Morgunblaðið - 28.01.1983, Side 26

Morgunblaðið - 28.01.1983, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR 1983 „Ef þú hefur réttu hlutina við hendina, er sama hvar þú ert.“ I>annig hljóðar sjónvarpsauglýsing sem margir kannast vafa- laust við frá velþekktu og gamalgrónu fyrirtæki í Reykjavík, Pennanum s/ f. Þetta eru sennilega nokkrar ýkjur, a.m.k. er varla mikið vit í því að sinna skrifstofustörfum úti á miðjum flugvelli um hávetur, jafnvel þótt maður sé vel búinn skrif- stofugögnum. En auglýsing er nú einu sinni auglýsing, og um hitt getur engum blandast hugur að Penninn hefur um all- langt skeið verið í fremstu röð fyrirtækja sem versla með ritföng og skrifstöfugögn hér á landi. Penninn starfrækir þjrár verslanir í Reykjavík, í Hallarmúla 2, að Laugavegi 84 og í Hafnarstræti 18. Verslunin í Hallarmúla er flaggskip fyrirtækisins, en þar er verslað á 650 m2 á fjórum deildum, ritfangadeild, bókadeild, myndlistardeild og skrifstofuhús- gagnadeild. I Hallarmúla er einnig heildsala fyrirtækisins, sem er mjög umfangsmikil, auk vörulagers og skrifstofu. Þann 22. desember á sl. ári átti Penninn hálfrar aldar afmæli, en fyrirtækið var stofnað árið 1932 af bræðrunum Halldóri og Baldvini Ðungal. Halldór hætti hins vegar fljótlega afskiptum af fyrirtækinu og frá árinu 1937 rak Baldvin Pennann einn til dauðadags, árið 1969. Penninn s/ f er nú í eigu ekkju Baldvins, Margrétar Dung- als og barna hennar. Forstjóri Pennans er Gunnar B. Dungal, sonur Baldvins, en hann tók við fyrirtækinu að föður sínum látn- um. Blaðamaður Morgunblaðsins hitti Gunnar að máli fyrir skömmu og rabbaði við hann um afmælisbarnið. Aukin umsvif með árunum — Gunnar, nú hefur vafalaust mikið blek runnið til pappírs á þessum 50 árum sem Penninn hef- ur lifað. Hefur starfsemin breyst mikið í tímans rás? „Sumt hefur breyst, annað ekki. Ánægjulegasta breytingin er sú að fyrirtækið hefur vaxið og dafnað hægt og örugglega. Nú starfa við fyrirtækið um 50 manns í þremur verslunum og við umfangsmikla heildverslun. En þegar Penninn var stofnaður á sínum tíma var hann til húsa í einni verslun í gamla Ingólfshvoli. Önnur breyting er sú að fyrir- tækið hefur tekið upp nýjar deild- ir og lagt niður aðrar sem áður skipuðu veglegan sess í rekstrin- um. Það fyrirtæki sem faðir minn og Halldór stofnuðu á sínum tíma var í rauninni þríþætt: Auk þess að reka pappírs- og ritfangaversl- un voru þeir með minjagripasölu og ferðaskrifstofu. Ferðaskrifstof- an og minjagripaverslunin voru fljótlega lagðar af. Þá var á tíma- bili prentun og sala póst- og jóla- korta stór þáttur í starfseminni, en nú hefur stórlega dregið úr þeim þætti. Sama gildir um jóla- pappír, eldhúsrúllur, munnþurrk- ur, álpappír o.fl. þess háttar. Þess- ar vörur eru nú á boðstólum í hverri matvörubúð og því hefur mjög dregið úr verslun Pennans með þær. Þá hefur undanfarið verið mikill samdráttur í sölu bók- haldsbóka vegna tölvutækninnar. En til að bæta upp þær vöruteg- undir sem við höfum misst í gegn- um árin höfum við auðvitað leitast við að bæta nýjum við. Við höfum sett upp þrjár nýjar deildir síðan við fluttum í Hallarmúlann, myndlistardeild, bókadeild og skrifstofuhúsgagnadeild. Þetta gátum við gert vegna þess aukna svigrúms sem við fengum við að komast í þetta stóra húsnæði. Og þann 20. nóvember sl. var opnuð bókadeild í versluninni í Hafnar- stræti, og innréttingunni gjör- breytt. Auk þess hefur heildversl- unin vaxið mjög á seinni árum. Einn þáttur hefur þó alla tíð verið óbreyttur í starfsemi Penn- ans, en það er verslunin með rit- föng og pappír. Og ritfangasalan hefur alltaf verið veigamesti þátt- urinn í rekstrinum. Og þó að dreg- ið hafi úr sölu bókhaldsbóka og eyðublaða, eins og ég nefndi áðan, vegna aukinnar tölvuvæðingar fyrirtækja, mætum við þeirri þróun með nýjum ritföngum í staðinn. Við seljum fyrirtækjum möppur fyrir tölvuútskriftir, geymslubox fyrir diskettur og ör- filmur, að ógleymdum lita- og leiðréttingaborðum í flestar gerðir ritvéka, og ljósritunarpappír. Þannig höldum við áfram að þjóna Forstjóri Pennans, Gunnar B. Dungal í skrifstofuhúsgagnadeildinni í Hallarmúlanum. skrifstofum þótt starfsemi þeirra breytist og vélvæðing eða tölvu- væðing aukist, og kostum kapps um að hafa allar skrifstofunauð- synjar á boðstólnum á einum stað.“ Mikil söluaukning á skrifstofu- húsgögnum — Penninn er býsna stórt fyrir- tæki. Hver var veltan á síðasta ári? „Við seldum fyrir 63 milljónir á síðasta ári. Ritföngin voru þar stærsti pósturinn, eins og áður Verslanir Pennans Penninn 50 ára: „Kostum kapps um að hafa allar skrifstofunauðsynjar“ — segir Gunnar B. Dungal forstjóri Pennans í síðbúnu afmælisviðtali

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.