Morgunblaðið - 28.01.1983, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 28.01.1983, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 1,9^, m Bridgehátíð BR og Flugleiða hefst 1 kvöld STÓRMÓT Bridgefélags Keykjavíkur hefst í kvöld í Kristalsal Hótel Lóftleiða kl. 19.30. l>etta er tvímenningskeppni með barómeterútreikningi, og taka 44 pör þátt í kcppninni, þar af 13 pör frá Danmörku, Bretlandi, Bandaríkjunum og Kanada. Erlendu gestirnir á mótinu eru allt víófrægir spilarar; frá Bandaríkj- unum koma Sontag og Larsen; frá Kanada þeir Mittleman og Molson; frá Bretlandi Sowter og Lodge ásamt Forrester og Brock; og loks eru það Danirnir Möller og Blakset, Werdelin og Auken, K. Möller og Kalderup. Alan Sontag, höfund Power Breta í heimsmeistarakeppninni í Precision-kerfisins, þekkja margir spilarar hér á landi, en hann kom hingað á stórmótið í fyrra og vann það með félaga sínum Weichsel. Þá varð Kanadamaðurinn Mittlemann heimsfrægur í haust, þegar hann vann, varð heimsmeistari í bland- aðri parakeppni (mixed pairs) ásamt Diane Gordon. Bretarnir Sowter og Lodge spiluðu í liði Rye, New York, í haust, og Sowter er ritstjóri breska bridgeblaðsins Popular Bridge. Danirnir Steen Möller og Stig Verdelin eru íslend- ingum að góðu kunnir. Þeir hafa margoft komið til landsins, bæði á stórmót og Norðurlandamót. Spilað verður í kvöld til kl. 24.00, en á morgun verður byrjað kl. 10.00 og er áætlað að mótinu ljúki kl. Danirnir voru fyrstir til landsins af erlendu keppendunum á bridgehátíðinni. Hér er danski hópurinn samankominn á Hótel Loftleiöum. Frá vinstri: Lars Blakset, Stig Werdelin, Steen Möller og Jens Auken. 18.00. Þá verða verðlaun afhent, en þau eru samtals $5000, þar af $1400 fyrir fyrsta sætið og $1000 fyrir annað sætið. A sunnudaginn kl. 13.00 hefst svo stórmót Flugleiða, sem er sveita- keppni með þátttöku 24 sveita. Spilað verður í 3 riðlum, 10 spila leiki. Tvær efstu sveitirnar í hverj- um riðli spila svo í undanúrslitum á mánudeginum, í tveimur þriggja sveita riðlum, en á mánudagskvöld- ið spila sigurvegararnir úr þessari riðlakeppni úrslitaleik um 1. sætið. Verðlaun fyrir sveitakeppnina eru $1500 fyrir 1. sætið, $1000 fyrir 2. sætið og $500 fyrir það þriðja. Tvímenningurinn verður sýndur á sýningartjaldi inni í „auditori- um“, svo og sveitakeppnin á mánu- daginn. Sjallinn á Akureyri: Lausar skrúf- ur í kvöld KABARETTINN Lausar skrúfur verður sýndur t Sjallanum á Ak- ureyri í kvöld, klukkan 22. Matur verður framreiddur frá klukkan 19, og geta kabarettgestir pantað borð í síma Sjallans í dag. Að lok- inni sýningu verður síðan stiginn dans eins og aðra föstudaga. (FrétUlilkynninii). Vertu öruggur — Við yfirförum allt gangverk og gerum lagfæringar, ef þörf er á. Kaupendur notaðra bíla! Við bjóðum ÍTI3ZD3 öryggi Því fylgir jafnan nokkur áhætta að kaupa notaða bíla. * Astand þeirra er mjög mismunandi og í þeim geta leynst gallar, sem ekki koma í ljós fyrr en vikum, eða jafnvel mánuðum eftir kaup, og þá getur oft verið erfitt að fá skaðann bættan. En þegar þú kaupir notaðan MAZDA bíl hjá okkur, þá átt þú þetta ekki á hættu, því að allir notaðir MAZDA bílar, sem við seljum eru yfirfarnir gaumgæfilega á verkstæði okkar og allar lagfæringar gerðar, sem þörf er á. Þú getur því verið fullviss um að bíllinn er í fullkomnu lagi. Bílnum fylgir síðan ábyrgð í 6 mánuði og færð þú í hendur ábyrgðarskírteini því til staðfestingar. Því miður hafa of margir verið óheppnir í kaupum á notuðum bíl. Firrtu þig því óþarfa áhættu — kauptu notaðan MAZDA með 6 mánaða ábyrgð. ÖRYGGI í STAÐ ÁHÆTTU! mazDa BÍLABORG HF Smiöshöföa 23 sími 812 99

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.