Morgunblaðið - 06.03.1983, Side 36

Morgunblaðið - 06.03.1983, Side 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. MARZ 1983 MANCHESTER UNITED sér því að flöskunni og fyrr en varði var hann farinn að missa úr æfingar og koma of seint á leiki. Hann fékk áminningar fyrir aga- leysi og ósæmilega hegðun, en svo vægar vítur að það skapaði urg meðal hinna leikmannanna og skapaði leiðinlegt andrúmsloft á Old Trafford. Rétt fyrir jól kom dropinn sem fyllti mælinn; United tapaði 5—0 fyrir Crystal Palace á Selhurst Park og nokkrum dögum síðar var Frank O’Farrell rekinn og George Best settur á sölulista. Ónóg tjáskipti var vafalaust meginástæðan fyrir svo hörmu- legan árangri O’Farrell í starfi hjá United. Hann var rólyndur og tilfinningasamur maður, sem sást sjaldan í búningsherbergi leik- manna eða á þjálfarabekknum, því síður að hann spjallaði við leikmennina, helgaði sig pappírs- vinnu og skrifstofu sinni. Leik- mennirnir þekktu hann varla; og eins og Denis Law sagði: „Við þekktum hann ekki þegar hann kom og við þekktum hann heldur ekki þegar hann fór.“ Matt Busby leit hann dálítið öðrum augum: „Hann var ráðinn til að stjórna Manchester United sem vegna kaþólskra og siðferðilegra við- horfa vildi ekki eiga frekari sam- vinnu við hann eftir þetta hneyksli. Eitt var þó ekki frá honum tek- ið; hann hafði komið Manchester United á heimsmælikvarða á ný. Enn einu sinni voru fram- kvæmdastjóraskipti á Old Traf- ford og í þetta skiptið varð Dave Sexton fyrir valinu, sem var mjög ólíkur „the Doc“ hvað lundarfar og alla framkomu snerti. Fyrsta starfsár sitt sem var jafnframt hundrað ára afmælisár Manchest- er United, leiddi hann lið sitt til úrslitaleiks í bikarkeppni á Wembley, sem þeir þó biðu lægri hlut í, 3—2, gegn Arsenal. Menn bundu miklar vonir við United — bæði vegna sigursins yf- ir Liverpool á Wembley og eins vegna hinnar miklu fjárhæðar sem Dave Sexton lét í kaup á leik- mönnum: Gordon McQueen, Joe Jordan og Mike Thomas. Einnig voru Ray Wilkins og Garry Birtles keyptir til liðsins, en allt kom fyrir ekki; meistaratitilinn hlutu þeir ekki. Árið 1981 tók Ron Atkinson við blómstraði í Manchester fékk fé- lagið marga góða knattspyrnu- menn til liðs við sig hvaðanæva. Ber þar hæst bræðurna Jack og Roger Doughty. Arið 1902 var skuld félagsins himinhá og lá við gjaldþroti fé- lagsins en með aðstoð Manchester City tókst þeim að flýja slíkt hrun. Samt nam skuld félagsins 2000£, en þá tilkynnti fyrirliði keppnis- liðsins, Harry Stafford, að hann ásamt fjórum öðrum hyggðust láta 500£ hver af hendi til félags- ins. Lofsvert framtak það. Eftir að hann lauk knattspyrnuferli sínum varð hann einn af stjórnarmeð- limum félagsins. John H. Davies, einn af ofan- greindum fimm velgjörðar- mönnum félagsins var kjörinn stjórnarformaður og eftir nokkrar umræður og fjölmargar tillögur var breytt um nafn á félaginu í Manchester United. Þriója frelsishetjan Með tilkomu John H. Davies hófst fyrsta gulltímabil United; það vann FA-bikarinn 1908 og 1911 og eignaðist nýjan heimavöll: Allir sem vettlingi gátu valdið fdgnuðu hetjum Man. Utd. eftir að liðið sigraði Benfica í keppninni um Evrópumeist- aratitilinn í knattspyrnu árið 1968. Á myndinni má sjá hvar liðið kemur heim til Manchester. Mannþröngin þar var slík að 400 þurftu að fara á sjúkrahús vegna troðnings. leikmónnunum, en hann virtist einnig vilja stjórna stjórninni." Járnmaðurinn Arftaki hans var Skoti; hinn eit- ilharði og röski Tommy Docherty, sem lét manneskjuleg viðhorf og vinskap lönd og leið til að komast á topp íþróttarinnar. Undir hans stjórn breytti Old Trafford gjör- samlega um svip og líktist einna helst járnbrautarstöð; margir komu, aðallega skoskir leikmenn sem hann þekkti frá því er hann var framkvæmdastjóri skoska landsliðsins og nokkurra félaga. Docherty endurvakti baráttuvilj- ann í United og endurmótaði liðið. Hann setti leikmenn eins og Bobby Charlton, Denis Law og George Best út úr liðinu til að koma nýjum leikmönnum að sem hann hafði keypt, svo og ungum leikmönnum svo sem Brian Greenhoff, Sammy Mcllroy og Gerry Daly. Endurnýjunin á Old Trafford kostaði þá eina ferðina enn niður í 2. deild en ári síðan 1974—75 var United komið aftur „þar sem það á heima“ eins og Docherty sagði. Honum tókst þó ekki að gera félagið að enskum meistara, þó nærri lægi því tvö ár í röð komust þeir í úrslitaleikinn á Wembley ... Tveimur mánuðum síðar varð opinbert ástarsamband hans og Mary Brown, sem var móðir tveggja barna og eiginkona nudd- ara United, Laurie Brown. Doch- erty skildi við konu sína eftir 23 ára búskap og var látinn fara frá framkvæmdastjórastarfinu og virðist honum ætla að ganga betur að fullnægja kröfum hinna fjöl- mörgu áhangenda United, en þeir eru ekki einungis í Englandi, held- ur eru stuðningsmannafélög í 80 löndum, þar á meðal í Sovét- ríkjunum, Japan, Víetnam og Mexíkó. Atkinson sem hefur langa reynslu af knattspyrnumálum að baki, var leikmaður með Aston Villa, Kettering og Oxford United, framkvæmdastjóri var hann hjá Kettering, Cambridge United og West Bromwich, hóf sköpun nýs liðs og notaði meðal annars unga leikmenn úr eigin þjálfunarskóla. United í vanda Manchester United keypti leikmenn fyrir 3.290.700£ og seldi fyrir 1.155.594£, þannig í lok október mátti stjórn félagsins krafla sig út úr 2.282.000£ tapi svo og 1.366.003£ skuld. „Staða félags- ins hefur aldrei verið jafn ótraust og hún er nú,“ segir formaðurinn, Martin Edwards, „en ég er sann- færður um að við munum sigrast á vandanum." Þetta er í fyrsta skiptið frá því eftir seinni heimsstyrjöldina sem Manchester United á við fjár- hagsvandamál að stríða, hins veg- ar var slík staða algeng fyrir þann tíma. Strax árið 1878 þegar nokkr- ir starfsmenn járnbrautarstöðvar stofnuðu félagið undir nafninu Newton Heath Football Club gerðu örðugleikar við fjáröflun vart við sig. Árið 1885 var félagið orðið atvinnumannalið og iðnaður Old Trafford, sem var vígður 19. febrúar 1910 með leik á móti FC Liverpool. 50.000 áhorfendur fylgdust með sigri Liverpool, 4—3. Þetta met áhorfendafjölda var slegið 1920 þegar 70.504 áhorfend- ur sáu Manchester United og Ast- on Villa leiða saman hesta sína. Árið 1931 blasti enn eitt gjald- þrotið við félaginu, þar sem það hafði fjárfest umfram getu í nýj- um leikmönnum, án þess að sigr- arnir væru í samræmi við það eða áhangendur. John H. Davies lést árið 1927, en ekkja hans greiddi þriðja hluta skuldarinnar sem var umtalsverð upphæð. Auðugur forstjóri, James Gibson, bauðst til að greiða upp skuld félagsins og að taka að sér allan fjárhagskostnað félagsins með því skilyrði að hann einn stjórnaði félaginu. Þriggja ára fjárhagsvanda var þar með lokið en sigrarnir komu ekki; félagið hafnaði í næstneðsta sæti 2. deildar 5. maí 1934. Það sama ár munaði litlu að liðið félli niður í 3. deild, sem er einsdæmi í sögu Manchester United. Síðustu árin fyrir seinni heims- styrjöldina var liðið eins og yo-yo milli 1. deildar og 2. deildar. Komst í 1. deild 1936, féll niður næsta ár á eftir og upp í 1. deild aftur 1938. Þá skall stríðið á; Old Trafford varð fyrir spengjuárás og félagið lenti í miklum fjár- hagsvandræðum, en þegar neyðin er stærst er hjálpin oft næst og félagið fann þriðju frelsishetju sína: Matt Busby. Þakklætis-kveðja Starfsfólki og vistfólki Droplaugarstaöa svo og öllum öörum sem glöddu mig á afmælisdegi mínum 28. febrúar sl., sendi ég mínar innilegustu þakkir og kveöjur. Bergþór Vigfússon. MBRI KRAFTUR AUKIN GÆDI Lýsing Tvö stór hátalarabox með „passive radiator system" sem skilar meiri kraft og tóngæðum. Dolby Hágæða upptaka fæst með Dolby kerfinu, sem eyðir suði af upptöku. 5 skiptur tónjafnari Tónjafnarinn gerir þér kleyft að fínstilla hljóminn eftir bínum smekk. Léttrofar Tölvustýrðir léttrofar tryggja auðvelda stjórn á seg- ulbandi. Leitarkerfi Sjálfvirkur lagaleitari gerir bér kleyft að leita að lögum a spólum á einfaldan hátt. Metal upptaka og afspilun Hægt að tengja við plötusp. Hljóðblöndun 4 Bylgjur: FM-stereo, lang-, mið- og stuttbylgjur,_____________________________ FM-suðeyðir Ijós á mælaborði Ljósa stilling Kasthjólsstillingahjól Stereo - Við - rofi Stærð: breidd: 600 mm hæð: 280 mm dýpt: 165 mm verð : 10.573.- Stgr. Útb. frá 3.000.- Rest 6 mán. Skipholti 19, sími 29800

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.