Morgunblaðið - 26.01.1983, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. JANUAR 1983
63
Ljósm. Skapti Hallgrímsson
Þessi fríði hópur húsvískra skíðamanna lét nístingskuldann ekki hafa
nein áhrif á sig og hólt ótrauður áfram að renna sér. Allir höfðu þó tíma
til að stilla sér upp svo hægt væri að festa hópinn á filmu.
Ljósm. Skapti
Frá skíðalandi Húsvíkinga. Troðarinn þeirra í forgrunni, en í baksýn
má sjá hluta einnar brekkunnar í Stöllunum.
Ljósm. Áfcúsl Baldursson
Skíðasambandið gengst á vetri hverjum fyrir bikarmótum á ýmsum
stöðum á landinu. Hér sjást nokkrir keppenda á einu slíku móti sem
haldið var á Húsavík.
Víkingar hafa byggt upp skíöasvæöi í Sleggjubeinsdal:
„Sækjumst eftir
fjölskyldufólki“
— segir Freyr Bjartmarz hjá skíöadeild Víkings
Knattspyrnufélagið Víking-
ur hefur undanfarin ár byggt
upp skíðasvæöi í Sleggju-
beinsdal svonefndum, en
hann er í nágrenni Hengilsins.
Þar hafa þeir komið upp
þremur skíðalyftum og skála,
en til að fræðast nánar um
Víkingssvæðið, haföi Morg-
unblaðiö samband viö Frey
Bjartmarz, sem starfaö hefur
ötullega hjá skíðadeild Vík-
ings í aldarfjórðung.
„Vikingar reistu fyrst skála í
Sleggjubeinsdal áriö 1940, en
hann brann 1964. Þá þegar var
hafist handa viö aö reisa nýjan
skála, sem tekinn var í notkun
kring um 1970 og vígöur 1974.
Viö höfum smátt og smátt kom-
iö upp ákjósanlegri aðstööu til
skíöaiökana í Sleggjubeinsdal,
komnir meö þrjár lyftur, og ein er í
þígerð á allra næstu árum.
Það eru um 10 ár síöan fyrsta
lyftan var tekin í notkun og
skömmu seinna kom önnur ofar.
Þetta voru spjaldalyftur, en nú er
komin ný diskalyfta, 500 metra
löng, á svipuöum slóöum og
spjaldalyfturnar voru og hefur hún
leyst þær báöar af hólmi. í millitíö-
inni höfum viö bætt viö tveimur
byrjendalyftum, svokölluöum
T-lyftum, sem eru mjög hentugar
fyrir þá sem skemmra eru komnir,
þar sem hún er kjurr meöan fariö
er í og úr henni. Samtals eru lyft-
urnar þrjár tæþur kílómetri aö
lengd.
Okkur vantar tilfinnanlega þjón-
ustumiðstöð neöst í dalinn og hún
mun rísa næsta sumar, og verður
þar hreinlætisaöstaöa, geymslur
og veitingasala í smáum stíl.
Hins vegar höfum viö bætt alla
aöstööu hvaö snertir aðkomu á
svæöið. j sumar var vegurinn upp-
hækkaöur og breikkaöur og til
marks um hversu mikil bót er aö
því, hefur aöeins einu sinni þurft
aö ryöja hann, þaö sem af er árinu,
þrátt fyrir hin gífurlegu snjóþyngsli.
Þá höfum viö fjórfaldað bílastæöin
og ættum því að vera næg bíla-
stæöi hér efra, en þaö hefur komiö
fyrir undanfarna vetur aö þau hafa
veriö af skornum skammti.
Auk þessa höfum viö endurbætt
brekkurnar á svæöinu á síöustu
misserum, og breikkaö giliö, til aö
gera svæöiö allt ákjósanlegra.
Höfum viö sprengt kletta og jafnaö
út og reynt aö sá í sárin á ný og
gengiö frá umhverfinu þannig aö
þaö liti út sem eölilegast aftur til
að spilla náttúrunni sem minnst.
Skíöasvæöiö er opiö um helgar
frá klukkan 10 til 22, en viö verö-
um ekki tilbúnir til aö hafa þaö
oþið á virkum dögum fyrr en 1.
febrúar næstkomandi. Þá veröur
opiö frá klukkan 10 til 18, nema á
þriðjudögum og fimmtudögum, þá
til klukkan 22.
Þá reikna ég fastlega með aö
viö höldum áfram byrjendakennslu
á skíöum, höfum alltaf veriö meö
kennslu af þessu tagi, hjá því er
ekki hægt að komast.
Viö höfum lagt á það áherzlu aö
fá hingaö til okkar fjölskyldur.
Hingaö kemur mikill fjöldi fjöl-
skyldufólks; foreldrar, sem koma
kannski ekki til aö skíöa sjálfir, en
finnst þeir öruggir meö krakkana á
þessu svæði. Byrjendalyfturnar,
kaöallyfturnar, eru mjög hentugar
fyrir börnin, þær eru í litlum halla,
þar sem gott er aö stíga fyrstu
skrefin á skíðabrautinni.
Þaö má segja að viö sækjumst
eftir fjölskyldufólki og þaö er
ánægjulegt aö sjá hvernig fjöl-
skyldurnar viröast bindast saman
hér, og má segja aö ekki muni af
veita á þessum síöustu og verstu
tímum. Og það er ekki síöur hollt
að teyga aö sér fjallaloftiö meöan
ungarnir renna sér í brekkunum.
Já, Drottinn minn dýri, það hef-
ur mikið breyzt á skíöasvæöi Vík-
inga frá því ég kom hér fyrst.
Mestu breytingarnar eru á brekk-
unum, sem orðnar eru mjög fínar,
einnig hefur aökoman aö svæöinu
gjörbreytzt og þá er ekki lengur
þörf á aö labba uþp brekkurnar
eftir aö lyfturnar komu til sögunn-
ar. Hér unum viö okkur vel, þetta
svæöi höfum viö Víkingar aldrei yf-
irgefið, og hingaö eru allir vel-
komnir, ekki sízt barnafjölskyld-
urnar," sagöi Freyr aö lokum.
— ágás.
Leitiö ekki langt yfir skammt
Húsavík í vetrarfríið
HVÍLD — MEGRUN
— LÍKAMSRÆKT
— ÚTIVERA
ÞARFTU AO MISSA NOKKUR
AUKAKÍLÓ?
ÞARFNASTU HVÍLDAR?
VILTU LOSNA FRÁ AMSTRI
HVERSDAGSINS?
VIÐ HOFUM LAUSNINA
Sérhæft starfsfólk svo sem læknir, íþróttakennarar, sjúkraþjálfi, leiösögumenn
og lipurt hótelstarfsfólk mun sjá til þess aö þér líði sem best.
Dagskrá:
Dagskrá:
ÁRDEGI: SÍDDEGI:
Kl. 08 00 Vakið gegnum hátalarakerfi huss- Kl. 13.00 Hvíld.
ins meö lóttri tónlist og likams- Kl. 14.00 Gönguferö meö
teygjum. fararstjóra.
Kl. 08.15 Boriö á herbergi heitt sítrónuvatn. Kl. 15.00 Létt miödagskaffi.
drukkiö meðan klæöst er (íþrótta- Kl. 15.30 Nudd.
galli). Kl. 17.00 Frjáls tími.
Kl. 08.30 Morgunleikfimi í sal, mál og vog. Kl. 19.00 Kvöldveröur.
Kl. 09.30 Morgunverður.
Kl. 10 30 Sund — gufa — heitur pottur. KVÖLD:
Kl. 11.00 Frjáls tími. Kl. 20.30. Kvöldvaka.
Kl. 12.00 Hádegisveröur Stutt ganga fyrir svefn.
Verö pr. mann á viku:
Kr. 5.980 í 2m m/baði.
Kr. 6.480 í 1m m/baði.
Innifalið í þessu verði er:
Gisting, allar máltíðir, læknisskoöun, sund, gufa, heitur pottur, leik-
fimi, nudd, gönguferðir með fararstjórn, fræðileg erindi, flug og
transfer flugvöllur — hótel — flugvöllur.
Ath. Hámarksfjöldi í hópi er 20 manns. Askilinn er réttur til breytinga
á ofangreindu verði.
1. vika 06/02
2. vika 13/02 -
3. vika 06/03
4. vika 27/03
5. vika 03/04
6. vika 10/04
13/02 ’83
20/02 '83
13/03 ’83
03/04 ’83
10/04 '83
17/04 ’83
Söluaðilar:
Hótel Húsavík,
Ferðaskrifstofa ríkisins,
Ferðaskrifstofan Úrval,
Ferðaskrifstofan Útsýn,
og ferðaskrifstofur víða
um land.
' í
Vertu
. velkominn’
-
Húsavik
Síml 9S-41220