Morgunblaðið - 09.03.1983, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 09.03.1983, Blaðsíða 22
54 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. MARZ 1983 f 196? Umvrul Prm SyndiciU lo-5 5lol elclcí <xb rtokkcjr skyli Qetc*. \jerib hrœdcíur \j\& hur»oía." Sérðu nú bara, það er kominn köttur í ból bjarnar. Er besti vinur mannsins orð- inn að óæskilegu meindýri? Hundavinur skrifar: „Velvakandi! í útvarpsfréttum hinn 2. mars sl. var vikið að hundahaldi á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Kom þar m.a. fram að í því efni yrðu tökin hert til muna og reynt að framfylgja lögreglusamþykkt Reykjavíkur. Þar með getur Reykjavíkurborg státað af þeim vafasama heiðri að telja hundaeign til afbrota og glæpa, gagnstætt öðrum borgum, allavega á Norðurlöndum. Skýtur þar skökku við, að hundurinn, sem fyrr á tímum var oft nefndur besti vinur mannsins, skuli nú teljast óæskilegt meindýr í augum yfir- valda. Einnig kom fram í fyrrgreindri frétt, að ákveðinn skattur yrði lagður á hundaeigendur og þeir því gerðir að enn einni féþúfu kerfisins. Hví skyldu reykvískar fjölskyld- ur eigi hafa rétt til að veita sjálf- um sér og hundinum sínum hlut- deild í þeirri hlýju og vináttu, sem veitir hamingju og gleði í lífsins önn og streði? Nú kann að skella í gómi hjá einhverjum þröngsýnum sam- borgara eða kaldlyndum yfirvöld- um um að velvild gagnvart dýrun- um sé í því fólgin, að þau geti hlaupið um móa og mýrar úti í frjálsri náttúrunni. í því sam- bandi vil ég benda á, að hundi, sem er vel haldinn, líður best ná- lægt húsbónda sínum, þar sem klapp á kollinn og vináttu er að fá, hvort sem það er uppi í sveit eða í íbúð í Reykjavík. Ég tel einnig, að þau börn, sem ekki vaxa upp og þroskast með góðum heimilishundi, fari á mis við mikið. Traust og sönn vinátta er eigi auðfundin nú á dögum og svo mikið er víst, að vinátta hunds á sér engan líka. Til er kjörorð sem hljóðar svo: „Með lögum skal land byggja." Með þetta í huga hlýtur að vera eðlilegt að semja lög og reglur með skilningi. Ef við víkjum að umhverfismál- um, þá vita flestir sem þekkja til hunda, að þeir eru mjög meðfæri- legir í uppeldi. Það er því algjör- lega á valdi eigenda þeirra, hvort óþægindi eða óþrifnaður stafa af hundahaldinu. Þá þarf ekki að hafa áhyggjur af sjúkdómum, þeg- ar hundar eiga í hlut, ef vel er fylgst með heilsufari þeirra. Þar sem innflutningur flestra dýra er óheimill, er engin hætta á alvar- legu fári meðal hunda, svo sem hundaæði. Algert frjálsræði hundaeigenda er þó ekki rétta lausnin; reglur um þrifnað, um- gengnishætti og heilsugæslu eru ómissandi þáttur í hundahaldi. Lögum og reglum eiga ekki að- eins að fylgja kvaðir, heldur einn- ig réttindi." Vöruskortur á Flóamarkaði Velvakandi góður! Sem dýravinur gegnum tíð- ina skrifa ég þér til að biðja um aðstoð við Samband dýra- verndunarfélaganna, sem rek- ur Flóamarkað í kjallaranum í Hafnarstræti 17, hér í bænum. Þar er ástandið þannig, að vegna þess að varnings- og fatalagerinn er í lágmarki, verður þakksamlega tekið á móti hverskonar varningi, sem til fellur og heima á á slíkum markaði. Sá tími fer í hönd sem fólk kannar hirslur sínar og kemur þá oft í ljós að þar er ýmislegt sem vel yrði þegið á flóamarkað SDÍ. Allt það starf sem unnið er á vegum SDÍ er unnið í sjálf- boðavinnu og er þessi flóa- markaður helsta fjáröflunar- leiðin. Dýravinir og aðrir velunnar- ar málefnisins hafa áður, þeg- ar líkt hefur verið ástatt í markaðs- og sölumálum flóa- markaðins, hlaupið duglega undir bagga og ég vona að svo verði einnig nú. Flóamarkaður SDÍ í Hafnarstræti er opinn mánudaga — fimmtudaga kl. 14-18. Dýravinur. jr Það er stjórn SI sem ræður söngvara og hljóðfæraleikara — Athugasemd frá stjórn Sinfóníuhljómsveitar íslands Eftirfarandi hefur borist þættin- um frá stjórn Sinfóníuhljómsveitar íslands: „1 tilefni af bréfi Guðrúnar Á. Símonar, söngkonu, sem birtist í dálkum Velvakanda í Morgunblað- inu sunnudaginn 6. mars, vill stjórn Sinfóníuhljómsveitar Is- lands taka þetta fram: Það er stjórn SÍ sem ræður söngvara og hljóðfæraleikara til að koma fram á tónleikum hljómsveitarinnar. Það er allsend- is ómakleg ásökun og fjarri öllum sanni, að Sigurður Björnsson, framkvæmdastjóri hljómsveitar- innar, hafi misnotað aðstöðu sína til að „koma sér og sínum áfram“, eins og söngkonan tekur til orða. Hvorki framkvæmdastjóri né stjórn Sí geta svarað fyrir það, hvað blaðamenn birta úr viðtölum sem við þá eru höfð, og hlýtur að vera undir hælinn lagt hvort blaðamönnum sýnist þörf á að rifja upp sögulegar staðreyndir um fyrri flutning tónverka, þegar sagt er frá væntanlegum viðburð- um í tónlistarlífinu eins og flutn- ingi Sinfóníuhljómsveitarinnar á óperunni Toscu um þessar mundir. Stjórn SÍ er vel vitandi um þau grettistök sem lyft hefur verið í óperu- og öðrum tónlistarflutningi hér á landi á síðustu áratugum. Þeir sem nú eru ungir standa vissulega í mikilli þakkarskuld við það fólk sem þau afrek vann. Og stjórnin harmar það, ef frásagnir af nýjum atburðum á þessu sviði vekja óánægju og beiskju með þeim ágætu listamönnum sem brautina ruddu og eru sannarlega alls góðs maklegir. 7. mars, 1983 Stjórn Sinfóníu- hljómsveitar fslands Hákon Sigurgrímsson formaður Guðmundur Jónsson Haukur Helgason Gunnar Egilson Jón Þórarinsson.**

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.