Morgunblaðið - 28.01.1983, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. JANÚAR ^
27
sagði, en mesta söluaukningin var
í skrifstofuhúsgagnadeildinni. Við
seldum tæplega 3.000 skrifstofu-
stóla á árinu. Þá hefur bókadeild-
in dafnað vel og er að verða stór
liður í rekstrinum."
— Tæplega 3.000 skrifstofustól-
ar, segirðu. Hverju þakkarðu
þessa miklu sölu?
„Ætli það sé ekki fyrst og
fremst gæði stólanna sem ræður
úrslitum. Við bjóðum nær ein-
göngu upp á stóla sem hannaðir
eru með vinnuvernd í huga. Þetta
eru t.d. stólar sem hannaðir eru af
þýska fyrirtækinu Drabert. At-
vinnurekendur eru nú í vaxandi
mæli að gera sér grein fyrir því að
vellíðan starfsmanna er eitt af
grundvallarskilyrðum þess að
menn leysi sitt starf vel af hendi.
Og það gefur auga leið að stóllinn
sem fólk situr á kannski átta tíma
á dag, ræður miklu um það hvern-
ig líðanin er. Þess vegna eiga at-
vinnurekendur að kosta kapps um
það að hafa stólana sem besta og
gera það margir hverjir nú orðið.
En það eru sennilega fleiri skýr-
ingar á því hvers vegna skrifstofu-
húsgagnadeildin dafnar svo vel
sem raun ber vitni. Það skiptir
viðskiptavinina t.d. miklu máli að
geta keypt næstum allt á skrif-
stofuna á einum og sama staðnum.
Það sparar bæði tíma og fyrir-
höfn. Og annað til, fólk sem kemur
í Hallarmúlann í einhverjum öðr-
um erindum en að kaupa skrif-
stofuhúsgögn notar gjarnan tæki-
færið til að litast um í skrifstofu-
húsgagnadeildinni. Það veit þá
hvað er á boðstólum og kemur til
okkar seinna þegar það er í þeim
hugleiðingum að kaupa skrifstofu-
húsgögn. Raunar má segja að all-
ar deildir Hallarmúlans njóti góðs
hver af annarri á þennan hátt.“
Sá græni
á vinninginn
— Hvaða pennar eru vinsælast-
ir af þeim sem þið bjóðið upp á?
„Ég held að það sé enginn vafi á
því að „sá græni“ á vinninginn,
þ.e.a.s. Ball Pentel kúlutússpenn-
arnir. Það lætur nærri að við höf-
um selt einn slíkan penna á hvert
mannsbarn á landinu sl. ár. Maður
veltir því fyrir sér með hverju fólk
eiginlega skrifaði áður. Við höfum
alla tíð flutt inn ódýra kúlupenna,
en salan í þeim hefur aldrei verið
nein að ráði. Ball Pentel pennarnir
virðast því ekki aðeins hafa komið
í stað ódýrra kúlupenna, heldur
hafa þeir, og ekki síður, leyst dýr-
ari penna af hólmi, bæði blek- og
kúlupenna."
— Maður hefur það á tilfinn-
ingunni að kúlutússpennarnir hafi
lagt undir sig markaðinn strax
fyrsta daginn sem þeir sáust í
búðum.
„Það er rétt, Ball Pentel penn-
arnir seldust fljótlega mjög vel.
Nú hefur samkeppnin harðnað og
fleiri tegundir kúlutússpenna eru
komnar á markaðinn. Én það er
alltaf verið að leita að einhverju
nýju á þessu sviði sem öðrum.
Undanfarið hefur japanska fyrir-
tækið Pentel sem framleiðir Ball
Pentel verið að senda frá sér ýms-
ar nýjar tegundir penna. Má þar
nefna kúlutússpenna með stáloddi
og einnig svokallaða fjaðurpenna,
sem eru einnota sjálfblekungar.
Ólíkur svipur
eftir árstímum
Manni virðist sem Penninn setji
upp ólík andlit eftir árstímum. Er
ekki eitthvað til í því?
„Það er heldur sterkt að orðið
kveðið að tala um ólík andlit, það
væri nær að segja að andlit Penn-
ans breytti svolítið um svip eftir
árstímum, nánar tiltekið fjórum
sinnum á ári. Sumrin eru alltaf
daufasti tíminn. En strax og
haustar tekur Penninn á sig
sterkan skólasvip; þá leggjum við
mesta áherslu á skólavörur af öllu
mögulegu tagi og miðum auglýs-
ingarnar við það. Næsta vertíð er
svo jólahátíðin, þá breytist Penn-
inn í hálfgerða gjafavörubúð, auk
þess sem við bjóðum upp á jóla-
pappír, jólakort og fleiri vörur
sem tengjast jólaundirbúningn-
um.
Strax að jólunum loknum tök-
um við svo niður jólasveinaandlit-
ið og janúar er tími uppgjörs og
endurskoðunar. Þá bjóðum við upp
á dagbækur, bréfabindi og bók-
haldsgögn í ríkum mæli. Þegar
nær dregur vorinu er síðan orðið
tímabært að setja fermingargjaf-
irnar á oddinn, vönduð pennasett,
leðurvörur, bækur og skrifborðs-
stóla. Þannig má segja að við hög-
um seglum talsvert eftir vindi,
setjum þær vörur í eldlínuna sem
mesta eftirspurnin er eftir á
hverjum tíma.“
Mun Penninn halda áfram um
ókomna framtíð að sjá skriffinn-
um þjóðarinnar fyrir viðeigandi
útbúnaði?
„Auðvitað. Við munum halda
okkar Pennastriki og hyggjumst
færa enn út kvíarnar á komandi
árum. Fyrirtækið er t.d. núna að
byggja verslunarhúsnæði í Mjódd-
inni í Breiðholti, en þar verður rit-
fanga- og gjafavöruverslun. Okkar
markmið er að halda sífellt áfram
að leita að nýjum vörum, þ.e.a.s.
auka þjónustuna, en jafnframt að
vera íhaldssamir á þær vörur sem
við höfum fyrir."
Sextugur:
Arnfinnur Arnfinns-
son hótelstjóri
Arnfinnur hótelstjóri Arn-
finnsson er sextugur í dag.
Arnfinnur er af vestfirskum
ættum. Foreldrar hans voru Arn-
finnur Jónsson og kona hans, Jak-
obína Jakobsdóttir.
Kornungur fer Arnfinnur í
Miðdal í Bolungarvík til fósturfor-
eldra sinna, Helga Eiríkssonar og
Guðrúnar Ólafsdóttur, og hjá
þeim dvelst hann til 1948 en flyst
þá til Akureyrar.
A Akureyri tók Arnfinnur
drjúgan þátt í verkalýðsbarátt-
unni og var um skeið ritari og
varaformaður Iðju, félags verk-
smiðjufólks á Akureyri. A þessum
árum var Arnfinnur starfsmaður
KEA en 1946 varð breyting á hög-
um hans. Þá gerðist hann starfs-
maður Góðtemplarareglunnar og
1970 framkvæmdastjóri Hótels
Varðborgar. Það er á þeim vett-
vangi sem leiðir okkar hafa legið
saman, á þingum bindindismanna,
á barnastúkumótum á Þelamörk
og síðast en ekki síst á heimili
hans og Elínar Sumarliðadóttur,
konu hans. Og alls staðar hefur
Arnfinnur verið hinn glaðværi
bjartsýnismaður. Kannski dálítið
uppi í skýjunum en oftast hress og
kátur.
Lifðu heill og lifðu lengi.
H.J.
MESSUR Á LANDSBYGGDINNI
Messur um helgina
GRUNDARFJARÐARKIRKJA:
Almenn guösþjónusta á sunr.u-
daginn kl. 14. Sr. Gísli H. Kolb-
eins.
ESKIFJARÐARKIRKJA: Messa
nk. sunnudag kl. 10.30. Sókn-
arprestur.
REYDARFJARDARKIRKJA:
Messa sunnudag kl. 14. Sókn-
arprestur.
EGILSST ADAKIRK JA: Sunnu-
dagaskóli nk. sunnudag kl. 11 og
messa kl. 14. Sóknarprestur.
SEYÐISFJARÐARKIRKJA: Á
morgun, laugardag, kirkjuskóli
Guöspjall dagsins:
Matt. 20.: Verka-
menn í víngaröi.
kl. 11. Messa sunnudag kl. 11.
Altarisganga. Organisti Sigur-
björg Helgadóttir. Sr. Magnús
Björnsson.
VIKURPRESTAKALL: Kirkju-
skólinn í Vík á morgun, laugar-
dag, kl. 11. Samvera fyrir aldr-
aöa í Leikskálum þann sama dag
kl. 12 á hádegi.
SKEIDFLATARKIRKJA: Fjöl-
skylduguösþjónusta á sunnudag-
inn kl. 14. Organisti Kristín
Björnsdóttir. Sóknarprestur.
ODDAKIRKJA: Guósþjónusta á
sunnudaginn kl. 14. Organisti frú
Anna Magnúsdóttir. Sr. Stefán
Lárusson.
HELLUSKÓLI: Barnamessa á
sunnudaginn kl. 11. Sr. Stefán
Lárusson.
ÞINGVALLAKIRKJA: Almenn
safnaöarguösþjónusta kl. 14.
Organisti Einar Sigurösson.
Sóknarprestur.
""iTtT
Á Þorláksmessu var dregið í happdrætti Styrktarfélags vangefinna og voru vinningsnúmer birt í dagblööum og
útvarpi milli jóla- og nýárs. Enn er einn vinningur ósóttur á miða nr. 69420, húsbúnaður fyrir kr. 30. þús.
Aðalvinninginn, Saab Turbo, árgerð ’83, hlaut Ástbjörg Þóra Erlendsdóttir, Reykjavík. Myndin er frá afhendingu
vinningsins.
Alvarlegt mál, að Norræna hús-
ið skuli aðhyllast ritskoðun
— segja Norðmennirnir, sem tóku niður sýningu sína í Norræna húsinu
EINS og fram hefur komið í fréttum Morgunblaðsins, voru tveir Norðmenn
með Ijósmyndasýningu í Norræna húsinu, sem hófst 15. janúar og átti að
standa til 30. þcssa mánaðar. Þann 18. tóku þeir sýninguna hins vegar niður
og hurfu af landi brott, eftir að ágreiningur milli þeirra og forstöðumanna
Norræna hússins hafði komið upp.
Vegna þessa hefur Morgunblað-
inu borizt athugasemd frá Norð-
mönnunum, Göran Odldieck og
Kjetil Berge. Segir þar meðal ann-
ars, að sýningin hafi verið opnuð
þann 15. eins og ráð hefði verið
gert fyrir, en á mánudag 17. hafi
verið búið að taka niður litskyggn-
ur á sýningunni án vitundar
þeirra, en ætlunin hafi verið að
þær yrðu á sýningunni frá upphafi
til enda. Vegna þessa snéru þeir
sér til forstöðumanns hússins,
Ann Sandelin, sem sagði að hún
vildi ekki hafa þær á sýningunni,
sagði að innihald þeirra væri of
kynferðislegt og gæti haft þau
áhrif á fólk að það skaðaði Nor-
ræna húsið. Tók hún einnig fram
að kynferðislegt ívaf ýmissa
ljósmyndanna væri of mikið en
litskyggnurnar hefðu verið drop-
inn sem fyllti mælinn. Þær væru
óþarflega ögrandi.
Við sögðum að sýningin væri
með kynferðislegu ívafi vegna
þess að þannig væri sjónarhorn
okkar til umhverfis okkar, en það
hefði ekki verið ætlun okkar að
myndirnar væru ögrandi eða inni-
héldu kynferðislegan áróður.
Litskyggnurnar, sem bannaðar
voru, sýndu leik með hin venju-
bundnu hlutverk kynjanna, þar
sem maðurinn var með andlits-
farða og konan bindi. Bæði eru
fullklædd allan timan og leikurinn
fer fram á rúmstokknum og sýnir
aðdraganda ástarleiks. Staðreynd-
in er sú að leikurinn gengur aldrei
lengra og er ætlaður sem háð á
hin venjubundnu hlutverk kynj-
anna. Ögrunina í þessum lit-
skyggnum höfum hvorki við né
aðrir, sem hafa séð þær, komið
auga á. En alvarlegasti þáttur
þessa máls er ritskoðun Norræna
hússins. Þar sem okkur var ekki
kleift að sýna allar myndirnar
ákváðum við að taka sýninguna
niður, segja þeir félagar.