Morgunblaðið - 28.01.1983, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 28.01.1983, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 28. JANÚAR 1983 Djúpslökun og spennulosun í fræðslumiðstööinni Miðgarðar veröa haldin tvö helgarnámskeið í djúpslökun og spennulosun. Fyrra námskeiöiö er 28.—30. janúar og þaö síöara 4.—6. febrúar. Á námskeiöunum veröur kennt djúpslökun- arkerfi sovéska læknisins A.G. Odessky en þaö er talið meöal áhrifaríkustu aöferða til tauga- og vööva- slökunar. Ðjúpslökunarkerfið byggir á áhrifum sí- gildrar tónlistar, sjálfsefjun, öndunartækni og beit- ingu ímyndunaraflsins. Notaö veröur „Bíófeed- back“-tæki sem gefur þátttakendum upplýsingar um spennu- og hvíldarástand eigin vööva. Á námskeiö- unum veröur einnig fjallaö um: • Draumastjórn • Myndun innri ráðgjafa • Breytta sjálfsímynd • Varnir gegn streitu Upplýsingar og skráning er í Miðgarði Bárugötu 11, sími: 12980, milli kl. 11—20. <Y/WÐG/1RÐUR Óskalistinn Óskalistinn Ra Redoute býöur öllum landsmönnum þjónustu sína. Óskalistinn La Redoute er einn af stærstu pöntunar- listum Evrópu og verslar meö franskar úrvalsvörur. Kjörorö okkar er, vönduö vara, hagstætt verö. X-------------------------------------------- Vinsamlega sendið mér undirrituðum eintak af óskalistanum La Redoute, verö kr. 75.- Nafn ..................................... Heimilisfang ............................. Vegna hagstæðrar stööu krónunnar gangvart franska frankanum er mjög hagstætt að versla við Frakkland. Askriftarsímim cr 83033 29. fundurinn um gagnkvæma fækkun herja í Evrópu hófst í gær: __ Asaka Vesturveldin um aö vilja einhliöa VínarlMirg. 27. janúar. Al*. VIÐRÆÐUR fulltrúa austurs og vcst- urs í Vínarborg um gagnkvæma fækkun hcrja i Evrópu hófust að nýju í dag cftir sex vikna langt hlé, sem gert var á þeim. l>ctta cr 29. fundur vióræóufulltrúanna á áratugarliingu tímabili og svo virðist í fyrstu, að eng- inn árangur hafi orðið af fundinum í dag. Strax eftir að fundurinn hafði verið formlega settur tók pólski sendiherrann Stanislaw Pryz- godzki til máls fyrir hönd komm- únistaríkjanna í Austur-Evrópu. Hann hélt því fram, að augljóst Dyflini, 27. janúar. AF. ('HARLES Haughey, fyrrum for- sætisráðherra írlands, tókst i dag að verjast ásökunum óánægðra flokksmanna innan Fianna Fail og hcldur leiðtogastöðu sinni áfram, þrátt fyrir að margir innan flokksins hafi viljað, að hann segði af sér. Efnt var til flokksfundar, en ekki kom til atkvæðagreiðslu um vantraust á Haughey, eins og jafnvel hafði verið búist við. GFORUES Bidault, leiðtogi frönsku andspyrnuhreyfingarinnar á stríðsár- unum og fyrrverandi forsætisráðherra lést í dag í Cambo-les-Bains í Suð- vestur-Frakklandi, 83 ára gamali. Bidault fékk hjartaslag í des- ember síðastliðnum á heimili sínu í París og var þá flutur á sjúkrahúsið í Cambo, þar sem hann lést síðan í dag. Hann varð sjálfboðaliði í hernum árið 1940 og var tekinn til fanga. Eftir að hann var látinn laus gekk hann til liðs við baráttuhóp gegn nasistum og tók við sem leiðtogi andspyrnuhreyfingarinnar af Jean Moulin, eftir að hann var handtek- inn og pyntaður til dauða af Þjóð- verjum. Bidault setti á stofn lýðræðis- hreyfinguna, sem var kristilegur demókrataflokkur, sem ekki er leng- ur starfandi, en var á sínum tíma mikilvægur þáttur í frönskum stjórnmálum. Hann var utanríkis- ráðherra Frakklands frá árinu 1944 til 1948 í fyrstu ríkisstjórn Charles de Gaulle eftir stríð. Hann var síðan forsætisráðherra frá 1949 til 1950, varnarmálaráðherra frá 1951 til 1952 og utanríkisráðherra að nýju væri í tillögum Vesturveldanna frá því 8. júlí í fyrra, að þau sæktust eftir einhliða fækkun. Sendiherrann ásakaði NATO um að bregðast þeirri skyldu sinni að leggja fram gagntillögur við griða- sáttmála Varsjárbandalagsríkj- anna, sem lagður var fram að lokn- um fundi leiðtoga aðildarríkja bandalagsins í Prag. Talsmaður NATO, John Karch frá Bandaríkjunum, sagði, að verið væri að ígrunda griðasáttmála Varsjárbandalagsríkjanna, en ekki væri hægt að segja neitt um stöðu Fundurinn stóð í tvær klukku- stundir og urðu á honum snarpar umræður, en andstæðingum Haug- heys tókst ekki að klekkja á hon- um. Fyrst eftir að komst upp um hlerunarmálið svonefnda á Irlandi í síðustu viku, var talið næsta víst, að Haughey segði af sér leiðtoga- stöðu sinni innan flokksins eins og tveir aðrir leiðtogar hans gerðu. frá 1953 til 1954. Hann barðist gegn De Gaulle í Alsírstríðinu, vildi „Franskt Alsír" og stofnaði nefnd sem var bönnuð árið 1961. Hann lét sig síðan hverfa af sjónarsviðinu árið 1962 þegar hann var sakaður um samsæri og starfaði lítt að stjórnmálum. Hann óttaðist handtöku og var því búsett- ur utan heimalands síns, í Portúgal, Brasilíu og síðan í Belgíu, en sneri aftur til Frakklands árið 1968. Georges Bidault fækkun máia aö svo stöddu. Viðræðuaðilar hafa aldrei náð samkomulagi um raunverulegan fjölda hermanna á því svæði, sem um ræðir. Að sögn Karch kemur þessi óvissa helst í veg fyrir árang- ur af viðræðunum. Vesturveldin segja 960.000 hermenn Varsjár- handalagsins og 700.000 hermenn á vegum NATO vera á umræddu svæði. Varsjárbandalagsríkin segja tölu hermanna sinna vera 810.000. Svæði það, sem um ræðir, tekur til Belgíu, Hollands, Luxemborgar, V-Þýskalands, A-Þýskalands, Pól- lands og Tékkóslóvakíu. I ljósi þeirrar staðreyndar, að „austurblokkin" hefur tekið illa í allar tillögur Vesturveldanna, sagði Karch, að NATO hefði ákveð- ið að einbeita sér að því að fá Varsjárbandalagsríkin til að fækka hermönnum sínum niður að því marki, að báðir aðilar hefðu yfir jafnmörgum hermönnum að ráða, eða 700.000. Þegar því marki væri náð væri fyrst hægt að tala um frekari fækkun í liði beggja. Veður Akureyri ■íS skýjaö Amsterdam 12 skýjaö Aþena 14 heiöskírl Barcelona 17 mistur Berlín 12 skýjaö Chicago *A skýjað Dublin 11 rigning Feneyjar 4 þokumóða Frankfurt 9 rigning Faareyjar 3 skýjaó Qenf 7 heiðskírt Helsinki 4 skýjað Hong Kong 19 heiósklrt Kaupmannahöfn 8 skýjaö Kairó 15 skýjaö Las Palmas 19 mistur Lissabon 18 skýjaö London 14 skýjað Los Angeles 19rigning Madrid 18 heiöskirt Mallorca 16 lóttskýjað Malaga 15 heióskírt Mexikóborg 21 heiðskírt Miami 22 rigning Moskva 2 skýjaó Nýja Delhí 23 skýjaó New York 4 skýjaö Ósló 7 heiðskírt París 14 skýjaö Peking 6 heióskírt Perth 32 heióskírt Reykjavik -5 skýjaö Rio de Janeiro 35 heiöskírt Rómaborg 13 heiöskírt San Francisco 17 rigning Stokkhólmur 6 skýjað Sydney 21 skýjaö Vínarborg 9 skýjaö Haughey situr enn sem fastast Georges Bidault látinn l’arís, 27. janúar. Al*. Norðmenn þvingaðir til að draga úr selveiðum Osló, 27. janúar. AF. ÞRÝSTINGUR og áróður náttúruverndarmanna víða um heim hefur orðið til þess, að Norðmcnn hafa bannað veiðar á sclkópum nú í vetur og minnkað allar selveiðar sínar verulega. Selveiðibannið í vetur var ákveðið á hinum árlega fundi norsku sclveiðinefndarinnar, sem að þ«‘ssu sinni settist á fundarstóla í Álasundi. Rannið nær einkum til kópa sem ekki hafa náð 3ja vikna aldri, en þeir eru einmitt vinsælastir vegna hinna fallegu felda þeirra. Þá hafa Norð- menn fækkað selveiðiskipum sínum úr tíu niður í sjö. Vetrar- og vorveiðarnar fara jafnan fram út af ströndum Ný- fundnalands, á Jan Mayen og út af ströndum Noregs og Grænlands. Nýfundnaland er aðalveiðistöðin og Norðmenn verða aðeins með tvö selveiðiskip á þeim slóðum að þessu sinni. Selveiðinefndin norska sagði í fréttatilkynningu sinni, að ástæðan fyrir minnkandi veiðum væri versnandi markaðshorfur. Norska blaðið Aftenposten sagði hins veg- ar, að hin nýja selveiðistefna væri í beinum tengslum við tillögu Efna- hagsbandalagsins um selveiðibann. Þá væri ekki hægt að horfa fram hjá því að áróður erlendis hefði fælt fólk frá því að kaupa sela- afurðir. Það eru einkum Green- peace-samtökin sem hafa beitt sér fyrir banni á seladrápi og þau hafa fengið góðan liðsauka, sem er fyrr- um leikkonan franska Brigitte Bardot. Sem kunnugt er, beita Greenpeace sér einnig m.a. fyrir hvalveiðibanni. Samtökin segja selastofna norðurhafa vera í hættu vegna veiða Norðmanna og Kan- adamanna. Þá segja samtökin af- lífunaraðferðina ómannúðlega. Náttúrufræðingar hafa andmælt báðum ásökunum. Selveiðinefnd Norðmanna telur hins vegar af og frá að stöðva sel- veiðar með öllu. Norska Stórþingið hefur einnig mælt með því að framhald verði á sel- og hvalveið- um til þess að halda jafnvægi í líf- keðju hafsins og til að vernda fiski- stofna sem Norðmenn nýta. Vitað er að selir og hvalir éta geyislega mikið af fiski og um þessar mundir er að hefjast fimm ára rannsókn- aráætlun í Noregi, sem á að ganga úr skugga um hversu mikið að fiski selirnir í raun éta. Sovétmenn eru með svipaða áætiun í gangi og ætla löndin að bera saman bækur sínar er rannsóknunum lýkur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.