Morgunblaðið - 06.03.1983, Page 37

Morgunblaðið - 06.03.1983, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MARZ 1983 37 Kveðjuorö: Hólmfríður Guðmunds- dóttir Siglufirði Það var í lok októbermánaðar sl., nánar tiltekið aðfaranótt þess 30., að Hólmfríður Guðmundsdótt- ir fyrrum húsfreyja i Siglufirði og síðar í Reykjavík andaðist hér í Landspítalanum. Fregnin um lát hennar kom fjölskyldu hennar og vinum ekki á óvart. Mánuðum saman hafði hún barist hetjulegri baráttu við sjúkdóm þann er loks leiddi hana til dauða. f þeim átök- um sýndi hún e.t.v. gleggst hvílík- um manndómi og kjarki hún var gædd. Jarðsett var hún í Reykja- vík 5. nóvember sl. Við hjónin vorum erlendis er okkur barst fregnin um andlát Hólmfríðar og við gátum ekki komið því við að fylgja henni síð- asta spölinn, þess í stað vil ég með þessum síðbúnu línum minnast hennar og votta henni þakkir og virðingu okkar, en hennar naut hún í ríkum mæli, allra er þekktu hana. Hólmfríður Guðmundsdóttir fæddist 11. apríl 1911 að Nýjabæ í Kelduhverfi. Hún var dóttir hjón- anna Guðmundar bónda og kenn- ara Guðmundssonar, Guðmunds- sonar Sveinssonar bónda á Hall- bjarnarstöðum á Tjörnesi og Guð- bjargar Ingimundardóttur hrepp- stjóra frá Brekku í Núpasveit Rafnssonar. Guðbjörg og Guðmundur gengu í hjónaband 1906 og bjuggu í Nýjabæ í 27 ár eða til 1933, en það ár andaðist Guðmundur úr lungnabólgu langt um aldur fram og varð öllum kunnugum harm- dauði. Hann var í senn góður bóndi og kennari, sautján ára gamall var hann sendur í Möðruvallaskóla, var þar í tvo vetur og útskrifaðist þaðan vorið 1898 . Guðmundur var gáfumaður og skáldmæltur vel. Á sl. ári var gefin út eftir hann kvæðabókin „Kvæði og stökur". + Eiginkona mín og móöir okkar, GUÐRÚN MARÍN GUDJÓNSDÓTTIR frá Framnesi, Vestmannaeyjum, Sporðagrunni 2, Rvk., er látin. Þóröur Guöbrandsson, Magnea Þóröardóttír, Bragi Ásbjörnsson, Haraldur Þóröarson, Guölaug Þóröardóttir, Guöbrandur Þóröarson, Guömundur Þóröarson, Katrín Þóröardóttir Wallace, Ragna Pálsdóttir, Kjartan Guöjónsson, Halldóra Siguröardóttir, Robert T. Wallace. + Frændi okkar, , VÍKINGUR SÆVAR SIGURDSSON, sem lóst 25. febrúar í sjúkrahúsi í London, veröur jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík, þriöjudaginn 8. mars kl. 1.30. Ágústa Vigfúsdóttir, Anny Halldórsdóttir. Eiginkona mín og móöir okkar, ÓLÖF SÓLEY GUOMUNDSDÓTTIR, Hraunbæ 50, er lóst 24. febrúar veröur jarösungin mánudaginn 7. mars frá Fossvogskirkju kl. 13.30. Eyjólfur Þ. Jakobsson og börn. t Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og jarö- arför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu, HREFNU JÓHANNESDÓTTUR frá Hróönýjarstööum. Hugrún Þorkelsdóttir, Jökull Sigurösson, Inga Þorkelsdóttir, Haraldur Arnarson, Valdís Þorkelsdóttir, Haraldur Guömundsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Þökkum auösýnda samúö viö fráfall og jarðarför eiginmanns míns, föður okkar, tengdafööur og afa, VALGEIRS EMILSSONAR. Steinunn Bjarnadóttir, Bjarni H. Valgeirsson, Jónborg Valgeirsdóttir, Helgi Th. Valgeirsson, Klara Sveinbjörnsdóttir, Aðalsteinn Smári Valgeirsson, Sveinhildur ísleifsdóttir, Erla Dögg Ragnarsdóttir, Magnús Helgason, Valgeir Helgason, Jóhann Steinar Helgason, ísleifur Aöalsteinsson. + Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför SÓLVEIGAR MAGNÚSDÓTTUR. Halldór Hjálmarsson, Sigþrúður Pálsdóttir, Magnús Hjálmarsson, Ragnheiöur Þóröardóttir, Ragnheiöur Hjálmarsdóttir, Höröur Felixson, Ingimar S. Hjálmarsson, Sigríöur B. Ólafsdóttir, Röfn Hjálmarsdóttir Scala, Daníel Scala, Sólveig Hjálmarsdóttir, Einar Hákonarson, Hlíf Hjálmarsdóttir, Jón Róbert Karlsson, barnabörn og barnabarnabörn. Útgefendur voru dætur skáldsins. A árunum 1907 til 1916 eignuð- ust þau hjón sex dætur, Önnu, Jó- hönnu, Hólmfríði, Guðrúnu, Birnu og Helgu. Nú hefur Hólmfríður kvatt og önnur síðar, elst þeirra systra lést föstudaginn 18. febrúar sl. sjötíu og fimm ára að aldri. Svo nú lifa eftir fjórar þeirra systra. Æskuheimili þeirra í Nýjabæ ein- kenndist af ástríki og glaðværð og minntist Hólmfríður oft þeirra hollráða — þess góða veganestis er hún fékk með sér að heiman. Árið 1932 fór Hólmfríður til Akur- eyrar og var þar við nám og störf á Hótel Guilfossi undir stjórn þeirrar merku konu Rannveigar Bjarnadóttur. Þar kynntist hún ungum Siglfirðingi, Þórhalli Björnssyni síðar framkvæmda- stjóra Verslunarfélags Siglufjarð- ar. Þau gengu í hjónaband 20. des- ember 1923 og fluttu þá til Siglu- fjarðar og bjuggu þar síðan í far- sælu hjónabandi í tæp 40 ár. Árið 1973 fluttu þau til Reykjavíkur, þar sem Þórhallur hóf störf við Tollstjóraembættið í Reykjavík. Einkadóttir þeirra, Anna Laufey, fæddist í Siglufirði, býr hún nú á Seltjarnarnesi, hún er gift Lúðvík Lúðvíkssyni hafnsögumanni. Þau eiga þrjár ungar dætur. Ég kynntist Þórhalli og fjöl- skyldu hans „snemma dags“ ef svo mætti að orði komast. Foreldrar Þórhalls voru vinir foreldra minna og allnáinn samgangur var milli heimilanna. Hólmfríður Guðmundsdóttir mat mann sinn mikils svo og tengdaforeldra sína Guðrúnu Jónsdóttur frá Látrum á Látraströnd og Björn Jónasson frá Ytrahóli í Öngulstaðahreppi, Eyjafjarðarsýslu. Þau gengu í hjónaband 1911 og nokkru síðar fluttu þau til Siglufjarðar þar sem og Þórhallur og bræður hans fæddust og ólust upp. Bjuggu þau þar alla sína búskapartíð. Þau fjörutíu ár, sem Hólmfríður og Þórhallur störfuðu á Siglufirði dreif margt á þeirra daga. Hæst ber í mínum huga dugnað þeirra og samheldni sem aldrei brást. Hólmfríður sinnti ýmsum störfum þessi ár í Siglufirði. Þau hjón ráku m.a. um tíma Alþýðuhúsið, var það í senn staður funda og sam- kvæma. Snyrtimennska þeirra og lipurð var rómuð. Hólmfríður var eins og fyrr seg- ir alin upp á margmennu heimili, faðir hennar gegndi margvísleg- um opinberum störfum fyrir sveit sína og hérað. Af þessum sökum komu margir að Nýjabæ. Fyrir, um og eftir aldamótin fór félagsbylgja um héraðið. Hólm- fríður hreifst af henni, var félags- lynd og áhugasöm um allar fram- farir. Þegar hún kom til Siglu- fjarðar tók hún fljótt þátt í félags- störfum á staðnum. Hún átti sæti um árabil í stjórn Verkamannafé- lagsins Brynju, einnig átti hún sæti í orlofsnefnd húsmæðra og annaðist um tíma skipulagningu orlofsferða. Eftir að Þórhallur tók við framkvæmdastjórn Verslunar- félags Siglufjarðar varð hún hans önnur hönd við verslunarstörfin og rekstur félagsins sem óx veru- lega í höndum þeirra, þrátt fyrir síldarleysi og síminnkandi umsvif atvinnurekenda á þessum árum. Mér er kunnugt um það, að þeir Siglfirðingar sem óskuðu eftir að vera „í reikning hjá Þórhalli", eins og það var kallað, þurftu ekki að biðja um það tvisvar. Aldrei neit- aði Þórhallur nokkrum um lán. Hafi einhver skuld tapast, sem ég efa, hefðu þau hjón greitt fyrir- tækinu andvirðið úr eigin vasa, um það er ég sannfærður. Slík var samviskusemi þeirra. Hólmfríður studdi mann sinn í einu og öllu svo sem hún best gat. Einnig rétti hún mörgum öðrum hjálpar- og vinarhönd, sem ekki verður tíundað hér. Hún lét oft í ljós ánægju sína yfir því að hafa flutst til Siglufjarðar ung að árum og yfir dvöl sinni þar í tæpa fjóra áratugi. Þá hlakkaði hún til Reykjavíkurdvalarinnar og að fá tækifæri til að búa nálægt einka- dótturinni og fjölskyldu hennar. Þau hjón fluttu til Reykjavíkur eins og áður segir árið 1973 og hér var heimilið þeirra eins og í Siglu- firði — reitur hamingju og ein- drægni, þar sem oft voru upprifj- uð norðlensk „minnisverð tíðindi". Því miður varð dvöl hennar hér skemmri en vonast var til, eða tæp tíu ár — tíu góð ár — að vísu þegar frá eru taldir síðustu mán- uðirnir er hún barðist við þann sjúkdóm sem loks lagði hana að velli. Hólmfríður fékk að lifa rúm sjötíu ár. Hún eignaðist á lífsleið- inni góðan eiginmann, elskulega dóttur, sem reyndist henni afar vel, sem og tengdasonur hennar. Dætur þeirra þrjár voru sannkall- aðir sólargeislar ömmu og afa. Þá má minnast þess, að samband Hólmfríðar og systra hennar var til fyrirmyndar og milli þeirra ríkti ást, einlægni og gagnkvæm virðing og minningu föðurins heiðruðu þær systurnar með út- gáfu ljóða hans, svo sem fyrr sagði. Hólmfríður Guðmundsdótt- ir kvaddi þennan heim með reisn, styrk og æðrulaus, eins og farþegi sem stígur um borð í ókunnugt skip, í fullu trausti þess að haldið sé til hafnar. Þórhalli vini mínum, dóttur hans, tengdasyni og dótturdætr- um sendi ég og fjölskylda mín innilegustu samúðarkveðjur. Jón Kjartansson + Eiginmaður minrr, faðir okkar, tengdafaöir og afi, HERBERT JOSEFSSON-PIETSCH, Miðtúni 80, verður jarösunginn frá Fossvogskirkju miövikudaginn 9. mars kl. 15 0°- Fríður Guðmundsdóttir, Hilmar Herbertsson, Bára Björgvinsdóttir, Hans Herbertsson, Aldfs Daníelsdóttir, og barnabörn. + Útför BJÖRNS SVEINSSONAR frá Langholti í Meðallandi, veröur gerö frá Skaröskirkju i Landssveit mánudaginn 7. mars kl. 13.30. Ferö frá Umferöarmiöstööinni kl. 11 f.h. sama dag. Vandamenn. Félagsfundur Skipulagsmál verkalýðshreyfingarinnar Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur almennan félagsfund um skipulagsmál verka- lýöshreyfingarinnar þriöjudaginn 8. mars nk. aö Hótel Esju 2. hæð kl. 20.30. Framsögumenn: Hannes Þ. Sigurðsson, varaform. VR, Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, Aðalheiöur Bjarnfreösdóttir, form. Sóknar. Fundarstjóri: Magnús L. Sveinsson. Félagsmenn eru hvattir til þess aö mæta á fundinn og taka þátt í umræðum um þetta þýðingarmikla mál, VERIÐ VIRK í VR Verzlunarmannafélaq Revkiavíkur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.