Morgunblaðið - 06.03.1983, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MARZ 1983
Lesning Morgunblaös-
ins á höfuðborgarsvæði:
3,6 prósentu-
stiga aukning
milli kannana
IJM 85,01% íbúa höfuðborg-
arsvæðisins lesa Morgun-
blaðið á virkum dögum, sam-
kvæmt niðurstöðum fjöl-
miölakönnunar Sambands ís-
lenzkra auglýsingastofa.
Aukning á lesningu blaðsins
frá síðustu könnun, sem
framkvæmd var í febrúar og
marz 1981 er tæplega 3,6 pró-
sentustig, eða úr 81,43%.
Lesning Tímans hefur dregizt
saman um 0,71 prósentustig milli
kannana, úr 26,29% í 25,58%.
Samdrátturinn hjá Þjóðviljanum
er 5,52 prósentustig, úr 25,72% í
20,20%. Samdrátturinn hjá Al-
þýðublaðinu er 3,13 prósentustig,
úr 8,66% í 5,53%. Ekki er hægt að
gera samanburð á lesningu Dag-
blaðsins & Vísis, þar sem blöðin
voru tvö við síðustu könnun.
Ef litið er á landið í heild hefur
lesning Morgunblaðsins aukizt um
3,25 pósentustig, úr 66,58% í
69,83%. Lesning Tímans hefur
aukizt um 1,16 prósentustig, úr
27,87% í 29,03%. Lesning Þjóðvilj-
ans hefur dregizt saman um 3,04
prósentustig, úr 19,3% í 16,26%.
Lesning Alþýðublaðsins hefur
dregizt saman um 2,46 prósentu-
stig, úr 6,16% í 3,7%.
Ef litið er á áskriftir á höfuð-
borgarsvæðinu er Morgunblaðið
með 74%, DV með 49%, Þjóðvilj-
inn með 10,2%, Tíminn með 9,2%
og Alþýðublaðið með 2,3%. í
dreifbýli er Tíminn stærstur með
49,7%, DV með 29%, Morgunblað-
ið með 28,1% og Alþýðubiaðið með
1,3%.
Sjá forystugrein Mbl. í dag.
■Hnpif
• ... ' . : ; .
Strandið hefur
áhrif á atvinnu-
líf í Bolungarvík
Frá fundi SÁÁ-manna á Bolungarvík, þar sem meðal annars var gerð grein
fyrir hinni miklu sjúkrastöð, sem SÁÁ er nú að reisa á Stórhöfða í Reykjavík.
Fræðslufundir SÁÁ:
Farið um Vestfirði, Aust-
urland og Vestmannaeyjar
Holungarvík, 3. marz.
ÞAR sem svo skammt er um liðið
síðan sá atburður varð, að Hafrún
strandaði hafa menn að vonum lítt
velt fyrir sér áhrifum þess á atvinnu-
líf í Bolungarvík. Öllum Bolvíkingum
er efst í huga þakklæti vegna þess að
áhöfn Hafrúnar komst svo giftusam-
lega, sem raun ber vitni, frá þessum
mannraunum.
Það er ljóst að Hafrún hefur átt
sinn þátt í að halda uppi stöðugri
atvinnu við fiskvinnsluna hér á
staðnum. Til að mynda fiskaði
skipið nokkuð á annað hundrað
tonn í síðasta mánuði. Eins og
fram hefur komið var 11 manna
áhöfn á Hafrúnu, en auk þess skap-
aði rekstur skipsins mörgum öðr-
um vinnu svo sem við viðhald þess
og við viðhald veiðarfæra. Héðan
eru gerð út tvö togskip, auk all-
margra minni báta.
Menn binda vonir við að takast
muni að gera einhverjar þær ráð-
stafanir, sem hamla gegn áhrifum
þess, að Hafrún fer nú úr rekstri.
— Gunnar
STARFSMENN og félagar í SAA hafa
verið á ferð og flugi um landið nú um
helgina, til að kynna starfsemi Samtak-
anna, baráttuna við áfengisvandann og
til að vekja athygli á fjársöfnun vegna
byggingar nýrrar sjúkrastöðvar. Önnur
frönsku þyrlanna var fengin til aðstoð-
ar við ferð um Vestfirði á föstudag, og
einnig verður farið um Austfirði og til
Vestmannaeyja.
Á Vestfjörðum var komið við í
Bolungarvík, ísafirði og Suðureyri.
Á Austfjörðum er komið við á Eg-
ilsstöðum, Seyðisfirði, Neskaupstað
og Fáskrúðsfirði. Að sögn Valdimars
Jóhannssonar hjá SÁÁ hafa alls
staðar verið gagnlegar umræður á
fundunum og þeir tekist vel, og
fyrirlesurum SÁÁ verið afar vel tek-
ið. „Við erum mjög ánægð með þess-
ar móttökur," sagði Valdimar, „og
óski fólk þess, erum við reiðubúin að
fara hvert á land sem er til funda-
halda um áfengisvandamálið og þær
lausnir sem SAÁ hefur bent á í bar-
áttunni við vandamálið."
Sjálfstæðis- og Alþýðuflokksmenn:
Frumvarp um byggingu flug-
stöðvar á Keflavíkurflugvelli
Leiðrétting
SÚ meinlega villa slæddist inn í
fyrirsögn Mbl. í gærdag, um hlut-
fall 13—15 ára lesenda blaðsins,
samkvæmt fjölmiðlakönnun Sam-
bands íslenzkra auglýsingastofa,
að sagt var að hlutfallaði væri
66,28%. Hið rétta er, að hlutfallið
er 70,08%. Biðst blaðið velvirð-
ingar á þessum mistökum.
LAGT hefur verið fram á Alþingi
frumvarp til laga um flugstöð á Kefla-
víkurflugvelli og segir í frumvarpinu
að ríkisstjórnin láti reisa og starf-
rækja flugstöð fyrir farþega- og vöru-
afgreiðslu á Keflavíkurflugvelli og
skuli stöðin vera algerlega aðskilin
frá mannvirkjum Varnarliðsins. Skal
tryggja stöðinni landrými, svo þar geti
síðar risið aðrar byggingar til sömu
eða skyldra þarfa, svo sem til sam-
gönguæða að og frá flugstöðinni.
Flutningsmenn frumvarpsins,
þau Salóme Þorkelsdóttir og Eyj-
Inga, stýrimaður á ms. Keflavík, klæðir sig ( flotbúning.
íslenzk björgunaræfing
á portúgölskum fljótum
IJM SÍÐUSTU áramót vildi svo
skemmtilega til, að íslenzku skipin
Suðurland, Keflavfk og Eldvík voru
öll inni á sama tíma í bænum Aveiro
í l’ortúgal. Öll voru þau að losa
saltfi.sk frá (slandi í þessari portú-
gölsku hafnarborg.
Ásgrímur S. Björnsson, erind-
reki Slysavarnafelags íslands, var
stýrimaður á Suðurlandinu í þess-
ari ferð. Hann hafði tekið með sér
gúmmíbjörgunarbát þann, sem
SVFÍ á og notar við kennslu vítt
og breitt um landið og einnig
nokkra flotbjörgunarbúninga,
sem félagið hefur að láni frá um-
boðinu til að kynna ágæti þeirra
fyrir sjómönnum, ef það gæti orð-
ið til að flýta fyrir lögskipan
þeirra um borð í íslenzkum skip-
um, eins og Hannes Hafstein,
framkvæmdastjóri SVFÍ, orðaði
það í samtali við Morgunblaðið.
Ásgrími gafst þarna kærkomið
tækifæri til að halda björgunar-
æfingu og kynningu með áhöfnum
skipanna þriggja og fóru æf-
ingarnar fram á fljótum.
ólfur Konráð Jónsson, þingmenn
Sjálfstæðisflokksins og Kjartan
Jóhannsson og Karl Steinar Guðna-
son, þingmenn Alþýðuflokksins.
í frumvarpinu segir, að stofna
skuli Byggingarsjóð flugstöðvar
sem lúti sérstakri stjórn sem utan-
ríkisráðherra skipar og skal stjórn-
in jafnframt hafa umsjón með und-
irbúningi og framkvæmd verksins.
Sjóðurinn á að hafa sjálfstæðan
fjárhag, en tekjur hans eiga að vera
þessar, þrátt fyrir ákvæði annarra
laga: 1) 50% af innheimtu flugvall-
argjalds á Keflavíkurflugvelli. 2)
Hagnaður af fríhöfninni. 3) Hagn-
aður af sölu varnarliðseigna. 4)
50% af lendingargjöldum á Kefla-
víkurflugvelli. 5) Hagnaðarhluti
ríkissjóðs af starfsemi íslenskra
aðalverktaka.
Þá er í frumvarpinu kveðið á um
heimild til utanríkisráðherra til að
gera samninga við bandarísk
stjórnvöld um þátttöku þeirra í
kostnaði við byggingu stöðvarinnar,
gerð athafnasvæðis vegna hennar
og um not Varnarliðsins af henni á
ófriðar- eða hættutímum. Utanrík-
isráðherra á ennfremur að skipa
byggingarnefnd og taka endanlegar
ákvarðanir um gerð stöðvarinnar.
Flugstöðin verði undanþegin öllum
sköttum og opinberum gjöldum og
allt efni vegna smíðinnar verði und-
anþegið aðflutningsgjöldum.
I greinargerð með frumvarpinu
kemur fram að á síðasta þingi hafi
Geir Hallgrímsson og Benedikt
Gröndal flutt frumvarp um þetta
efni, en það hafi ekki verið útrætt.
Nú sé það frumvarp endurflutt í
nokkuð breyttri mynd og sé veiga-
mesta breytingin sú að gerð sé til-
laga um stofnun sérstaks bygg-
ingarsjóðs fyrir flugstöðina og sjóð-
inum tryggðir ákveðnir tekju-
stofnar til verkefnisins.
Hafrún
er tal-
in ónýt
Bolungarvík, 4. marz.
SAMKVÆMT upplýsingum
manna á strandstað í morgun, er
Hafrún talin ónýt. Önnur síðan er
þegar úr skipinu og það er þegar
farið að ganga saman á mörgum
stöðum, s.s. skilrúm og fleira.
íbúðirnar eru á kafi í sjó og
gengur sjór upp alla ganga.
Björgunarsveitin frá Bolung-
arvík mun í dag reyna að bjarga
þeim tækjum og verðmætum,
sem tök eru á. Veður er ágætt
til verksins og spáin er þokka-
leg.
í morgun fóru 5 björgunar-
sveitarmenn á sleðum út í
Skálahlíð, en þaðan er 20—30
mínútna gangur á strandstað.
Með björgunarsveitarmönnum
voru á ferð fulltrúar Trygginga-
miðstöðvarinnar, Björgunar hf.
og Sjódóms. Þá fóru fimm
björgunarsveitarmenn sjóleið-
ina í Stigahlíð í morgum, en
urðu að snúa frá.
Sjópróf fara síðan væntan-
lega fram seinnipartinn í dag.
— Gunnar.
Skaftafellsmál-
ið til saksóknara
Rannsóknarlögregla ríkisins hefur
sent ríkissaksóknara Skaftafellsmálið
svokallaða, en það er mál Grétars Sig-
urðar Árnasonar, sem viðurkennt hef-
ur að hafa orðið franskri stúlku að
bana í Skaftafelli síðastliðið sumar.
Næsta stig í meðferð málsins verður
að ríkissaksóknari mun birta ákæru,
en síðan verður málið flutt fyrir undir-
rétti.
Grétar Sigurður hefur setið í
gæsluvarðhaldi allt frá 19. ágúst
síðastliðnum og hefur rannsókn
málsins staðið yfir hjá rannsóknar-
lögreglunni síðan þá. Samkvæmt
upplýsingum lögreglunnar hefur
rannsókn málsins verið viðamikil.
Málverkauppboð Klausturhóla:
Verk eftir G. Blöndal, Þórarin
B. Þorláksson, Ásgrím og fleiri
Klausturhólar gangast fyrir
málverkauppboði á mánudags-
kvöld, á morgun, klukkan 20.30.
Uppboðið fer fram á Hótel Sögu,
Súlnasal, og í dag milli 14 og 18
verða listaverkin til sýnis í
Breiðfirðingabúð. Guðmundur
Axelsson í Klausturhólum sagði í
samtali við blaðamann Morgun-
blaðsins í gær, að boðin yrðu upp
um sjötíu númer, flest málverk,
en einnig handunnin teppi og út-
skorinn askur eftir Stefán Ei-
ríksson.
Meðal verka, sem boðin verða
upp að þessu sinni er Heklu-
mynd eftir Þórarin B. Þorláks-
son frá árinu 1906, olíumálverk.
Einnig olíumynd frá Húsafelli,
eftir Ásgrím Jónsson, máluð
Stúlkumynd Gunnlaugs Blöndal,
máluð í París 1930, eitt verkanna á
málverkauppboði Klausturhóla ann-
að kvöld.
1930. Enn má nefna stúlkumynd
eftir Gunnlaug Blöndal, past-
elmynd, gerð í París árið 1930.
Þá verða einnig boðin upp
verk eftir eftirtalda listamenn:
Kára Eiríksson, Sverri Har-
aldsson, Guðmund Einarsson frá
Miðdal, Svein Björnsson, Eirík
Smith, Jón Jónsson, Svein Þór-
arinsson, Einar Einarsson,
Snorra Halldórsson, Eyjólf J.
Eyfells, Sigurð K. Arnason,
Snorra Helgason, Benedikt
Gunnarsson, Ásgeir Bjarnþórs-
son, Höskuld Björnsson, Eggert
Guðmundsson, Jóhannes S.
Kjarval, Braga Hannesson, Sig-
urð Kristjánsson, Gunnar
Hjaltason, Olaf Túbals, Arnar
Herbertsson og Guðrúnu Jóns-
dóttur (Blöku).