Morgunblaðið - 09.03.1983, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. MARZ 1983
39
Þjónustuhöfnum
Eimskips hefur
fjölgað undanfarið
UM ÁRABIL hefur Eimskip rekið
þjónustuhafnir í samvinnu við um-
boðsmenn sína í Bretlandi. Hér er
um að ræða vörumóttökustöðvar,
þar sem umboðsmenn taka á móti
vöru, aðstoða viðskiptamenn við
að fylla út öll farmskjöl og tryggja
þannig sem einfaidasta flutninga-
þjónustu. Þessar hafnir þjóna ekki
cingöngu innflytjendum, því ís-
lenskir útflytjendur eiga með
þessu móti kost á að koma vöru
sinni sem næst viðskiptavinum
sínum á sem lægstum tilkostnaði.
Fjórar þjónustuhafnir eru nú í
rekstri í Bretlandi; í London,
Birmingham, Leeds og Hull. Þær
eru í tengslum við vikulegar ferðir
frá Felixstowe, en auk þess hafa
skip félagsins komið við í Weston
Point hálfsmánaðarlega.
Þessar upplýsingar koma
fram í síðasta fréttabréfi Eim-
skips. Þar segir ennfremur:
Viðskiptavinum Eimskips er
nú boðið upp á vikulega flutn-
inga frá þjónustuhöfnum félags-
ins í Dublin og Belfast á frlandi.
Vikulegar ferðir eru auk þess
frá Helsinki í Finnlandi. Á síð-
astliðnu hausti var opnuð ný
þjónustuhöfn í Mílanó á Ítalíu.
Viðskiptamenn Eimskips geta
tekið á móti vöru þar, eða afhent
hana, og er hún síðan sett í
gáma og flutt til íslands um
Rotterdam. Þar var nýlega
opnuð markaðsskrifstofa Eim-
skips, þar sem viðskipta-
mönnum er veitt ráðgjöf um
flutninga á meginlandinu.
Starfsmenn skrifstofunnar þar
eru auk þess að kanna hinar
ýmsu leiðir, sem til greina koma
til lækkunar á heildarflutn-
ingskostnaði.
I öllum þessum þjónustuhöfn-
um er um að ræða vikulega
flutninga og flutningstími til Is-
lands er um það bil 10 dagar.
Flutningar þessir eru ekki ein-
göngu bundnir við gámavöru,
heldur er hér um að ræða al-
hliða flutningaþjónustu á
stykkjavöru.
gildi ríkisframlaga
ÞETTA línurit um breytingar á raungildi ríkisframlaga til nokkurra mála-
flokka samkvæmt fjárlögum hvers ár, er aó finna í skýrslu fjármálaráðherra
um ríkisfjármála á árinu 1982. Eins og sjá má hefur heldur hallað undan fæti
hjá fjárfestingarlánasjóðunum, en Byggingarsjóður verkamanna hefur tekið
kipp upp á við.
Hagnaður ASEA
jókst um 53%
á síðasta ári
Sala fyrirtækisins jókst um 34,6%
og verðmæti pantana um 56,5%
TAISMAÐUR ASEA, sænska stór-
fyrirtækisins, sagði nýlega á blaða-
mannafundi, að hagnaður fyrirtækis-
ins fyrir skatta hefði verið um 53%
meiri á síðasta ári en hann var á
árinu 1981, en hann væri liðlega 1,3
milljarðar sænskra króna.
Hagnaður fyrirtækisins á hlut
er nú um 1,35 dollarar, en var til
samanburðar um 1,08 dollarar á
árinu 1981.
Sala fyrirtækisins var 3,5 millj-
arðar dollara á síðasta ári borið
saman við 2,6 milljarða dollara á
árinu 1981. Aukningin milli ára er
því liðlega 34,6%. Pantanir fyrir-
tækisins frá viðskiptamönnum á
árinu 1982 voru að verðmæti um
3,6 milljarðar dollara, borið sam-
an við 2,3 milljarða dollara á ár-
inu 1981. Aukningin milli ára er
því liðlega 56,5%.
Gausdal 1983,
3. pistill
Blómaskeið byrjunar
Ef þú, lesandi góður, vilt finna
skák með kóngsbragði þá ættir
þú að leita í gömlum bókum, sem
hafa að geyma skákir frá liðnum
öldum. Blómaskeið kóngsbragðs-
ins er nefnilega löngu liðið. Hins
vegar eru aðrar byrjanir komnar
á vinsældalistann í staðinn. Sem
dæmi má nefna Semi-Tarrasch,
sem Karl Þorsteins bregður fyrir
sig í skákinni hér á eftir.
Hvítt: Daniel King
Svart: Karl Þorsteins
Semi-Tarrasch
1. c4 — Rf6, 2. Rf3 — e6, 3. g3 —
c5, 4. Bg2 — Rc6, 5. 0-0 — Be7, 6.
d4 — d5, 7. cxd5 — Rxd5. Eftir 7.
— exd5 er fram komin Tarr-
asch-vörn. Á undanförnum árum
hefur svörtum reynst betur að
drepa með riddara á d5 en peði
hvernig sem á því stendur. Vin-
sældir Semi-Tarrasch hafa því
aukist um allan helming og virð-
ast ekki í rénun. Byrjunin er í
tísku. 8. Rc3 — 0-0, 9. Rxd5 —
exd5, 10. dxc5 — Bxc5. Svartur
hefur stakt peð á d5, en í staðinn
verða brátt allir menn hans
virkir. 11. Bf4? Leikið án
markmiðs. Rökrétt var 11. b3
ásamt 12. Bb2. 11. — Bf5,12. Hcl
— Bb6, 13. Rel — Be4, 14. Rd3 —
De7,15. a3 — Hfe8,16. Hel — a5.
Svartur hindrar hvítan í að
stækka yfirráðasvæði sitt með
17. b4. 17. Db3 — Ba7, 18. Dc3 —
Rd4, 19. Be5 — Rc6, 20. Bf4 —
Bd4. Karl hefur mjög þægilega
stöðu, og því freistar hans ekki
að þráleika. 21. Dd2 — h6, 22. h4
Skák
Guðmundur Sigurjónsson
— f6! Nú vofir 23. — Bxg2, 24.
Kxg2 — g5 yfir. 23. h5 — Bb6, 24.
Be3 — d4, 25. Bf4. Hvítur veit
ekki sitt rjúkandi ráð, en svartur
bætir hins vegar stöðu sína með
hverjum leik. 25. — Bxg2, 26.
Kxg2 — Df7, 27. Hhl - Dd5+,
28.f3 — He7, 29. g4 — Hae8.
Svartur er kominn með yfir-
burðatafl. 30. Hc2 — a4! Rýmir
a5-reitinn. 31. Bg3 — Db3, 32.
Hfl — Ra5. Góður leikur, en
tæplega var hægt að gagnrýna
32. — Dxc2, 33. Dxc2 — Hxe2+.
33. Rcl — De6, 34. Dd3 — Rb3,
35. Rxb3 — Dxb3, 36. Kf2? Lengri
mótspyrnu veitti 36. Hf2 — He3,
37. Dxb3 — Hxb3 (hótun 38. —
d3), 38. Hfl - Hbe3, 39. Hf2 -
He3-e6 (hótun 40. — d3), og veik-
leikinn á e2 verður hvítum að
aldurtila.
8 H
7 jp + H ±
6 m m * ±
5 m £
4 m m tiiit
3 4* #■ £ A
2 48 4®
1 Íp 'M,; s
abcdefgh
36. — Dcx2! Þar féll hrókur í val-
inn og King gafst því upp. En
hver er þessi Daniel King kann
einhver að spyrja? Því er til að
svara, að þessi alþjóðlegi meist-
ari er einn af efnilegustu skák-
mönnum Englands, og hann varð
t.d. fimmti á Evrópumeistara-
móti unglinga í Groningen um
síðustu áramót.
Skákmótinu í Gausdal lauk
þannig, að Kudrin, Margeir og
de Firmian urðu allir jafnir og
efstir með sex vinninga af níu
mögulegum. Margeir tefldi vel
og er skák hans við Wedberg
gott dæmi um það. Hálfum vinn-
ingi neðar kemur höfundur
þessa pistils ásamt Ögaard,
Karlsson, Wedberg, Ornstein,
Binham og King. Karl Þorsteins
fékk fjóra og hálfan vinning og
áfanga að FIDE-meistaratitli í
kaupbæti, en Sævar Bjarnason
þrjá og hálfan vinning.
Þetta var tuttugasta og þriðja
alþjóðlega skákmótið í Gausdal.
Arnold Eikrem hafði allan veg
og vanda að því eins og fyrr og
fórst honum allt vel úr hendi.
Þetta var enn ein rósin í yfirfullt
hnappagatið. Og hér með lýk ég
þessum síðasta pistli frá Gaus-
dal.
Það besta
Laila er vandaö leöursett bólstraö á níösterkar límtrésgrindur —
dökkar eöa Ijósar. Leöur í háum gæöaklassa. 3ja sæta sófi lengd
185 cm.
MUNDU AÐ KAUPA PAÐ BESTA.
PAÐ B0RGAR SIG TIL LENGDAR.
BÍSIIHNIBÖLLIN
BÍLDSHÖFÐA 20 - 110 REYKJAVÍK S 91-81199 og 81410