Morgunblaðið - 09.03.1983, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 09.03.1983, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. MARZ 1983 35 ..Byggjum eftir efnum og ástæðum — ætlum ekki að kollkeyra okkur“ - segja Sigurjón Ingólfsson og Sigurrós Sverris- dóttir, sem eru að byggja við Foldarhraun Sigurjón Ingólfsson og Sigur- rós Sverrisdóttir í Vestmanna- eyjum eiga fjögurra herbergja íbúð í fjtílbýlishúsi við Folda- hraun. Sigurjón starfar sem skrifstofustjóri hjá Rafveitu Vestmannaeyja og Sigurrós starfar í Útvegsbankanum í Eyj- um. Þau eiga tvtí börn. Og nú ætla þau að stækka við sig og eru byrjuð á byggingu liðlega 230 m2 einbýlishúss við Smára- götu á einni og hálfri hæð með bflskúr. Sigurjón og Sigurrós tilheyra því unga fólki sem þrátt fyrir allt hefur trú á framtíðinni og telur því ekki eftir sér að hella sér út í byggingarframkvæmdir með allri þeirri vinnu og öllum þeim fórnum sem slíkri framtakssemi fylgja. Er þetta mögulegt? Hvernig þá? Þarf ekki töluverða bjartsýni til þess að ráðast í svona byggingarfram- kvæmdir við ríkjandi ástand í þjóðfélagi okkar? Þessar og fleiri spurningar komu upp þegar tíð- indamaður Morgunblaðsins hitti Sigurjón Ingólfsson að máli nú nýlega. „Þegar við hjónin komum úr skóla réðumst við í það að kaupa okkur íbúð í Verkamannabústöð- um, það var þægilegt að eignast slíkar íbúðir og þetta hentaði okkur vel þá, heldur félítil eftir skólagönguna. Við höfðum ekki hugsað okkur að búa í þessari íbúð til frambúðar heldur komast yfir eigið hús síðar meir. Við höfum síðan verið að leita eftir kaupum á húsi en það er hálfgert happdrætti að fá hús sem manni líkar. Eftir nokkra leit ákváðum við síðan að ráðast frekar í að byggja hús snið- ið eftir okkar þörfum og hug- myndum. Miðað við þær spár sem maður hefur heyrt um efnahagsástandið skal ég viðurkenna að það er erfitt að vera bjartsýnn en það hefur svo sem áður verið talað um slæmt ástand hjá okkur Islendingum en samt hefur fólk haldið áfram að byggja og dæmið gengið upp hjá flestum. Við erum ekki langt kom- in, svona rétt upp úr jörðinni og því ekki farin að horfast í augu við stærstu kostnaðarhliðina, þetta á eftir að verða þyngri róður þegar frammí sækir, við gerum okkur ljósa grein fyrir því. Við höfum ákveðið það að taka þetta frekar MorgunblaSið/Sigurgeir. Sigurjón og Sígurrós við sökklana að húsi sínu og framtíðarheimili. rólega, sníða okkur stakk eftir vexti. Menn verða að gera ein- hverjar skammtímaáætlanir og vinna eftir þeim, það er erfiðara að gera áætlanir langt fram i tím- ann eins og ástatt er., Við eigum reyndar íbúð sem stendur fyrir sínu og andvirði hennar rennur í nýja húsið þegar að því kemur að selja hana. Við erum bæði í góðum stöðum og ætl- um að nota eigið fé að mestu til þess að gera húsið fokhelt. Síðan munum við grípa til þeirra lána- möguleika sem fyrir hendi eru. Við vitum alveg hvernig kjörin eru á lánamarkaðnum og munum reyna að taka eins lítið af lánum og við mögulega getum því pen- ingarnir eru dýrir í því verðbólgu- báli sem hér snarkar. Annars ligg- ur okkur ekkert á, við eigum okkar íbúð og byggjum því eftir efnum og ástæðum, ætlum ekki að koll- keyrajjkkur á þessu. Annars verð ég að segja það, að mér finnst það ekki réttlátt að svona fasteign, sem mun ekki bara nýtast okkur heldur einnig okkar afkomendum, borgist upp á til þess að gera fáum árum eins og núgildandi lánakerfi býður upp á. Þá vil ég geta þess að húsbyggj- endur hér í Vestmannaeyjum þurfa ekki að byrja á því að snara fram stórum fúlgum í kaup á lóð- um og til greiðslu gatnagerðar- gjalda eins og sumstaðar er. Það er frumskilyrði þess að yngra fólk geti ráðið við svona framkvæmdir að bæði leggi hart að sér og eigi góða að, sem eru tilbúnir að rétta þeim hjálparhönd. Við erum kannski ekki komin það langt að við séum farin að rekast á þær hindranir sem kunna að vera í veginum en það er um að gera að ætia sér ekki um of. Þá er betra að gefa sér aðeins lengri tíma til að koma húsinu upp.“ hkj. LJÓSRITUNARVÉLAR ★ SF 750 ★ Sú smæsta á markaðinum Skilar út 10 stórkostlegum Ijósritum á mínútu — á hvaða pappír sem er — allt frá fínasta bréfsefni uppi í karton Gerð fyrir ca 8000 eintaka notkun per. mán. SF-750 Með vélinni kaupir þú fría þjónustu fyrstu 8000 eintökin. Verð aðeins kr. 58.640 Gjaldfrí | þjónusta fyrstu 10.000 eintökin ★ SF 780 ir með smækkun í megindráttum sama vélin og SF 771 auk þess er þessi vél búin tveimur smækkunarlinsum, í hlutföllunum 1:07 og 1:08 Verð: 106.920- ★ SF771 Tekur 15 eintök þr. mínútu á allan pappír m.a. glærur— karton — lögg. skjalapappír. Gerð fyrir 10.000 eintaka notkun á mánuði. Verð kr. 89.300,- Gjaldfrí þjónusta fyrstu 10.000 eintökin. i'&Tr' j Auk hinna alkunnu góðu | kjara, sem við bjóðum á g SHARP-ljósritunarvélunum bjóðum I við samning um viðhald vélanna. >Það eina sem þú þarft að gera er að hringja og panta viðgerð, og síðan greiðir þú eftir teljara sem er innbyggður í vélarnar. I þessu felst verulegur sparnaður, k þar sem þú greiðir fast gjald á eintak, y \ en ekki fullan reikning. + ULLLU^- ---- HUÐM*HEIMILIS*SKRIFSTOFUTÆKI ÍJY5R.fJ2S?TU 103 SIMI 25999 Gjaldfrí þjónusta fyrstu 20.000 eintökin ★ SF 820 með smækkun Skilar út 24 eintökum á mínútu. 2 kassettur, sem skipt er á milli með einum rofa. Gerð fyrir 20000 eint. og yfir Verð 142.800-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.