Morgunblaðið - 26.01.1983, Page 14
54
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 1983
Einn besti skíðamaður allra tíma, Svíinn Ingemar Stenmark, á fullri ferð í brautinni.
Ingemar Stenmark:
í þessari grein
fjallar skíðakapp-
inn Ingemar Sten-
mark um sjálfan
sig. Árangur sinn á
síðasta keppnis-
tímabili, keppi-
nauta sína og
margt fleira. Grein
þessi er mjög at-
hyglisverð og fróð-
legt er að lesa um
hvernig Stenmark
tekur sjálfur á mál-
unum.
Keppnistímabilið 1981 —1982
kom aö mörgu leyti á óvart. Þó
kom það mér ekki á óvart aö Phil
Mahre gekk svo vel sem raun bar
vitni. Honum hefur stööugt fariö
fram síöstu árin og siöasta keppn-
istímabiliö skíðaöi hann mjög vel,
allt frá upphafi þess til loka. Hann
var vel aö sigrum sínum kominn —
heimsmeistaratitlinum, sigri í svigi
og stórsvigi og samanlögöum
árangri. Phil stóð sig frábærlega
vel allt keppnistímabiliö, meö einni
undantekningu þó; keppninni í
Schladming, að ööru leyti skíöaði
hann mjög vel í öllum keppnunum.
Hins vegar kom Steve mér á
óvart, sérstaklega í stórsviginu. Og
þar á ég ekki aðeins viö Schlad-
ming, þar sem hann vann gullverö-
laun, heldur einnig seinna. Ég geri
mér ekki Ijóst hvaö þaö var sem
geröist hjá honum. Hann hefur
aldrei veriö mjög góöur í stórsvigi,
en þarna skaraöi hann allt í einu
framúr.
Þaö er dálítiö merkilegt, bræö-
urnir Steve og Phil hafa alltaf skíö-
aö á mjög líkan hátt en samt getur
maður alltaf séö hvor þeirra er í
brautinni. Hins vegar velt ég ekki í
hverju munurinn liggur, en þeir
skíöa alls ekki eins og þegar Steve
fór aö ganga svo miklu betur í
stórsviginu var þaö ekki af því aö
hann fór aö skíöa meira eins og
Phil. Hann hefur enn sinn eigin
skíöastíl en nær nú mun betri
árangri.
Joel Gaspoz frá Sviss kom einn-
ig mjög á óvart. Honum haföi
gengiö ágætlega áöur, en samt átti
ég bágt meö að trúa því þegar
hann vann meö 2ja sekúndna mun
í stórsviginu í Aprica. Samkeppnin
hefur svo sannarlega aukist.
Á hinn bóginn stóö Alexander
Zhirov frá Sovétríkjunum sig ekki
eins vel og ég átti von á. Ég álít þó
aö viö höfum ekki heyrt síöasta
orðiö frá Zhirov ennþá, eins og
sumir vilja halda fram. Þaö má rétt
vera aö hann hafi skíöaö öðru vísi
nú en hann er vanur, en eftir því
sem ég kemst næst á hann viö
meiðsli að stríöa í hné. Ég tel
ástæöuna fyrir miöur góöu gengi
hans nú vera þá að Rússarnir hafi
æft of stíft fyrir síöasta keppnis-
tímabil. Þeir æföu allt sumariö,
sem ég tel ekki æskilegt. Mér hef-
ur reynst best aö hvílast yfir
sumartímann og æfa síöan stíft um
haustið — reyndar er ég ekki einn
um aö gera þaö því Mahre-
bræöurnir æfa einnig þannig. Sú
staöreynd aö Phil gekk mjög vel
strax í upphafi rennir stoöum undir
þaö, aö allar þessar æfingar eru
ekki nauösynlegar. Samt verö ég
aö játa, aö ég varö mjög undrandi
að sjá Phil ganga svona vel í upp-
hafi keppnistímabils því hann var
vanur aö eiga fremur sígandi lukku
aö fagna, e.t.v. vegna þess aö
hann hefur alltaf veriö í bruni til aö
fá fleiri samanlagöa punkta og þar
af leiöandi hefur hann haft minni
tíma til aö æfa stórsvig. En síöasta
keþþnistímabil virtist þetta “ekki
skipta máli.
Blaöamenn héldu aö ein af
ástæöum fyrir slökum árangri í
upphafi keppninnar hafi veriö sú
aö ég byrjaði seint að æfa — og
töldu aö ég væri ekki í nógu góöu
„formi". Þetta er ekki rétt. Ég var í
mjög góöu líkamlegu ástandi. örð-
ugleikar mínir lágu hins vegar í
brautinni. Flestar keppnirnar fóru
fram á ís, en ég haföi ekki haft
tækifæri til aö æfa á ís. T.d. í Ma-
donna þar sem brautin var ekki
ísilögð skíöaöi ég vel.
Tvö vandamál eru tengd því aö
æfa á fs á haustin. I fyrsta lagl
finnur maöur ekki slíkan staö á
jöklunum þar sem viö æfum, svo
að um slíkt var ekki aö ræða í
september, október og nóvember.
Og ef maöur fer eitthvaö annaö til
æfinga á ís, þá reynir þaö svo mik-
iö á bakið aö ómögulegt er aö æfa
lengur en fáeinar klst. á dag.
Þannig aö ég var hreinlega ekki
nógu vel búinn undir þessar ísi-
lögöu brautir.
Eftir fríiö söltuöum viö brautirn-
ar í Bad Wiessee. Mér tókst aö
æfa mig dálítiö á ís og seinna
dvaldi ég þar til æfinga fyrir
keppnina í Kitzbuhel. Þaö var góð
æfing og þegar ég fór til keppninn-
ar í Kitzbuhel fannst mér ég betur
undir keppni á ís búinn heldur en
hinir.
Sigur minn þar — ég vann meö
3.16 sek. mun — var mér mjög
mikils viröi. i rauninni skíðaöi ég
ekki svo vel; á ísilagðri braut er
ekki hægt aö ná góöum beygjum.
En ég keyröi hratt og tók áhættu
og ég var mjög ánægöur meö
þetta mikla forskot. Ég vil heldur
vinna sjaldnar meö miklum mun
heldur en oft meö litlum mun.
Þegar svo kom aö heimsmeist-
arakeppninni í Schladming var ég
mjög bjartsýnn. Ég taldi mig vel
undir hana búinn, auk þess haföi
ég æft mig á ís í tvo eöa þrjá daga.
Þaö eina sem ég haföi ekki æfingu
í var að skíöa á tilbúnum snjó, og
auðvitað var snjórinn tilbúinn í
Schladming. Þaö tekur langan
tíma aö venjast honum.
í fyrstu feröinni í stórsviginu
gekk mér vel þangað til ég kom aö
10. eöa 15. hliöinu. Efst í brekk-
unni var snjórinn mjúkur og gekk
mér vel að eiga viö hann, en neöar
í brekkunni var hann mun erfiðari
og þar skíöaöi ég illa. . . . E.t.v.
hentuðu skíöin mín ekki vel í þess-
um snjó og því skipti ég um skíöi
fyrir aöra ferðina og gekk mér bet-
ur í þeirri ferö en þó ekki nógu vel.
Steve átti mjög góöan tíma í fyrri
feröinni og mér tókst ekki aö vinna
þann mun upp.
Þar sem ég haföi unniö gullverð-
laun í stórsvigi bæöi í Garmisch og
Lake Placid, var ég aö vonum
óánægöur meö silfurverðlaun. En
þegar ég vann svo svigiö var ég
afar sæll. Þaö voru veröskulduö
gull- og silfurverölaun, aö mínu
mati.
í lok keppnistímabilsins varö ég
fyrir óvæntu áfalli þar sem ég slas-
aöi mig á handlegg í svigi í Sví-
þjóö. Ég var óbrotinn en brákaöi í
mér bein og skaddaöist á öxl. í
mánuö á eftir var ég frá æfingum,
en reyndi þó aö skíöa eitthvaö
þrátt fyrir miklar kvalir, sem ég
haföi langt fram á sumar.
Ég ætla ekki aö halda því fram
aö ég heföi unniö Phil heföi ég ver-
iö ósæröur. Hann skíöaöi þaö vel
aö hann heföi getaö unnið undir
hvaöa kringumstæöur sem var,
hins vegar heöi ég án efa veitt
honum haröari keppni.
Nokkrar umræöur hafa spunnist
um nýju hliöin á svigbrautunum,
og sú spurning vaknaöi hvort Phil
Það á að nota sumartímann til þess að hvíla sig og slaka vel á, segir Stenmark sem hér sést meö
unnustu sinni, Ann Uvhagen, fyrir utan hús hans í Mónakó.
Tveir af helstu keppinautum Stenmarks á síðasta ári voru bandarísku
tvíburabræðurnir Phil og Steve Mahre, sem hér sjást skíða saman.