Morgunblaðið - 06.03.1983, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MARZ 1983
„Ég var alveg ótrúlega
ljótur sem unglingur“
Dustin Hoffman: „Ég þjáðist af
einhverju versta tilfelli af fíla-
penslum sem þekkst hefur í
Suður-Kaliforníu.“
— segir Dustin Hoffman, sem enn hefur
verið útnefndur til Óskarsverðlauna
Hann hefur alltaf haft ómótstædilega þörf fyrir að koma fólki úr
jafnvægi. í skólanum var hann litli óþekktarormurinn sem naut
þess að koma með grófar athugasemdir í tímum. Nú er hann í
aðstöðu til að ganga fram af öllum heiminum, — á hvíta tjaldinu,
með því að gera það sem helst ekki má nefna á nafn: að koma fram
í kvenmannsklæðum, með gervibrjóst, hárkoliu og andlitsfarða.
Dustin Hoffman hefur leikið bæði flæking og einstæðan fóður í
góðum efnum. Hann hefur leikið dreng, sem ólst upp með indíán-
um og hann hefur lent í klónum á ruddalegum þorpsbullum og
nasistum, — og hann hefur hlotið Óskarsverðlaunin fyrir kvik-
myndina „Kramer gegn Kramer“. Ef til vill er það af innri þröf
sem hann hefur valið nýjasta hlutverk sitt: Manninn sem klæðir
sig sem kona, í þessu tilfelli til að fá hlutverk í sjónvarpsþætti, en
það er einmitt það sem á sér stað í kvikmyndinni „Tootsie“, sem
nú hefur verið útnefnd til Óskarsverðlauna. Eftirfarandi viðtal við
Dustin Hoffman tók Giséle Galante og er hér þýtt úr danska
blaðinu Politiken.
Hefur þig einhvern tíma langað
til að vera kona?
„Mér finnst ég hafa verið svik-
inn um það hlutskipti að geta
alið börn eins og kona. Ég vildi
gjarnan geta orðið ófrískur, gef-
ið brjóst og notið ásta í ótak-
mörkuðum rnæli."
Þú hefur nýlega lýst því yfir að
kynlíf og heilbrigði fari saman.
Hver er þinn skilningur á heil-
brigðu kynlífi?
„Að elskast daglega. Ég er
þeirrar skoðunar að gott kynlíf
sé eins konar útvíkkun á lífi
hvers einstaklings. Það eykur
ekki aðeins hæfileikann til að
taka við ást heldur einnig hæfi-
leikann til að veita ást og um-
hyggju."
Kynlíf skiptir þig sem sagt
mikju máli?
„Ég er altekinn kynlífi. Að
þessu leyti eru karlmenn tals-
vert frábrugðnir konum. Hugs-
anir kvenna um þessi mál eru
mun innihaldsríkari. Konan
hugsar til dæmis frekar: Hvern-
ig maður er hann? Hvernig líður
honum eða hvað er hann að
hugsa? Hugsanir karlmanna
snúast hins vegar aðeins um eitt.
Þessu hefur hvergi verið betur
lýst en í myndaseríu sem Picasso
gerði skömmu áður en hann dó.
Myndirnar sýna allar konur pg
menn sem elskast. Picasso fékk
aldrei nóg af kynlífi, jafnvel ekki
eftir að hann var orðinn 92 ára
gamall. Ég er nú 45 ára og hef
heldur ekki fengið nóg af-kyn-
lífi.“
Hvernig hittir þú núverandi
konu þína Lisu (sem er 28 ára)?
„Ég hef þekkt hana síðan hún
fæddist. Með fjölskyldum okkar
var góður kunningsskaður. Hún
er lögfræðingur, en starfar ekki
við það í augnablikinu. Ég veit
ekki hvort hún fer nokkurn tíma
út í lögmannsstörf aftur. Henni
finnst gaman að umgangast
börn og er ófrísk núna.“
Þú laðast að konum sem eru
jafnokar þínir á andlega sviðinu,
konum sem örva sköpunargáfu
þína og hafa jafnframt til að bera
kyntöfra og fegurð, en ytra útlit
skipti þó minna máli en hinn innri
maður. Uppfyllir kona þín þessi
skilyrði?
„Ég er þeirrar skoðunar að
kynþokki og fegurð komi innan
frá. Það er eins og oft þegar
maður hittir fólk, — hvort held-
ur eru karlar eða konur, sem eru
mjög aðlaðandi í útliti, en um
leið og þetta fólk byrjar að tala
IM
ÍÆÐABl
mitt'
a
800
336
verður
oút>vin“"auverM.
ona Bag ð eigaaSt7
k seI° tndurte^-