Morgunblaðið - 06.03.1983, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MARZ 1983
37
Kveðjuorö:
Hólmfríður Guðmunds-
dóttir Siglufirði
Það var í lok októbermánaðar
sl., nánar tiltekið aðfaranótt þess
30., að Hólmfríður Guðmundsdótt-
ir fyrrum húsfreyja i Siglufirði og
síðar í Reykjavík andaðist hér í
Landspítalanum. Fregnin um lát
hennar kom fjölskyldu hennar og
vinum ekki á óvart. Mánuðum
saman hafði hún barist hetjulegri
baráttu við sjúkdóm þann er loks
leiddi hana til dauða. f þeim átök-
um sýndi hún e.t.v. gleggst hvílík-
um manndómi og kjarki hún var
gædd. Jarðsett var hún í Reykja-
vík 5. nóvember sl.
Við hjónin vorum erlendis er
okkur barst fregnin um andlát
Hólmfríðar og við gátum ekki
komið því við að fylgja henni síð-
asta spölinn, þess í stað vil ég með
þessum síðbúnu línum minnast
hennar og votta henni þakkir og
virðingu okkar, en hennar naut
hún í ríkum mæli, allra er þekktu
hana.
Hólmfríður Guðmundsdóttir
fæddist 11. apríl 1911 að Nýjabæ í
Kelduhverfi. Hún var dóttir hjón-
anna Guðmundar bónda og kenn-
ara Guðmundssonar, Guðmunds-
sonar Sveinssonar bónda á Hall-
bjarnarstöðum á Tjörnesi og Guð-
bjargar Ingimundardóttur hrepp-
stjóra frá Brekku í Núpasveit
Rafnssonar.
Guðbjörg og Guðmundur gengu
í hjónaband 1906 og bjuggu í
Nýjabæ í 27 ár eða til 1933, en það
ár andaðist Guðmundur úr
lungnabólgu langt um aldur fram
og varð öllum kunnugum harm-
dauði.
Hann var í senn góður bóndi og
kennari, sautján ára gamall var
hann sendur í Möðruvallaskóla,
var þar í tvo vetur og útskrifaðist
þaðan vorið 1898 . Guðmundur var
gáfumaður og skáldmæltur vel. Á
sl. ári var gefin út eftir hann
kvæðabókin „Kvæði og stökur".
+
Eiginkona mín og móöir okkar,
GUÐRÚN MARÍN GUDJÓNSDÓTTIR
frá Framnesi, Vestmannaeyjum,
Sporðagrunni 2, Rvk.,
er látin.
Þóröur Guöbrandsson,
Magnea Þóröardóttír, Bragi Ásbjörnsson,
Haraldur Þóröarson,
Guölaug Þóröardóttir,
Guöbrandur Þóröarson,
Guömundur Þóröarson,
Katrín Þóröardóttir Wallace,
Ragna Pálsdóttir,
Kjartan Guöjónsson,
Halldóra Siguröardóttir,
Robert T. Wallace.
+
Frændi okkar, ,
VÍKINGUR SÆVAR SIGURDSSON,
sem lóst 25. febrúar í sjúkrahúsi í London, veröur jarðsunginn frá
Fríkirkjunni í Reykjavík, þriöjudaginn 8. mars kl. 1.30.
Ágústa Vigfúsdóttir,
Anny Halldórsdóttir.
Eiginkona mín og móöir okkar,
ÓLÖF SÓLEY GUOMUNDSDÓTTIR,
Hraunbæ 50,
er lóst 24. febrúar veröur jarösungin mánudaginn 7. mars frá
Fossvogskirkju kl. 13.30.
Eyjólfur Þ. Jakobsson
og börn.
t
Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og jarö-
arför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu,
HREFNU JÓHANNESDÓTTUR
frá Hróönýjarstööum.
Hugrún Þorkelsdóttir, Jökull Sigurösson,
Inga Þorkelsdóttir, Haraldur Arnarson,
Valdís Þorkelsdóttir, Haraldur Guömundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum auösýnda samúö viö fráfall og jarðarför eiginmanns míns,
föður okkar, tengdafööur og afa,
VALGEIRS EMILSSONAR.
Steinunn Bjarnadóttir,
Bjarni H. Valgeirsson, Jónborg Valgeirsdóttir,
Helgi Th. Valgeirsson, Klara Sveinbjörnsdóttir,
Aðalsteinn Smári Valgeirsson, Sveinhildur ísleifsdóttir,
Erla Dögg Ragnarsdóttir, Magnús Helgason,
Valgeir Helgason, Jóhann Steinar Helgason,
ísleifur Aöalsteinsson.
+
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og
útför
SÓLVEIGAR MAGNÚSDÓTTUR.
Halldór Hjálmarsson, Sigþrúður Pálsdóttir,
Magnús Hjálmarsson, Ragnheiöur Þóröardóttir,
Ragnheiöur Hjálmarsdóttir, Höröur Felixson,
Ingimar S. Hjálmarsson, Sigríöur B. Ólafsdóttir,
Röfn Hjálmarsdóttir Scala, Daníel Scala,
Sólveig Hjálmarsdóttir, Einar Hákonarson,
Hlíf Hjálmarsdóttir, Jón Róbert Karlsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Útgefendur voru dætur skáldsins.
A árunum 1907 til 1916 eignuð-
ust þau hjón sex dætur, Önnu, Jó-
hönnu, Hólmfríði, Guðrúnu, Birnu
og Helgu. Nú hefur Hólmfríður
kvatt og önnur síðar, elst þeirra
systra lést föstudaginn 18. febrúar
sl. sjötíu og fimm ára að aldri. Svo
nú lifa eftir fjórar þeirra systra.
Æskuheimili þeirra í Nýjabæ ein-
kenndist af ástríki og glaðværð og
minntist Hólmfríður oft þeirra
hollráða — þess góða veganestis
er hún fékk með sér að heiman.
Árið 1932 fór Hólmfríður til Akur-
eyrar og var þar við nám og störf
á Hótel Guilfossi undir stjórn
þeirrar merku konu Rannveigar
Bjarnadóttur. Þar kynntist hún
ungum Siglfirðingi, Þórhalli
Björnssyni síðar framkvæmda-
stjóra Verslunarfélags Siglufjarð-
ar. Þau gengu í hjónaband 20. des-
ember 1923 og fluttu þá til Siglu-
fjarðar og bjuggu þar síðan í far-
sælu hjónabandi í tæp 40 ár. Árið
1973 fluttu þau til Reykjavíkur,
þar sem Þórhallur hóf störf við
Tollstjóraembættið í Reykjavík.
Einkadóttir þeirra, Anna Laufey,
fæddist í Siglufirði, býr hún nú á
Seltjarnarnesi, hún er gift Lúðvík
Lúðvíkssyni hafnsögumanni. Þau
eiga þrjár ungar dætur.
Ég kynntist Þórhalli og fjöl-
skyldu hans „snemma dags“ ef svo
mætti að orði komast. Foreldrar
Þórhalls voru vinir foreldra
minna og allnáinn samgangur var
milli heimilanna. Hólmfríður
Guðmundsdóttir mat mann sinn
mikils svo og tengdaforeldra sína
Guðrúnu Jónsdóttur frá Látrum á
Látraströnd og Björn Jónasson
frá Ytrahóli í Öngulstaðahreppi,
Eyjafjarðarsýslu. Þau gengu í
hjónaband 1911 og nokkru síðar
fluttu þau til Siglufjarðar þar sem
og Þórhallur og bræður hans
fæddust og ólust upp. Bjuggu þau
þar alla sína búskapartíð.
Þau fjörutíu ár, sem Hólmfríður
og Þórhallur störfuðu á Siglufirði
dreif margt á þeirra daga. Hæst
ber í mínum huga dugnað þeirra
og samheldni sem aldrei brást.
Hólmfríður sinnti ýmsum störfum
þessi ár í Siglufirði. Þau hjón ráku
m.a. um tíma Alþýðuhúsið, var
það í senn staður funda og sam-
kvæma. Snyrtimennska þeirra og
lipurð var rómuð.
Hólmfríður var eins og fyrr seg-
ir alin upp á margmennu heimili,
faðir hennar gegndi margvísleg-
um opinberum störfum fyrir sveit
sína og hérað. Af þessum sökum
komu margir að Nýjabæ.
Fyrir, um og eftir aldamótin fór
félagsbylgja um héraðið. Hólm-
fríður hreifst af henni, var félags-
lynd og áhugasöm um allar fram-
farir. Þegar hún kom til Siglu-
fjarðar tók hún fljótt þátt í félags-
störfum á staðnum. Hún átti sæti
um árabil í stjórn Verkamannafé-
lagsins Brynju, einnig átti hún
sæti í orlofsnefnd húsmæðra og
annaðist um tíma skipulagningu
orlofsferða. Eftir að Þórhallur tók
við framkvæmdastjórn Verslunar-
félags Siglufjarðar varð hún hans
önnur hönd við verslunarstörfin
og rekstur félagsins sem óx veru-
lega í höndum þeirra, þrátt fyrir
síldarleysi og síminnkandi umsvif
atvinnurekenda á þessum árum.
Mér er kunnugt um það, að þeir
Siglfirðingar sem óskuðu eftir að
vera „í reikning hjá Þórhalli", eins
og það var kallað, þurftu ekki að
biðja um það tvisvar. Aldrei neit-
aði Þórhallur nokkrum um lán.
Hafi einhver skuld tapast, sem ég
efa, hefðu þau hjón greitt fyrir-
tækinu andvirðið úr eigin vasa,
um það er ég sannfærður. Slík var
samviskusemi þeirra.
Hólmfríður studdi mann sinn í
einu og öllu svo sem hún best gat.
Einnig rétti hún mörgum öðrum
hjálpar- og vinarhönd, sem ekki
verður tíundað hér. Hún lét oft í
ljós ánægju sína yfir því að hafa
flutst til Siglufjarðar ung að árum
og yfir dvöl sinni þar í tæpa fjóra
áratugi. Þá hlakkaði hún til
Reykjavíkurdvalarinnar og að fá
tækifæri til að búa nálægt einka-
dótturinni og fjölskyldu hennar.
Þau hjón fluttu til Reykjavíkur
eins og áður segir árið 1973 og hér
var heimilið þeirra eins og í Siglu-
firði — reitur hamingju og ein-
drægni, þar sem oft voru upprifj-
uð norðlensk „minnisverð tíðindi".
Því miður varð dvöl hennar hér
skemmri en vonast var til, eða tæp
tíu ár — tíu góð ár — að vísu
þegar frá eru taldir síðustu mán-
uðirnir er hún barðist við þann
sjúkdóm sem loks lagði hana að
velli. Hólmfríður fékk að lifa rúm
sjötíu ár. Hún eignaðist á lífsleið-
inni góðan eiginmann, elskulega
dóttur, sem reyndist henni afar
vel, sem og tengdasonur hennar.
Dætur þeirra þrjár voru sannkall-
aðir sólargeislar ömmu og afa. Þá
má minnast þess, að samband
Hólmfríðar og systra hennar var
til fyrirmyndar og milli þeirra
ríkti ást, einlægni og gagnkvæm
virðing og minningu föðurins
heiðruðu þær systurnar með út-
gáfu ljóða hans, svo sem fyrr
sagði. Hólmfríður Guðmundsdótt-
ir kvaddi þennan heim með reisn,
styrk og æðrulaus, eins og farþegi
sem stígur um borð í ókunnugt
skip, í fullu trausti þess að haldið
sé til hafnar.
Þórhalli vini mínum, dóttur
hans, tengdasyni og dótturdætr-
um sendi ég og fjölskylda mín
innilegustu samúðarkveðjur.
Jón Kjartansson
+
Eiginmaður minrr, faðir okkar, tengdafaöir og afi,
HERBERT JOSEFSSON-PIETSCH,
Miðtúni 80,
verður jarösunginn frá Fossvogskirkju miövikudaginn 9. mars kl.
15 0°- Fríður Guðmundsdóttir,
Hilmar Herbertsson, Bára Björgvinsdóttir,
Hans Herbertsson, Aldfs Daníelsdóttir,
og barnabörn.
+
Útför
BJÖRNS SVEINSSONAR
frá Langholti í Meðallandi,
veröur gerö frá Skaröskirkju i Landssveit mánudaginn 7. mars kl.
13.30.
Ferö frá Umferöarmiöstööinni kl. 11 f.h. sama dag.
Vandamenn.
Félagsfundur
Skipulagsmál verkalýðshreyfingarinnar
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur almennan félagsfund um skipulagsmál verka-
lýöshreyfingarinnar þriöjudaginn 8. mars nk. aö Hótel Esju 2. hæð kl. 20.30.
Framsögumenn: Hannes Þ. Sigurðsson, varaform. VR,
Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ,
Aðalheiöur Bjarnfreösdóttir, form. Sóknar.
Fundarstjóri: Magnús L. Sveinsson.
Félagsmenn eru hvattir til þess aö mæta á fundinn og taka þátt í umræðum um þetta
þýðingarmikla mál,
VERIÐ VIRK í VR
Verzlunarmannafélaq Revkiavíkur.