
sem hófst í byrjun janúar.