Morgunblaðið - 28.01.1983, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 28.01.1983, Blaðsíða 23
sem kynntust Sigrúnu Eddu þótti vænt um hana. Hún hafði ljúfa og einlæga lund og ósjálfrátt laðaði hún fólk að sér. Hún gaf sér alltaf tíma til að hlusta á aðra, róleg og bjartsýn. Á meðan hún dvaldist í Danmörku, þar sem eiginmaður hennar, Kristján Helgason, var við nám, skrifuðumst við reglu- lega á. Þrátt fyrir erfiðleikatíma- bil í baráttu við alvarlegan sjúk- dóm, voru bréfin hennar alltaf full af bjartsýni og hlýju. Hún sendi okkur mynd af íbúðinni á stúd- entagarðinum sem þau bjuggu í og það var greinilegt að það var hlúð að litla heimilinu þeirra. Hún hafði mikla unun af að byggja upp heimili sitt, fyrst hérna heima og síðan til bráða- birgða í Arhus. Hún kom heim í haust og ætlaði aðeins að dvelja í stuttan tíma, en haustið varð að vetri, meðan Sig- rún Edda háði harða baráttu við þann sjúkdóm sem sigrar alltof marga um síðir. Hún lést laugardaginn 22. janú- ar á Landspítalanum. Sigrún Edda hafði svo mikið að lifa fyrir, hún átti svo marga sem henni voru kærir og hún átti eftir að gera svo margt. Við gátum öll lært af Sigrúnu Eddu og dáðst af öllu hjarta að hennar óbugandi lífsvilja og kjarki. En í okkar mannlega breysk- leika finnst okkur brotthvarf hennar óréttlátt og skiljum ekki tilgang máttarvaldanna. Við þökkum elsku Sigrúnu fyrir MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 1983 23 samfylgdina. Minningin um hana er falleg en full af trega og sökn- uðu. Erna Guömarsdóttir í dag verður hún kvödd. Hún var fædd í Reykjavík og ólst upp fyrstu árin þar með móður sinni og stjúpföður, en þau eru Rut Sig- urhannesdóttir og Sigurður St. Bjarnason. Seinna fluttu þau í Kópavog og hafa átt þar heima síðan og Kópavogur var heima- bærinn í hennar huga. Hún vann að námi loknu við ýmis störf, m.a. verslunar- og skrifstofustörf. Á árunum 1975—77 stundaði hún flugfreyju- starf, fyrst hjá Sunnu og síðan Arnarflugi, það var hennar fasta- starf fyrst í stað, en á fyrrihluta ársins ’76 hóf hún að vinna á skrifstofu Hagtryggingar og síðan Samvinnutrygginga til ársins 1980. Þessi ár vann hún jafnframt við flugfreyjustarfið eins og tími leyfði, flaug meðal annars leigu- ferðir flestar helgar. Sigrún giftist í september 1978, Kristjáni Helgasyni, rafvélavirkja og þau stofnuðu heimili sitt í Kópavogi þar sem þau bjuggu til ársins 1980. Þá tóku þau sig upp og fluttu til Danmerkur og hafa átt þar heima síðan. Kristján stundar þar nám í tækniskóla en hún vann að mestu við hótelstörf, við gestamóttöku. Þannig er í fáum orðum hægt að segja frá lífshlaupi þessarar ungu konu sem við höfum nú séð á bak. Hún kom inn í fjölskyldu okkar fyrir rúmlega sjö árum og varð okkur öllum strax einkar kær og ég á satt að segja nokkuð erfitt að þurfa að mæla henni kveðjuorð. Það sækja að minningar um margar samverustundir og skemmtileg atvik en í návist henn- ar var oftast skemmtilegt. Nokkur ár eru nú síðan vart varð hjá Sigrúnu þess sjúkleika sem hún hefur nú lotið fyrir, hinn bleiki bani hefur borið af henni sigurorð. Þó er eins og okkur finnist tor- velt að trúa því að dauðinn hafi sigrað. Okkur finnst að sigur hennar hafi verið mikill, hún lét aldrei í ljós ótta eða uppgjöf, allt- af ljómaði hún af ánægju og lagði á ráð um framtíð, sem við þó óttuðumst að gæti farið á annan veg en hún lét uppi. Dugnaður hennar í erfiðum veikindum hefur orðið okkur, og þó sérstaklega Kristjáni, miklum mun léttbærari þrátt fyrir að svona hlaut að fara að lokum. Þetta er búið að vera okkur dimmur og kaldur vetur, illviðra- samur og vondur. Þó var gott veð- ur morguninn sem ég var að koma þessum minningarorðum á blað. Morgunskíman var dauf, en hún var fallega lýst kapellan í Suður- hlíðum og lituðu gluggarnir brugðu birtu fram á götuna. Það væri í anda hennar, sem alltaf brá birtu á líf okkar ef dagurinn í dag mætti líka vera bjartur og fagur. H.K.O. Ingólfur Karls- son - Kveðjuorð Fæddur 2. júlí 1924 Dáinn 29. desember 1982 Ingólfur Karlsson lést í Borg- arspítalanum aðfaranótt 29. des- ember, eftir langt og strangt sjúkdómsstríð. Mig langar að minnast mágs míns með nokkrum fátæklegum orðum og þakka honum fyrir allar ánægjustundirnar, sem ég og fjöl- skylda mín fengum notið á heimili hans og konu hans, Vigdísar Magnúsdóttur, í Grindavík. Það er svo margt sem hægt væri að segja, en ég vildi nota þessar línur til þess að þakka honum allt það góða í minn garð og þakka ég fyrir að hafa mátt kynnast hon- um. Ég bið góðan Guð að styrkja eft- t Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö viö fráfall móður okkar, ÞÓRDÍSAR TORFADÓTTUR, Kirkjuvegi 7, Keflavík. Torfi Stefánsson, Nanna Stefánsdóttir, Ástríöur Siguröardóttir. irlifandi eiginkonu hans, börn og barnabörn. Sóley Sigurjónsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.