Morgunblaðið - 28.01.1983, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 28.01.1983, Blaðsíða 32
^\uglýsinga- síminn er 2 24 80 ^f^skriftar- síminn er 830 33 FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 1983 BOÐAÐUR hcfur verið fundur í ncðri deild Alþingis kl. 14 í dag. Mikil spcnna ríkir mcðal þingheims vcgna fundarins og talið að til tíðinda geti dregið. A dagskrá er 2. umræða um bráðabirgðalögin, en þau eru nú til meðferðar í fjárhags- og viðskipt- anefnd deildarinnar og hefur stjórn- arandstaðan ekki skilað nefndarálit- um. Föstudagar eru ekki hefðbundnir þingfundadagar og sagði Sverrir ller- mannsson forseti neðri deildar í gærkvöldi, að til fundarins væri boðað vegna gífurlcgs þrýstings frá rikis- stjórn og forsætisráðherra, en eins og komið hefur fram í fréttum hefur Si- ggeir Björnsson varamaður Kggerts Haukdal lýst yfir stuðningi við bráð- abirgðalögin. Fjarvistarleyfi þing- manna er að jafnaði hálfur mánuður „Biblíusali“ með dólgshátt við stúlku FIMMTÁN ára gömul stúlka fékk heldur óhugnanlega heim- sókn í gærmorgun. Maður bank- aði upp á hjá henni í Þingholtun- um er hún var ein síns liðs á heimili sínu og bauð henni Nýja testamentið til kaups. Stúlkan hafði ekki áhuga á kaupum. Skyndilega bað maöurinn stúlk- una um koss og hvort hann mætti sofa hjá henni. Stúlkunni varð hverft við og skellti hurðinni á manninn, sem þá hvarf sjónum hennar. Skömmu síðar sá stúlkan sér til mikillar skelfingar mann- inn koma aftur upp að húsinu. Hún hringdi í konu í næsta húsi og bað um aðstoð. Konan fór umsvifalaust út og lagði maðurinn á flótta þegar hann va'rð hennar var. Mál þetta var kært til lög- reglunnar og er nú í rannsókn. Fundu tvö lömb í Grafarlöndum Björk. Mývatn.ssvei(, 27. janúar. í DAG fóru tveir menn héðan úr sveit- inni, þeir Hermann Kristjánsson og Jón Ingi Hinriksson á bíl suður í Grafarlönd og Herðubreiðarlindir. I Grafarlöndum fundu þeir tvö. lömb og komu með þau til byggða. Eigendur lambanna eru Jón Bjart- mar Sigurðsson í Reykjahlíð og Eysteinn Sigurðsson á Arnarvatni. Ferðin gekk mjög vel enda töldu þeir snjo frekar lítinn þar innfrá. Lömbin líta ekki sérlega illa út og bendir því ekkert til að þau hafi verið á jarðleysu í vetur. — Krístján. samkvæmt þingsköpum og mun Kgg- ert væntanlegur til þings á mánudag. Sighvatur Björgvinsson fulltrúi Alþýðuflokksins i fjárhags- og viðskiptanefnd neðri deildar sagði í samtali við Mbl. í gærkvöldi, að hann myndi fá síðustu upplýsingar til að geta skilað sínu nefndaráliti í dag. Hann sagði einnig að þetta væri ekki vandamál Alþýðuflokks- ins og því myndi hann ekkert gera til þess að tefja afgreiðslu bráðab- irgðalaganna. Matthías Á. Mathies- en fulltrúi Sjálfstæðisflokksins sagðist einnig fá síðustu upplýs- ingar til að geta lokið frágangi nefndarálits í dag, og kæmi þing- flokkur Sjáflstæðsiflokksins saman kl. 15 til að fjalla um þær. Þess má geta að leita þarf af- brigða til að 2. umræða geti farið fram, ef öll nefndarálit verða ekki komin fram, eða ekki nægilega snemraa. Ef þrýst verður á um að ljúka 2. umræðu og hefja 3. og síð- ustu umræðu í dag, þarf einnig að leita afbrigða þingheims. Ingvar Gíslason menntamálaráðherra og Davíð Oddsson borgarstjóri takast í hendur eftir undirritun Keldnasamn- inganna á Kjarvalsstöðum í gær. Morgunblaðið/ KEE Keldnasamkomulagið undirritað í gær: Samningur er tryggir fram- tíðarbyggð borgarinnar — segir Davíð Oddsson, borgarstjóri SAMKOMULAG milli menntamálaráðherra fyrir hönd Háskóla íslands, Tilraunastöðvar Háskólans að Keldum og Rannsóknarráðs ríkisins annars vegar og borgarstjórans í Reykjavík hins vegar um ráðstöfun lands á Keld- um, Keldnahoiti og fleiri jörðum var undirritað í gær. Samkomulagið er gert með fyrirvara um staðfestingu fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs og samþykki Alþingis og borgarstjórnar Reykjavíkur. Er þar með lokið um það bil áratugs samningaviðræðum. „Þetta er merkileg stund í sögu Reykjavíkur og samningurinn er ákaflega mikilvægur fyrir alla framtíðarþróun borgarinnar. Fyrrverandi meirihluti borgar- stjórnar gaf sér það, að vonlaust væri að ná samningum um að leggja hluta af landi Tilrauna- stöðvar ríkisins að Keldum undir framtíðarbyggð. Þess vegna væri óhjákvæmilegt að fara inn á Rauðavatnssvæðið. Bentu full- trúar hans á að samningaviðræð- ur hefðu staðið í 13 ár án árang- urs. Jafnframt töldu þeir, að jafn- vel þó svo ólíklega vildi til, að samningar næðust, myndi það kosta borgina mikið í beinhörðum peningum. Hvort tveggja hefur reynst bábilja ein og með þessum samningi er framtíðarbyggð borg- arinnar tryggð," sagði Davíð Oddsson, borgarstjóri, meðal ann- ars er Morgunblaðið ræddi við hann af þessu tilefni. „Ég vil gjarna færa Ingvari Gíslasyni, menntamálaráðherra, þakkir fyrir hans hlut og ekki síð- ur samninganefnd þeirri, sem hann skipaði, og síðast en ekki síst þeirri samninganefnd, sem vann í mínu umboði, fyrir frábært starf. Samkomulagið felur í raun í sér, að í hlut Reykjavíkur kemur land úr landi Keldna, sem nauðsynlegt er til að tryggja framtíðarbyggð borgarinnar, en borgin leggur á móti til land fyrir Keldur, Keldna- holt og Rannsóknarstofnun land- búnaðarins og jafnframt svæði til túnræktunar og beitar úr landi Reynisvatns, sem er í eigu borgar- innar. Jafnframt eru ítarleg ákvæði í samningnum um samnýt- ingu Keldna og almennings á grænum svæðum, sem skilja að Keldur og framtíðarbygginga- svæði," sagði Davíð. Ingvar Gíslason, menntamála- ráðherra, sagði, að samningur þessi ætti sér nokkuð langan að- draganda og hefðu samningavið- ræður staðið með nokkrum hléum í allmörg ár. Hefði hann talið það nauðsynlegt að leysa þetta mál, og teldi, að með makaskiptum á landi mættu báðir aðilar vel við una. Hann teldi þetta farsæla lausn og þetta væri tillaga sín til ríkisins og Alþingis og hann vonaðist til að hún yrði samþykkt. Sjávarútvegsráðherra: Leggur til að ríkisstjórn- in mótmæli hvalveiðibanni STEINGRÍMUR Hermannsson, sjávarútvegsráðherra, skýrði frá því í Sam- einuðu þingi í gær að hann hefði lagt til í ríkisstjórninni að ísland mótmælti samþykkt Alþjóðahvalveiðiráðsins um algjört bann við hvalveiðum á úthafi frá og með árinu 1985 og frá strandstöðvum frá og með árinu 1986. Frestur til að mótmæla samþykktinni rennur út 2. febrúar nk. Ef hann er ekki nýttur, telst ísland samþykkt banninu. Ef mótmæli eru borin fram erum við óbundnir af samþykkt ráðsins. Fjórar þjóðir hafa þegar mótmælt: Sovétríkin, Noregur, Japan og Perú. Þessi ummæli komu fram í um- ræðu um tillögu Eiðs Guðnasonar, þess efnis, „að fela ríkisstjórninni að mótmæla nú þegar" þessari samþykkt. Afstaða þingmanna var á tvenna vegu: annarsvegar að við ættum ekki að beygja okkur fyrir hótunum, aðeins vísinda- legum rökum, þegar hvalveiðar eiga í hlut, hinsvegar að minni hagsmunir yrðu að víkja fyrir mikilvægari, eins og það var orðað, en mótmæli gegn banninu stefndu söluhagsmunum okkar á fiskafurðum í hættu beggja megin Atlantshafsins. Sjá nánar á þingsíðu Mbl. í dag, bls. 18. Reykjavík og Reykjaneskjördæmi: Skoðanakönnun um kjördæmamálið NÝLEGA voru stofnuð Sam- tök áhugamanna um jafnan kosningarétt og verður fyrsta verk samtakanna að gefa kjósendum í Reykjavík og á Reykjanesi tækifæri til að tjá sig um kjördæmamálið í skoðanakönnun. Sjá nánar á miðopnu blaðsins í dag. Samtökin ætla að láta bera dreifibréf á hvert heimili í Reykjavík. Bréfinu munu fylgja seðlar, þar sem kjósendur geta tjáð sig um hvern þeir telja heppilegasta fjölda þingmana, hvert atkvæðavægi eftir búsetu eigi að vera og ef kjósandinn tel- ur að jafna eigi atkvæðavægið, getur hann lýst skoðunum sínum á því hvernig það verði bezt gert. Samtökin stefna að því að opna skrifstofu fljótlega. Vegna skorts á fjármagni og starfs- kröftum telja samtökin sig ekki hafa bolmagn til að láta þessa skoðanakönnun ná til alls lands- ins. Skotið á íbúð við Bárugötu SKOTIÐ var á íbúð fullorðins manns við Bárugötu í Reykjavík. Skotið fór í gegnum rúðu í baðhcr- berginu og þaðan fram á gang. Gamli maðurinn telur sig hafa heyrt skothvelli í fyrradag, en gerði sér ekki grein fyrir að verið væri að skjóta á íbúð hans. í gærkvöldi varð hann þess áskynja hvað gerst hafði; skot hafði farið í gegnum glugga á baðherberginu og lent í vegg á ganginum. Hann gerði lögregl- unni viðvart og tókst að rekja skotlínuna. I íbúð gegnt íbúð gamla mannsins fannst 22 kali- bera riffill og er eigandi hans ungur maður. Lögreglan leitaði hans í gærkvöldi til þess að færa hann til yfirheyrslu í von um að komast til botns i málinu. Bráðabirgðalögin til atkvæða í dag?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.