Morgunblaðið - 26.01.1983, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 26.01.1983, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 1983 61 á niðurleið og beygja sig í mús- arstööu í lok beygjunnar. Annað ráð er að láta barnið hreyfa sig til skiptis eins og það sé annars vegar að tína epli af trjá- grein og hins vegar að tína kartöfl- ur upp úr jörðinni. Hálfar beygjur Annaö algengt vandamál er að Ijúka við beygjurnar til að halda hraðanum niðri. Sumum hressum krökkum virðist standa á sama um þennan stjórnlausa hraöa — eöa þar til þau „fá fyrir ferðina". Þau sem eru ragari reyna að bjarga stjórnleysinu og sjálfum sér frá falli með því að kasta sér upp í brekk- una eða láta sig renna þversum í brekkunni eins lengi og þau geta áöur en þau neyöast til að beygja. Þá má fara í leikinn um járn- brautarlestina, þar sem þú ert eimreiðin en barniö aftanívagninn og þá mun barnið læra að stjórna sér sjálft og taka góöar beygjur. Þú sem eimreiðin stjórnar feröinni og aftanívagninn veröur aö fylgja vel á eftir, því annars fer lestin út af sporinu og allt veröur stopp. Byrjaöu æfinguna meö stórum beygjum í mátulegum halla og kláraöu hana áður en þú byrjar á þeirri næstu. Með auknum framförum barns- ins er rétt aö fjölga beygjunum og hafa styttra á milli þeirra. Stór plógur Járnbrautarleikurinn er einnig góður til að draga úr of miklu trausti barnsins á plógnum og of stórum eöa gleiðum plóg, sem er Ein hlýlega klædd og vel útbúin leggur af stað í lyftunni. Dugnaöur enn eitt vandamáliö. Börn hafa til- unga fólksins er oft fádæma mikill í skíðaiðkuninní. hneigingu til að draga úr hraðan- um með plógnum í staö þess að taka beygju og þegar þau reyna aö beygja kemur of gleiöur plógur í veg fyrir aö þau yngstu geti snúiö báðum fótum — þess í staö veröur innri fótur eftir og allt endar með ósköpum. Ef barnið fylgir á eftir í förin þín, minnkar það plóginn yfir í mjórri og beinni stefnu og fær skíöin samsiða í lok beygjunnar. Einnig ef það ímyndar sér að hnén á því séu Ijósin. Ef það er í of stórum plógi snúa Ijósin á móti hvort öðru og enginn sér hvert hann stefnir. Meö því að minnka plóginn munu Ijósin lýsa upp teinana og barniö nær betri tökum á að skíða meö skíöin samsíöa. Skíðastafir í byrjun skíðanámsins eru skíöa- stafir til meira ógagns en gagns. Þeir dreifa athygli barnsins og endar með þvi að það hefur meiri áhyggjur af stöfunum en skíðun- um. Auk þess er hætta á aö barnið sveifli of mikið stöfunum, sem býð- ur hættunni heim. Því er best að skilja stafina eftir heima þar til barniö hefur tamið sér að hafa hendur kyrrar og fyrir framan lík- amann. Ágætt er að byrja aö venja barnið við stafi þegar það getur tekiö góðar beygjur. Því getur þó reynst erfitt aö halda í stafina vegna þess hve hendurnar eru smáar og vettlingarnir fyrirferöar- miklir, og endar oft þannig aö það heldur þeim upp að líkamanum, þar sem þeir koma aö litlu gagni. Því er betra aö fresta notkun á skíöastöfum þar til hendurnar eru orönar nægilega stórar eða þar til nógu hlýtt er orðið til að nota þynnri vettlinga. Kynnið skiöastafina þegar barn- ið er líkamlega og tæknilega til- búiö. Lyftuferðir Aö ferðast í lyftu með barni er lærdómur út af fyrir sig, og góð regla er aö biðja lyftuvörðinn að draga örlítiö úr hraöa lyftunnar í fyrstu ferðunum eða þar til barniö hefur hlotið dálítiö öryggi. í sumum lyftum er hægt að hafa barn á milli fótanna á sér og láta þaö vefja handleggjunum um fæturna. Ef barnið er orðið þaö þjálfaö aö þaö fer eitt i lyftu, minnið þaö þá á að standa beint, með skíöin vel í sundur. Hafið ætíö hugfast þegar þið skíðið með barninu að þá er ekki skíðamennska aöalatriöið eöa framfarirnar, heldur stundin sem þið eigið með barninu. Skemmtiö ykkur, og stillið kröfunum í hóf og sníðið þær eftir aldri barnsins, getu þess, persónuleika og skap- gerð. Skiptið um skíðastaö endrum og eins og leyfiö barninu aö ráöa hvert á aö fara og hvað skal gera og finniö upp skemmtilega leiki sem henta í snjó — látiö öðrum leiknari skíðamönnum eftir flóknar leiðbeiningar. Fyrir alla muni fylgist meö framförum og sparið ekki lof og hvatningarorð. Þau byggja upp sjálfstraust og stolt barnsins. Ekk- ert er dásamlegra — fyrir báða aö- ila. Hvaða útbúnaður hentar best? Fyrir smáfólkið: Tveggja til þriggja ára börn geta auöveldlega at- hafnað sig á 70 cm skíöum meö og án öryggisbind- ina. Þriggja til fimm ára börnum hæfa best ca. 90 cm löng skíði með öryggisbindingum og samsvarandi skíðaskóm. Barnaskíði 6—10 ára: Eldri börn, 6—10 ára, ættu aö velja sér skíöi sem næst jafnlöng þeim sjálfum, þó íviö lengri eftir getu og þyngd. Öryggisbindingar meö skíöastoppurum og skíðaskór eru nauðsyn. Unglingaskíði: Þau má gjarnan taka lítið eitt stærri en notandi er, ca. 10 cm lengri. Þegar þessum aldri er náð, þurfa sktöin helst aö vera fíberstyrkt meö innfelldum stálköntum, vegna aukins álags. Skíði ffyrir fullorðna: COMPACT-skíði eru ætluö fyrir hæga til meöal- hraða skíöun, heppileg fyrir byrjendur og þá sem skíöa ekki hratt. COMPACT-skíði 150—190 cm eru keypt sem næst jafnstór notanda, þó skiptir þyngd og geta nokkru máli, ca. 5—10 cm lengri eftir hæfni. MID-skíöi eru kærkomin nýjung fyrir gott skíöafólk. MID-skíöi eru fyrir hraðari og fjölbreyttari skíðun. Henta vel bæöi í höröu og mjúku færi og gefa skemmtilega möguleika. MID-skíöi skulu vera ca. 10—15 cm lengri en notandi. Gönguskíði eða touring-skíði: Gönguskíöi eru jafnan tekin 20—30 cm lengri en notandi — breytilegt eftir breidd skíðanna. Svo- kölluð vax-frí skíöi eru vinsælust, þar eö þau þarf ekki að vaxbera. Besti árangur fæst þó á rétt smurðum gönguskíöum. Skíðaskóli Sigurðar Jóns- sonar er í Bláfjöllum NÚ UM helgina er að hefjast 3. starfsór Skíöaskóla Siguróar Jónssonar. Skólinn mun í vetur starfa með svipuöu sniói og und- anfarna tvo vetur. Námskeiö verða fyrir alla getu- hópa, börn sem fulloröna, 5 daga vikunnar, þ.e. laugardaga, sunnu- daga, þriöjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga. Allar nánari upplýsingar eru veittar í síma 76740 eftir kl. 17.00. Aðsókn að skólanum hefur auk- ist jafnt og þétt þessi ár og nú þegar er búið aö panta þó nokkuö. I vetur verður skólinn staðsettur uppi í Bláfjöllum og hefur til afnota gamla Borgarskálann. Skíöa- : leigan Skíðabúðin við Umferðarmiðstöðina Eftir tveggja ára reynslu af skíðaleigu bjóðum við nú einnig til sölu þau vörumerki sem hafa reynst best. Erbacher skíði (vestur-þýsk gæði). Hope bindingar (japönsk tækni). Tecnica skór (ítölsk hönnun). Viltu prófa áður en þú kaupir?? s""' 13072

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.